Þjóðviljinn - 05.04.1986, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 05.04.1986, Blaðsíða 6
I Körfubolti Tíustig Péturs Pétur Guðmundsson skoraði 10 stig og tók 9 fráköst fyrir Los Angeles Lakers þegar liðið vann Sacramento Kings 135-105 í bandarísku NBA-deildinni í fyrrakvöld. Pétur lék hálfan leik- inn, sem er það mesta hjá honum til þessa hjá féiaginu, og allt bend- ir til þess að Lakers framlengi samninginn við hans út vorið. —VS Körfubolti Unglingar í Frans Unglingalandslið íslands tekur þátt í Evrópukeppninni sem hefst í Frakklandi á mánudaginn. Leikið verður við Finna, Svía, Dani og Frakka. í íslenska liðinu eru Magnús Matthíasson (Rice University), Jón Þór Gunnarsson (Haukum), Guðmundur Braga- son (Grindavík), Jón Örn Guð- mundsson (ÍR), Kristinn Einars- son (UMFN), Teitur Örlygsson (UMFN), Ólafur Gottskálksson (IBK), Jóhannes Sveinsson (ÍR), Guðjón Skúlason (ÍBK) og Magn- ús Guðfmnsson (ÍBK). Þjálfari er Jón Sigurðsson. Þingvallagangan Gengið á morgun Hin árlega Þingvallaganga, 42 km skíðamaraþon, fer fram á morgun, sunnudag. Að vanda er gengið frá Hveradölum tii Þing- valla en þeir sem ekki treysta sér svo langt geta gengið 21 km, frá Hveradölum til Nesjavalla. Rúta flytur keppendur til baka til Hveradala frá báðum endastöðv- um. Gangan hefst kl. 12 á hádegi en skráning verður í Hveradölum frá kl. 11. Þátttökugjald er 500 krónur. Körfubolti Cibona meistari Cibona Zagreb frá Júgóslavíu varð í fyrrakvöld Evrópumeistari í körfuknattleik. Cibona vann Zhalgiris Kaunas frá Sovétríkj- unum (Lithauen) í úrslitaleik í Búdapest, 94-82. Cibona var betri aðilinn allan tímann og eftir að hinn 21 árs gamli og 2,18 m hái Aruydas Sa- bonis hjá Zhalgiris var rekinn af leikvelli fyrir að slá mótherja var sigurinn i höfn. —VS/Reuter Knattspyrna Eder rekinn! Eder, hinn snjalli, örvfætti og skotharði leikmaður, hefur verið rekinn úr landsliðshópi Brasilíu- manna. Hann gaf mótherja á kjaftinn í vináttulandsleik gegn Perú fyrir nokkrum dögum og var rekinn af leikvelli fyrir vikið og nú hefur það kostað hann landsliðssætið. Sidney, annar landsliðsmaður, fékk að fjúka um leið og Eder. Hann hafði hundsað ráðleggingar læknis og hafið æfingar eftir meiðsli mun fyrr en æskilegt var. —VS/Reuter Suður-Kórea Mikill undirbúningur en augljósir veikleikar Undankeppnin auðveld. Nœgirpeningar, snjallir leikmenn, atvinnumennska í þrjú ár Þjóðviljinn mun næstu vikurnar kynna nokkrar þeirra þjóða sem taka þátt í lokakeppni HM í knattspyrnu í Mexíkó í sumar. Valdar hafa verið úr þær þjóðir sem minnst eru þekktar í knattspyrnu- heiminum og í dag er byrjað á Suður-Kóreu. Jón E. Haraldsson, kennari á ísafirði, er höfundur greinanna. Lee Tae-Ho, einn snjallasti knattspyrnumaður í Asíu. Miklar efnahagslegar framfarir síðustu ár, hafa gert það að verk- um, að í Suður-Kóreu eru nú meiri peningar í umferð en nokkru sinni fyrr. Þetta hefur m.a. leitt til þess, að fyrir þremur árum tóku Suður-Kóreumenn upp atvinnumennsku í knatt- spyrnu. Það eitt er þó ekki nóg til þess að setja samasemmerki á. milli Suður-Kóreumanna og Evr- ópu og Suður-Ameríkumanna á knattspyrnusviðinu. Síðast tóku Suður-Kóreumenn þátt í loka- keppni HM í Sviss, fyrir 32 árum, við lítinn orðstír, en nú eru breyttir tímar. Landsliðið hefur aldrei haft betri aðstæður til undirbúnings í nokkurri keppni. Nóg er til af peningum. Fáeinir leikmenn eru af alþjóðlegum klassa, en spurningin er hvort þetta sé nóg til að ná árangri, því veikleikarnir eru líka nokkuð augljósir. Suður-Kóreumenn unnu sjö leiki af átta í sínum riðli í undan- keppni HM, en það segir okkur í sjálfu sér ákaflega lítið um styrk- leika