Þjóðviljinn - 01.05.1986, Síða 15

Þjóðviljinn - 01.05.1986, Síða 15
ÍÞRÓTTIR Bikarúrslitaleikurinn Víkingsseiglan er söm við sig Víkingar íslands- og bikarmeistarar 1986 og unnu bikarinn fjórða árið í röð. Stórkostleg frammistaða markvarðarins óþekkta í sigrinum á Stjörnunni Gatnla Víkingsseiglan er söm við sig og hún sá til þess í gaer- kvöldi að bikarinn flendist við Hæðargarðinn. Víkingur vann Stjörnuna 19-17 í hörkuspenn- andi úrslitaleik bikarkeppninnar í Laugardalshöllinni í gærkvöldi, eftir að Stjarnan hafði leitt með tveimur mörkum, 14-12, þegar 12 mínútur voru til leiksloka. Vík- ingur er bikarmeistari fjórða árið í röð, einstakt í sögu keppninnar, og það sem meira er, félagið hefur sigrað tvöfalt í vetur — er íslands- og bikarmeistari í hand- knattleik 1986. Góður varnarleikur og frábær markvarsla einkenndi leikinn. Kristján Sigmundsson gat ekki leikið í marki Víkinga vegna meiðsla en hinn lítt þekkti Finnur Thorlacius tók stöðu hans og átti vægast sagt stórkostlegan leik. Hann lokaði markinu á þýðing- armiklum köflum og varði 15 skot í leiknum. Brynjar Kvaran í Stjörnumarkinu var líka í miklum ham og hirti 16 skot frá Víking- um. Stjarnan komst í 3-1 en Víking- ar jöfnuðu og komust fyrst yfir 7-6. Þeir náðu síðan 3ja marka forskoti fyrir hlé, 10-7. Stjarnan virtist vera á góðri leið með að gera útum leikinn á fyrri hluta seinni hálfleiks. Gylfi Birgisson, Eyjamaðurinn há- vaxni, var óstöðvandi og félagar hans voru vel með á nótunum. Eftir 18 mínútur höfðu Garðbæ- ingar skorað 7 mörk gegn 2 og staðan 14-12. Þá kom lykilatriðið að sigri Víkinga. Þeir tóku Hannes og Gylfa úr umferð og lömuðu með 2.flokkur FHlékk bikarinn FH-ingar urðu bikarmeistarar í 2. flokki karla í handknattleik í gærkvöldi þegar þeir sigruðu ÍR 20-16 í úrslitaleik í Laugardals- höllinni. ÍR-ingar höfðu undir- tökin lengi vel, leiddu 11-8 í hálf- leik og komust í 14-12 en sex FH- mörk í röð gerðu þá útum leikinn. —VS því sóknarleik Stjörnunnar. Hann varð ráðleysislegur og óag- aður, Víkingar gerðu næstu 3 mörk og eftir það voru undir- tökin þeirra. Hannes jafnaði, 17- 17, þegar 3 mín. voru eftir en Karl braust í gegn og kom Vík- ingum yfir á ný, 18-17. Þegar 70 sek. voru eftir var Einari Jóhann- essyni vikið af leikvelli, Víkingar því manni færri það sem eftir var, en Stjörnumenn nýttu sér það ekki. Ótímabært skot 55 sek. fyrir leikslok og hinn síungi 35 ára gamli Páll Björgvinsson tryggði Víkingi sigur, svo sannarlega ekki í fyrsta sinn, þegar hann læddi sér í gegnum vörn Stjörn- unnar og skoraði, 19-17, þegar 35 sek. lifðu af leiknum. „Þetta er frábær endir á löngu og erfiðu keppnistímabili,“ sagði Guðmundur Guðmundsson, fyr- irliði Víkinga, í spjalli við Þjóð- viljann eftir leikinn. „Tvöfaldur sigur og bikarinn fjórða árið í röð, betra getur það ekki verið. Mikil vinna, frábær þjálfari (Árni Indriðason) og góður mann- skapur lögðu grunninn að þess- UEFA-bikarinn Real malaði Köln Real Madrid gerði scinni úr- slitaleik UEFA-bikarsins í knatts- pyrnu næstum því að formsatriði með því að sigra Köln 5-1 í þeim fyrri á Bernabeau-leikvanginum í Madrid í gærkvöldi. Vestur-Þjóðverjarnir byrjuðu þó vel því Klaus Allofs kom þeim yfir á 29. mínútu. Hugo Sanchez og Rafael Gordillo komu Real í 2-1 fyrir hlé og Jorge Valdano skoraði, 3-1, á 51. mínútu. Köln virtist ætla að sleppa með það en Valdano skoraði aftur á 84. mín. og gamli refurinn, Carlos Santil- lana, innsiglaði sigurinn með marki á lokamínútnni, 5-1. Seinni leikur liðanna fer fram í Köln á þriðjudaginn —VS/Reuter um árangri. Hálftíma fyrir leikinn varð ljóst að Kristján gæti ekki leikið í markinu. Við ákváð- um að þjappa okkur vel saman í kringum Finn, náðum góðum varnarleik og það gerði gæfu- muninn.