Þjóðviljinn - 18.02.1986, Qupperneq 9

Þjóðviljinn - 18.02.1986, Qupperneq 9
HEIMURINN Vestur-Þýskaland Kanslarinn fyrir rétt Helmut Kohl, kanslari Vestur-Þýskalands fœr á sig málssókn Bonn - Opinberir saksóknarar í Koblenz í Vestur-Þýskalandi sögðu í gær að þeir ætluðu að hefja málssókn gegn kanslara Vestur-Þýskalands, Helmut Kohl. Saksóknarinn, Hans Seeliger, sagði fréttamönnum að málaferl- in væru byggð á ákærum Otto Schili, leiðtoga Græningjasam- takanna. Ákæran var á þá leið að Kohl hefði borið ljúgvitni í júlí síðastliðnum þegar þingnefnd í Mainz spurði hann út úr um mútur til flokks hans. Suður-Kórea Andófsmaður laus Seoul - Einn helsti andófsmað- ur Suður-Kóreu, Kim Young- Sam, var í gær leystur úr stof- ufangelsi sem hann var settur í til að hindra það að hann kæm- ist á fund með ieiðtogum í stjórnarandstöðunni í Suður- Kóreu. Young-Sam átti að vera í for- svari á fundinum þar sem ætlunin var að fjalla um hvernig ætti að bregðast við þeirri herferð sem ríkisstjórnin hóf gegn undir- skriftasöfnun sem stjórnarand- stæðingar hafa skipulagt. Ætlun- in var að safna 10 milljónum undirskrifta við áskorun til stjórnvalda um að haldnar yrðu beinar forsetakosningar í Suður- Kóreu. Young-Sam hafði verið í haldi í 11 klukkustundir þegar hann var leystur úr haldi. Á meðan hafði lögreglan handtekið um það bil 100 stjórnmálamenn úr stjórnar- andstöðunni í herferð sinni gegn undirskriftasöfnuninni. í Suð- ur-Kóreu eru tveir stórir stjórn- arandstöðuflokkar, Nýi kórean- ski lýðræðisflokkurinn (NKPD) og Ráð til framdráttar lýðræði (CPD). í þessum flokkum eru foringjar þeir Kom Dae-Jung og Kim Young-Sam. í síðustu viku fengu þeir 200 leiðtoga í stjórnar- andstöðunni til að skrifa undir áskorunina þrátt fyrir aðvörun stjórnvalda um að þeir sem skrif- uðu undir þessa áskorun ættu á hættu að verða dæmdir í allt að sjö ára fangelsi. Portúgal Soares vann Lissabon - Mario Soares vann forsetakosningarnar í Por- túgal um helgina og er því fyrsti forsetinn í 60 ár sem kemur úr röðum óbreyttra borgara. Hann hafði þó aðeins 150.632 atkvæði fram yfir mótframbjóð- anda sinn, Diego Freitas Do Ám- aral. En Soares sem hefur þríveg- is áður verið forsætisráðherra landsins náði sér hins vegar mjög vel á strik eftir að flokkur hans tapaði stórt í kosningum til þings í október síðastliðnum. „Ég verð forseti allra Portúg- ala, óháð pólitískum skoðunum þeirra, ég mun tryggja öllum sama rétt,“ sagði Soares m.a. í sigurræðu sinni í gærkvöldi. Soares mun sverja embættiseið sinn í næsta mánuði. Þetta er í fyrsta skipti í meira en 20 ár sem atferli kanslara er rannsakað af opinberum sak- sóknara. Kohl neitaði í gær þeim sökum sem á hann eru bornar og sagði að hann myndi mæta þess- ari málshöfðun „með jafnaðar- gleði." í yfirlýsingu sem talsmað- ur kanslarans afhenti, sagði Kohi að hann hefði komist að því í fréttum að það ætti að sækja hann til saka fyrir að hafa borið ljúg- vitni. Kohl sagði í tilkynningunni að hann hefði engar áhyggjur þar eð hann hefði svarað spurningum þeim sem lagðar hefðu verið fyrir hann eftir bestu samvisku og í góðri trú. Kohl kom fyrir þingnefndina í tengslum við Flick hneykslið svo- nefnda en þar komu ásakanir um að margir flokkar í Vestur- Þýskalandi hafi fengið fé fyrir að sjá til þess að fyrirtæki fengju skattaafslátt. Sumir fréttaskýr- endur í Vestur-Þýskalandi hafa sagt að mál eins og Flick hneykslið hafi gert almenning að nokkru leyti ónæman fyrir mál- um sem þessum og því geti þau komið Kohl vel gagnvart kjós- endum, þar sem þeir kippi sér ekki lengur upp við slík málaferli eins og Kohl á nú fyrir höndum. Þessi málssókn kemur á slæm- um tíma fyrir Kohl því nú eru 11 mánuðir til næstu þingkosninga og ekki er ólíklegt talið, að þá verði mál Kohls í brennidepli. Nokkrir fulltrúar í flokki Kohls, CPU, sögðu um helgina í viðtali v'ið þýska vikuritið Der Spiegel að þeir teldu ólíklegt að flokkur- inn gæti farið út í kosningabar- áttu undir forystu Kohls ef hann stæði í málaferlum um sama leyti. Aquino leggur línurnar. Filippseyjar Aquino lét Habib heyra það Fulltrúi Bandaríkjaforseta áfundum með Aquino, Marcos ogfulltrúum kirkjunnar Manila - Sérstakur erindreki stjórnar Ronalds Reagans, bandaríkjaforseta, fékk orð í eyra frá Corazon Aquino þegar hann ræddi við hana í gær. Ha- bib ræddi einnig við Marcos, nýyfirlýstan forseta Filipps- eyja og leiðtoga