Þjóðviljinn - 04.07.1986, Side 16

Þjóðviljinn - 04.07.1986, Side 16
jk, LEO (V r LITMYNDIR V__________ÍSAFIRÐI_ Litfilmuframköllun og kópíering samdægurs Filmumóttaka: Bókaverzlun Jónasar Tómassonar ísafirði ocrn ucLu SÉRHÆFÐAR MYNDAVÉLAVIÐGERÐIR Myndavélaeigendur tryggið betri endingu véla ykkar með reglubundnu eftirliti. HASSFLBLAD Canon BECO Njálsgötu 73 sími 23411 Pósthólf 244 121 Reykjavík. >au fö Idu slorður- riynd HVAÐ MEÐ ÞIG? ^fll ffgmor'ÖLjr; (Jy mynö LjÓtMYN DASTOFA Sími 96-22807 ■ Pósthólf 464 Glerárgötu 20 602 Akurevri 'i víílxt. Þetta bara gerðist Þorkell Arnar Egilsson, er 19 ára gamall nemi í Menntaskól- anum við Hamrahlíð. Einsog svo margir aðrir, stundar hann Ijósmyndun í frístundum og hefur m.a. sýnt á þeim tveim Ijósmyndasýningum sem framhaldsskólarnir stóðu að. Raunar á hann sjálfur sæti í framkvæmdanefnd samtaka á- hugaljósmyndara í framhalds- skólum. Við tókum Þorkel tali og spurðum hann hvernig hann hefði fengið bakteríuna. „Þetta bara gerðist. Ég fékk litla instamatic vél þegar ég var 10 ára og síðan hefur þetta bara þró- ast stig af stigi. Ég eignaðist svo „alvöru“ myndavél þegar ég var 15 ára, Olympus OívllO, og nota hana enn. Þann sama vetur kom ég upp lítillri myrkrakompu með félaga mínum og gátum við þá bæði framkallað og stækkað sjálf- ir. Síðan hefur maður smátt og smátt aukið við sig fylgihlutum við vélina, linsum o.fl.“ En hvað er svona gaman við ljósmyndun? „Að sjá myndina koma á papp- ír, það er stóra stundin. Það að sjá hugmynd sem maður fékk, verða áþreifanlega." Heldurðu þig við einhverja sérstaka tegund myndefnis? „Nei. Maður sér bara skyndi- lega mynd, án þess endilega að hafa verið að leita myndefnis. En það er ekkert gaman að sjá mynd, án þess að hafa vélina. Þá bölvar maður stundum sjálfum sér hátt og í hljóði. Ertu í einhverjum ljósmynda- klúbbi? „Já, við starfrækjum ljósmynd- aklúbb í skólanum. Starfið hafði legið niðri í nokkur ár þegar við endurreistum hann árið 1984, en í dag er þetta stærsti klúbbur í framhaldsskóla á landinu, tæp- lega 30 félagar. Raunar snýst starfið mest um þá aðstöðu sem við höfum til framköllunar og því eru menn meira að vinna einir sér en saman í hóp.“ Er þetta þokkaleg aðstaða? „Ætli maður jánki því ekki bara. En þetta fer líka allt eftir því við hvað er miðað. Annars nota ég þessa aðstöðu lítið, því ég er, einsog áður sagði, með eigin aðstöðu hér heima. Ég kaupi bara filmur og pappír með hinum í klúbbnum, þannig fær maður það aðeins ódýrara." En hvað með sýningar, nám- skeið o.þ.h.? „Við höfum haldið eitt nám- skeið og var bara þokkalega sótt. Við höfum sýnt litskyggnur, teknar af félögum, einu sinni í mánuði og svo höfum við alltaf verið með óformlega sýningu á Lagningardögum (þ.e. tóm- stundadögum). Svo tókum við upp á því á síðustu Lagningar- dögum, að vera með stúdíó uppí skóla. Við fengum að láni hjá Leifi ljósmyndara fjöldann all- ann af ljósum og regnhlífum og mæltist uppátækið bara vel fyrir í skólanum. Svo höfum við tekið þátt í tveim samsýningum á veg- um framhaldssicólanna. Var önnur þeirra í Gerðubergi 1984 en hin í Ásmundarsal 1985.“ ' 16 SlÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 4. júlí 1986

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.