Þjóðviljinn - 28.06.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
28
143. tðlublað 51. ðrgangur
maí.
1986
laugar-
dagur
DIÚÐWIUINM
Fjármál Sjálfstœðisflokksins
Fletti þessu ekki upp
Hörður Sigurgestsson: Upplýsi ekkifjárstuðning við stjórnmálaflokka
r
Eg ætla ekki að segja þér frá
þessu. Ég ætla ekki að fletta
þessu upp, sagði Hörður Sigur-
gestsson forstjóri Eimskipafélags-
ins þegar Þjóðviljinn bað hann að
skýra frá fjárstuðningi fyrirtæk-
isins við Sjálfstæðisflokkinn.
Upplýsingar um leynigreiðslur
Hafskipsmanna til Sjálfstæðis-
flokksins hafa beint athygli
manna að fjárstuðningi einstakra
fyrirtækja við stjórnmálaflokka.
fþessu sambandi leitaði Þjóðvilj-
inn m.a. til forstjóra Eimskipafé-
lagsins en stuðningur þess er jafn-
an talinn mikilvægur þegar nær
dregur kosningum.
Hörður kvað Eimskip ekki
greiða beina styrki til neins
stjórnmálaflokks, en hann sagði:
„Við styrkjum flokksstarfsemi
með auglýsingum eða í einstaka
tilfellum með því að kaupa
happdrættismiða. Styrkir til
stjórnmálaflokka eða stuðningur
kemur aðeins fram í formi auglýs-
inga eða í einstaka tilfellum með
happdrættismiðakaupum. “
Aðspurður hve fjárstuðningur
væri mikill við einstaka flokka
ítrekaði Hörður: „Ég er ekki
reiðubúinn til þess að gefa upp-
lýsingar um það.“
S.Sv.
Það er ekki á hverjum degi sem mað-
ur rekst á svona fyrirbæri í henni
Öskjuhlíð. Mynd: Ari.
Vígsla Öskjuhlíðar
Lofar góðu
um
framhaldið
„Þetta er fyrsta leiksýning sem
haldin hefur verið í Öskjuhlíð, en
vonandi ekki sú síðasta,“ sagði
Sigrún Valbergsdóttir, fram-
kvæmdatjóri Bandalags íslenskra
leikfélaga, eftir sýningu Finna
þar í gær. Það er full ástæða til að
taka undir með Sigrúnu, því byrj-
unin lofar góðu um framhaldið.
Áhyggjur manna af skapferli
veðurguðanna voru óþarfar með
öllu, enda hafa þeir sjálfsagt haft
jafngaman af sýningunni og þess-
ir rúmlega tvöhundruð sem gerðu
sér ferð í hlíðina í gær.
Hún var kröftug og áhrifamikil
þessi leikgerð sem byggir á sögu
úr Kalevalabálkinum og leikin af
tilfinningu. Allt hjálpaðist til við
að gera þessa sýningu eftirminni-
lega: leikurinn, leikmunir, bún-
ingar, staðurinn, sviðsetningin og
síðast en ekki hvaðsíst leikhljóö-
in.
Dagurinn í gær var síðasti dag-
urinn á Norrænni leiklistarhátíð
áhugamanna og var ekki annað á
leikhlíðargestum að heyra, en
einkar vel hefði tekist til með
hana. Hhjv
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
HEIMURINN
Reykjavíkurveður
Ótnílega
lítil sól
„Frá því mælingar sólskins-
stunda hófust á Reykjavíkur-
svæðinu hafa sólskinsstundir að-
eins einu sinni mælst færri í jún-
ímánuði. Það var árið 1914, þá
mældist 61 sólskinsstund í mán-
uðinum og þótti það afleitt. Nú
eru þær orðnar 63“, sagði Adda
Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðing-
ur á Veðurstofu Islands í samtali
við Þjóðviljann í gær.
Adda Bára sagði að þar sem
mánuðurinn væri ekki liðinn væri
þetta ekki fullkomið meðaltal en
sólin mætti skína nokkuð hressi-
lega síðustu daga mánaðarins til
að þessi mjög svo óvenjulega
staða reyndist ekki rétt. „Það er
mjög óvenjulegt að meðaltal sól-
skinsstunda sé undir hund-
raðinu," sagði hún. Samkvæmt
mælingum áranna 1951 til 1980 er
meðaltal sólskinsstunda í
Reykjavík í júnímánuði 174
stundir. jh
Fiskeldi
290 þús.
seiði
til írlands
- Ég vona að með þessum út-
flutningi séum við að komast inn
á nýjan markað með okkar fram-
leiðslu. Innanlandsmarkaður
tekur ekki við meiri framleiðslu
svo það er mjög gott að vera kom-
inn með aðra löppina inn á er-
lendan markað.