þeirra, þar sem styrkleiki andstæðinganna var ekkert til að hrópa húrra fyrir, og engum er það betur ljóst en Suður- Kóreumönnum sjálfum að und- ankeppnin var hreinasti barna- leikur miðað við það að þurfa að mæta Argentínu, Ítalíu og Búlg- aríu í lokakeppninni. Sem fyrr segir er þetta í annað skipti, sem Suður-Kórea tekur þátt í lokakeppni HM og vonandi hljóta þeir betri örlög nú en í Sviss 1954, þegar þeir töpuðu 0-9 fyrir Ungverjalandi, og 0-7 fyrir Tyrkjum. Það er reyndar hægt að afsaka þessi úrslit á margan hátt. Styrjöld hafði geisað í landinu, og því síðan skipt í 2 hluta, og Kóre- önsk knattspyrna hafði heldur engan veginn slitið barns- skónum, að minnsta kosti ekki í alþjóðlegum keppnum. Þess vegna vakti það gífurlega athygli, þegar Norður-Kóreumenn að- eins 12 árum seinna tóku þátt í lokakeppninni á Englandi, og komust í undanúrslit. Síðan hefur lítið sem ekkert heyrst frá knatt- spyrnumönnum frá Norður- Kóreu, en Suður-Kóreumenn eru smátt og smátt byrjaðir að vekja á sér athygli, sem að líklega orsakast af áður nefndum fram- förum í efnahagslífinu. Margir knattspyrnuáhuga- menn hafa á undanförnum árum líkt Suður-Kóreu við Júgóslavíu, hvað varðar útflutning á knatt- spyrnumönnum. Ekkert annað land í allri Asíu framleiðir, ef svo má segja, eins marga hæfileika- menn í knattspyrnu, og leggur sig jafnframt eftir að flytja þá út til annarra landa. Þessi fótbolta- pólitík hefur gert Suður-Kóreu að stórveldi á knattspyrnusviðinu í Asíu. Hingað til hafa Suður- Kóreumenn þó ekki haft árangur sem erfiði, í lokakeppninni um Asíubikarinn í Singapore fyrir rúmlega ári síðan varð Suður- Kórea í 5. og síöasta sæti í sínum riðli, og úrslit í alþjóðlegum mótum hafa ekki beinlínis verið Suður-Kóreu í hag á undanförn- um árum. Það má því draga þá ályktun, að hin sálfræðilega hlið þjálfunarinnar verði aðalverk- efni landsliðsþjálfarans, hins 42 ára gamla Kim Jung-Nam, fram að lokakeppni. Af augljósum ástæðum er Suður-Kórea undir gífurlegum bandarískum áhrifum, og það er erfitt að dæma um hvort knatt- spyrna getur kallast þjóðaríþrótt. Rétt eins og í Japan er hornabolti geysilega vinsæll, og knattspyrn- an er í 2.-3. sæti, þó hafa Suður- Kóreumenn haft meistaramót í knattspyrnu síðustu 40 ár, og bikarmót síðustu 30 ár. Þangað til fyrir fáum árum síð- an var knattspyrnuiðkun hrein áhugamennska í Suður-Kóreu, og bestu liðin komu frá hernum og háskólunum, og einstaka frá stórum fyrirtækjum. En 1980 myndaði hópur einhvers konar trúarofstækismanna, með hjálp milljónera nokkurs, fyrsta at- vinnuknattspyrnufélagið, og fékk það nafnið Hallelujah. Þremur árum seinna fylgdi knattspyrnusambandið K.F.A. eftir. Síðan ’83 hafa verið í landinu 6 atvinnufélög, sem að bandarískri fyrirmynd hafa hlotið nöfn eins og Elephants, Tigers, Eagles o.s.frv. Mótin hafa að undanförnu verið með misjöfnu sniði, en í hitteðfyrra byrjaði nokkurs konar úrvalsdeild, þar sem þessi 6 félög ásamt einu her- liði og einu bankaliði, kepptu með sér í 3 umferðum. A síðasta ári dvöldu landsliðs- menn langtímum saman í æfinga- búðum og tóku því ekki þátt í deildakeppninni. Þetta varð til þess að knattspyrnan þótti ekki eins góð og áður og ennfremur söknuðu margir átrúnaðargoða sinna. Afleiðingarnar urðu fækk- un áhorfenda úr ca 20.000 að meðaltali á leik ’84 í 7.000 ’85. Margra mánaða dvöl landsliðs- efnanna í æfingabúðunum í Teinung var því fremur óvinsæl meðal ráðamanna í félögunum, en þetta var vilji forseta knatt- spyrnusambandsins. Sá heitir Choi Soon Young og er nógu voldugur til að fá vilja sínum framgengt bæði hvað þetta varð- ar og líka til að útvega peninga til þess að gefa