Þjóðviljinn - 28.06.1986, Qupperneq 4
LEIÐARI
Reagan og Nicaragua
Fréttastofurnar voru að segja frá því að Reag-
an Bandaríkjaforseti hefði unnið „verulegan
sigur“. Fulltrúadeild Bandaríkjaþings hefur
samþykkt hundrað miljón dollara aðstoð við
gagnbyltingarsveitir þær, sem herjað hafa á
Sandinistastjórnina í Nicaragua frá Honduras.
Reagan er sagður mjög glaður, en telur þó að
hérsé aðeins um „áfangasigur" að ræða. Hann
ætlar semsagt að leita ráða til að auka þessa
hernaðaraðstoð - ekki nema von að Ortega,
forseti Nicaragua segi um þessi tíðindi, að þau
beri vitni um „víetnamiseringu" Mið-Ameríku og
skilja allir hvað við er átt.
Utanríkisráðherrar Contadoraríkjanna svo-
nefndu, sem hafa staðið að friðarumleitunum í
Mið-Ameríku, eru eins og vænta mátti von-
sviknir yfir fyrrgreindri atkvæðagreiðslu á
Bandaríkjaþingi. Og reyndar má ganga út frá
því sem vísu, að fáir verði til að samfagna Reag-
an í Mið-Ameríku og Rómönsku Ameríku yfir-
leitt. Þar eru menn langþreyttir á því dæmi sem
hefur verið kennt við „hákarl og sardínur" -
hákarlinn er sá stóri bróðir í norðri, sem gengur
fram með fagurgala um nauðsyn þess að
vernda sardínurnar, smáríkin rétt fyrir neðan
hann á kortinu, fyrir allskonar utanaðkomandi
óvinum - sardínurnar eiga svo í þakklætisskyni
að svamla inn í gin hans í auðmjúkum fögnuði
þess, sem hefur fundið sér réttan stað í tilver-
unni.
Vitanlega mun Reaganliðið segja nú sem
fyrr, að með því að styðja Contra-skæruliða til
áhlaupa á Nicaragua séu þeir að berjast fyrir
frelsi og mannréttindum. Þeim ræðum trúa ekki
margir þar um slóðir - svo mjög sem Bandarík-
in, landgöngusveitir þeirra eða málaliðar á
þeirra snærum, hafa komið við sögu í Mið-
Ameríku og jafnan í einum tilgangi: að steypa
vinstristjórnum og umbótastjórnum, að tryggja
hagsmuni bandarískra auðhringa og nota til
þess herstjóra sem afnema mannréttindi hve-
nær sem þeim þurfa þykir. Því verður til dæmis
ekki á móti mælt, að mikið af því liði sem nú er
gert út fyrir bandaríská peninga til að steypa
byltingarstjórninni í Nicaragua, hélt áður uppi
einhverju spilltasta lögregluríki álfunnar á vald-
atíma Somozaættarinnar í því landi. Þetta lið,
sem Reagan kallarfrelsishetjur, hefurfarið með
brennum og ránum um sveitir Nicaragua - og
áræðir þó sjaldan langt frá bækistöðvum sínum
í Honduras - og m.a. rænt Evrópumönnum sem
verið hafa við hjálparstörf í landinu. Einatt hefur
málalið þetta lagst á varnarlausa bændur í
Honduras sjálfu.
Sumir ráðamenn í Bandaríkjunum hafa sýnt
lit á því að viðurkenna, að byltingar eða vinstri-
sveiflur í Rómönsku Ameríku eiga sér fyrst og
fremst rætur í réttleysi og kúgun, sem alþýða
þar í löndum hefur verið beitt. Sú stjórn sem nú
situr í Washington hefur hopað sem lengst frá
slíkum skilningi og kýs að sjá öll átök í álfunni
sem endurspeglun átaka austurs og vesturs.
Og einmitt þess vegna er nú reynt að „víetnam-
isera“ Nicaragua með þeim valdhroka og fag-
urgala, sem minnir á ekkert frekar en blóma-
skeið „hákarlsins" á fyrstu áratugum þessarar
aldar.
-áb.
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufélag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, össur Skarphéðinsson.
Rítstjórnarfulltrúi: Oskar Guðmundsson.
Fróttastjóri: Valþór Hlöðversson.
Blaðamenn: Garðar Guðjónsson, Guðlaugur Arason (Akureyri), Ing-
ólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafsdóttir, Lúðvík Geirsson, Magnús H.
Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson, Sigurður Á. Frið-
þjófsson, Víðir Sigurðsson (íþróttir), Þröstur Haraldsson.
Handrita- og prófarkalestur: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndir: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Utbreiðslustjori: Sigríður Pótursdóttir.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Jónsson.
Afgreiösla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumula 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6 símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Ðlaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 40 kr.
Helgarbiöð: 45 kr.
Áskrtftarverð á mánuði: 450 kr.
4 SfÐA - ÞJÖÐVILJINN Laugardagur 28. júní 1986