Þjóðviljinn - 04.07.1986, Qupperneq 10
AUGLÝSINGA- OG
IÐNAÐARLJÓSMYNDUN
LITSTÆKKANIR
SKYGGNUFRAMKÖLLUN
ESKIHLÍÐ 4 SÍM110690
FILMUR- VELAR
MYNDAALBÚM
Móttaka á filmum
fyrir Hans Petersen.
Radíóröst- Myndahúsið hf.
Dalshrauni 13 Hafnarfirði
sími 53181.
HEIMSMEISTARI í
FILMUGÆDUM
Heimsmeistarakeppnin í knattspyrnu í Mexico
notar aðeins Fuji filmur fyrir allar myndatökur af
leikunum.
Þegar á að taka vandaöar myndir sem á að varð-
veita, þá er betra að hafa FUJI filmu f mynda-
vélinni.
Nýju FUJICOLOR HR filmurnar standa fyrir sinu
— skarpar og ffnkornaðar myndir, sem varð-
veita góðar minningar um langa framtfð.
Næst þegar þú færð þér filmu — mundu eftir
FUJI — vegna gæðanna og að sjálfsögðu líka
vegna verðsins.
Þú færð FUJICOLOR litfilmur 100 asa, 200 asa, 400 asa og
1600 asa, sem er Ijósnæmasta filma veraldar.
SKIPHOLTI 31 — SÍMI 25177
Útsölustaðir um allt land!
fvar: „Við erum að reyna að koma upp kaffikrók, þar sem fólk getur fengið að skoða þau söfn, sem eru fullfrágengin. Við vonum bara að sem flestir láti sjá sig."
OTRULEGT
BANANA-
LÝÐVELDI
Þær Helga og Inga Hulda voru önnum kafnar við undirbúning sýningar sem verður haldin í
tilefni 200 ára afmælis Reykjavíkur. Á henni verða tæplega 300 myndir og þvi nóq að qera
hjá þeim stöllum.
Það er alltaf gaman að hitta
hugsjónafólk, svo fremi auðvit-
aö að hugsjón þeirra sé falleg.
Einkum og sér í lagi hafi fólkið
skapað sér aðstöðu til að hafa
hugsjónina að starfi. Og ekki
verður það til að draga úr ánægj-
unni að starfið gangi vel. Enda
verður ekki annað sagt en við Ari
höfum skemmt okkur dável (
heimsókn okkar á Ijósmynda-
safnið á þriðjudaginn var.
Ljósmyndasafnið er annað
tveggja á íslandi, hitt er Þjóðminja-
safn fslands. Það var stofnað fyrir
tæpum fimm árum síðan af níu
áhugamönnum um ljósmyndir og
sögu þeirra. Þareð safnið er í einka-
eigu, datt okkur fyrst í hug að spyrja
viðmælanda okkar, ívar Gissurar-
son, starfsmann safnsins, hvort hér
væri um eitthvert fjárplógsfyrirtæki
að ræða (og myndi Freud hafa haft
e-ð um sp. að segja).
„Betur ef svo væri“, svarar fvar
að bragði, „en því er nú öfugt farið.
Við erum mjög illa stödd fjárhags-
lega, skuldum mikið, enda hvernig
á öðruvísi að fara, þegar húmanist-
ar og þá aðallega konur taka sig
saman og reyna að bjarga menning-
arverðmætum. Það tók okkur tíma
að læra að afla fjár og kannski var
viljinn, áhuginn á slíku, ekki ýkja
mikill fyrstu árin. En þetta er allt að
lagast. Síðustu tvö árin höfum við
rekið þetta hallalaust, en við sitjum
náttúrulega enn uppi með skuldirn-
ar frá fyrstu árum.“
Hvernig er með ríkið, styrkir það
ykkur ekkert?
„Nei, ótrúlegt en satt þá gerir það
það ekki. Það erum við sem greið-
um til þess, ekki það til okkar. Þetta
er svo ótrúlegt bananalýðveldi að
það tekur engu tali. Ljósmyndari
hjá okkur var t.d. á þingi í Finnlandi
fyrr á árinu og þegar hún fór út
vissum við enn ekki með hverju átti
að borga 30.000 kr. sem við skuld-
uðum í söluskatt og eitt til tvö-
hundruðþúsund króna skuld í tekj-
uskatt. Þarna úti skildu þeir þetta
einfaldlega ekki. Svona ástand þek-
ktu þeir bara ekki, vissu ekki að
þetta væri til í heiminum. Hefði hún
sagt þeim, að fjárveitingar til sjálfs
Þjóðminjasafnsins eru skornar svo
við nögl að þeir hafa ekki efni á að
ráða ljósmyndara og eru með allt
safnið sitt í geymslum, þá hefðu þeir
sennilega ekki trúað henni.
