Þjóðviljinn - 14.05.1986, Side 6
Tilkynning til
launaskattsgreiöenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á
því að gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina
mars og apríl er 15. maí n.k..
Launaskatt ber launagreiðanda að greiða til
innheimtumanns ríkissjóðs, í Reykjavík toll-
stjóra, og afhenda um leið launaskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður
Við Fjölbrautaskólann á Sauðárkróki eru lausar kennarastöður í
dönsku, stærðfræði og eðlisfræði, félagsfræði og sögu.
Umsóknarfrestur til 1. júní.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist
menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavik.
Menntamálaráðuneytið.
Til sölu
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd
Vélamiðstöðvar Reykjavíkurborgar óskar eftir
tilboðum í eftirfarandi bifreiðar og tæki, sem eru
til sýnis í porti Vélamiðstöðvar að Skúlatúni 1:
1. Volvo, vörubifreið 13 tonna, árg. 1974. 2.
Volkswagen, sendibifreið (rúgbrauð) árg. 1978.
3. Dráttarvél, Massey Ferguson 135, árg. 1978.
4. Dráttarvél, Zetor, árg. 1982. 5. Dráttarvél,
1 Ford, árg. 1973.6. Dráttarvél, Massey Ferguson,
með ámoksturstækjum, árg. 1974. 7. 3 stk. jarð-
vegstætarar aftaní dráttarvél. 8. Vörubílspallur
13 tonna. 9. Toyota Hi Lux, pallbifreið, skemmd
eftir veltu, árg. 1986.
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu vorri, Fríkirkju-
vegi 3, Reykjavík, þriðjudaginn 20. maí n.k. kl. 14.
INNKAUPASTOFNUNREYKJAVIKURBORGAR
Frikuk|uvegi 3 Simi 25800
ífSEi) Fjórðungssjúkrahúsið
'---á Akureyri
Staða yfirlæknis við Rannsóknadeild Fjórð-
ungssjúkrahússins á Akureyri er laus til umsókn-
ar.
Umsóknarfrestur er til 15. júlí n.k.
Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri
störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins
Halldóri Jónssyni, sem veitir nánari upplýsingar í
síma 96-22100.
Stjórn Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri.
J§!§ Laust starf
Starf efnafræðings við Bændaskólann á Hvann-
eyri er laust til umsóknar. Starfið er fólgið í bók-
legri og verklegri kennslu og umsjón með dag-
legum rekstri efnarannsóknarstofu.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist landbúnaðarráðuneytinu fyrir 1.
júní n.k.
Landbúnaðarráðuneytið, 7. maí 1986.
Verslunarfólk
Suðurnesjum
Verslunarmannafélag Suðurnesja heldur
aðalfund miðvikudaginn 21. maí n.k. kl. 20 að
Hafnargötu 28, Keflavík.
Dagskrá: 1)Venjuleg aðalfundarstörf.
2)Önnur mál.
Stjórnin
Auglýsið í Þjóðviljanum
ILLVILJINN
1. tölublað 1. árgangur
Pólitískar flækjur
í Laugardalspotti
r
Eg lcnti í heitum potti í
Laugardalnum á dögunum
og vitanlega fóru menn að ríf-
ast um nývirkin þar, klefana,
ranghalana og setlaugina, sem
sumir kölluðu óvirðulegu
nafni, sódavatnspottur sögðu
þeir.
Þeir sem voru ánægðir með
framkvæmdirnar og hægri-
sinnaðir þökkuðu Davíð þess-
ar framkvæmdir en ef þeir
voru óánægðir sögðu þeir að
mannvirkin hefðu verið
hönnuð í tíð helvítis vinstri-
meirihlutans. Ef menn aftur á
móti voru vinstrisinnaðir og
ánægðir sögðu þeir að nývirk-
in væru verk sinna manna og
Davíð hefði ekki þorað annað
en halda áfram en ef þeir voru
óánægðir þá töldu þeir að
íhaldið bæri ábyrgðina og
báðu það aldrei þrífast.
Þetta varð nokkuð flókið.
Sjáðu nú þessa víðu rang-
hala, sagði einn, og svo er svo
þröngt á nlilli skápa og bekkja
að maður verður að skella aft-
ur skápnum hjá næsta manni
til að komast áleiðis.
Þetta er bara til að menn
villist ekki frá eigum sínum,
sagði einn sem vildi vera já-
kvæður.
Hvaða sovétsystem er það,
sagði einn kjaftfor, að láta
myndast þessar feikna bið-
raðir við afgreiðsluna hvenær
sern sólin skín? Átti þetta nýja
drasl ekki að verða til þæg-
inda?
Það vildum við, svaraði
einn vinstrigaurinn. En íhald-
ið tímir ekki að ráða fleira fólk
á afgreiðsluna.
Um þetta atriði var þrefað
næsta hálftímann.
En hvað á það að þýða að
hafa alla þessa spegla í bún-
ingsklefunum? spurði einn
digur drjóli. Hvað á það að
þýða að láta okkur karla sjá
það í tíu áttum í senn, að við
erum alltof feitir og annað
eftir því. Eg er viss um að
þetta er eitthvað laumulegt
kvennavinstrasamsæri gegn
andlegu jafnvægi ábyrgra
karla hér í borg.
Oðru nær, sagði alvörugef-
inn sálfræðingur. Speglarnir
eru með ráðum gjörðir. Þeir
eiga að kenna mönnum að
sætta sig við sannleikann. Og
sannleikurinn mun gjöra ykk-
ur frjálsa.
Konur í pottinum hlógu og
voru bara sáttar við speglana.
Vissi ég ekki, sagði sálfróð-
ur. Spegill spegill herm þú
mér...
En í alvöru talað, sagði einn
viðskiptahöldur. Hvað á þessi
sódavatnspottur að þýða?
Rétt svona hlandvolgur og
ekki nuddpottur fyrir fimm
aura þetta helvíti.
Davíð vill engar öfgar,
sagði jákvæður hægrimaður.
Hann vill ekki hrista úr
mönnum nýrun með sundhall-
arofstopa. Hann vill kitla okk-
ur þægilega og mátulega og
fara um okkur mildum hönd-
um eins og góður faðir.
Röng skýring, sagði einn
skeggapinn. Setlaugin er
dæmigerð vinstrihönnun í
anda lýðræðislegrar valds- og
vatnsdreifingar. Hver maður
sín buna! Við viljum ekkert
einræði Davíðs hér í Laugun-
um.
Nú fór að hvessa hjá
mönnum og æ erfiðara varð
að greina orðaskil. Nema
hvað einn kynhreinn Fram-
sóknarmaður horfði yfir æp-
andi lýðinn með krosslagðar
hendur og sagði svosem við
sjálfan sig með stóískri ró:
Steingrímur notar bara úti-
klefana. Og heldur því
áfram...
Skaði
6 SÍÐA — ÞJÓÐViLJINN Miðvikudagur 14. maí 1906