Þjóðviljinn - 10.05.1986, Síða 7

Þjóðviljinn - 10.05.1986, Síða 7
Umsjón: Mörður Árnason Þrítíð með táknum í landslagi Tolli sýnir í Tolli - Þorlákur Kristinsson - er kominn á Grensásveginn með myndverk stór og smá, aðallega stór, og tekur á móti fyrstu gestum í Listasafni ASÍ í dag. Þjóðviljinn þjófstartaði í vikunni og kompóneraði, að skiliríum skoðuðum, þetta með myndverkarasöngvar- anum: Um verkin fjörutíu: - Þetta er elst þriggja ára, málað hér á landi í Kjósinni, annað seinna í Berlín, og svo undanfarna mán- uði hér heima. Verk með tiltölu- lega opið myndmál, frásögnin í þeim held ég nokkuð ljós. Fígúr- atífar, ekki afstrakt. Maður endurtekur sama stefið frá mynd til myndar og þessi endurteknu mótíf hafa oft táknrænt eðli. Bak- grunnurinn er svo óumbreytan- legur, íslenskt landslag. Listasafni ASÍ Um vörður, siglingamerki og bækur: Vörðurnar kannast menn við úr eldri verkum; - sigl- ingamerkin hér eru engin nýjung, merking þeirra er svipuð og í vörðunum, - þetta eru sjóvörður sem standa meðfram ströndum landsins. En fyrir utan táknræna og praktfska merkingu eru þessir þríhyrningar, siglingamerkin af- skaplega skemmtilegt form og hægt að leika sér að þeim enda- laust. Bækurnar, - það er þessi tilfinning, held ég, sem maður hefur fyrir þjóðarsálinni, í þeim hefur lengi falist einskonar sjálfs- ímynd þjóðarinnar. Ég er að leika mér með þessi tákn án þess að vita fyrir niðurstöðuna hverju sinni, stilli þeim saman við lands- lagið og fæ út einhverskonar þrí - tíðrfortíð nútíð og framtíð í einu lagi. Um verk Tolla þá og nú: Ég er að verða meðvitaðri um þenn- an táknræna þátt, - eftir því sem Sigrún Eðvaldsdóttir leikur einleik í svítu eftir Sinding. Sinfónían Norræn tónlist Á Sinfóníutónleikum í dag er nor- ræn tónlist á efnisskránni, og flutt verk eftir Alfén, Sinding, Skúla HaNdórsson, Jón Ásgeirsson, Pál ísólfsson, Grieg og Sibelius undirstjórn Páls P. Pálssonar. Fyrsta verk á efnisskránni er Midsommarvaka, rapsódía eftir svíann Hugo Alfvén, skrifað 1903 og byggt á þjóðlagastefjum. í svítu eftir norska tónskáldið Christian Sinding leikur Sigrún Eðvaldsdóttir einleik á fiðlu, 19 ára gömul, stundar nú framhalds- nám í Bandaríkjunum og einn af efnilegustu ungum fiðluleikur- um. Karlakórinn Fóstbræður og Karlakór Reykjavíkur koma síð- an við sögu í Porquoi pas? eftir Skúla Halldórsson, verk samið 1960 við texta Vilhjálms frá Ská- holti um sjóslysið mikla 1936. Einsöngvari er Sigríður Gröndal sópran. Hljómsveitin flytur síðan Þjóð- vísu Jóns Ásgeirssonar, samda 1967, og síðan taka karlakórarnir við með Landkjending eftir Gri- eg og Brennið þið vitar eftir Pál ísólfsson. Kristinn Hallsson syng- ur einsöng í Grieg-verkinu. Að lokum kemur Finlandia Sibe- liusar. Tónleikarnir í Háskólabíói í dag hefjast klukkan fimm. Tolli í ASÍ: Annars er þessi myndlist einsog ferðalag. (Mynd: Sig). maður vinnur meira og meira með þau dýpkar skilningurinn. Annars er þessi myndlist einsog ferðalag; maður fer frá einu verki til annars, og alltaf brekka á milli þannig að næsti áfangastaður er ekki ljós, en leiðin smám saman. Symbólisminn hefur styrkst hjá mér, en hinsvegar - eða jafn- framt - er ég farinn að bregða mér útaf því spori og mála myndir sem eru, ja, eiginlega merkingar- lausar, hefðbundnar náttúru- myndir, expressjónískar natúral- ískar myndir án þess að spila á neinskonar tákn. Til að hvíla mig á hinu: landslag einsog landslag er, - bara vona að þær lendi utan- við landamærin þarsem banalft- etið tekur við. Um áhrif frá Berlín og Beri- ínarmáiurum: Bundinn Berlín, neita því ekki, - þessi dvöl þar hafði mótandi áhrif á mig sem málara, ég er enn með annan fótinn í þeim tíma. Held að það felist aðallega í frelsi til að mála, það hafi verið sterkustu á- hrifin: að mála það sem manni býr í brjósti. Svipað og tónlistin þar, hrátt rokk og pönk. Að fá að nota verkfæri og málningu án þess að vera bundinn af einu né neinu. Um pólitik: Þessi svokallaða