En hafið þið sótt um fjárstuðn-
ing?
„Já, við sóttum um fyrir þetta ár, j
en fengum heldur kaldar kveðjur.
Við vildum ekki gera það fyrr, vild-
um fyrst láta reyna á það hvort þetta
væri bara stundarfyrirbæn eða
hvort þetta væri safn.“
En hvað er það sem þið leggið
áherslu á hér í safninu?
„Við ætluðum upphaflega að
leggja aðaláherslu á sýningar og
bókaútgáfu, en okkur hefur borist
slíkur og þvílíkur fjöldi mynda að
skráning og forvarnarstarf tekur,
nær allan okkar tíma. Nákvæm-
asta talan sem ég get gefið þér um
fjölda mynda í safninu er fleiri
hundruð þúsund. Svo fer auðvitað!
alltof mikill tími í fjáröflun.
Hvernig aflið þið fjár til starfsem-
innar?
„ Við höfum mikið verið með sýn-
ingar úti á landi og selt þar ágætlega
af myndum. Við vinnum líka mynd-
ir í alskyns bækur, erum t.d. með
mikið af myndum í bókinni sem
kemur út í tilefni 200 ára afmælis
Reykjavíkur. Svo seijum við líka
beint héðan út. Svo eigum við ágæta
velunnara bæði innan og utan kerf-
isins, sem hlaupa undir bagga þegar
illa árar. T.d. þegar ástandið var
verst, árið 1983, bárust okkur pant-
anir um skreytingar í hin ýmsu fyrir-
tæki og höfðum vel uppúr því.
Er þetta ekki geysidýr vinna, að
lagfœra og koma lagi á gömul
söfn?
„Hvort hún er. Að ganga frá
þokkalegu safni, svona 2-3.000
glerplötum, kostar, þegar allt er tal-
ið, eina miíjón króna.“
Fleiri hundruð þúsund myndir,
sagðirðu, eruð þið þá ekki búin
að sprengja utan af ykkur hús-
nœðið?
„Jú, blessaður vertu, við erum
með fjölda mynda í eldtraustum
geymsíum útí bæ. Þetta er heldur
ekkert safnahúsnæði sem við erum
í, sífelld hlaup milli hæða og húsa.
Að leita uppi eina mynd hér er ekki
ósjaldan dagsverk, en þetta er að
skána því við erum nýbyrjuð að
tölvukeyra skrána. Tölvuforritið er
raunar ágætt dæmi um það hvernig
þetta er rekið. Það var einn af að-
standendum safnsins, sem eyddi
flestum kvöldum og helgum í hálft
ár til að semja það og gaf svo safn-
inu.“
En getið þið eitthvað sýnt hér?
„Nei, það er einmitt það sem
okkur vantar mest fyrir utan tíma,
það er sýningarsalur og þá getum
við líka farið að sinna nýrri ljós-
myndun miklu meira. Kynnt það
sem er að gerast í dag, hér og er-
lendis, jafnframt því sem við
reyndum að bjarga þeim menning-
arverðmætum sem nú eru sem óðast
að fara forgörðum."
En hvaða þjónustu bjóðið þið
meðal-jóni einsog mér?
Ef þig langar til að eignast ein-
hverja sérstaka mynd, segjum t.d.
Fjalaköttinn um aldamótin, þá
spyrðu okkur bara hvort við eigum
slíka mynd og ef svo er finnum við
hana og seljum þér. Svo erum við
að reyna að koma hér upp smá
kaffikrók, þar sem menn geta feng-
ið að skoða þau söfn sem eru fullfrá-
gengin. Við vonum bara að sem
flestir láti sjá sig.“
10 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Föstudagur 4. júlí 1986
Föstudagur
4. júlí 1986
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 11
GÆÐA VÖRUR
fynr atvinnu- og áhugaljósmyndara
Roffifm
Pappírsskurdarhnífar
í mörgum stærðum.
Póttþétti Ijós-
myndapappírinn í
bláu pökkunum.
Mest notaði Ijós-
myndapappír
hér á landi.
coMn
Filterarnir frá-
bæru frá Frakk-
landi fást á allar
linsustærðir.
HK
'HfC Kentmere
Þýsk Ijósmynda-
flöss á góðu verði
- margar gerðir.
Yfir 60% atvinnu-
Ijósmyndara nota
Metz.
Traust merki.
Snorrabraut 54. Sími 10293.