Þjóðviljinn - 04.07.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 04.07.1986, Blaðsíða 15
ATVINNULJÓSMYND ARAR - LJÓSMYNDAKLÚBBAR Til sölu stór COSMOCOLOR stækkari. Filmuformat 30x40 cm, 4000 W XENON pera 40x60 cm borð með sogi, fimm linsur fylgja ásamt ýmsum fylgihlutum. Upplýsingar gefur: MARKÚSJÓHANNSSON DALSHRAUN113 220 Hafnarfirði 0 651182 Það bætast stöðugt við nýjar gæðavörur fyrir prentiðnaðinn og til auglýsingagerðar við úrvalið hjá Aco. Tökum sem dæmi hvernig þessi auglýs- ing varð til. Textinn var settur á gæðatölvuna CRTronic 300 frá Linotype á Ijóssetningarpappír frá Anitec sem er einn besti valkosturinn í dag, feikna gæði og á hag- stæðu verði. Teiknarinn renndi textanum í gegnum CASLON vaxvélina sína með Supavax vaxinu, sem auðvitað fæst í mismunandi styrkleikum og límdi textann upp. Merkin stækkaði hann og minnkaði eftir atvikum í ESKOFOT 424 repró- myndavélinni, ALLT fra ACO að sjálfsögðu á Anitec samlokupappír. Það þarf vart að taka það fram að teiknarinn er vel búinn þessum góða og ódýra sam- lokupappír; með venjulegan í A3, A4 og A5, glærur þunnar og þykkar og auðvitað reversal. Hér koma prógrömmin í vélinni að góðum notum. (Eins og sést hefur teiknarinn hrein- lega innréttað hjá sér með tækjum og tólum frá Aco.) Að þessu loknu fór þessi aug- lýsing í filmuvinnslu. Þar var hún mynduð á Amtec grafíska filmu með Anitec rasta í ESKOFOT fcr 707 OL myndavél og framköll- uð í ESKOFOT 865A framköllunarvél. Göt- uð í MONTALOCH PUNCH og redúseruð með tfítWtRiQ Og þá varhúntilbúin. En við megum ekki gleyma alls konar smáhlutum sem komu sér vel við gerð aug- lýsingarinnar og fást einnig hjá Aco eins og allt hitt. Við nefnum bara: Silfurhreinsi, hnífa, lúpur og toiiMiFiH airbrush-liti. 5RuóIse?n>nga%app^°bastar acohf Laugavegi 168 105 Reykjavík Sími 27333 ur rétt að upplýsa lesendur nokk- uð um hvað ljósmyndaíþróttin kostar. Séu menn að velta fyrir 1 sér að kaupa græjurnar erlendis, ° geta þeir búist við að verðið þar ð sé u.þ.b. helmingurinn af verðinu ci hér. Verðkönnun þessi er engan m veginn fullkomin, enda aðeins f ætlað að gefa örlitla innsýn. 3 Við skiptum ljósmyndurum, s og þarafleiðandi tólunum, í tvo 5 hópa. Annarsvegar eru þeir sem ° taka lítið af myndum og þá eink- § um til minningar um einhverja s góða stund, t.a.m. í afmæli fjöl-' skyldumeðlima. Hinsvegar eru þeir sem áhuga hafa á ljósmynd- un sem skapandi tómstunda- gamni. Hafa meiri áhuga á ljós- myndinni en fyrirmyndinni. Þess- ir sem gera sér ferð út á kvöldin eftir vinnu, til þess að finna skemmtilegt myndefni. Þriðji flokkurinn væri svo atvinnu- ljósmyndarar, en hvorttveggja er, að þeir vita nokkuð vel hvað tólin sem þeir þurfa kosta og svo hitt að mig óar við að skrifa svo háar tölur. Tækifæris- Ijósmyndun Þeir eru margir sem fallið hafa í þá gryfju, að halda sig þurfa dýr- ari og fullkomnari ljósmyndavél- ar og linsur en þeir þurfa í raun og veru. T.d. er kunningi minn, ljósmyndari, með ljósmynda- tösku, -vél, linsur, þrífót og alls kyns aukaútbúnað, sem allt er ætlað atvinnumönnum og kostar milli tvö- og þrjúhundruðþúsund krónur. Þetta keypti hann hins- vegar notað á 50.000 kr. af for- stjóra einum ónefndum hér í bæ, sem tekið hafði hálfa filmu á þessar fínu græjur og komst þá að því, að þær hæfðu honum ekki. Tilheyri menn fyrsta flokki ljósmyndara, þeirra er taka myndir aðeins öðru hverju, á jól- um og páskum, dugar þeim vel lítil og einföld vél. Framboð á þróuðum 35 mm vélum og vasa- myndavélum er orðið mjög 14 SÍÐA — ÞJÖÐViLJINN Föstudagur 4. júlí 1986 hér Föstudagur 4. