Þjóðviljinn - 25.07.1986, Síða 14

Þjóðviljinn - 25.07.1986, Síða 14
FRETTIR Fíkniefnalögreglan Kæmm fér fækkandi 156 kœrðir áfyrri helming ársins en 412 allt árið ífyrra. Búið að leggja hald á um 5 kg afhassi og rúmt kg afamfetamíniþað sem afer árinu Kærumál hjá Fíkniefnadeild lögreglunnar í Reykjavík voru 90 talsins á fyrri helmingi þessa árs cn 198 allt árið í fyrra. Alls voru 156 kærðir 6 fyrstu mánuði þessa árs en 412 á árinu 1985. Lögreglan segir að of snemmt sé að segja til um hvort sama þróun verði út þetta ár og að málum sé að fækka og þá jafn- framt þeim sem kærðir eru fyrir fíkniefnamisferli. Það sem af er þessu ári hafa lögreglan og tollgæslan lagt hald á tæp 5 kg. af hassi en hald var lagt á tæp 9 kg. allt árið í fyrra. Þá hefur nú verið lagt hald á rúmt kíló af amfetamíni en allt árið í fyrra var lagt hald á 970 grömm. Þetta eru þau tvö efni, sem eru ríkjandi á fíkniefnamarkaðnum hér og hefur svo verið undanfarin ár. Eftirtektarvert er að ekkert hefur verið lagt hald á af LSD í ár en sl. tvö ár hafa komið upp stór mál tengd LSD smygli. Þá hefur heldur ekkert verið tekið af kók- aíni í ár en undanfarin ár hefur eitthvað af því verið tekið á hverju ári. Þótt ekkert hafi verið haldlagt af þessum efnum í ár er ekki þar með sagt, að þau séu ekki í umferð hér á landi en varla nema í takmörkuðum mæli. Tekið skal fram, að hér er aðeins um að ræða þau efni, sem skráð hafa verið hjá deildinni í Reykja- vík þannig að heildartalan fyrir allt landið gæti verið hærri. Eins og áður þá berast fíkni- efnin nær eingöngu frá Hollandi, annaðhvort beint eða í gegnum nágrannalönd Hollands. Af þeim 156, sem voru kærðir á fyrri helmingi ársins voru karlar 131 og konur 25. 51 var kærður í fyrsta skipti en 105 höfðu áður komið við sögu. Af þessum 156 voru 126 fíkniefnaneytendur og þar af 5 sprautunotendur, 16 voru dreifendur fíkniefna og 16 innf- lytjendur. 7 sættu gæsluvarðhaldi á þessum tíma vegna rannsókna fíkniefnamála og 10 gengust undir röntgenrannsókn til að kanna hvort þeir hefðu fíkniefni fólgin innvortis en engin fíkniefni fundust við þær rannsóknir. Skipting hinna kærðu eftir aldri og atvinnustétt var sem hér segir: Undir 15 ára aldri: 0, 15 ára: 2, 16 ára: 0, 17 ára: 3, 18 ára: 3, 19 ára: 13, 20 ára: 6, 21-25 ára: 45, 26-30 ára: 50,31-40: 30,41 ársog eldri: 4. Atvinnulausir: 57, verkamenn: 28, sjómenn: 26, iðnaðarmenn: 9, verslunarmenn: 9, opinberir starfs- menn: 2, sjálfstæðir atvinnurek- endur: 12, nemar: 6, húsmæður: 2, önnur störf: 5. Haldlögð fíkniefni á landinu, sem skráð hafa verið hjá deildinni voru sem hér segir: Hass..................4.932,6 gr. Maríhúana................14,2 gr. Hassolía.......................0 Hassplöntur................6stk. Amfetamín.......:.....1.009,8gr. Kókaín.........................0 Sauðárkrókur Fiktað með eldspýtur Eldur kom upp í íbúðarhúsi við Raftahlíð á Sauðárkróki í gær- morgun. Er orsökin talin vera, að barn hafi verið að leika sér með eldspýtur og misst. Komst eldur- inn í rúmstæði og loftklæðningu og olli þannig talsverðum skemmdum á herberginu auk þess sem reyk lagði í önnur her- bergi. Greiðlega gekk að slökkva eldinn, að sögn lögreglu, en þetta er fjórði bruninn í umdæmi henn- ar í ár. Einu sinni í bíl, einu sinni í þvottapotti, einu sinni í útihúsi og nú í