Þjóðviljinn - 01.05.1986, Blaðsíða 3
______________FRETTIR
Hólabrekkuskóli
íþróttir á hrakhólum
2500 undirskriftir til borgarráðs: Skorum á borgarstjórn að hefjast handa við
byggingu íþróttahúss við Hólabrekkuskóla. Jón Sigurðsson: Ástandið óviðunandi
Við teljumástandið í íþrótta-
rnálum skólans algjörlega ó-
viðunandi og því höfum við
skorað á borgarstjórn að þegar
verði hafist handa við að undir-
búa byggingu íþróttahúss við
Hólabrekkuskóla, sagði Jón Sig-
urðsson formaður Foreldra- og
kennarafélags Hólabrekkuskóla í
Reykjavík í samtali við Þjóðvilj-
ann 1 gær.
Félagið hefur sent borgarráði
nær 2600 undirskriftir foreldra,
nemenda og kennara við skólann
þar sem farið er fram á byggingu
íþróttahúss. Borgarráð fjallaði
um málið í vikunni, en vísaði því
til fræðsluráðs.
Hólabrekkuskóli hefur ekki
yfir að ráða neinu húsnæði til
íþróttakennslu. Þetta er einn
stærstu grunnskóla landsins en
nemendur sækja íþróttakennslu
að sögn Jóns í íþróttahús Fella-
skóla. Þar standa skólanum til
boða afgangstímar, sem nýtast
illa og eru dæmi þess að heilu ár-
gangarnir njóti ekki íþrótta-
kennslu.
f undirbúningi er að byggja
íþróttahús við Fjölbrautaskóla
Breiðholts og er gert ráð fyrir að
Hólabrekkuskóli nýti það hús að
einhverju leyti. Foreldrar og
kennarar telja það hins vegar
ekki heppilega lausn, en leggja
þess í stað til að byggt verði lítið
íþróttahús við Hólabrekkuskóla
undir leikfimikennslu.
-gg
1. maí
ÆFAB
styður
samtök
kvenna
Æskulýðsfylking Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík og Verkalýðs-
málanefnd hafa sent frá sér svo-
hljóðandi fréttatilkynningu:
„Sameiginlegur fundur Verkalýðs-
málanefndar og Æskulýðsfylkingar-
innar í Reykjavík styðja fund Sam-
taka kvenna á vinnumarkaði 1. maí
og kröfur þeirra. Við hvetjum félaga
Alþýðubandalagsins til að taka þátt í
fundinum og sýna þannig í verki and-
stöðu við nýgerða fátækrasamninga
verkalýðssamtakanna.“
-gg
Hrefna og Halla frá Hvammstanga drógu út vinningsnúmerin í blaðberahapp-
drætti Þjóðviljans. Ljósm. Sig.
Þjóðviljinn
Blaðberar til
Danmerkur
Blaðberahappdrætti Þjóðvilj-
ans hefur staðið yfir í vetur og í
gær voru dregnir út 5 vinningar,
vikuferð í sumarhúsum í Dan-
mörku á vegum Samvinnuferða-
Landsýnar og Þjóðviljans.
Það voru tvær blómarósir í
starfskynningu hér á blaðinu sem
drógu út vinningsnúmerin. Þessi
númer hlutu vinning: 16, 40, 364,
584 og 674. Lagt verður af stað til
sumarhúsanna í Karlslunde, rétt
hjá Kaupmannahöfn 13. júní í
sumar og komið heim aftur 20.
júní. Þeir heppnu blaðberar sem
hafa ofangreind númer undir
höndum eru beðnir um að snúa
sér til afgreiðslu Þjóðviljans.
