Þjóðviljinn - 25.07.1986, Blaðsíða 8
w
Krakkar! Látið nú til skarar skríða
og skrifið í Glætuna.
Látið okkur vita ef eitthvað meiri-
háttar spúkí er að gerast í kringum
ykkur. Látið okkur vita ef unglingar
eru að gera eitthvað verulega
skeinmtilegt (eða leiðinlegt) um þess-
ar mundir. Hvað viljið þið hafa í
svona unglingasíðu? Eruð þið ánægð
með Glætuna eða er engin glæta í
henni? Finnst ykkur almennt vera
skrifað nóg fyrir unglinga? Eruð þið
ánægð með lífið? Unglingar utan af
landi, muniö að við sem skrifum í
Pjóðviljann, búum í Reykjavík og vit-
um því ekki nóg um það sem er að
gerast út á landi. Sendið Glætunni
línu. - SA.
GL4ETAN
Um þessar mundir hljóta að-
dáendur túnfisks að vera í ess-
inu sínu, því nú gefst þeim ekki
aðeins kostur á að borða tún-
fiskssalat heldur líka að hlusta
á Túnfiskana syngja. Tún-
fiskarnir eru hópur úr Öldu-
túnsskóla I Hafnarfirði sem
gaf út plötu í byrjun maí. Platan
seldist strax upp, komst fyrsta
daginn í 13. sæti vinsældar-
iista rásar tvö. Og nú ferðast
þau vítt og breytt og skemmta
fyrir landsmenn.
Túnfiskarnir komu í viðtal upp
á Þjóðvilja og þar sem blaða-
manni fannst vanta aðeins meira
fjör á vinnustaðinn plataði hann
Tunfiskana til að taka nokkur lög
upp á kaffistofu. Þær létu ekki
ganga Jengi á eftir sér heldur tóku
lagið: í Öldutúni, sem er smellinn
texti um kennarana og skólann.
Næst sungu þær lag eftir Kim
Larsen, með breyttum texta.
Túnfiskarnir sögðust leggja
mesta áherslu á sönginn og text-
ana. En flestir textarnir fjalla um
raunir mannsins á fyndinn og
skemmtilegan hátt.
Eruð þið bara 4 í Túnfiskun-
um?
„Nei, upphafiega vorum við 9
krakkar en strákarnir hættu.
Fóru í sveit og fleira. Svo nú erum
við 6 kvenkynstúnfiskar."
Hvernig byrjaði þetta allt sam-
an?
„Þetta byrjaði þannig að við
fluttum Revíu á árshátíðar-
skemmtun Öldutúnsskóla.
Kennarinn okkar hann Matthías
Kristjansen sem er í hljóm-
sveitinni Hrím samdi texta fyrir
okkur og Gísli Asgeirsson kenn-
ari samdi lögin. Nú svo fluttum
við þessi lög og þau urðu svo vin-
sæl í skólanum að kennararnir
hvöttu okkur til að gefa þetta út á
plötu."
Hvernig fjármögnuðuð þið
það?
„Við fengum lán hjá nemenda-
ráðssjóðnum. Svo gáfum við út
600 plötur. Þær seldust allar upp.
Mest innan skólans, nemendur
og foreldrar voru vitlaus í plöt-
una. Platan kom út með gróða
svo við getum keypt söngkerfi
fyrir skólann. Við sjálf fengum
enga peninga nema núna þegar
við skemmtum þá skiptast launin
milli okkar og það er fínn pening-
ur.“
Túnfiskarnir sögðu að Jón
Gústafsson hafi hjálpað þeim
gífurlega mikið því hann tók upp
plötuna og gaf alla vinnu sína.
„Svo má eiginlega segja að hann
hafi verið umboðsmaður okkar,
því hann er búinn að koma okkur
að í sjónvarpsþáttum. Og það var
mikil auglýsing.“
Túnfiskarnir voru í beinni út-
sendingu í þættinum Vímulaus
æska á 17.júní og komu líka fram
í Unglingarnir í frumskóginum.
Daginn eftir að platan kom út
voru Túnfiskarnir í viðtali á rás 2.
Þar var platan þeirra spiluð og
vinsældirnar létu ekki á sér
standa. Sama dag voru Túnfisk-
arnir komnir í 13. sæti á rásinni.
Hvernig stendur á því að það er
látið svona mikið með ykkur? Þið
eruð bara strax orðinn heims-
frægur sönghópur á íslandi. Og
hvernig stendur á því að þið kom-
ust strax inn á vinsældarlistann?
