Þjóðviljinn - 25.07.1986, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 25.07.1986, Blaðsíða 1
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA 25 165. tölublað 51. örgangur júlí 1986 föstu- dagur JOÐVIUINN GLCTAN ATVINNULIF UM HELGINA ÍÞRÓTHR Lífskjarasáttmálinn Fiskvinnslufólkið svikið Starfsnámskeið sem áttu að hefjast 1. júní eru hvergi hafin enn. Engin hœkkun 1. sept. Finnur Ingólfsson: Sumarið ekki heppilegt fyrir námskeið Mér fínnst mjög slæmt hvað þetta hefur dregist á langinn, sagði Jón Kjartansson formaður Verkalýðsfélags Vestmannaeyja er Þjóðviljinn innti hann álits á þeim drætti sem orðið hefur á námskeiðahaldi fyrir fískvinnslu- fólk. Samkvæmt síðustu kjara- samningum áttu þessi námskeið að hefjast 1. júní sl. og kauphækkanir skv. þeim að taka gildi frá og með 1. september nk. Gífurleg óánægja er meðal fiskvinnslufólks víða um land vegna þess dráttar sem orðið hef- ur á framkvæmd þessa máls. Fjöl- margir höfðu hug á að komast á námskeið þegar í júní sl. og ljúka þeim sem fyrst, því skv. febrúar- samningnum eiga menn að hækka um 3 launaflokka að afloknu námskeiði. Fyrirsjáan- legt er að sú hækkun kemur ekki til framkvæmda á næstu vikum. Þjóðviljinn hafði samband við Finn Ingólfsson aðstoðarmann sjávarútvegsráðherra og for- mann þeirrar nefndar sem sjá á um framkvæmd málsins. Var hann beðinn að skýra það hvers vegna námskeið væru hvergi far- in af stað, jafnvel þótt skýrt sé kveðið á um að það hefði átt að gerast strax fyrir tæpum tveimur mánuðum. Við hefðum gjarnan viljað geta byrjað strax 1. júní að bjóða fólki uppá þetta, sagði Finnur, en því miður hafa tvær ástæður komið til. Leiðbeinendur voru ekki fullmenntaðir fyrr en í lok maí, en þá átti eftir að prenta náms- gögn. Það mun núna taka nokk- urn tíma. Ástæðan til þess að við höfum ekki rekið á eftir því er sú að við höfum verið sammála um að þessi tími, hásumarið, sé ekki heppilegur til þessa námskeiða- halds. G.Sv. Loðnan Stöðvast veiðamar? Alltútlitfyrir að loðnuveiðarnar stöðvist. Verksmiðjurnar neita að taka við. Skipin bíða íhöfn. Ákvörðun SR um loðnumóttöku endurskoðuð Sýnd veiði... Kisa í veiðihug við Reykjavíkurtjörn. Sjá baksíðu. (mynd: EOI.) Þrjú skip eru nú byrjuð loðnu- veiðar. Mörg fleiri skip eru tilbúin til veiða, en sú óvissa sem ríkir um loðnumóttöku kemur í veg fyrir að þau leggi á miðin. Engin verksmiðja tekur nú við loðnu nema Krossanesverksmiðj- an en bara af Súlunni EA, og verksmiðja SR á Raufarhöfn. Svo virðist sem hún hafí verið opnuð í trausti þess, að verðið yrði miklu lægra en það síðan var ákveðið, eða 1900 kr. fyrir tonnið. „Það er alveg ljóst að við verð- um að endurskoða málið á næsta stjórnarfundi," sagði Þorsteinn Gíslason formaður stjórnar SR í gær. Hann staðfesti að Raufar- hafnarverksmiðjan væri opin, en benti á að aðeins 3 bátar væru á miðunum enn sem komið er. Þá er ljóst að Alli ríki á Eski- firði verður að taka í sína verk- smiðju afla Jóns Kjartanssonar, sem hann á, þar eð Krossanes- verksmiðjan neitar að taka við afla skipsins en á það var treyst, þegar skipið fór til veiða. Hins- vegar hefur Alli sagt, svo og framkvæmdastjóri hans, Magnús Bjarnason, að verksmiðjan á Eskifirði taki ekki við loðnu á því verði sem var ákveðið. Því er allt í hinni mestu óvissu um framhald loðnuveiðanna og ekki síst í