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA15 Myndavélar mjög „Það kaupir enginn heitvita maður myndavél á íslandi“, sagði einn viðmælandi okkar þegar við vorum að spyrjast fyrir um verð á myndavélum nú í vikunni. „Tollarnir hér eru óeðlilega háir og því kaupa menn eða láta kaupa fyrir sig í fríhöfninni. Það eru ekki nema ættleysingjar sem kaupa myndavélar hér og þeir eru fáir á Islandi". Það er fleira en tollar sem valda háu verði myndavéla á ís- landi. Japanska jenið hefur hækkað mikið miðað við íslensku krónuna undanfarið ár og þareð nær allar myndavélar sem hér eru seldar koma þaðan hafa þær hækkað meira en aðrar vörur, svo ekki sé nú minnst á launin. En þó skynsamlegt sé að kaupa myndavélar erlendis, þykir okk- frá mjög einföldum vélum í stíl við fyrstu vasamyndavélarnar og uppí alsjálfvirkar vélar. Verðið er eftir því: frá rúmum tvö þús- und krónum og uppí tæp tuttugu. Hvað menn velja dýra vasamynd- avél er svo undir hverjum og ein- um komið og ræðst fyrst og fremst af því hve miklu viðkom- andi vill (eða getur, á þessum síð- ustu og verstu) kosta til tækifæris- myndatöku. Áhugaljósmyndun Það var samdóma álit allra þeirra ljósmyndasérfræðinga sem við tókum tali, að engin ástæða væri til að burðast með of mikla sjálfvirkni, einkum þegar maður væri að byrja. Mæltu þeir með vél, þarsem ljósmyndarinn stillir sjálfur ljósopið en vélin sjálf hraðann. Við könnuðum verð á fjórum merkjum og var nokkur verðmunur þar á, en um gæði skal ekkert fullyrt. Það skal tekið fram að hér er um einföldustu gerð slíkra véla að ræða, en fullkomnari gerðir þeirra geta jafnvel kostað sex stafa tölu. Ódýrasta merkið reyndist Yas- hica FX-D (Hans Petersen) sem kostaði 11.200.-. Þá kom Minolta X-300 (Fótóhúsið) á 14.850.-, því næst Olympus ÓM- 20 (Gevafótó) á 15.595,- og loks Canon T-70 (Týli) á 24.840,- Hefðbundin 50 mm linsa á svona vélar kostar frá 4.000,- kr. og uppí 8.000.- eftir merkjum. í Hans Petersen er linsa á 3.995.-, í Fótóhúsinu á 4.150.-, í Gevafótó á 5.930.- og Týli á 8.160,- Zoom-linsur 70-210 mm kosta frá 14.000.- og uppí þrjátíu þús- und. Hjá Hans Petersen kostar slík linsa 14250.-, í Týli er Canon- linsa á 18.000.- eða 21.000,- (mismikið plast), en í Fótóhúsinu á 30.000.-. í Gevafótó fékkst 65- 200 mm linsa á 26.725.-. Við þennan útbúnað má síðan alltaf bæta. Ágætis leifturljós má fá fyrir fimm til ellefu þúsund, hylki utan um vélina á tæpar 1000.- krónur, þokkalega rúm- góða tösku, fyrir vél, flass og tvær stórar linsur, á u.þ.b. 2.500.-. Ómældan fjölda af alls kyns fflt- erum geta menn fengið sér og kosta þeir frá 350,- og upp í 2.000.-. Þannig mætti lengi telja því ljósmyndun er þannig sport að maður getur endalaust bætt við sig fylgihlutum. En munið: Gangan mikla hófst á einu skrefi. Filmu- og framköllunarverð Framköllun á filmum kostar það sama í öllum verslunum og er sama verð fyrir lit og svarthvítar filmur. Sjálf framköllunin kostar 100 kr., en hver mynd sem sett er á pappír 18 kr. Verð á filmum er hinsvegar eilítið mismunandi og hringdum við því í fimm verslanir til að kanna muninn. Við spurð- um um verð á 36 mynda svart- hvítri filmu (125asa) annarsvegar og 36 mynda litfilmu (lOOasa) hinsvegar. í Fótóhúsinu kostar s/h Kodak filma 275.-, en litfilma 395.-. í Gevafótó kostar s/h Kodak 319, en lit- 406. Auk þess eiga þeir Konica litfilmu á 375. Hans Pet- ersen á s/h Kodak á 320.-, en lit á 405.-. Ljósmyndavörur eru með s/h Ilford á 252.- en Fuji litfilmu á 380. Týli er með s/h Ilford á 250.-, en tvær tegundir Iitfilmna: Kodak á 400,- og 3M á 314.-. Nú, og þá er ekkert annað eftir en slá víxil. Góða skemmtun! iiiJilD TRÖNUHRAUNI 8 HAFNARFIRÐI SÍMI 54207 BJARNI JONSSON LJOSMYNDARI Passamyndir Ljósmyndastofa Reykjavfkur er á horni Hverfisgotu og Snorrabrautar Öll almenn Ijósmyndaþjónusta Verið velkomin Hverfisgötu 105, 2. hæð. Sími 621166. LÁTIÐ OKKUR TAKA BETRI MYND

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.