landsliðinu kost á eins góðum undirbúningi og hægt er að hugsa sér. Riðlakeppnin var Suður- Kóreumönnum ekki erfið. Þeir lentu í undirriðli A í Asíuriðli 3 ásamt Nepal og Malaysíu. Suður- Kórea tapaði reyndar 0-1 í Kuala Lumpur gegn Malaysíu en vann hina 3 leikina án þess að fá á sig mark. í annarri umferð lentu Suður-Kóreumenn á móti Indó- nesíu'. Þeir unnu 2-0 heima í Seo- ul, og sýndu síðan muninn á lið- unum með því að vinna 4-1 í Djakarta, þrátt fyrir að hið tróp- íska loftslag væri þeim framandi. Nú voru menn klárir í úrslita- leikina við Japan. Fyrri leikinn vann Suður-Kórea á Ólympíu- leikvanginum í Tókíó 2-1, og það neyddi japanska landsliðsþjálfar- ann Takaji Mori til að setja sókn- arknattspyrnu á dagskrá í seinni leiknum í Seoul. Á hinum nýja, súperflotta, tilvonandi ólympíul- eikvangi í Seoul, í nærveru 70.000 áhorfenda, léku menn yfirvegaða varnarknattspyrnu og beittu skyndisóknum. Ein slík bar ár- angur á 62. mínútu, þegar mið- vallarleikmaðurinn Huh Jung Moo skoraði eina mark leiksins, eftir að ein aðalstjarnan Choi Soon Ho hafði átt skot í stöng. Japanir voru sem sé engin veruleg . ógnun og Suður- Kóreumenn voru búnir að tryggja sér farseðil til Mexíkó. Öll þjóðin fagnaði og knattspyrn- usérfræðingar um heim allan urðu að fara að setja sig inn í knattspyrnu í Suður-Kóreu. P.H. Hansen skrifar í T.b. að hann hafi fyrir 2 árum séð Hallel- ujah spila í Hong Kong og kom honum mjög á óvart hversu hraða knattspyrnu liðið lék, þótt þeir hefðu hafið leikinn með fremur rólegri bænastund, sem einnig vakti honum furðu. En hröð knattspyrna og knattmeð- ferð í góðu lagi voru einkenni liðsmanna. Suður-kóreanska landsliðið er mjög agað lið sem spilar hraðan teknískan fótbolta, en taktískt eiga þeir það sammerkt með öðr- um knattspyrnumönnum frá Asíu, að vera fremur lélegir. Alla vega ef miðað er við landslið Evr- ópulanda. Því til stuðnings má nefna að hinn 24 ára gamli miðvallarleik- maður, Lee Tae-Ho frá Daewoo Royals, er af mörgum talinn einn besti leikmaður álfunnar, en samt sem áður telja flestir máls- metandi menn, sem þekkja suður-kóreanska landsliðið að það vanti fyrst og fremst mann á miðjuna sem geti sett sóknir í gang. Vörnin er engan veginn fullkomin og markamðurinn Cho Beyung-Duk frá Hallelujah er í snotru meðallagi. Stjarna landsliðsins er áður- nefndur Choi 23 ára, 185 cm. framherji frá Járn- og stálfyrirt- ækjafélaginu Dolphins í Pohang. Hann er af suður-kóreönskum íþróttafréttamönnum álitinn langbesti knattspyrnumaður í landinu fyrr og síðar, og. er talið líklegt að hann fái samningstil- boð frá Evrópu eftir HM. Þegar hafa nokkur félög sýnt áhuga. En það er nú svo að einn maður er ekki nóg í knattspyrnulið og það er mögulegt að Suður- Kóreumenn sæki Cha Bum Kun til Þýskalands, en þar hefur hann leikið við góðan orðstír síðan ’78. Það er að vísu ekki siður Suður- Kóreumanna að sækja „útlend- inga“ fyrir mikilvæga leiki, en málið hlýtur að vera í íhugun hjá Kim þjálfara, þó ekki væri nema vegna þekkingar og reynslu Cha af evrópskri knattspyrnu. Auk þess er Cha liðtækur á miðjunni þótt hann sé fyrst og fremst sókn- armaður. Það er augljóst að það má ekki búast við miklu af Suður-Kóreu á HM. Þrátt fyrir mikinn og dýran undirbúning er hæpið að reikna með að þeir komist í milliriðla en einmitt vegna góðs undirbúnings eiga þeir að geta mætt með sam- stillt lið til Mexíkó, og hafi þeir trú á sjálfum sér þá liggja mögu- leikar þeirra í því að hin liðin van- meti þá - og þá gæti allt hugsan- legt gerst. 6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 5. apríl 1986

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.