Þjóðviljinn - 27.05.1986, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 27.05.1986, Blaðsíða 9
MðÐMUINN Minna en 30 þús. kr. fyrir dagvinnu engum boðlegt. Mælum óhrædd með frumkvæði bæjarins í atvinnu- málum. Meirihlutinn hefur brugðist þrátt fyrirfögur fyrirheit Umsjón: Garðar Guðjónsson Guðbjarlur, efsti maður á G-listanum: Höfuðatriði að við náum tveimur mönnum inn. Mynd: gg. Guðbjartur Hannesson Mikil þátttaka í stefnumótun Stefnuskránni hefur verið afskaplega vel tekið enda hef- ur ótrúlegur fjöldi fólks komið til okkar og sagt sína skoðun á einstökum málum og unnið að stefnumótuninni. Þessi vinna hefur veitt mér geysilegar góð- ar upplýsingar um hin ýmsu mál og verið mér eflaust nokk- urs konar leiðbeiningarrit í bæjarstjórn næsta kjörtímabil, sagði Guðbjartur Hannesson skólastjóri í Grundaskóia og efsti maður á G-listanum á Akranesi í samtali við blaða- mann Þjóðviljans. Guðbjartur er 36 ára gamall, fæddur og uppalinn á Akranesi. Hann hefur ekki áður verið svo ofarlega á lista fyrir bæjarstjórn- arkosningar, en hefur starfað mikið í flokknum og að fé- lagsmálum á öðrum vettvangi. Og fyrir hverju ætlar nýr oddviti svo að beita sér sérstaklega í bæ- jarstjórn á næsta kjörtímabili. Hærri laun og meiri atvinnu „Það er auðvitað nteira en rúmast í svona viðtali. En það er um ákveðna forgangsröð að ræða og þar vil ég fyrst nefna launamál og atvinnumál. Það er ekki boð- legt að bjóða nokkrum manni í dag upp á minna en 30 þúsund krónur fyrir dagvinnu sína og ég mun beita mér fyrir því strax að loknum kosningum að lágmarks- laun bæjarstarfsmanna verði ekki undir 30 þúsund krónum á mán- uði. Við erum óhrædd við að mæla með því að bærinn hafi ákveðið frumkvæði í atvinnumálum og teljum að honum sé skylt að þjónusta atvinnulífið í sambandi við markaðssetningu, skipulagn- ingu, stjórnun og fleira. Ég er sannfærður um að stefna okkar í atvinnumálum á eftir að reynast vel, ef menn eru tilbúnir að vinna eftir henni.“ Viðbygging við Höfða „Við leggjum áherslu á að við- byggingu við Dvalarheimilið Höfða verði lokið sem allra fyrst. Þetta er brýnt verkefni því eins og er bíða 60 aldraðir eftir vistun í Höfða. Það er einnig mikið réttlætis- mál að þarna verði komið upp eldhúsi og félagsaðstöðu. Slík að- staða myndi stórbæra félagsstarf aldraðra í bænum. Kosningarnar Oddvitaskipti hjá öllum Nýrflokkuraö auki Það verða fimm flokkar í framboðl í bæjarstjórnarkosn- ingum á Akranesi, Alþýðu- bandalag, Alþýðuflokkur, Flokkur mannsins, Framsókn- arflokkur og Sjálfstæðisflokk- ur. „Fjórflokkurinn" á allur full- trúa í bæjarstjórn, en Flokkur mannsins býður fram í fyrsta sinn. í síðustu kosningum fékk Sjálfstæðisflokkur flest atkvæði og fjóra menn í bæjarstjórn. Þrír þeirra hafa nú dregið sig í hlé, en efstur á lista er Guðjón Guð- mundsson. Framsóknarflokkur bætti við sig og fékk 3 í bæjar- stjórn. Jón Sveinsson oddviti þeirra Framsóknarmanna 1982 hefur færst neðar á listann og í staðinn verður í fyrsta sæti íngi- björg Pálmadóttir. Alþýðuflokk- ur náði einum manni inn, Guðm- undi Vésteinssyni, sem var felldur í prófkjöri flokksins eins og al- kunna er, en Gísli Einarsson skipar efsta sæti listans í hans stað. Alþýðubandalagið tapaði manni síðast og fékk aðeins einn bæjarfulltrúa. Sá heitir Engilbert Guðmundsson, en hann er nú við