ljósi þess að verðinu má ekki breyta meðan forsendur fyrir því haldast, það er fita og þurrefnisinnihald loðnunnar. -S.dór Gallup-könnunin 40% telja VSÍ of valdamikið Um 50% telja launþegasamtökin of áhrifalítil og að þau gœti hagsmuna launþega illa Um 50% þeirra er starfa við sjávarútveg, opinbera þjón- ustu og landbúnað í landinu telja að launþegasamtök hafí of lítil áhrif í þjóðfélaginu, samkvæmt Gallup-könnun Hagvangs hf. á „Gildismati og mannlegum við- horfum íslendinga“ 1984, en eins- og menn muna eflaust þá var mikið flaggað þeirri niðurstöðu úr sömu könnun að íslendingar væru hamingjusamasta þjóð í heimi. Samkvæmt grein Holger Torp í nýjasta eintaki Fjármálatíðinda um þessa könnun þá telja 40% úr fyrrnefndum hópum að áhrif vinnuveitenda séu meiri en hæfi- leg. Áhrif launþegasamtakanna voru metin minni en hæfileg af um 50% þeirra er störfuðu í sjáv- arútvegi, opinberri þjónustu, verslun og annarri þjónustu svo og iðnaði. í öllum starfsgreinum öðrum en landbúnaði virtist um helmingur eða meira vera sam- mála um að áhrif launþegasam- takanna væru of lítil. Einnig kemur fram í grein Torps að í heild töldu aðeins 23% að stéttarfélag þeirra gætti hagsmuna þeirra fremur eða mjög illa. Ef eingöngu er tekið tillit til þeirra er létu í ljós já- kvæða eða neikvæða afstöðu, þ.e.a.s. þeim er sleppt sem svör- uðu „hæfilega“ þá kom í ljós að menn í opinberri þjónustu skipt- ast í tvö horn, 46% létu í Ijós óánægju en 30% ánægju. Hlut- fallslega flestir í landbúnaði létu í ljós óánægju eða 51%. -vd. Kjötútsalan Þorsteinn ekki á skrifstofunni Ráðherrarlítt sam- stiga75 miljónir í nið- urgreiðslur, teknar af útflutningsbótum „Eg talaði við Þorstein í morg- un og hann hefur nú ákveðið að 75 miljónum verði varið til niður- greiðsina á kindakjöti,“ sagði Jón Helgason landbúnaðarráðherra í samtali við Þjóðviljann í gær. Einhver misskilningur virðist hafa orðið á milli ráðherranna í þessu máli og segir Þorsteinn Pálsson í Morgunblaðinu í gær að ráðuneyti hans hafi ekki tekið ákvörðun um hvort fé yrði veitt til kindakjötsútsölunnar. „Það er enginn ágreiningur um að lækka kindakjöt í verði um 20% en ekki var búið að ákveða nákvæmlega hve hárri upphæð yrði varið til þessa,“ sagði Jón. „Okkur Þorsteini var falið þetta verkefni fyrir viku, en hann var hins vegar ekki við á skrifstofu sinni þegar endanlegir útreikn- ingar lágu fyrir um það, hve mikið fé þyrfti til að greiða niður allar birgðirnar, 3500 tonn. Svo verður að koma í ljós hve mikið selst, en það er sparnaður fyrir ríkissjóð að greiða kjötið niður innanlands því útflutningsbætur kosta okkur meira.“ Var þá einhver ástæða fyrir Þorstein að gefa þessa yfirlýsingu í Morgunblaðinu í gœr? „Ég get ekki sagt um hver til- gangur hans með því var. Það getur verið að hann hafi ekki náð í mig í gær.“ Aðspurður sagði Jón að lækk- unin á kindakjöti væri meðal ann- ars til þess að halda vísitölunni fyrir neðan „rauða strikið“ svo- nefnda sem samið var um í febrú- ar. -vd. Gekk út Atlanta - „Ég er búinn að fá nóg, ég er orðinn leiður og þreyttur á þcssum töfum, ég er hættur, ég er farinn.“ Það var flugmaður einn í Bandaríkjunum sem sagði þetta við farþega um borð í farþega- þotu Eastern Airlines í fyrradag þar sem hann beið eftir að fara í loftið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.