Berlínarlína, sem eru varla nema fjórir-fimm málarar, hafa verið taldir pólitískir, - ítölsku málar- arnir eru miklu uppteknari af sögunni, sækja í sína hefð og for- tíð, en miklu meiri samtíma- Musica Nova Manuela í Iðnó Á mánudagskvöldið leikur Manu- ela Wiesler á f lautu sína í Iðnó á vegum Musica Nova, og eru á dagskránni fimm verk, öll innan þess ramma sem gestgjafar kalla „trúarlega f ramúrstef nutónlist". Manuelu þarf vart að kynna, - bjó hér um árabil, varð hvers manns hugljúfi og hafði mikil áhrif á tónlistarlíf og flautuleik. Hún kom til landsins síðast í sept- ember og hélt tónleika í Krists- kirkju, hefur síðan haldið ótal tónleika í Evrópu og leikið inná plötur, getur sér síaukinn alþjóð- legan orðstír. Á tónleikunum á mánudags- hljómur í Berlínarmálverkinu. Hinsvegar er sama hver samtím- inn er, menn byggja alltaf á tra- disjónum í umhverfi sínu, og Ber- línarmenn sækja mikið í sinn arf í myndlist og reyndar líka kvik- myndagerð, þarsem expressjón- isminn hefur alltaf verið sterkur. Ég mótaðist sjálfur í pólitísku starfi á vinstri kantinum hér heima, gegn her í landi, gegn kjarnorkuvopnum, gaf mér þá ákveðnar pólitískar forsendur í lífsýn, og hef þær enn, og þær má örugglega merkja í því sem mað- ur er að gera. Én myndlist á sér engin landamæri, ekki stíllinn, tónninn; einsog í mússík: moll er moll hvar sem er. Ég gekk um Strandirnar fyrir nokkrum árum, þar uppá Straumnesfjalli er yfirgefin her- stöð, og þegar við komum þang- að fannst mér alltíeinu að þessi pólitíska lífssýn sem ég hafði op- inberaðist sjónrænt, kaldir steinveggir, húsin full af snjó, bækur í haug undir ísnum. Ein- hverskonar dramatísk sviðsetn- ing, - hef síðan verið undir áhrif- um frá þessari sýn. Um myndlist eftir nýja mál- verkið: Ég veit ekkert hvert stefnir. Nýja málverkið var upp- reisnargjörn bylgja, - þetta var ákveðið demó í byrjun, - en við hana hafa áhrif markaðarins aukist, menn tjá sig í efni sem er aðgengilegri söluvara en áður þegar konseptúalisminn réði ríkj- um, - þetta eru núna hrein og klár skilirí. Þessi auknu markaðs- áhrif hafa örugglega sitt aðsegja fyrir myndlistarmenn framtíðar- innar. Annað: þegar nýja mál- verkið kom upp og þegar kons- eptið kom þar upp þar á undan voru þetta listhreyfingar með á- kveðna félagslega og pólitíska merkingu, - auðvitað ekki hvert verk sem slíkt, en í heildina. Þeg- ar frumkrafturinn fer að fjara út í svona hreyfingu fara menn að hugsa meira um sjálfa sig, og um það fínpússa, það kemur upp við- leitni í áttina að listinni fyrir list- ina, formið formsins vegna. Ég hef stundum á tilfinningunni að myndlistarmenn, og listamenn yfirleitt, líti á sjálfa sig sem sendi- boða milli guðs og manna, vilja flytja skilaboðin en standa utan við hversdagsleikann og samfé- lagið. Allt í lagi, en þá mega menn ekki missa fótanna og verða einsog skíturinn í kringum þá. Um framtíðina: Ég sýni væntanlega næst í Nýlistasafninu í haust með skólafélaga mínum frá Berlín, Bong Kyu Im frá Kór- eu. Vð sýndum saman í Berlín í fyrrahaust, en ásýningunni hérna verða vonandi með myndir eftir kóreanska málara sem vinna í hefðbundnum stíl. Svo stefnum við á samsýningu í Kóreu eftir ár. Annað er ekki á dagskránni, - ætli ég haldi ekki áfram að mála meðan ég hef gagn og gaman af. Ef ég hætti að hafa það gæti ég alveg eins hugsað mér að fara útí að gróðursetja tré. - m Manuela Wiesler í Iðnó mánudagskvöld. kvöldið eru á efnisskrá þrjú verk norræn, samin fyrir Manuelu: Lux eftir Norðmanninn Yngve Slettholm, Flauto del sole eftir Svíann Áke Hermannsson og Di- segno eftir landa hans Anders Eliasson. Að auki tvö japönsk verk, Mei eftir Kazuo Fukushima og Voice eftir Tofu Takemitsu. Á fimmtudag í næstu viku leikur Manuela með Sinfóníunni, en einleikstónleikar hennar í Iðnó á mánudagskvöld hefjast kl.20.30. Laugardagur 10. maí 1986 j ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 7

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.