þróunarstörf í Tanzaníu. Ragn- heiður Þorgrímsdóttir tók við af honum fyrir ári síðan, en ákvað að gefa ekki kost á sér ofar en í þriðja sæti í þetta sinn og eins og kemur fram annars staðar á þess- ari síðu er Guðbjartur Hannesson nú efsti maður á G-listanum. Guðrún Aðalsteinsdóttir skipar efsta sæti M-listans. Alþýðuflokkur og Sjálfstæðis- flokkur mynda meirihluta bæjar- stjórnar á Akranesi. Bæjarstjóri er Ingimundur Pálsson. Fyrir þessar kosningar verða rúmlega 3600 manns á kjörskrá. -gg- Þá þarf að hlúa vel að heimilis- hjálpog heimilishjúkrun og efvel á að vera verður að ráða mann í a.m.k. hálft starf til að stjórna þeirri þjónustu." Sveigjanlegri vistunartími „Núverandi meirihluti hefur staðið sig illa í dagvistunarmálum eins og svo mörgu öðru. Við vilj- um að fleiri geti notið dagvistun- ar en börn svokallaðra forgangs- hópa. Það er markmið okkar að fólk geti valið sér dagvistunar- form og til þess þarf að gera vist- unartímann sveigjanlegri en hann er í dag. Það er einnig mikil- vægt að fleiri aldurshópar eigi kost á dagvistun, og þá er ég ekki hvað síst að tala um yngstu krakkana í skólunum. Ökkur vantar skóladagheimili. Þarna hefur meirihlutinn brugðist. Það hefur sáralítið ver- ið gert þrátt fyrir fögur fyrirheit í upphafi kjörtímabils. I æskulýðsmálum ber Vinnu- skólann náttúrlega hæst. Hann hefur verið endurskipulagður á undanförnum árum og tekist vel til, en það þarf að vinna fram að því, þannig að skólinn standi undir nafni sem stofnun sem hef- ur það hlutverk að þjálfa fólk upp í verkþekkingu og kynna því atvinnulífið og allt sem því fylgir. Skólinn er reyndar á hrakhólum með aðstöðu og úr því verðum við að bæta. Annað sem hefur verið okkur Alþýðubandalags- mönnum mikið hjartans mál er að krakkarnir í vinnuskólanum fái 100% laun fyrir vinnu sína“. Bara fyrir kosningar „Eitt er það málefni sem virðist ætla að verða eilífðarvandamál hér á Akranesi og það eru hús- næðismál Tónlistarskólans. Það er í raun og veru hlálegt að vandamál skólans eru aðeins rædd fyrir kosningar. Skólinn er kjörtímabil eftir kjörtímabil á hrakhólum með húsnæði, en auðvitað getur það ekki gengið svona endalaust, menn verða að finna framtíðarlausn á vanda skólans. Það er langt í land með að að- staða fyrir fatlaða sé fullnægjandi. Við höfunr fullan hug á að berjast fyrir því í bæjar- stjórn að allt verði gert til að hlúa þannig að fötluðum að þeir þurfi ekki að leita annað til aö fá nauðsynlega þjónustu. Ferlimál fatlaðra eru í miklum ólestri og þar þyrftum við að taka okkur tak. Stofnanir bæjarins eru engan veginn til fyrirmyndar þeg- ar fatlaðir eiga í hlut. Það þarf að gera þær og önnur fyrirtæki að- gengilegri fyrir hjólastólafólk.“ Viljum tvo inn Finnst þér að blási byrlcga fyrir G-listann í kosningabar- áttu? „Ég get ekki annað sagt en að viðtökur á vinnustaðafundum hafa verið ágætar og ég hef fund- ið fyrir því að stefna G-listans fellur vel í kramið hjá bæjarbú- um. Ég er því nokkuð bjartsýnn, en tel það vera höfuðatriði í þessu sambandi að bæjarbúar komi tveimur mönnum inn af listanum. Það er geysilega mikilvægt fyrir allt okkar starf að bæjarmálum og setu okkar í nefndum bæjarins að Jóhanni Ársælssyni verði tryggð seta í bæjarstjórn,“ sagði Guðbjartur. -gg Þriðjudagur 27. mat 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.