Þjóðviljinn - 14.05.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
MENNING
MANNLÍF
ÍÞRÓTTIR
Hitaveitan
600 miljón krónu
Nesjavallaskattur
Framkvœmdahraði byggður á kolröngum orkuspám hitaveitustjóra.
Alþýðubandalagið leggur til aðþessumframkvœmdum verðifrestað
Verð á heitu vatni frá Hitaveitu Reykjavíkur (miðað við byggingarvísitölu). Úr
ársskýrslu HR, 1985.
100% 50% rv
1 lJ
' - . J \
jJ
Í\k j \|\ • • kkr »■ s ■
f \ 1 ; . fi. » R “ ™ L h i j>
1978 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985
i
Hitaveita Reykjavíkur hefur
lagt um 600 miijóna aukaskatt
á Reykvíkinga síðan árið 1982 til
þess að fjármagna framkvæmdir
á Nesjavöllum. Framkvæmda-
hraðinn þar er hins vegar byggð-
ur á kolröngum orkuspám hita-
veitustjórans, sagði Guðni Jó-
hannesson verkfræðingur og 13.
maður á G-listanum í samtaii við
Þjóðviljann í gær.
f ársskýrslu hitaveitunnar fyrir
síðasta ár kemur fram að hækk-
anir á gjaldskrám hitaveitunnar
umfram hækkanir á byggingavísi-
tölu síðan 1982 hafa numið 600
miljónum króna. Stærstur hluti
þessara aukatekna hefur runnið
beint í framkvæmdir við Nesja-
velli, en talið er að þeim megi að
ósekju fresta um allmörg ár.
Jóhannes Zoega hitaveitu-
stjóri hefur lagt ofurkapp á þess-
ar framkvæmdir og byggir það á
orkuspá, sem að sögn Guðna er
tvöfalt hærri en niðurstöður ork-
uspárnefndar um sama efni gefa
til kynna.
f ársskýrslunni kemur fram að
gjaldskrá hitaveitunnar var hald-
ið í lágmarki fram til ársins 1982,
en á árunum 1983 og 1984 hækk-
aði hún geigvænlega. Á þessu ári
er áformað að ieggja að minnsta
kosti 190 miljónir í framkvæmdir
við Nesjavelli.
-gg
Vertíðin
Mun betri
ení
fyrra
Porskafli báta vel yfir 100
þús. lestir. Réttyfir90
þús. ífyrra. Má reikna
með metaflaári
Þrátt fyrir að vertíðin hafi ver-
ið misjafnlega góð í hinum ýmsu
verstöðvum og með lakara móti
víða sunnanlands, þá er hún í
heildina með besta móti og þorsk-
afli bátanna töluvertmeiri en á
vertíðinni í fyrra.
Samkvæmt aflayfirliti Fiskifé-
lagsins var heildarþorskaflinn í
apríl yfir 42.300 lestir. Þar af fékk
bátafíotinn rúmlega 36 þús. lestir
eða nær 5000 lestum meira en í
apríl í fyrra. Þorskafli togaranna
var hins vegar um 1000 lestum
minni en á sama tíma í fyrra.
Heildarþorskaflinn frá ára-
mótum er nú orðinn vel yfir 160
þús. lestir en var á sama tíma í
fyrra rúmar 130 þús. lestir. Þar af
er þorskafli bátaflotans rúmar
105 þús. lestir en var um 90 þús.
lestir 4 fyrstu mánuði ársins í
fyrra.
-«g-
Kvennaathvarfið
Létu
loksins
undan
Borgarráð
samþykkir tillögu
Sigurjóns
Péturssonar um að
greiðastyrkinn.
Dróst ífjóra mánuði.
Athvarfið áttí
verulegum
fjárhagserfiðleikum
Tillaga Sigurjóns Péturssonar
um að greiða Samtökum um
kvennaathvarf styrk upp á 625
þúsund krónur var samþykkt á
fundi borgarráðs í gær. Tillög-
unni hefur áður verið frestað tví-
vegis og liðnir eru fjórir mánuðir
síðan borgarstjórn samþykkti að
veita styrkinn.
