Þjóðviljinn - 10.05.1986, Page 10

Þjóðviljinn - 10.05.1986, Page 10
ROKK, ROKK, ROKK ROKK, ROKK, ROKK Næturgalarnir frá Venus eru leyndardómsfullt fósbræðralag, eins og kom fram í spjalli við Helga Björnsson í Þjóðviljanum sl. þriðjudag. Þeir flytja sérstaka tónsmíð ! Háskólabíói í tilefni dagsins. Þessir fjórir sveinar með Ijóðræna nafnið eru: Helgi Björnsson Grafík- ursöngvari, Hjörtur Howser hljómborðsleikari (aðstoðarmaður Grafík- ur— Grafík er í sumarfríi...), Pétur Grétarsson Smartbandsmaður með meiru og fiðlarinn Ebbi sem er á klassísku línunni en hleypur útundan sér í rokkið þegar að honum er lagt. Ljósmynd. E. Ól. gramm kynnir! ■ The Smiths - The Boy Wlth The Thorn In His Side Nýjasta smáskífan sem þessir skemmtilegu piltar frá Manchester senda frá sér. Enn frekari staðfest- ing þess að The Smiths er leiðandi í enskri popptónlist. Einnig-eru fáan- legar: ■ The Smiths ■ The Smiths ■ The Smiths ■ The Smiths ■ The Smiths Meat Is Murder LP Hateful of Hollow LP The Smiths LP This Charming Man 12' How Soon Is Now 12” ■ New Order - Sheil Schock 12” Splunkuný smáskffa frá New Order er komin. Einhver vinsælasta hljómsveit nýbylgjunnar víða um heim. ■ New Order - Low Life LP ■ - New Order - Power, Corruption & Lies LP ■ Imperiet - Live Nýtt albúm frá einhverri kraft- mestu og skemmtilegustu rokk- sveit, sem Skandinavía hefur átt. Hljóðrituð á tónleikaferðalagi Imperiet í Bandarfkjunum. ■ Microdlsney - The Clock Comes Down Stairs Microdisney erum þessarmundir |r""" ' 'r -J bjartasta von (ra. Frábær plata fyrir þá sem unna góðri og vand- I ■ Kukl - Holidays In Europe Nýjasta platan frá Kukl fáanleg aftur. Einhver umdeildasta og óvenjulegasta hljómsveit, sem (s- lendingar hafa kynnst. Nýjar plötur: ■ Prince & The Revolution - Parade ■ Rolling Stones - Dirty Work ■ Jonathan Richman & Modern Lovers - It’s Time For... ■ Yassar N’dour - Nelson Mandela. ■ Jesus & The Mary Chain - Upside Down ■ Cocteau Twins - Echoes In A Shallow Bay ■ Cocteau Twins - Tiny Pyramids ■ Woodentops - It Will Come ■ Robert Wyatt & The Swapo Singers - The Wind Of Change Eigum einnig fyrirtiggjandi ótrúlegt úrval af JAZZ, BLUES, ROCK N ROLL, Sendum í póstkröfu samdægurs. GÆÐA TÓNLIST Á GÓÐUM STAÐ gramm Laugavegi 17 sími 12040 Plötuútgáfa Bubbi með 3 á leiðinni Bubbi Morthens fór á sunnu- daginn var til Svíþjóðar til fimm vikna dvalar við plötuna sem hann hefur verið að vinna að fyrir sænska útgáfufyrir- tækið Mistlur. Öll lög og textar plötunnar eru eftir Bubba, en hinn fjölhæfi bassaleikari Imperiet, Christian, leikur á bassa, trommur, gítar og hljómborð auk þess sem hann tekur þátt í útsetningu laganna ásamt Stephan, upptöku- manni Imperiet. Auk þeirra koma við sögu eftir atvikum sænskir „sessjón“menn og hinir Imperiet-drengirnir. „Þetta verður mest unna plata sem Bubbi hefur komið ná- lægt“, segir Ási í Gramminu, „stúdíó-vinnan við hana tekur jafn langan tfma og samanlagt við 5 eða 6 plötur Bubba. Tekið er upp efni sem nægði á tvær breiðskífur, en valið úr því á eina sem svo kemur út í haust - á jólamarkaðinnn". En það er meira í vændum frá Bubba í plötuformi. Kringum mánaðarmótin maí/j úní kemur út tvöfalt albúm með trúbadornum Bubba. Er þar Bubbi aleinn á ferð með gítarinn og munnhörp- una á hljómleikum víða um landið, anno 1986, á Austfjörð- um og Borginni, auk þess nokkr- ar stúdíópupptökur frá því 1980, er Bubbi var að stíga sín fyrstu spor opinberlega á tónlistar- brautinni. Um það bil helmingur- inn af lögunum hefur ekki komið- út á plötu áður með Bubba og hinn hlutinn er í annarri mynd en áður hefur verið gefin út. Flest lögin eru eftir Bubba sjálfan, nema þrír Leadbellyblúsar, Skutullinn og Jónas Hallgríms- son eftir Megas. „Bubbi er búinn að ganga með svona plötu í maganum í mörg ár“, segir Ási í Gramminu sem gefur plötuna út, „Fingraför" átti t.d. að vera svona“. A Reiðnámskeið sumarið 1986 Almenn námskeið í hestamennsku fyrir börn og unglinga. Nr. 1. Þriðjudagur 3.júni til þriðjudags tO.júni Nr. 2. Þriðjudagur 10-juni til þriðjudags 17.júni Nr. 3. Föstudagur 20.júní til föstudags 27,júní Nr.4. Þriðjudagur 8. júlí til þriðjudags 15.júli Nr. 5. Þriðjudagur 22. júli til þriðjudags 29. júlí Nr. 6. Þriðjudagur 5. ágúst til þriðjudags 12.