Þjóðviljinn - 27.05.1986, Qupperneq 3
FRETTIR
Fornleifar
Lykillinn enn ófundinn
Enn hefur ekki tekist að ráða írúnir á viðarbút, semfannst við
fornleifauppgröft á Stóru-Borg ífyrra. Mjöll Snœsdóttir,
fornleifafrœðingur: Reyndi að víxla stöfum en allt komfyrir
ekki. Stefán Karlsson, Arnastofnun: Reyndiýmis villuletur-
kerfifrá 17. öld, en árangurslaust
Enn hefur enginn treyst sér tii
að ráða í rúnirnar á þessum
viðarbút, sagði Mjöll Snæsdóttir,
fornleifafræðingur, við Þjóðvilj-
ann í gær. „Það er í sjálfu sér
auðvelt að lesa rúnirnar, því hér
er um venjulegar rúnir að ræða,
en þegar þetta er lesið fæst stafa-
runa, sem myndar ekki orð.
Viðarbútur sá sem hér er til
umræðu kom í ljós er verið var að
grafa á Stóru-Borg í Austur-
Eyjafjallahreppi. Búturinn er um
7 cm á lengd og 2 cm á breidd og
eru rúnir ristar beggja vegna á
hann.
Mjöll sagðist hafa sent ýmsum
aðilum ljósmynd af fundinum
jafnt hér heima sem erlendis en
enn hefði engum tekist að finna
lykilinn að því sem þarna stend-
ur. Sagðist hún hafa sjálf reynt
ýmsar aðferðir til að ráða gátuna
m.a. með því að víxla stöfum en
allt hefði komið fyrir ekki.
Stefán Karlsson hjá Arnastofn-
un er einn þeirra manna sem
reyndi við rúnirnar. Sagði hann
að sér hefði ekki tekist að fá
neina meiningu út úr þessu. M.a.
reyndi hann ýmis villuleturkerfi
sem kunn eru frá 17. öld, en þá
var algengt að skrifarar notuðu
slíkt á spássíum í handritum til að
kynna sjálfa sig. Ekkert af þess-
um kerfum kom að haldi er lesa
átti úr þessum rúnum.
Stefán sagði að sú hugmynd
hefði komið upp að þetta væru
upphafsstafir úr einhverju kvæði,
en það mun hafa verið nokkuð
algengt að skrifarar notuðust við
upphafstafi kvæða er þeir voru að
rifja upp fyrir sér kveðskap og
læra utanbókar. Þessi hugmynd
hefur þó ekki leitt til neinnar
lausnar á því sem stendur á viðar-
bútinum.
Mjöll sagði að uppgreftrinum á
Stóru-Borg yrði haldið áfram í
sumar og yrði hafist handa seinni
hlutann í júní. Sagði hún að nú
Þetta er orðið eins og í aumasta fátækrahverfi í stórborg, sagði einn íbúa viö
Njálsgötu í samtali við Þjóðviljann og átti hann þá við opið svæði milli Njálsgötu,
Bjarnarstígs og nafnlauss götuslóða. Þarna er svæði sem borgin á og hefur
verið komið þarna upp leiktækjum fyrir börn. Borgin hefur aftur á móti ekkert
hugsað um að halda svæðinu hreinu og eins og myndin ber með sér er heldur
óhrjálegt þarna um að litast. Og þeir eru því miður margir blettirnir í borginni
sem standa baka til og sjást ekki af götunum, sem svipað er ástatt um. (Ljósm.
Sig.)
Bókakaffi Hlaðvarpans
Stemmningin
undurljúf
Nú hefur Bókakaffi bókafor-
lagsins Bríetar og Hlaðvarp-
ans staðið yfir í heila viku en dag-
lega hefur verið boðið upp á bók-
menntadagskrá í Hlaðvarpanum
og þar flutt erindi um ritverk
kvenna og lesið úr þeim.
Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur
hefur aðsóknin verið mjög góð og
í sumum tilfellum troðið út að
dyrum. „Stemmningin hefur ver-
ið mjög ljúf,“ sagði Guðrún „og
að því er virðist þá hafa flytjend-
ur og áheyrendur verið mjög
væri farið að líða á seinni hlutann
af þessum uppgreftri og allt útlit
væri fyrir að tækist að rannsaka
gamla bæjarhólinn áður en hann
færi undir sjó en það má varla
tæpara standa. Sagði Mjöll að í
raun og veru þyrfti ekki meira til
en aftakaveður er stórstreymt
væri og hóllinn gætið þá horfið
fyrir fullt og allt. _ Sáf
Flugleiðir
Bremsubilun
Bremsur á vinstra aðalhjóli
Fokkervélar frá Flugleiðum bil-
aði í lendingu á ísafiröi á laugar-
daginn. Þurfti flugmaðurinn því
að nota neyðarbremsur við lend-
inguna og rann flugvélin á flug-
brautinni.
Sagði einn farþega við Þjóð-
viljann að vélin hefði næstum lent
út í skurði.
Hjá Flugmálastjórn fengust
þær upplýsingar að engar alvar-
legar skemmdir hefðu orðið á
vélinni.
Enn er ekki vitað hvað olli bil-
uninni en Flugmálastjórn á eftir
að fá nánari upplýsingar um
óhappið.
- Sáf
ánægðir með kvöldstundirnar."
í kvöld þriðjudag verður flutt
erindi og lesið úr verkum Mál-
fríðar Einarsdóttur og miðviku-
dagskvöldið verður helgað Ástu
Sigurðardóttur. Á fimmtudags-
kvöldið verður „ljóðakvöld“ en
bókakaffinu lýkur á föstudagsk-
völdið með upplestri úr verkum
Jakobínu Sigurðardóttur. Sömu
daga er sögustund fyrir börnin
klukkan 17.15 en „fullorðinsdag-
skráin“ hefst klukkan 20.30.
-K.ÓI.
Þriðjudagur 27. maí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3
KJÖRBOK
1ANDSBANK4NS
TENGD VERÐTRYGGINGU
ÖRUGG BOK* ENGIN BINDING
HÁIR VEXTIR FRÁiÞVI AÐ LAGT ER INN
M^JJöilÆimUajíjjArJxi mJJjJbJJJJijXjJmn
LANDSBANKINN
V P/ ''
(jrxddur cr xeymdur cyrir
Útibúið Seyðisfirði
sími 97-2208
Afgreiðslan Vopnafirði
sími 97-3135
Útibúið Eskifirði
sími 97-6300
Afgreiðslan Reyðarfirði
sími 97-4220
Útibúið Fáskrúðsfirði
sími 97-5228
Afgreiðslan Breiðdalsvík
sími 97-5653