Þjóðviljinn - 31.01.1986, Blaðsíða 3
FRETTIR
Lánasjóður
Sverrir að draga í land
Menntamálaráðherra sakaður umþekkingarleysi oggerrœðisleg vinnubrögð.
Sverrir Hcrmannsson mennta-
máiaráðherra dró mjög úr
hugmyndum sínum um breyting-
ar á lögum um Lánasjóð náms-
manna þegar hann svaraði raeðu
Steingríms J. Sigfússonar þing-
manns Alþýðubandalagsins við
utandagskrárumræður á alþingi í
gær.
Sverrir talaði þar um að að-
eins væri um að ræða frumdrög
sem ekki hafi enn komið fyrir
sjónir félaga hans í Sjálfstæðis-
flokknum, sem þrátt fyrir það
hafa veist að Sverri í fjölmiðlum,
til að mynda Davíð Oddsson
borgarstjóri sem hefur gefið í
skyn að Sverrir kunni að kok-
gleypa þetta allt saman aftur.
Sverrir mátti sæta hörðurn á-
sökunum í umræðunum í gær,
bæði frá stjórnarandstæðingum
og samherjum í ríkisstjórn.
Steingrímur J. Sigfússon taldi að
Sverrir hefði enga þekkingu á
viðfangsefni sínu og aðför Sverris
að LÍN og starfsfólki hans væri
forkastanleg af hálfu ráðherra,
en þó dæmigerð fyrir Sverri.
Benti Steingrímur á að þegar
núgildandi lánakerfi varð til hafi
legið að baki gífurlegur undir-
búningur, en nú virtist sem Sverr-
ir ætlaði að setja fram hugmyndir
sem væru svo lítt grundaðar að
með endemum væri.
Ingvar Gíslason þingmaður
Framsóknarflokksins og stuðn-
ingsmaður stjórnarinnar
gagnrýndi Sverri harðlega fyrir
að hafa ekki haft ininnsta samráð
við Framsóknarmenn við undir-
búning aðgerða sinna. Ingvar
sagði að honum virtist sem Sverr-
ir væri eitthvað að draga í land
með hugmyndir sínar vegna and-
stöðu í eigin flokki og hvatti hann
til að gera það, enda væri hann
efnislega á villigötum. bá benti
Ingvar á að þessar hugmyndir
ráðherrans ættu sér enga stoð í
stjórnarsáttmála flokkanna. Ing-
var sagði ennfremur að hann teldi
núgildandi lánakerfi gott og gilt
og hafnaði öllum hugmyndum
um rniklar breytingar á því.
Guðmundur Einarsson BJ hóf
mál sitt á því að líkja Sverri við
vestrakappann John Wayne. Wa-
yne þessi hafi átt sér kjörorð sem
Sverrir virtist hafa tekið upp hjá
sér, það er að skjóta fyrst og
hugsa svo. Slík væru vinnubrögð
Sverris varðandi málefni LÍN.
Kristín Halldórsdóttir,
Kvennalista, gagnrýndi Sverri
fyrir aðför hans að sjóðnum og
gerræðisleg vinnubrögð hans.
Fjölmargir þingmenn aðrir tóku
til máls í gær og Sverrir fékk
ádrepur fyrir margra hluta sakir.
Umrætt frumvarp Sverris er
enn í startholum í menntamála-
ráðuneytinu, en verður að öllum
líkindum lagt fyrir stjórnarflokk-
ana innan skamms. Ef marka má
ummæli Ingvars Gíslasonar og
fleiri þingmanna Framsóknar-
flokksins verður að gera ráð fyrir
að það taki nokkrum breytingum
í meðförum þingflokkanna.