kirkjunnar, Sin kardinála. Stuðningsmenn Aquino svör- uðu kalli hennar um að fólk ætti ekki viðskipti við fyrirtæki í eigu Marcosfjölskyldunnar og vina hennar, margir drógu peninga út úr sjö bönkum sem Aquino hafði sagt að væru í eigu „hyskis Marc- osar“. Þá féllu einnig hlutabréf í bjór- og matargerðarfyrirtækinu San Miguel en Aquino hefur mjög beint skeytum sínum að því. Marcos sagðist eftir fund sinn með Habib, viss um að Habib væri ekki í Manila til þess að skipta sér af málefnum Filippsey- inga og að Habib ætlaði ekki að draga ákveðnar ályktanir af því hvernig kosningarnar hefðu farið fram. Yfirmaður herafla Filipps- eyja, Fidel Ramos hershöfðingi sem tók í dag við af Fabian Ver, lét það verða sitt fyrsta verk að afturkalla allt herlið frá Antique héraði en þar var einn helsti kosningastjóri Aquino, Evelio Javier, skotinn til bana í síðustu viku. Fabian Ver var sakaður um að hafa átt þátt í morðinu á Ben- igno Aquino. Kirkjuleiðtogar hafa undan- farið stutt mjög við bakið á Aqu- ino. Ricardo Vidal, kardináli sagði hins vegar í gær að það væri hans álit að borgaraleg óhlýðni ætti að verða síðasta ráðið þegar öll önnur friðsamleg meðul hefðu brugðist. Aquino hefur einmitt hvatt til aðgerða af þessu tagi. Marcos hefur sagst munu taka hart á því ef fólk neitar að borga skattana sína og þeim nunnum og prestum og öðrum sem hvetja til ofbeldis. Þetta gerðist líka. Líbanon gær mikla ■ ísraelsmenn hófu í sókn inn í Suður- Líbanon með aðstoð skriðdreka og þyrluhersveita á eftir skæru- liðum sem drápu og særðu nokkra ísraelsmenn. Frakkar og Bandaríkjamenn hamast nú við það að lýsa því yfir að þeir vilji ails ekki hafa „Baby Doc“ Duvalier og hans lið innan landamæra sinna. Hann er nú í Frakklandi en Frakkar sögðu í gær að það væri skylda Banda- ríkjamanna að taka við honum ef þeir finna honum ekki dvalarstað einhversstaðar á jarðarkringl- unni. Vín - Austurrískir læknar börðust í gær við að bjarga lífi átta íranskra hermanna sem flogið hafði verið með til Vínar eftir að hafa lent í árásum íraka sem nú eru ásakaðir um að notast við efnavopn í stríði sínu við írana. Mitterand Frakklandsforseti opnaði í gær með pompi og pragt ráðstefnu frönskumælandi ríkja og svæða í Versölum. Þetta mun eiga að vera svar Frakka við hin- um enskumælandi samveldis- löndum. Moskva - Sovéski blaðamað- urinn Viktor Louis sagði í gær að sovéski andófsmaðurinn Yelena Bonner, eiginkona Andrei Sakharofs, sem fór til Bandaríkj- anna í desember síðastliðnum til þess að gangast undir læknisað- gerð, hefði fengið dvalarleyfi sínu í Bandaríkjunum framlengt í þrjá mánuði. Róm - ítölsk fjölskylda sem er orðin leið á lífinu á vesturlöndum hefur sótt um leyfi til að flytjast búferlum til Sovétríkjanna. Filippo Favoino og kona hans, Rita sögðu í viðtali við ítalska dagblaðið Corriere Della Sera að þau hefðu skrifað sovéska sendi- ráðinu í Róm og spurst fyrir um það hvort þau og þrjár dætur þeirra gætu fengið að fara til So- vétríkjanna og búa þar til fram- búðar. Favoino hjónin sögðust vilja flytjast þangað vegna þess að þar myndu þau búa í minna húsi, þeim yrði úthlutuð vinna af ríkinu og þau fengju frí frá auglýsingaflóðinu. I blaðinu segir að sovéska sendiráðið hafi enn ekki svarað bréfinu. IH/reuter ERLENDAR FRÉTTIR INGÓLFUR /Dcn-rrn HJÖRLEIFSSON RtU ICK Chad Frakkar á leiðinni París - Franska stjórnin til- kynnti í dag að hún myndi auka Ghaddafy. Skæruliðarnir gerðu það... mjög hernaðarstuðning sinn við Chad m.a. með her- mönnum eftir að Líbýumenn gerðu loftárás á höfuðborg Chad í gær. Varnarmálaráðherra Frakk- lands, Paul Quiles sagði að Frakkar myndu ekki svara Líbýu- mönnum í sömu mynt heldur auka við herafla Chadmanna, þar á meðal með því að senda þeim orrustuþotur. „Við eigum ekki í stríði við neinn. Við höfum að- eins svarað kalli stjórnarinnar í Chad um aðstoð til þess að geta svarað árásum. Quiles neitaði að svara því hversu margir hermenn yrðu sendir til Chad. Franska blaðið Le Monde sagði hins vegar í gær að það gætu orðið allt að 1.300 manns sem yrðu sendir til Chad. Líbýumenn sögðu í gær að það hefðu verið skæruliðar í Chad sem hefðu gert árásirnar í gær með aðstoð Líbýuumanna. Árás- in hefði að sögn skæruliða verið gerð til að hefna fyrir sprengjuár- ásina sem Frakkar gerðu á her- flugvöll í norðurhluta landsins í fyrradag. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.