ágúst Nr 7. Þriðjudagur 12. ágúst til þriöjudags 19.ágúst Ferðir með áætlunarferðum Hreppar-Skeið frá Umferðarmið- stöðinni í Reykjavík kl. 17:30 á þriðjudögum og kl. 18:30 á föstudögum og frá Geldingaholti kl. 9:30 á morgnana og komið i bæinn kl. 11:30. Þátttakendur fá fjölþætta þjálfun á hestbaki. Kennd verður undirstaða hestamennsku, meðhöndlun og umhirða hesta. Kennt er i gerði og á hringvelli. Einnig verða bóklegir timar. Farjð verður í útreiðartúra, kvöldvökurog leiki.Fariðer i keppn- isgreinar fyrir þá sem hafa áhuga. Þátttakendur á öllum námskeiðunum mega koma með eigin hesta. Ferðireru ekki innifaldar i námskeiðsgjaldi. Upplýsingarog bókanir í Geldingaholti sfmi: 99-6055. Hestamiðstöðin Geldingahdt Reiösköli, tamning, hrossareekt og sala Gnúpverjahreppi, Amessýslu, sími 99-6055 David Byrne, höfuðhöfuðpaur. Gott veður, segir Magnús Þór „Ég er ekki á alþjóðlegu trippi, ég syng bara á þessu útkjálka- túngumáli eins og þið vitið. Ann- ars skaltu bara hafa eitthvað eftir mér um veðrið.” Magnús Þór ætlar að syngja „gamla slagara" á Rokkhátíð Þjóðviljans og aðdáendur hans hugsa sér gott tii glóðarinnar. Ing. Bubbi Morthens á friðarhátíð á Holmenkollen 8. mars í fyrra. Tröllavídeó, Seltjarnarnesi. Talking Heads: Stop Making Sense Fyrir giska einu og hálfu ári kom út hljómleikaplatan Stop Making Sense. Undirrituð las ótrúlega góða dóma um þessa tónleika Talking Heads í útlendum blöðum og þeir sem höfðu séð myndina í útlöndum áttu ekki orð yfir snilli Davids Byrne og félaga. Það var ekkert annað fyrir okkur mörlandana að gera en bíða þolin- móðir eftir því að einhverju kvikmyndahús- anna þóknaðist að taka þessa margrómuðu tónleikamynd til sýningar. Við erum enn að bíða eftir því. En myndin er komin til landsins á mynd- bandsspólu sem er jú næstbesti kosturinn, og bíður þeirra sem yndi hafa af Talking Heads. Jafnvel þeirra sem ekki yndi hafa af þeim, því eftir að sjá Stop Making Sense mun álitið breytast, það er klárt. Tónleik- arnir er frábærir, hreint út sagt. Sviðsfram- koma þeirra allra fjörug og lifandi, sérstak- lega er höfuðpaurinn Byrne laginn við að koma á óvart; sá hefur æft sig fyrir framan spegilinn! Látbragðið nálgast sjónhverfing- ar og öll sviðsetning er með því besta sem maður á eftir að sjá á tónleikum almennt. Öll bestu lög Talking Heads eru flutt stanslaust og í 88 mín. situr maður negldur fyrir framan skáinn og hugsar: andskotans snilld!! Og bakraddabandið maður! Þær Ednah Holt og Lynn Mabry hlaupa minnst maraþon á meðan þær „kyrja“ með. Þær ættu skilið að komast á póstkort. P.s. Ég ersamt enn að bíða eftirþvíaðsjá þessa mynd á breiðtjaldi og heyra tónlistina í alminlegum græjum á góðu „trukki“. 9 Possibillies er dúett en kemur fram með þrem aðstoðar- mönnum, og þá verða þeir fimm: Possibillíarnir Jón Rásarmaður Ólafsson hljómborðsleikari og söngvari og Stefán Hjörleifsson gítarleikari njóta aðstoðar og nærveru þeirra Haraldar Þor- steinssonar bassaleikara þeirra gömlu Brimklóar, Rabba Grafík- urtrommara og Eyjólfs Gunnars- sonar gítarista og söngvara sem kom úr Hálfu í hvoru... þessir drengir eru allir meðlimir í Bítla- vinafélaginu, en það er önnur saga og Rokkhátíðinni okkar alls óviðkomandi. - Ljósm. E. Ól. MYNDBÖND Fölu frumskógardrengirnir - hvurjir eru nú það? Jú, þeir eru þrír trumbuslagarar sem komu fram í sjónvarpsþættinum Ung- lingarnir í frumskóginum fyrir ekki svo löngu: Abdu hinn marókan- ski, Pétur Grétarsson Smart- bandsmaður og Næturgali og Sigtryggur Kuklari. Þeir stilla saman trommur sínar á Rokkhá- tíð Þjóðviljans í dag. Á myndinni eru Sigtryggur og Abdu, en hún var tekin í marz í fyrra er þeir spil- uðu með Björk Guðmundsdóttur í Safari. Mynd E. Ól. 10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 10. mai 1986 Laugardagur 10. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.