íbúðarhúsi. Samkór Breiðdœlinga Tónleikaferð um Austfirði Nýstofnaður samkór Breiðdæl- inga hélt sína fyrstu tónleika í fé- lagsheimilinu Staðarborg í Breiðdal í gærkvöld. í kvöld verða tónleikar í félags- heimilinu Skrúð Fáskrúðsfirði kl. 21.00 og í Fjarðarborg Borgar- firði eystra laugardaginn 26. júlí kl. 21.00. A efnisskránni eru innlend og erlend kórlög, einsöngur og tví- söngur. Stjórnendur kórsins eru söngvararnir Elín Ósk Óskars- dóttir og Kjartan Ólafsson. Heimsókn Kennslumála- ráðherra Danmerkur til íslands Dagana 29. júlí til 2. ágúst nk. heimsækir kennslumálaráðherra Danmerkur, Bertel Haarder, og eiginkona hans ísland í opinberu boði menntamálaráðherra. Ráðherrann mun heimsækja Háskóla íslands og helstu söfn höfuðborgarinnar. Norðurland, Mývatn og Akureyri heimsótt og ennfremur ferðast um Borgar- fjörð og til Þingvalla. Heimsóknin er í tilefni af lúkn- ingu hins alkunna og mikilvæga handritamáls, en á Þingvöllum, hinn 1. ágúst, fara fram loka- undirskriftir vegna lausnar þess máls. LSD...................0 Skrá y fir haldlögó tiknief ni 1979 - 1985 . 1979 1980 1981 1982 1983 1984 1985 Hass 2,858,0 5,283,1 6,059,2 21,096,1 7,088,7 8 906,0 Maríhúana 822,3 2,765,5 L,525,0 3,329,0 65,2 573,5 Hassolia 24,6 32,3 342,2 295,2 . 430,0 0,2 Kannabisplönt ur V .112 stk. 27 stk. Amfetamin 1,6 50,6 73,6 624,3'^ 1,348,4 970,2 Kókain 0,8 4,6 7,3 25,8 18,5 24,0 LSD stk. 0 0 4 stk. 0 775 stk. 2223 stk. Heróin 0 0 0 0 0,3 0 0 esa Sœplast Unnið allan sólarhringinn Pétur Reimarsson: Petta gengur eiginlega alltof vel Sæplast h.f. hefur nú verið starfrækt á Dalvík í tvö ár. Áður hafði fyrirtækið verið starf- rækt í Garðabæ þar sem það hafði gengið illa og var reksturinn kominn í þrot þegar það var keypt til Dalvíkur. Þegar Þjóð- viljinn hitti Pétur Reimarsson framkvæmdastjóra Sæplasts hf. var hann nýlega kominn af stórri sjávarútvegssýningu í Bella Cent- er í Kaupmannahöfn og ég spurði hann hvernig gengi að selja vörur fyrirtækisins. „Það gengur eiginlega alltof vei,“ sagði Pétur og glotti. „Við seljum allt sem við framleiðum og höfum varla undan.“ Svo varð Pétur alvarlegri í framan og upp- lýsti að frá áramótum hefði verið unnið alla daga og allan sólar- hringinn til að anna eftirspurn- inni. Sæplast hefur flutt dálítið af kerjum út og ég bað Pétur að segja mér frá því. „Við erum í útflutningshóp sem stofnaður var fyrir ári síðan, sérstaklega til þess að selja út- gerðarvörur til Kanada, Banda- ríkjanna og Grænlands. Fyrir- tækin sem eru með okkur í þessu eru Plasteinangrun og Vélsmiðj- an Oddi á Akureyri, Sjóklæða- gerðin í Reykjavík og Vélsmiðjan Hörður í Njarðvík. Þessi útflutningshópur réði sér- stakan mann til að sinna þessu verkefni og nú erum við farnir að sjá árangur af þessu starfi." Sæplast framleiðir eingöngu fiskker og vörubretti úr plasti en bæði brettin og kerin geta verið fjölbreytileg að stærð og gerð. T.d. eru þeir nýbyrjaðir að fram- leiða ker fyrir trillur og hafa þau mælst mjög vel fyrir að sögn Pét- urs. Með tilkomu þessara kerja fer það að heyra fortíðinni til að ísa fisk beint í lest, jafnvel á minnstu bátunum. -yk/Akureyri Pétur Reimarsson t.h. og Jón Gunnarsson framleiðslustjóri. 14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. júlí 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.