Einnig hefur heyrst um andófs-
raddir í röðum Sjálfstæðis-
flokksins. ~ S8-
Ríkismat
Fjallganga
Sex íslendingar
klífa Himalaya
Sex einstaklingar fara 1987 og 1990 til Kína og
Tíbet. Komast ekkifyrrþar semfjöllin eru
upppöntuð fram að þeim tíma
Eg held mér sé óhætt að segja að
þetta sé viðamesta fjallganga
sem íslenskir fjallgöngumenn
hafa ráðist í, sagði Ari Trausti
Guðmundsson, einn af fjórum
meðlimum í Alpaklúbbnum sem
ætla að klífa tvö fjöll í Kína og
Tíbet á næstu árum.
Ráðgert er að sex manna
leiðangur haldi héðan til Kína
snemma sumars 1987 en eftir er
að velja tvo. Þá á að glíma við
rúmlega 7500 metra háan fjall-
garð skammt frá Pamír fjöllum
þar sem gamla verslunarleiðin
liggur milli Pakistans og Kína.
Fjallið sem þá verður klifið heitir
Kongur Tiube og er 7595 metra
hátt.
Síðari leiðangurinn sem þeir
félagar fara hefst vorið 1990. Þá
er takmarkið að komast upp á 14.
hæsta fjall jarðar, báknið Sisap-
angma sem er rétt norðan við
Everest fjall. Sisapangma er 8046
metrar á hæð.
Þegar þeir félagar voru spurðir
hvers vegna svo langt væri þar til
þeir færu sögðu þeir að fjöllin
væru „upptekin“ fram að þeim
tíma.
„Stjórnvöld bera vissa ábyrgð
á þeim sem klífa fjöllin og vilja
ekki að of margir séu þarna, einn-
ig vilja þeir að kínverskir fjall-
göngumenn hafi góðan aðgang
að þessum fjöllum", sagði Ari
Trausti.
Islendingarnir sem ætla sér á fjöll í Kína og Tíbet, (f.v.): Ari Trausti Guðmundsson, Hermann Valsson, Árni Árnason og
Höskuldur Gylfason. Það er eftir að velja tvo til viðbótar í hópinn. Mynd: Sig.
Hann sagði að það þyrfti að
borga svonefnt tindagjald sem
væri 30.000 kr. á hvert fjall.
„Þetta lýsir því, held ég, hvað
kostnaðurinn verður gífurlegur",
sagði hann. „Kostnaður við fyrri
leiðangurinn verður rúm ein
milljón króna og við ætlum að
reyna að safna sem mestu fé með
fulltingi einstaklinga, fyrirtækja
og stofnana. Við ætluni einnig að
reyna nýjar leiðir, t.d. að bjóðast
til að fara með sérstök póstkort
sem fólk hefur keypt og senda
þau frá Himalaya fjöllum." - IH.
Rækjumálið enn í hnút
Rœkjufarmur Frostah.f. innsiglaður á Súðavík. Pétur Geir Helgason enn að störfumþrátt
fyrir ósk hans um að verða leysturfrá. Ríkismatinu heimilt að svipta Frosta h.f. vinnsluleyfi
Deilan sem reis upp í vetur milli
þcirra Halldórs Árnasonar
fiskmatsstjóra og Péturs Geirs
Helgasonar fulltrúa frá ísafírði
hefur enn ekki verið leyst og hefur
Halldór neitað að verða við
beiðni Péturs um að hann yrði
leystur frá störfum þar til málið
leysist.
Forsaga þessa máls er sú að í
júlí í fyrra var rækjufarmur frá
Frosta h.f. á Súðavík dæmdur
óhæfur til útflutnings. Eigandi
farmsins sætti sig ekki við þann
úrskurð og fór fram á að fram færi
endurmat, sem varð í desember.
Pétur Geir sem er yfirmaður
rækjumatsmanna á landinu ætl-
aði þá að vera viðstaddur matið,
en hagsmunaaðilum tókst með
tilstilli fiskmatsstjóra að koma í
veg fyrir það. Þótti Pétri sér þá
misboðið í starfi og fór fram á að
hann yrði leystur frá störfum.
Það hefur Halldór Árnason ekki
tekið til greina.
Áformað var að mál þetta
kæmi til umsagnar fiskmatsráðs,
en ekki hefur enn orðið úr því.