“ Finnur var hetja Víkinga ásamt Páli Björgvinssyni. Það er alltaf ævintýrakeimur af því þegar óþekktur leikmaður kemur og slær í gegn í úrslitaleik. Páll er alltaf samur við sig, bestur þegar mest liggur við. E'n heildar- frammistaðan hjá Víkingsliðinu er það sem mestu máli skiptir, það eru reynslan, seiglan og sam- heldnin sem hefur fært liðinu sæta sigra í vetur. Stjarnan getur verið sátt við sinn hlut í þessum úrslitaleik. Garðbæingarnir sýndu að þá vantar aðeins herslumuninn til að krækja í stóru titlana, lið þeirra er ungt og á að geta náð langt. Segja má að reynsluleysið hafi orðið þeim að falli í gærkvöldi, þeir stóðust ekki álagið í lokin. Gylfi og Hannes voru lykilmennirnir ásamt Brynjari í markinu, Gylfi getur úr þessu ekki átt langt í landsliðssætið. Mörk Víkings: Páll Björgvinsson 6, Guömundur Guðmundsson 3, Guðmund- ur Albertsson 3, Karl Þráinsson 3, Steinar Birgisson 3(2v), Hilmar Sigurgíslason 1. Mörk Stjörnunnar: Gylfi Birgisson 7, Hannes Leifsson 5(1 v), Hermundur Sig- mundsson 2, Sigurjón Guðmundsson 2, Magnús Teitsson 1. Ólafur Haraldsson og Stefán Arnaldsson dæmdu leikinn. Þeir byrjuðu vel en voru síðan mi- Knattspyrna Argentína lá í Oslo Norðmenn komu heldur betur á óvart í gærkvöldi þegar þeir sigruðu Argentínumenn 1-0 í vin- áttulandsleik í Osló. Kjetil Osvold skoraði sigurmarkið 8 mínútum fyrir leikslok. Leikur Argentínu- manna olli miklum vonbrigðum, þeir lágu í vörn allan tímann og stjörnur á borð við Passarella og Maradona náðu ekki að lyfta leik liðsins á hærra plan_VS/Reuter 1 Guðmundur Gu&mundsson fyrirliði Víkinga lyftir bikarnum — Víkingar eru íslands- og bikarmeistarar 1986. Mynd: E.ÓI. Enska knattspyrnan Liverpool meistari á laugardaginn? Sigraði Leicester á meðan Everton tapaði. West Ham í öðru sœti og á möguleika Enski meistaratitiilinn í knatt- spyrnu blasir við Liverpool. Tak- ist Kenny Dalglish og félögum að sigra Chelsea á Stamford Bridge í London á laugardaginn hrósa þeir sigri í 1. deildinni, hvað svo sem West Ham og Everton gera. Liverpool vann Leicester 2-0 á útivelli í gærkvöldi á meðan Ox- ford lagði Everton 1-0. Liverpool stendur nú meiri ógn af West Ham en af grönnum sínum Evert- on, ef Liverpool nær ekki að sigra Chelsea og West Ham sigrar WBA og síðan Everton stendur Lundúnaliðið uppi sem meistari í fyrsta sinn en það vann sigur á Ipswich í gærkvöldi. Úrslit í ensku knattspyrnunni í gærkvöldi urðu þessi: 1-delld: Leicester-Liverpool..................0-2 Oxford-Everton.......................1-0 West Ham-lpswich.....................2-1 2. deild: BradfordC.-Millwall..................0-2 3. deild: DerbyCounty-Bury.....................1-1 Lincoln-Bristol R....................2-2 Liverpool kom sér í þægilega stöðu í Leicester með tveimur mörkum í fyrri hálfleik. Ian Rush og Ronnie Whelan voru þar að verki og nú er staða Leicester orðin mjög slæm. Everton virtist ætla að kreista út mikið heppnisstig í Oxford. Þrátt fyrir mikla stórskotahríð heimaliðsins, t.d. tvö stangarskot frá Billy Hamilton, stefndi allt í 0-0. En mínútu fyrir leikslok skoraði Les Phillips sigurmarkið og nú eiga mjólkurbikarmeistar- arnir alla möguleika á að halda sér uppi, eiga eftir tvo heima- leiki. Og naumt var það hjá West Ham. Ipswich náði forystu á 64. mínútu með marki frá Kevin Wil- son en Alan Dickens náði að jafna 8 mínútum síðar. Þegar 4 mínútur voru til leiksloka fékk . svo West Ham vítaspyrnu og Skotinn með stáltaugarnar, Ray Stewart, skoraði af öryggi, 2-1. Staða efstu og neðstu liða 1. deildar: Liverpool.......41 25 10 6 88-37 85 WestHam.........40 25 6 9 70-35 81 EvertOfl........40 24 8 8 78-39 80 Man.Utd.........41 22 9 10 69-35 75 Ipswich.........41 11 8 22 32-54 41 Coventry........41 10 10 21 46-70 40 Oxford..........40 9 12 19 58-78 39 Leicester.......41 9 12 20 53-76 39 Birmham.........41 8 5 28 30-72 29 W.B.A...........41 4 12 25 33-86 24 Á laugardag eru þýðingar- mestu leikirnir Chelsea - Liverp- ool, Everton - Southampton, WBA - West Ham, Covéntry - QPR, Leicester - Newcastle, Óx- ford - Nottm.Forest og Shef- f.Wed. - Ipswich. Everton og West Ham mætast síðan á mánu- dag, sem og Oxford og Arsenal. —VS/Reuter d

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.