Var það nokkuð svindl?
„Sko við erum að því er við
best vitum eini hópurinn í grunn-
skóla sem hefur gefið út plötu og
farið svo út í bissness þ.e.a.s. að
skemmta. Við t.d. skemmtum í
Klúbbnum eina helgi, á sjó-
mannadaginn niðrí bæ í Hafnar-
firði o.fl. Svo eru lögin okkar
grípandi og skemmtileg. Fólk
tekur eftir þessu og þess vegna er
fjallað um þetta í fjölmiðlunum.
En í sambandi við vinsældarli-
stann þá var þetta alls ekki svindl.
Krakkarnir í Öldutúnsskóla
halda náttúrlega upp á sitt skóla-
lag og kusu það auðvitað sem
besta Iagið. Svo voru margir for-
eldrar líka hrifnir og kusu lagið: í
ÖIdutúni.“
Hafið þið lært eitthvað að
syngja?
„Við höfum allar verið í skóla-
kórnum. Og hann er góður, hefur
m.a. farið í söngferðir til Spánar,
Ungverjalands, Kína og Finn-
lands. Svo hefur Matthías kenn-
ari æft okkur dáiítið."
Hluti Túnfiskanna fyrir framan
Öldutúnsskóla. „Við leggjum á-
herslu á góðan söng og fyndna
texta um raunir fólks. Frá vinstri:
Hildur, María, Hulda og Ragn-
heiður. Á myndina vantar Ragn-
hildi Önnu og Margréti Eir.
Ljósm.E.ÓL.
slóðina. Svo vonum við bara að
Túnfiskarnir haldi áfram næstu
árin.“
Eitthvað að lokum?
„Við bara óskum eftir tilboð-
um svo við getum skemmt fólki.
Hafið endilega samband við
Gísla Ásgeirsson umboðsmann
okkar.“
Eftir að Túnfiskarnir höfðu
sungið fyrir blaðamenn Þjóðvilj-
ans þorir Glætan hiklaust að gefa
þeim 4* SA.
Hvað með framhaldið, ætlið
þið að verða poppsöngkonur?
„Ja, það er aldrei að vita, hví
ekki að prófa einhverntíman að
vera í hljómsveit? En það sem
gerist hjá okkur í náinni framtíð
er að við skemmtum í Galtalæk
um Verslunarmannahelgina og á
FH- hátíð í Hafnarfirði. Okkur
finnst mjög gaman að skemmta
en þó ekki fyrir alla. T.d. var ekki
gaman að skemmta fyrir 20 ára
fullt fólk í Klúbbnum en það er
mjög gaman að skemmta fyrir
börn og pabba- og mömmukyn-
Vinsældalistar Þjóðviljans
Fellahellir 1. (1) Who’s Johnny - El de Barge 2. (2) Papa Don’t Preach - Madonna 3. (-) Vienna Coming - Falco 4. (4) Þrisvar í viku -Bítlavinafélagið 5. (-) S.O.S. Bandito - Carrara 6. (6) Jeannie - Falco 7. (7) Venus - Bananarama 8. (5) Dance with me - Alphaville. 9. (10) When Tomorrow Comes - Eurythmics 10. (8) God thank you Woman - Culture Club Grammid 1. (1) Blús fyrir Rikka - Bubbi Morthens. 2. (2) The Queen is Dead - The Smiths. 3. (-) Standing on The Beach - Cure. 4. (4) Contenders - Easterhouse. 5. (3) The Seer - Big Country. 6. (-) So - Peter Gabriel. 7. (-) The Kentucky Click — Crime and The City Solution. 8. (7) Allur - Megas. 9. (-) Picture Book -Simple Red. 10. (-) Upside down - Jesus and Mary Chain. E 3 I Rás2 1. (1) Þrisvar í viku - Bítlavinafélagið 2. (3) Papa don’t preach - Madona 3. (-) Hesturinn - Skriðjöklar 4. (-) Götustelpan - Gunnar Óskarsson 5. (2) The edge of heaven - Wham 6. (4) Hunting high and low - A-ha 7. (-) Tengja - Skriðjöklar 8. (5) lf you were a woman - Bonnie Tyler 9. (-) Útihátíð -Greifarnir 10. (7) Heilræðavísur Stanleys - Faraldur
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. júlí 1986