Þjóðviljinn - 04.07.1986, Page 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
GLÆTAN
LJÓSMYNPUN
ATVINNULÍF
HEIMURINN
Fatlaðir
Skipulagsstjóm gegn
meirihluta
Engin
nefnd
Alþýðubandalagið lagði í gær
fram tillögu í borgarstjórn um
að endurvekja nefnd frá 1982,
sem starfaði að úrbótum í at-
vinnumálum og fcrlimálum fatl-
aðra, en henni var vísað frá.
Mikill fjöldi sótti Hlíðargarðshátað Vinnuskólans í Kópavogi í gær og var gífurleg stemmning á mannskapnum enda veður með besta móti. Mynd: Sig.Mar.
Niðurstöður verðkönnunar
Krefjum heildsala skýringa
Skýringar skortir á óeðlilega háu innkaupsverði íslenskra innflytjenda
á erlendum vörum.
koma mér afskaplega mikið á
óvart og mér finnast þær mjög
alvarlegar, sagði Sigurður E.
Haraldsson formaður
Kaupmannasamtakanna um nið-
urstöður könnunar Verðlagss-
tofnunar á vöruverði í Reykjavík
og Glasgow.
„Ég hef að vísu ekki kynnt mér
niðurstöðurnar í smáatriðum en
það sem vekur sérstaklega at-
hygli mína er að í svo mörgum
tilvikum skuli innkaupsverð hjá
íslensku innflytjendunum vera
hærra en smásöluverð sömu vöru
í Glasgow. Pessu þurfa innflytj-
endur að koma í eðlilegt horf en
það er ekki bara metnaðarmál
fyrir verslunina í landinu heldur
líka hagsmunamál neytenda að
hægt sé að fá vörur á sambærilegu
verði við það sem gerist annars
staðar. Ég vona að þeir sem hlut
eiga að máli athugi sinn gang og
reyni að færa þessi mál í eðlilegt
horf sem allra fyrst“, sagði Sig-
urður að lokum.
Guðmundur Sigurðsson
deildarstjóri hjá Verðlagsstofnun
og umsjónarmaður könpunar-
innar sagði að niðurstöðurnar
gæfu fullt tilefni til frekari athug-
unar og yrði í því sambandi t.d.
að kanna hvort framleiðendur
eða útflytjendur í Glasgow setji
upp mismunandi verð fyrir hin
ýmsu lönd en slíkar reglur gætu
að einhverju leyti skýrt niður-
stöðurnar. „í sumum tilfellum",
sagði Guðmundur „hefur útflutn-
ingverð vöru erlendis frá einmitt
verið lækkað samkvæmt þessum
reglum en þá hefur verið miðað
við kaupgetu launa í landinu. Þá
hefur varan jafnvel verið ódýrari
í smásölu hér en í útflutnings-
landinu. Ef um einhverjar reglur
er að ræða í þeim tilvikum sem
könnunin nær til þá er greinilegt
að þær eru okkur mjög óhagstæð-
ar“.
„Við hljótum að krefja heild-
sala skýringa á innkaupsverðinu.
Mér er illa við að láta íslenska
heildsala maka krókinn á minn
kostnað en mér er jafnvel enn
verr við að láta þá henda mínu fé í
yfirborgun til útlendra heildsala
eða framleiðenda", segir Ás-
mundur Stefánsson forseti ASÍ í
athugasemd um niðurstöður
könnunarinnar sem birtist í blað-
inu í dag. Sjá bls. 2 —K.Ól.
Allir borgarfulltrúar minni-
hlutans studdu hins vegar til-
löguna, sem var unnin í samráði
við stóran hóp fatlaðra. Nefndin
var lögð niður þegar Sjálfstæðis-
flokkurinn komst til valda á ný
árið 1982. Samkvæmt tillögu
Abl. áttu fulltrúar úr borgar-
stjórn, svæðisstjórn fatlaðra,
Sjálfsbjörg í Reykjavík og Ör-
yrkjabandalaginu að sitja í
nefndinni.
-gg
Ekki séðfyrir endann á deilum um Bergstaðastrœti 15.
Sjálfstæðisflokkurinn gafleyfi til að byggja stórhýsi. Skipulagsstjórn
mœlir með afturköllun leyfisins. Teikningar samrœmast ekki
aðalskipulagi
Skipulagsstjórn ríkisins ákvað
á fundi sínum á þriðjudaginn
að mæla með því að byggingar-
leyfi, sem meirihlutinn í borgar-
stjórn hafði veitt fyrir nær fjög-
urra hæða hús að Bergstaðast-
ræti 15, verði afturkallað. Ástæð-
an er sú að teikningar samrýmast
ekki staðfestu aðalskipulagi að
svæðinu.
Á lóðinni stóð áður elsti
steinbær á fslandi. Miklar deilur
risu í borgarkerfinu þegar Sjálf-
stæðisflokkurinn ákvað að hei-
mila niðurrif hans, og ekki síður
þegar sami flokkur veitti leyfi
fyrir byggingu þriggja og hálfrar
hæðar steinsteyptu húsi á lóðinni.
Nýtingarhlutfall lóðarinnar
verður þá 2,5 en má samkvæmt
aðalskipuiagi aðeins vera 0,5.
Auk þessa leggst skipulagsstjórn
gegn því að þarna verði verslun
og skrifstofur, enda samræmist
það ekki skipulagi.
íbúi í hverfinu kærði ákvörðun
byggingarnefndar borgarinnar
um leyfisveitingu til félagsmála-
ráðuneytis af fjölmörgum ors-
ökum. Ráðherra bað skipulags-
stjórn um umsögn um málið og
var það samhljóða niðurstaða
hennar að mæla með afturköllun.
Þá er einskis beðið nema úr-
skurðar ráðherra.
Þessi ákvörðun skipulags-
stjórnar er líklega einstök í sinni
röð hvað Reykjavík varðar og er
trúlegt að hún muni valda mikl-
um úlfaþyt í borgarkerfinu.
Ef ráðherra afturkallar leyfið
verður það mikið áfall fyrir
Sjálfstæðisflokkinn, en ekki síður
þá sem hafa leyfið. Framkvæmdir
eru þegar hafnar, þrátt fyrir
mikla andstöðu nágranna.
—gg
Hafnarfjörður
15% hækkun
á lægstu laun
Starfsmannafélag Hafnarfjarð-
ar og bæjarstjórn náðu í gær
samkomulagi um nýjan kjara-
samning. Fráfarandi bæjar-
stjórnarmeirihluti halði hafnað
öllum kröfum starfsmannafélags-
ins og var deilan komin til kjara-
nefndar. Hinn nýgerði kjaras-
amningur er afturvirkur til 1. fe-
brúar og er í honum gengið nokk-
uð í átt til kjarajöfnunar.
Samkvæmt samningnum
hækka laun bæjarstarfsmanna
um 8,6% að meðaltali. Laun
hinna lægst launuðu hækka mest
en þeir færast upp um fimm
launaflokka og fá því 15% launa-
hækkun. Síðan fer hækkunin
stiglækkandi eftir því sem ofar
dregur og færast þeir í efstu
launaflokkunum upp um einn
launaflokk og fá því um 3%
hækkun.
Lægstu laun verða með þessum
samningi um 27 þúsund krónur í
stað 23 þúsunda króna áður.
Einnig var samþykkt að endur-
skoða niðurröðun í launaflokka
síðar á þessu ári. -G.Sv.