Sleipnir
Verkfall
í dag
Engin árangur varð af sátta-
fundi Bifreiðastjórafélagsins
Sleipnis og Félags sérleyfishafa í
gær og skall tveggja daga verkfall
langferðabílstjóra á á miðnætti í
nótti. Engin tilboð komu fram í
gær og að sögn Daníels Óskars-
sonar formanns Sleipnis halda
langferðabílstjórar fast við kröf-
ur sínar um leiðréttingu á launum
til samræmis við laun steypubfl-
stjóra. -gg
Geislavarnir/Landlæknir
Ferðamenn
ekki í hættu
Eftir kjarnorkuslysið í Sovétríkj-
unum hcfur orðið vart aukinnar
geislavirkni í mörgum löndum m.a.
Finnlandi, Svíþjóð, Noregi og Dan-
mörku.
Veðurskilyrði hafa verið þannig,
að geislun hefur ekki borist hingað til
lands. Geislavarnir ríkisins fylgjast
gaumgæfilega með gangi mála hjá
systurstofnunum sínum á Norður-
löndum.
Vegna margra fyrirspurna vilja
Geislavarnir ríkisins og Landlæknir
taka eftirfarandi fram:
1. Ferðamenn sem koma frá Norður-
löndum eru ekki taldir í hættu vegna
áhrifa aukinnar geislavirkni og því
ekki þörf á sérstökum aðgerðum eftir
dvöl í þessum löndum.
2. Ferðamenn sem hyggja á ferð til
þessara landa á næstunni þurfa því
ekki að breyta áformum sínum vegna
slyssins. Sú tímabundna aukning á
geislavirkni sem mælst hefur er langt
undir hættumörkum.
Geislavarnir ríkisins,
Lnadlæknir
SOVETRIKIN
Sovétríkin - Ferðir alli árið. - Hag-
kvæmar og ódýrar ferðir um Kaup-
mannahöfn. Flogið með Flugleíðum og
Aeroflot.
Fðrðasknfstofa
KJAJPtTANS
HELGASONAJR
Gnoðavog 44 - 104 Reykjavik - Simi 91-68 62 55
Sovétríkin eru strærsta rlki veraldar,
22,4 milljónir ferkrti. og næt yfir 11 tima-
belti. Par búa 270 milljónir manna sem
teljast til yfir 100 þjóðema.
Sovétrfkin eru 15 sjaifstjörnarlýðveldí
sem mynda sambandsríki. Rússneska
er aðalmálið, en auk jiess eru töluð og
rituð upp undir 200 tungumál í sam-
bandsríkinu.
Sovétrikin eru eitt vlðlendasta ríki ver-
aldar og nær yfir fiest gróðurbelti jarðar
á norðurhvelí. Hitastig og náttúra eru þvi
æði mísjöfn.
Ti! Sovétríkjanna er krafist vegabréfs
og áritunar, sem hægt er að fá i Reykja-
vík hafi ferði verið pöntuð og ákveðin.
I Sovétrikjunum er gjaldeyririnn rúbla
sem í eru 100 kópekar. Gengi njblu er
ekki skráð á ísiandi, en gera má ráð fyrir
að henm svipi mjög ti! bandarikjadals
I Sovétrikjunum gildir erlendur gjald-
miðill yfirleitt á hótelum. enda hægt
að skipta honum þar. Gæta skal þess
að skipta ekkl miklu hverju sinni, Ekki
má fara með rússneskan gjaldeyri úr
landi.
í Sovétrikjunum eru gððarsamgöngur,
með Aeroflot, sem fiýgur um þver og
endilöng Sovétrikin, eri jafnframt ti! um
100 landa i flestum álfum og er stærsta
flugfélag i veröldínni.
í Sovétríkjunum fara samgörtgur á
landi. ám, vötnum og sjó fram með við-
tæku neti, sovésku járnbrautunum.
SZD, Sovtransauto, langferðabílum og
Morpasflot sem er skipafélag þeirra.
Við bjóðum 35 ferðir tíl Sovétríkjanna
auk þriggja sérhannaðra baðstrandar-
ferða. - Það er ekki tengi flogið frá
Kaupmannahöfn til Moskvu.