Kvennaathvarfið hefur átt í
verulegum f; árhagserfiðleikum
undanfarna mánuði og fór fyrir
nokkrum vikum fram á að styrk-
urinn yrði loks greiddur.
Beiðninni var ekki svarað. Siálf-
stæðismenn hafa verið beittir
gífurlegum þrýstingi undanfarið
vegna þessa máls.
Skýringar íhaldsins á þessum
drætti hafa verið þær að kvenna-
athvarfið hafi ekki reynt að koma
húseign sinni við Biargarstíg í
verð, en Álfheiður Ingadóttir
gj aldkeri Samtaka um kvennaat-
hvarf hefur upplýst að reynt hafi
verið í ár að selja þessa húseign.
-gg
Nemendur í matargerð sýna gestum rétt handbragð og gefa þeim að smakka á sýningunni Matarlist 1986, sem nú
stendur í Laugardalshöll. Sig.
Grandi hf.
Dauft
hjá
Davíð
Starfsfólk Granda hf. í húsa-
kynnum gömlu Bæjarútgerðar-
innar mætti ekki á vinnustaða-
fund sem boðaður hafði verið
með Davíð Oddssyni þar í gær.
Þegar Davíð mætti var matsal-
urinn tómur. Ellefu manns höfðu
tölt út á þak til að njóta sólarinn-
ar, og Davíð rölti á eftir til að fara
ekki algera fýluferð. Þrír hinna
ellefu nenntu að tala við hann,
hinir sátu og lásu blöð eða sóluðu
sig, þegar blaðamaður Þjóðvilj-
ans, sem hafði haft nasasjón af
því hvað var í bígerð, leit við á
Granda. Aðspurð sagði ein fisk-
verkakona, að þetta væru per-
sónuleg mótmæli gegn Davíð út
af flutningunum í haust leið.
Ing.
NATO
Eiturvopnahemaður í Evrópu
NATO undirbýr að komafyrir eiturefnavopnum víðs vegar íEvrópu. Leyniáœtlun fram hjá
þjóðþingum NATO-landa. Guðrún Helgadóttir: Vil vita hver afstaða íslenskra stjórnvalda er
Á fundi fastanefndar NATO í
Brussel í dag, verður að öilum
líkindum tekin afstaða til undir-
búnings á niðursetningu sér-
stakra eiturgasvopna í aðildar-
ríkjum NATO í Evrópu. í næstu
viku verður halainn fundur varn-
armálaráðherra NATO-ríkjanna
þar sem stefnt er að því að sam-
þykkja formlega uppsetningu
þessara eiturvopna. Þjóðþing
NATO-ríkjanna hafa ekkert
fengið að vita af þessum fyrirætl-
unum, en danski varnarmála-
ráðherrann hefur lýst sig andvíg-
an þeim og forystumenn stjórnar-
andstöðunnar í Danmörku hafa
krafist umræðna í danska þing-
inu um þessi eiturvopn.
„Ég hef haft samband við utan-
ríkisráðuneytið og óskað upplýs-
inga um hver afstaða íslendinga
er til þessara eiturvopna, en þar
virðast menn koma meira og
minna af fjöllum. Þó hefur ráðu-
neytisstjóri utanríkisráðuneytis-
ins staðfest við mig að fulltrúi ís-
lands muni sitja fundinn í fastan-
efndinni, þ.e. staðgengill Tómas-
ar Tómassonar, þar sem þessi
mál verða rædd,“ sagði Guðrún
Helgadóttir alþingismaður í sam-
tali við Þjóðviljann f gær.
Þá óskaði Hjörleifur Gutt-
ormsson fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í utanríkismálanefnd eftir
því í gær að nefndin yrði þegar
kölluð saman til að ræða þessar
áætlanir NATO um eiturefna-
vopnin. —lg.