Heimildir Þjóðviljans herma að
eigandi Frosta h.f. hafi farið fram
á að sjóða áðurnefndan rækju-
farm niður en farmurinn er enn
innsiglaður á Súðavík.
Það vekur athygli að í 11. grein
reglugerðar um fyrirkomulag
mats og eftirlits með sjávarafurð-
um til útflutnings segir að Ríkis-
mati sjávarafurða sé heimilt að
svipta framleiðanda vinnsluleyfi
sýni hann vítaverða meðferð á
hráefni eða komi gallar í Ijós í
afurðum hans. Ekki mun hafa
komið til tals að svipa Frosta h.f.
vinnuleyfi.
-gg
Flugumferðarstjórar
Truflanir
á innan-
lands-
flugi
Mjög miklar truflanir urðu á
öllu áætlunarflugi innanlands í
gær vegna þess að bara þrír af níu
flugumferðarstjórum, sem áttu
að vera á vakt, mættu um morg-
uninn. Lá allt innanlandsflug
niðri þar til birti, en þá var
ákveðið að fljúga sjónflug í stað
blindflugs eins og venjan er í áætl-
unarflugi.
Sex flugumferðarstjórar til-
kynntu veikindi í gærmorgun og
þar sem yfirvinnubann el hjá
þeim var enginn tilbúinn að
hlaupa í skarðið. Þetta varð til
þess að Flugleiðir flugu aðeins
fjórar áætlunarferðir í stað ellefu.
Flugumferðarstjórar hafa ver-
ið kvaddir á fund til samgöngu-
málaráðherra í dag til að ræða
mál, en engir fundir hafa verið
með þeim og flugmálastjóra í
viku tíma.
-Sáf
Hafnarfjörður
Fullt hjá heimilislæknum
100 fjölskyldur ábiðlista. Ofmikið álag á heimilislœknum. Dregistað
koma upp varanlegu húsnœði fyrir heilsugœslu íHafnarfirði
Heimilislæknar í Hafnarfirði
taka ekki við fleiri skjólstæð-
ingum og verða því nýir íbúar í
Hafnarfirði að vera án heimilis-
lækna. Þegar munu um 100 fjöl-
skyldur vera án heimilislæknis,
sem vitað er um, en jafnframt má
gera ráð fyrir að þó nokkrar fjöl-
skyldur hafi ekki tilkynnt um bú-
ferlaflutninga tii sjúkrasamlags-
ins.
Jóhann Ágúst Sigurðsson, hér-
aðslæknir í Hafnarfirði, sagði við
Þjóðviljann að sex heimilislækn-
ar væru starfandi í Hafnarfirði og
væru sumir þessara lækna með
allt að 3000 skjólstæðinga, sem er
langt yfir þeim mörkum sem þeir
ráða við.
Heilsugæslustöðin er til húsa
yfir Sparisjóði Hafnarfjarðar og
er öll aðstaða mjög þröng og
slæm, það er því enginn mögu-
leiki á að fjölga heimilislæknun-
um.
Sagði Jóhann að mjög hefði
dregist að koma upp varanlegri
aðstöðu fyrir heilsugæslu í Hafn-
arfirði. Hefur þegar verið steypt
plata fyrir stöðina við Sólvang en
vegna einhverrar tregðu í ríkis-
geiranum hefur ekkert orðið úr
framkvæmdum. Áætlaður kostn-
aður við næsta áfanga heilsu-
gæslustöðvarinnar er um 18 milj-
ónir króna og eru þegar um 9
miljónir fyrir hendi. Hefur verið
talað um að ljúka við byggingu
stöðvarinnar á árinu 1987 en eins-
og nú horfir bendir ekkert til að
svo verði.
Þeir sem eru án heimilislæknis í
Hafnarfirði munu fá læknishjálp
hjá þeim læknum sem vinna við
heilsugæslustöðina í neyðartil-
fellum.
-Sáf
ÞJÖÐVILJINN - SÍÐA 3