Þjóðviljinn - 20.12.1985, Síða 16
Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími:81663.
DJOÐVIUINN
Föstudagur 20. desember 1985 294. tölublað 50. örgangur.
Menntamálráðuneytið
Þjóðarbókhlaða 5 milj.
Mjólkurstöð 110 milj.
Sverrir Hermannsson: Reyfarakaup ogeinstök
heppni. Enginnþrýstingur á mig hvorki íríkisstjórn
né frá bændum. Kaupin á Víðishúsinu voru
skammsýni
Gagnrýni hefur komið fram á
þá ákvörðun Sverris Her-
mannssonar menntamálaráð-
herra að kaupa Mjókurstöðina
undir Þjóðskjalasafn Islands.
Bæði efast menn um ágæti þess-
ara húsakynna, sem sniðin eru að
þörfum mjólkurframleiðslu,
fyrir vörslu og úrvinnslu þjóðsk-
jala og eins gagnrýna menn að
aðeins skuli veitt 5 miljónum
króna til Þjóðarbókhlöðu-bygg-
ingarinnar fyrst hægt er að veita
110 miljónir í kaup á mjólkur-
stöðvarhúsi.
Sverrir Hermannsson var
inntur álits á þessari gagnrýni í
gær. Hann sagði hana ekki rétt-
mæta. Hér væri um reyfarakaup
að ræða og einstaka heppni að fá
þetta húsnæði til að leysa
neyðarástand það sem Þjóð-
skjalasafnið býr við.
Hann var þá spurður hvort ein-
hver þrýstingur hefði komið fram
á hann að kaupa húsið, frá bænd-
um eða fulltrúum þeirra í ríkis-
stjórn, þar sem erfiðlega hefði
gengið að selja húsið til þessa.
„Ekki orð í mín eyru, hvorki
frá bændum né innan ríkisstjórn-
arinar“.
Þú líkir þessu þá ekki sainan
við kaupin á Víðishúsinu hér um
árið?
„Fjarri lagi. Ég skal játa að
kaupin á Víðishúsinu á sínum
tíma voru skammsýni. Hvort ég
ætli að selja það? Ég veit það ekki
enn. Ég ætla að skoða húsið ná-
kvæmlega á Þorláksmessu og sjá
hvort hægt er að nýta það, en
margir efast um að það sé hægt“,
sagði Sverrir. Þá var hann spurð-
ur hvort ekki hefði verið hægt að
taka 110 milj. kr. lán og veita í
Þjóðarbókhlöðuna í stað þess að
kaupa mjólkurstöð. „Hvar á að
fá það lán?“, spurði ráðherra.
Ríkisskuldabréf, svaraði blaða-
maður. Ég mun kynna hugmikla
áætlun um Þjóðarbókhlöðuna
eftir áramótin, svaraði ráðherra.
- S.dór.
Reykjavík
Stjómin tekur 265 miljónir
Sigurjón Pétursson: Jólakveðja stjórnarinnar. Gjöldífjárhagsáœtlun 4,2 miljarðar. Engar launahœkkanir
Það er alveg augljóst að þessi
fjárhagsáætlun á eftir að
breytast mikið áður en hún kem-
ur til afgreiðslu. Þar nægir að
nefna að í fjárlögum alþingis er
aðeins gert ráð fyrir 42,9 mi|jón-
um króna til framkvæmda á veg-
um Reykjavíkurborgar, en í þess-
ari áætlun er gert ráð fyrir 108,2
miyónum þaðan, sagði Sigurjón
Péturssan borgarfulltrúi Abl. i
samtali viS Þjóðviljann í gær.
Fjárhagsáætlun Reykjavíkur-
borgar fyrir árið 1986 var tekin til
fyrri umræðu í gærkvöldi, en hún
verður endanlega afgreidd í janú-
ar. Borgarstjóri mælti fyrir frum-
varpinu, en síðan fjölluðu fulltrú-
ar minnihlutaflokkanna um það.
Sigurjón Pétursson sagði í gær
að það sem hann kallaði jóla-
kveðju ríkisstjórnarinnar til íbúa
Reykjavíkur skerti tekjur borg-
arinnar um 265 miljónir króna.
Sigurjón hefur reiknað út að mið-
að við framreiknaða áætlun fyrir
1982 ættu tekjur af gatnaðgerð-
argjöldum að vera 184 miljónir
króna en í fjárhagsáætlun 1986 er
aðeins reiknað með 107 miljón-
um í gatnagerðargjöldum. Þetta,
segir Sigurjón, stafar af þeim
vanda sem ríkisstjórnin hefur
skapað húsbyggjendum sem hef-
ur leitt til þess að mun minna er
byggt en áður. Framlög úr jöfn-
unarsjóði sveitarfélaga er nú 270
miljónir en ef sömu framlög á
áætlun 1982 eru framreiknuð
samkvæmt byggingarvísitölu er
þar um að ræða 393 miljónir, mis-
munurinn er 123 miljónir. Þess
má geta að borgarstjórn samþyk-
kti í gær að mótmæla árásum
stjórnarinnar á jöfnunarsjóð
sveitarfélaga. Niðurskurður á
framlögum ríkissjóðs til fram-
kvæmda er 65,3 miljónir þannig
að alls kostar jólakveðjan um
265,3 miljónir.
