Þjóðviljinn - 04.07.1986, Page 13

Þjóðviljinn - 04.07.1986, Page 13
TILFINNING EKKI TÆKNI MÁLI Oddur Ólafsson, aðstoðarrit- stjóri Tímans, er íslenskum dagblaðalesendum vel kunn- ur, enda starfað meira og minna við íslensk dagblöð í rúma þrjá áratugi. í dag þekkja menn hann sem blaðamann, en hitt vita kannski færri að Oddur var blaðaljósmy ndari, tók m.a. fyrir Þjóðviljann; og er einn þessara ægilegu manna sem eru menntaðir í faginu. Okkur lék forvitni á, hvernig það hefði verið að vera blaða- Ijósmyndari fyrir 30 árum og töltum því yf ir götuna og tókum Odd tali. Við byrjuðum á að spyrja hvar, hvenær og hvernig hann nam fagið: „Það var árið 1954, sem ég hóf nám á ljósmyndastofu Sigurðar Guðmundssonar meistara. Þetta var þriggja ára verklegt nám, þá einsog nú, en miklu fjölbreyttari vinna, bæði hvað varðar tæki og tökur. Við vorum látnir vinna með allrahanda vélar, allt frá þeim sem þá voru nýjar og niður í vél frá aldamótum, er festi myndirnar á glerplötur. Það var líka minna þá um stúdíómyndir, útitökur mjög algengar, enda sá stofan m.a. um myndatökur fyrir Þjóðviljann í mörg ár.“ Og hvernig smitaðist þú af Ijósmyndadellunni? „Ég fékk nú enga dellu, maður leit á þetta sem hvert annað handverk. Hinsvegar finnur maður að það er ekki útbreitt viðhorf. Það gerist alltaf öðru hvoru, að fjölmiðlarnir taka sig saman og fara rógsherferð á hendur okkur, þegar við erum að reyna að vernda okkar starf. Þó er alltaf verið að setja lög til verndar Föstudagur 4. Júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13 SEM SKIPTIR ljósmyndari hefur tilfinningu fyrir augnablikinu - sér fram í tímann og það urðum við að geta. Nú finnst mér gæta meira kæruleysis, þeir skjóta og skjóta, jafnvel með mótor, og vona svo bara að ein hafi tekist. Það sem ég heyri til blaðaljósmynd- ara í dag, finnst mér miklu meira vera um hina og þessa tækni sem tólin þeirra búa yfir, en minna um það hvað kemur út úr þeim. En það er þó alltaf niðurstaðan sem skiptir máli. Lesandinn spyr ekki hvort vél- in sem tók myndina sé útbúinn með einni eða tveim tölvum, heldur af hverju hún er og hverju hún lýsir. Framfarir síðustu 30 ára byggjast ekki svo mikið á vélunum. Fyrst og fremst eru það filmurnar og prentun- in. Þegar ég var í námi varð t.d. bylt- ing í filmuframleiðslu, þegar Kodak sendi frá sér filmu með ljósnæmið 125 asa. Það þætti ekki mikið í dag. Svo gerir Offset tæknin það að verk- um að myndirnar missa sín mun minna á leiðinni af pappírnum í blað- ið.“ Þú ert menntaður sem Ijós- myndari en starfar sem blaða- maður - hvernig stendur á því? „Að loknu námi var ég ráðinn á Alþýðublaðið, sem þá var verið að breyta og átti að leggja mun meiri áherslu á myndir en áður hafði verið. Þar gerði ég svo þá agalegu skyssu að láta komast upp um það að ég gæti skrifað myndatexta og jafnvel það sem fólk sem ég myndaði hafði sagt. Og þetta nýttu þeir sér, enda sjald- gæft að menn geti bæði skrifað og tekið myndir. Ég held að blaðamenn séu eina stéttin á íslandi, sem ekkert kann fyrir sér í ljósmyndun. Svo endaði ég sem blaðamaður. Reyndi Fyrsta Ijósmyndatímaritið Uppáhaldið á námsárunum: Speed Graphic. Þó fyrirferöin sé ekki lítil, er hægt, með sæmilegri æfingu, að vinna furðu hratt með þeim. 4x5 tommu negatívan hefur góða kosti til að bera fyrir blaðaljósmynd. Hin hefðbundna linsan er 127 mm. og er hægt að nota sömu linsu og filmu bæði sem aðdráttar- og gleiðhornslinsu, því auðvelt er að stækka hluta úr filmunni án þess það bitni á myndgæðum. að vísu að hætta; rak ljósmyndastofu í nokkur ár; en það er einsog með marga aðra: maður getur ekki hætt, þó þetta sé erfitt og streitandi starf snýr maður aftur." En þú hefur ekki alveg lagt vél- ina á hilluna er það? „Nei, ég er byrjaður að taka myndir fyrir sjálfan mig í fyrsta sinn á ævinni. Atvinnuljósmyndari eralltaf að mynda pöntun, reyna að fullnægja kröfurn annara, en nú er maður loksins farinn að fullnægja sínum eigin.