Þjóðviljinn - 02.07.1986, Blaðsíða 2
FRETTIR
Hraðfrystistöðin hf.
Stjómvöld ábyrg
Verkakona í Hraðfrystistöðinni: Verkalýðsforystan stendur sig illa
Stjómvöld bera ábyrgð á
þessu, þau vilja allt dautt sem
heiðarlegt er og láta fy rirtæki eins
og þrælabúðirnar Granda hf. ein-
oka útgerðina, sagði Ragnheiður
Jóhannsdóttir verkakona í sam-
tali við blaðamann Þjóðviljans.
Hún er ein þeirra áttatíu sem
fengu uppsagnarbréf í fyrradag
frá fyrirtækinu Hraðfrystistöð-
inni hf. en hún hefur aðeins unnið
þar í nokkra mánuði því hún
missti vinnuna þegar Grandi varð
til.
„Ég fer aldrei í Granda, ég hélt
að þrælahald væri bannað en svo
virðist ekki vera. Það á að loka
öllu nema þar, það er greinilegt.
Nú er Kirkjusandur einn eftir en
þar er ekki greiddur bónus og
ekki lifi á ég dagvinnukaupinu
einu saman sem er núna 113
krónur og 7 aurar eftir 12 ár í
þessu starfi. Maður var svo
ánægður að fá vinnuna hér, hér er
góður starfsandi og gott fólk en
þá fer þetta svona. Og það er ekki
sama hvað maður er gamall þegar
maður leitar að vinnu, hér er þó
nokkuð af eldri konum og ég ef-
ast um að þær fái nokkuð að gera í
haust. Verkalýðsforystan gerir
ekkert fyrir okkur og sýnir bara
linkind sí og æ. Þegar ég hætti í
Granda, þá fór ég á fund hjá
Samtökum kvenna á vinnumark-
aðnum og það eru góð samtök.
En núna sé ég ekkert framundan,
það er útilokað að fólk geti búið úl
lengdar við slíkt öryggisleysi sem
sífelldar uppsagnir valda og ég
hef bara ekki skap í mér til að
margbiðja um vinnu í BÚR aftur.
Mig langar til að vinna lengur því
ég er enn við hestaheilsu, en ég
býst ekki við að fá neitt. Ég veit
ekki á hverju menn ætla að lifa í
þessu landi þegar búið er að
stöðva alla útgerð sem skapar
mestar útflutningstekjurnar",
sagði Ragnheiður Jóhannsdótir
verkakona að síðustu. _vd
Hraðfrystistöðin
Sinnuleysi
harðlega
mótmælt
Dagsbrún og
Framsókn:
Stjórnvöld og
atvinnurekendur
horfa aðgerðarlaus á
fiskvinnsluna í
landinu veslast upp.
Ábyrgð
atvinnurekenda
meiri en að hirða
gróðann og loka
þegar þrengir að
Verkalýðsfélögin lýsa þungri
ábyrgð á hendur stjórnvalda og
atvinnurekenda sem horft hafa
aðgerðarlaus á fiskvinnsluna í
landinu veslast upp, segir m.a. í
harðorðri yfirlýsingu sem Ragna
Bergmann formaður Verka-
kvennafélagsins Framsóknar og
Þröstur Ólafsson framkvæmda-
stjóri Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar sendu frá sér í gær
vegna uppsagnar starfsfólks
Hraðfrystistöðvarinnar og vænt-
anlegrar lokunar frystihússins.
í yfirlýsingunni er bent á að
þetta sé í annað sinn á nokkrum
mánuðum sem verulegar upp-
sagnir eiga sér stað í fiskvinnslu í
Reykjavík. Ef svo fer fram sem
horfir muni atvinnufyrirtækjum í
fiskvinnslu enn fækka í höfuð-
staðnum.
„Með betri nýtingu og mark-
vissari framleiðslu verður að
lækka tilkostnað og gera þessi
hús rekstrarhæfari og þar með að
greiða hærri laun og dýrara hrá-
efni. Þessi innri skipulagsmál
hafa verið algjörlega vanrækt og
engin markviss stefnumótun átt
sér stað í málefnum undirstöðu-
atvinnuvegar landsmanna.
