Þjóðviljinn - 05.04.1986, Qupperneq 4

Þjóðviljinn - 05.04.1986, Qupperneq 4
LEIÐARI Isinn bratinn í Bolungarvík Sú var tíð að atvinnurekendavaldið í Bolungarvík var alræmt fyrir þótta gagnvart verkalýðshreyfingu - og enn svíður það mörgum launamanni í sinni, að verkalýðsleiðtoginn Hannibal Valdimarsson var fluttur í böndum frá Bolungarvík fyrír réttlætisbaráttu sína. Engum er alls varnað og úr Bolungarvík berast nú þau tíðindi að verkalýðsfélagið og bæjarstjórnin hafi gert með sér sögulegt samkomulag um 30 þúsund króna lágmarkslaun fyrir ófaglært verkafólk. Þetta samkomulag var gert af samninganefnd verkalýð- sfélagsins á staðnum og bæjarstjórnarinnar, - og síðan staðfest af bæjarstjórninni. Óneitanlega vekur það athygli að meðal aðstand- enda þessa samnings eru landskunnir oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokksins og Al- þýðuflokksins. í samninganefndinni átti sæti fyrir hönd bæjarins Benedikt Kristjánsson fyrir Fram- sóknarflokk,- og Ólafur Kristjánsson forseti bæjar- stjórnar fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Af hálfu verkalýð- sfélagsins leiddi samkomulagið Karvel Pálmason alþingismaður og miðstjórnarmaður í ASÍ. Áður en kom til kasta bæjarstjórnarinnar í Bolung- arvík í fyrrakvöld komu vomur á fjóra bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins og þeir báru fram tillögu um að fresta samkomulaginu. En bæjarfulltrúar Alþýðu- bandalagsins, Framsóknarflokks og jafnaðarmanna stóðu við það, þannig að tillagan um frestun var felld með 5 atkvæðum gegn fjórum. Þegarsvo samkomu- lagið var borið undir atkvæði var það samþykkt af öllum níu bæjarfulltrúunum í Bolungarvík. Það er langt síðan slíkur ís var brotinn í Bolungarvík. Samkomulagið náði til ófaglærðra starfsmanna bæjarins, leikskólans og sjúkrahússins. Þegar samkomulagið hafði verið staðfest í bæjarstjórninni, var til viðbótar samþykkt tillaga frá Kristni Gunn- arssyni bæjarfulltrúa Alþýðubandalagsins um að samkomulagið næði til allra starfsmanna bæjarins, - einnig BSRB-manna. Og það var einnig samþykkt samhljóða. Samkomulagið gerir ráð fyrir að frá 1. apríl bætist 3000 krónur á mánaðarlaun fyrir dagvinnu - og síð- an sama upphæð í hverjum mánuði, þannig að í síðasta lagi 1. september verða lágmarkslaunin komin uppí 30 þúsund krónur fyrir dagvinnuna. Vakt- Endurgreiösla - í umræðu á alþingi um húsnæðismál í byrjun þessarar viku reyndi Þorsteinn Pálsson fjármála- ráðherra að skella skuldinni af misgengi launa og lána áfyrri ríkisstjórn. Hann talaði einsog hann hefði gleymt þeirri lykilákvörðun eigin rikisstjórnar í júní 1983 að kippa burtu verðtryggingu launanna. Svavar Gestsson formaður Alþýðubandalagsins sagði á þingi af þessu tilefni: „Ég tel að ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að höggva á launavísitöluna 1983 en láta lánskjaravísitöluna vaða áfram, hafi verið hreint siðleysi - og það sé í rauninni ekkert annað boðiegt í þeim efnum en að alþingi og ríkisstjórnin taki í þessum efnum ákvörðun um aálag, bónus og aðrar álagsgreiðslur haldast með öllu óskertar. „Hér hefur skapast gott fordæmi," segir Kristinn Gunnarsson bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsins og formaður Verslunarmannafélagsins í Bolungarvík í viðtali við Þjóðviljann í dag. Og þetta samkomulag er ekki aðeins fordæmi fyrir og við aðra atvinnurekend- ur í Bolungarvík heldur önnur bæjarfélög, aðra landsmenn. Baráttumenn eru ekki lengur fluttir í böndum frá Bolungarvík, - þar í bæ gefa allra flokka menn tóninn fyrir aðra landsmenn. Það er þíða í Bolungarvík - og ísinn brotinn. skylda alþingis að endurgreiða eitthvað af þeim pinklum sem menn urðu að taka á sig eftir breytingarnar á árinu 1983.“ Þorsteinn Pálsson formaður Sjálfstæðisflokks- ins rís ekki undir skyldu sinni. Svavar benti á að byrðin liggi enn á fólkinu. Það er kjarni málsins, hvenær sem þessi byrði hafi orðið, þá sé alþingi skylt að létta þá byrði, „vegna þess að það var tekin ákvörðun um hana á alþingi.“ Svavar benti á að þarmeð gætu hvorki ráðherrar né þingmenn skotið sér undan verkefnum eða skyldu sinni í þessu efni. DJOÐVIUINN Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis og verkalýðshreyfingar Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans. Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson. Ritstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson. . Fréttastjóri: Valþór Hlöðversson. Blaðamenn: GarðarGuðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing- ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Frið- þjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson. Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar. Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson. Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason. Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir. Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson. Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson. Útbreiðslustjóri: Sigríður Pétursdóttir. Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir. Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga Clausen. Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir. Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð. Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir. Afgreiðslustjóri: Baldur Jónasson. Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir. Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson. Útkeyrsla, afgreiðsla, auglýsingar, ritstjórn: Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333. Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf. Prentun: Blaðaprent hf. Verð í lausasölu: 40 kr. Helgarblöð: 45 kr. Áskriftarverð á mánuðí: 450 kr. 4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. apríl 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.