“ Hhjv eitthundraðogtuttugu ár. En betra er seint en aldrei. Á því herrans ári 1986 hafa tveir ungir áhugaljósmyndarar hætt sér í þann skæða bardaga sem tímaritaútgáfan er orðin. Blaðið heitir einfaldlega: „Ljósmyndablaðið" og er hið vandaðasta að allri gerð. Meðal efnis í blaðinu er viðtal við Leif Þorsteinsson, ljósmyndara, þréf frá Guðmundi Skúla Viðarssyni, sem er við nám í ljósmyndun í Sankta Barbara í Bandaríkjun- um, Inga Lára Baldursdóttir skrifar um upphaf ljósmyndunar á íslandi og kynntir eru ljós- myndararnir Anna Fjóla Gísla- dóttir og Thierry Wenger (áhuga). Við áttum stutt spjall við rit- stjórana, þá Heimi Óskarsson og Guðmund St. Ásmundsson, og spurðum þá hvenær þeir hefðu byrjað að vinna að blaðinu: „Við byrjuðum af fullum krafti í febrúar á þessu ári og höfum verið í þessu meira og minna síð- an, samhliða vinnunni. Hug- myndin hafði lengi blundað í manni, og þareð við höfðum alla aðstöðu í þetta, ákváðum við að láta reyna á þetta. Það er fjöldinn allur af áhugaljósmyndurum um allan bæ og það eru ekki allir sem hafa sig í að lesa erlend tímarit. Auk þess sem við eigum orðið marga mjög frambærilega ljós- myndara, sem gaman er að kynna og kynnast. Það má líka segja að þetta sé þáttur í sjálfstæðisviðl- eitninni, að gefa út íslenskt tíma- rit um ljósmyndun." En hvaða aðstöðu voruð þið að tala um? „Við erum báðir menntaðir í prentiðn, Guðmundur er ofset- • prentari, en ég filmugerðarmað- ur. Það er vegna þessa að við töldum okkur kannski eiga meira erindi í útgáfu svona blaðs en margir aðrir. M.a. beitum við nýrri og mjög fullkominni tækni við prentun svart-hvítra mynda.“ Hvernig hafa viðtökurnar við blaðinu verið? „Það sem við höfum athugað er betra en við bjuggumst við, en við bjuggumst heldur ekki við neinu.“ Nú er blaðið ekki stórt (32 síður, þaraf V4 augl.), ætlið þið að stækka það eitthvað fái það betri viðtökur en þið bjuggust við? „Já, við höfum þegar ákveðið, að næsta blað verði 40 síður og svo vonum við bara að það stækki og stækki og stækki...“ okkur litfilmurnar (35,110 eða 126 mm), í pósthólf 505,121 Reykjavík, við framköllum þœrog sendum þér samdœaurs fjórðungi stœrri (10xl5sm) gœðalitmyndir. FRAMKÖLLUN 'ifA/miffi AUSTURSTRÆTI 22 - S. 621350 Frá því að Helgi Sigurðsson tók sína fyrstu Ijósmynd á Fróni og þar til fyrsta tímaritið um Ijósmyndun leit dagsins Ijós, í því sama landi, liðu hvorki meira né minna en „Er blaðið okkar ekki glæst?" Mynd: Ari. I dag notar Oddur vél með tveimur inn- byggðum tölvum, sem getur mælt Ijós á þrem misstórum flötum. En það er tilfinn- ingin - ekki tæknin, sem skiptir máli. ákveðnum, stéttum, t.d. kennurum, og enginn amast við því. Ljósmynd- un held ég sé eina starfið, sem mönnum virðist finnast óreyndir og ómenntaðir menn betri hinum. Fyrsta vélin þín? Það var Contax vél, sem ég keypti þegar ég var á lýðháskóla í Svíþjóð, og þótti hið mesta þing. Þá voru Sví- ar mjög framarlega í ljósmyndun og þar kynntist ég henni. Skömmu eftir heimkomuna eignaðist ég svo Hass- elblad og þótti ekki slor. Uppáhalds- vélin mín í náminu var þó Speed Graphic. Hún var gríðarlega mikið notuð, t.d. var bandarískum blaða- ljósmyndurum bannað að nota 35 mm. vélar eftir tilkomu hennar, þar- eð gæði þeira þóttu ekkert á við Spe- ed Graphic. Þú hefur sjálfsagt oft séð hana í bíómyndum (sjá mynd). Svo var það einmitt á sjötta áratugn- um sem Rolleiflexinn kom. Það var nú meiri dellan, allir urðu að eignast Rolleiflex. Það var bara ekki tekið mark á myndum, væru þær teknar með öðrum vélum. Um svipað leyti, eru fyrstu SLR-vélarnar að koma frá A-Þýskalandi, Exa og Exacta, en þær voru ósköp stirðbusalegar, enda frumburðir. Þaðersíðan uppúr 1960 sem japönsku vélarnar, sem enn ráða ferðinni, koma á markað.“ En er ekki allt annað lífað taka myndir í dag? „Jú, en hvort það er betra líf skal ég ekki segja. Hver tími hefur sína kosti og sína galla. Það var mikið mál að taka myndir í þá daga. Við þurft- um t.d. að setja filmuna í kasettuna, burðast með sýrugeymi og fylla af honum á leifturljósið, setja vélina upp og stilla hana með góðum fyrir- vara, mæla ljós með handmæli, o.s.frv. En þetta þýddi líka, að mað- urvandaði sig mjög, því maður verð- ur að smella af frá réttum stað á réttu augnabliki og til þess fékk maður bara eitt tækifæri. Góður frétta- „En þetta þýddi líka, að maður vandaði sig mjög, því maður verður að smella af frá réttum stað á réttu augnabliki og til þess hafði maður bara eitt tækifæri. Góður fréttaljósmyndari hefur tilfinningu fyrir augna- blikinu - sér fram í tímann og það urðum við að geta. Nú finnst mér gæta meira kæruleysis, þeir skjóta og skjóta, jafnvel með mótor, og vona svo bara að ein hafi tekist.“ 12 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN ,LUGÞJONUSTA VÐ LANDSBYGGÐINA

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.