Þetta sagði Teitur Arnlaugsson
stöðvarstjóri Fljótalaxs en þeir
ásamt þrem öðrum laxeldisstöð-
um á Norðurlandi hafa selt 290
þús. seiði til írlands að verðmæti
rúmlega 26 miljónir króna.
Seiðin eru eins árs gömul og
verða sett í sjókvíar þegar til ír-
lands kemur. Nú þegar er fyrsti
farmurinn farinn til Irlands með
norsku skipi sem er sérsmíðað til
seiðaflutninga. í allt verða ferð-
irnar þrjár.
„Útflutningur þessi er háður
mjög ströngum reglum og það er
fylgst náið með honum af hálfu
írskra heilbrigðisyfirvalda.“
Sagði Teitur að þeir hefðu staðist
allar þær kröfur sem gerðar væru
til framleiðslunnar.
Hinar stöðvarnar þrjár eru
Hólalax, Árlax og klakstöðin á
Húsavík. - SG
Betlarar
gjaldþrota
Þetta verður gullnáma
Bylgjan hf. á Suðureyri staðráðin íað hefja kúfiskveiðaríhaust.
Viðar Aðalsteinsson: Fjárfestingsem mun borga sig. Verðurgullnáma áður en langt um líður
Teheran - íranskir betlarar eru
ekkert yfir sig ánægðir með
kjör sín þessa dagana. Það er
ekki nóg með að það fé sem
þeim áskotnast með betli hafi
verið tekið af þeim, þeir hafa
einnig verið sendir í endurhæf-
ingarbúðir.
írönsk yfirvöld hafa víst séð of-
sjónum yfir tekjum þeirra af betli
sem eru ekki litlar. Þannig mun
kona ein hafa verið gripin með
1000 dollara á sér. Margir íran-
skir betlarar eru orðnir ótrúlega
nkir þar sem Kóraninn segir guð
vernda þá sem gefa.
- IH/Reuter
r
Eg er sannfærður um að þetta
verður gullnáma áður en
langt um líður. Þetta er komið á
fulla ferð og ég á von á að við
hefjum veiðarnar í haust, sagði
Viðar Aðalsteinsson verðandi
framkvæmdastjóri Bylgjunnar á
Suðureyri í samtali við Þjóðvilj-
ann í gær, en fyrirtækið hyggst
kaupa skip og vélar til vinnslu og
veiða á kúflski.
Bylgjan hefur leyfi sjávarút-
vegsráðherra til skipakaupa, en
að sögn Viðars hefur enn ekki
verið gengið frá leyfi til erlendrar
lántöku. Stofnun fyrirtækisins
mun hafa gífurlegar fjárfestingar
í för með sér. Þegar hefur verið
keypt húsnæði á Suðureyri fyrir
20 miljónir. Viðar sagðist reikna
með að vélakostur til vinnslunnar
myndi kosta aðrar 20 miljónir og
skip, sem er sérhæft til kúfisk-
veiða mun kosta 40-50 miljónir
króna.
„Þetta er mikil fjárfesting, en
hún mun borga sig,“ sagði Viðar
þegar hann var spurður um þetta
í gær.
Formaður kúfisknefndar,
Finnur Ingólfsson, hefur látið þá
skoðun sína í ljós að hann telji
ekki heppilegt að fara út í þessar
fjárfestingar að svo stöddu, þar
sem vitneskja um stofnstærð kú-
fisks sé ekki fullnægjandi. Viðar
sagði í gær að þessi skoðun Finns
myndi engin áhrif hafa á áætlanir
fyrirtækisins. „Skoðanirokkar og
nefndarinnar fara ekki saman, og
við teljum að hún hafi ekki sinnt
hlutverki sínu sem skyldi.
Þetta er nýjung á íslandi og
þótt víðar væri leitað og því
hlýtur að vera fagnað. Við teljum
okkur vera að fara út í trausta
fjárfestingu," sagði Viðar.
Byggðastofnun hefur lagt til
um það bil 30% hlutafjár í Bylgj-
unni, Báran hf. á Suðureyri og
Vélsmiðjan Mjölnir á Bolungar-
vík eiga einnig stóra hluta í fyrir-
tækinu.
—gg