Félögin krefjast þess að ríkis-
stjórnin hafi forgöngu um gagn-
gera úttekt á framtíðarhorfum
fiskvinnslunnar í landinu svo að
bregðast megi skipulega við slík-
um ótíðindum sem þessum fram-
vegis. Atvinnurekendum verður
að skiljast að ábyrgð þeirra er
fólgin í meiru en því að hirða
gróðann þegar vel árar og loka
þegar að þrengir.
Verkalýðsfélögin mótmæla
harðlega þessu algera sinnuleysi í
garð svo mikilvægrar atvinnu-
greinar og slíku ábyrgðarleysi í
garð verkafólks sem nú er rænt
lífsbjörg sinni“, segir í yfirlýsingu
þeirra Rögnu og Þrastar.
-Jg
„Ég hef unnið hér í níu ár og ætla ekki að leita mér að vinnu í frystihúsi aftur. Þar spila saman lág laun og
vinnan sjálf", sagði Kristín Guðlaugsdóttir verkakona í Hraðfrystistöðinni hf., en henni var einsog öðrum
sagt upp í vikunni.
Hraðfrystistöðin hf.: Eftir þrjá mánuði verður þessu fyrirtæki lokað og það hættir störfum ef ekkert er
að gert. Áttatíu manns missa vinnuna á einu bretti.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVIUINN Miðvikudagur 2. júlí 1986
Nú er æxli orðið hjá íhaldinu
albert.
Matreiðslunemar
Ekki til
Laugarvatns
Matreiðslumenn
mótmæla flutningi
Hótel- og
veitingaskólans til
Laugarvatns
Á aðalfundi Félags matreiðslu-
manna sem haldinn var á dögun-
um var samþykkt samhljóða að
mótmæla flutningi Hótel- og
veitingaskóla íslands til Laugar-
vatns og skora á stjórnvöld að
standa við gerða samninga sem
gerðir voru við Kópavogs-
kaupstað um að Matvælaskóli Is-
lands yrði reistur í tengslum við
Menntaskólann þar.
Segir í samþykktinni að mikil-
vægt sé að reisa þennan skóla á
Stór-Reykjavíkursvæðinu þar
sem flestir nemendur búa og flest
veitingahús eru staðsett.
Vestfirðingar
Mótmæla
umfjöllun
sjónvarps
„Neikvœð umrœða
um málefni
Suðureyrar
og mál að linni“
Stjórn Fjórðungssambands
Vestfirðinga hefur sent frá sér á-
lyktun til fréttastjóra Sjónvarps,
útvarpsráðs og útvarpsstjóra þar
sem harðlega er mótmælt um-
fjöllun sjónvarps á dögunum um
málefni íbúa Suðureyrar við Súg-
andafjörð.
í ályktuninni segir að við lestur
Lögbirtingablaðsins komist
menn að raun um að í byggðar-
lögum kringum allt land og einnig
á höfuðborgarsvæðinu séu aug-
lýst nauðungaruppboð án þess að
slíkt fái álíka umfjöllun í sjón-
varpi og uppboð þau sem fram
áttu að fara á Suðureyri. Vanda-
mál staða eins og Suðureyrar
megi ekki síst rekja til þess að-
dráttarafls sem höfuðborgar-
svæðið hefur bæði á fólk og fé.
Segir ennfremur í ályktuninni
að fréttaflutningur sjónvarps um
uppboðin á Suðureyri leysi ekki
vanda eins eða neins. „Aftur á
móti getur slíkur fjölmiðla upp-
sláttur gert illleysanleg vandamál
óleysanleg, og á þann hátt fækk-
að byggðum bólum á íslandi“.
Hér hafi verið um ítrekaða
neikvæða umræðu sjónvarps um
málefni Suðureyrar að ræða og
mál sé að linni.