Heildarútgjöld borgarinnar á
næsta ári eru talin verða 4,2 milj-
arða króna, en það vekur sérs-
taka athygli að í áætluninni er
ekki gert ráð fyrir neinum
kauphækkunum.
-gg
Verktakafyrirtækið Hagvirki
hefur gert stjórn Verkamanna-
bústaða í Hafnarfirði tilboð um
að þeir kaupi 16 íbúðir í fjölbýlis-
húsi sem Hagvirki er að byggja
við klaustrið í Hafnarfirði.
Kauptilboð þetta er nú til umfjöll-
unar hjá húsnæðisstjórn varð-
andi fjármögnun úr byggingar-
sjóði verkamanna, en bæjarráð
Hafnarfjarðar hefur fyrir sitt
leyti lýst áhuga á þessum
kaupum.
Tilboð Hagvirkis kemur til
vegna þess að erfiðlega hefur
gengið að selja þessar íbúðir og
samkvæmt heimildum Þjóðvilj-
ans eru Verkamannabústöðum
boðnar íbúðirnar á „góðurn"
kjörum.
Grétar Þorleifsson formaður
stjórnar Verkamannabústaða
sagði í samtali við Þjóðviljann í
gær að lítið væri hægt að segja að
svo stöddu, menn biðu ákvörð-
unar Húsnæðismálastjórnar sem
tekur málið fyrir í dag. Vilyrði
væri fyrir byggingu 40 félagslegra
íbúða í Hafnarfirði á þessu ári,
aðeins hluti þeirra væri kominn af
stað en tugir íbúða enn á teikni-
borðinu vegna þess hve erfiðlega
gengi að fjármagna byrjunarf-
ramkvæmdir og hönnunarvinnu.
Því væri góður kostur að geta
fengið þessar íbúðir nú en mikill
skortur væri á félagslegum íbúð-
um í bænum. - lg.
Árni Einarsson verslunarstjóri Máls og menningar: Salan er jafnari en í fyrra og krítarkortin hafa tekið völdin. Mynd: Sig.
Jólabókaflóðið
Mestu bokajol i aratug
Árni Einarsson í Máli og menningu: Gífurleg aukning
Sala bóka hefur gengið mjög vel
það sem af er, ég held þetta
verði mestu bókajól undanfar-
inna tíu ára, það er gífurleg
aukning frá í fyrra, sagði Árni
Einarsson verslunarstjóri í Bóka-
búð Máls og menningar þegar
Þjóðviljinn spurði hann um jóla-
bókasöluna í gær.
„Ég kann nú ekki að útskýra
það upp á hár hvers vegna fólk
kaupir frekar bækur nú en und-
anfarin ár, en við höfum tekið
eftir því að það er minna fundið
að verði bóka nú en áður og ég
held að fólki finnist bækur ekki
dýrar jólagjafir miðað við margt
annað.
Það er einnig athyglisvert ef
við höldum áfram að bera saman,
að salan er miklu jafnari nú en
t.d. í fyrra þegar ein bók bar af í
sölu. Nú erum við með tiltölulega
margar bækur í mjög góðri sölu.
Ég hef trú á að best seldu bæk-
urnar muni seljast í fjögur til sex
þúsund eintökum", sagði Árni.
Það hefur mikið verið rætt um
hlut greiðslukorta í jólakaupun-
um og Árni hafði tölur um það.
„Notkun kortanna tók mikið
stökk þegar nýtt tímabil hófst á
miðvikudaginn. Á þriðjudaginn
hafði notkun korta verið um
13%, en hoppaði í 45% á mið-
vikudaginn, og þetta á enn eftir
að aukast“.
Og hver er svo hátíðisdagur
sölumanna?
„Þorláksmessan, það er enginn
vafi, þá verður gífurlegt áhlaup.
Ætli salan á Þorláksmessu sé ekki
um 7% af ársveltu bókabúða",
sagði Árni.
-gg-
Hafnarfjörður
Hagvirki biðlar til Verkó
Hagvirki vill selja 16 íbúðir sem eru ísmíðum til verkamannabústaða í Hafnarfirði.
Sölutregða á almennum markaði. Húsnœðisstjórn og bœjarráð með málið til afgreiðslu.
Mikill skortur á verkamannabústöðum í bænum