Þjóðviljinn - 25.07.1986, Blaðsíða 15
IÞROTTIR
Kvennalandsleikir
Laufeyog
Guðrún mættar
ísland mœtir V. Pýskalandi í Kópavogi á
sunnudaginn kl. 18
Freyr Sverrisson (9) skorar sigurmark ÍBK gegn FH í gærkvöldi, lyftir boltanum snyrtilega yfir varnarmenn
Hafnfirðinganna. Þótt hann virðist á leið yfir þverslá datt hann niður, undir hana og í netið. Mynd: E.ÓI.
Mjólkurbikarinn
Góð nýting IBK!
Tvö mörk dugðu Keflvíkingum til að komast í undanúrslit
Laufey Sigurðardóttir frá
Bergisgladbach í Vestur-
Þýskalandi og Guðrún Sæmunds-
dóttir frá Giugliano á Ítalíu eru
komnar til landsins og leika með
íslenska landsliðinu gegn Vestur-
Þýskalandi. Guðrún er reyndar
alkomin heim og á leið í Val á ný.
Fyrri leikur þjóðanna fer fram á
Kópavogsvellinum kl. 18 á sunnu-
daginn og sá síðari á Laugardals-
vellinum kl. 19.30 á miðvikudags-
kvöldið.
„Við vitum ekki nógu mikið
um styrkleika vestur-þýska liðs-
ins, nema að það gerði jafntefli
við Noreg fyrir skömmu. En
þetta er spennandi verkefni og
það verður gaman að sjá hvernig
stúlkurnar standa sig í þessum
leikjum sem verða örugglega
mjög erfiðir," sagði Svanfríður
Handbolti
Hans
ÍKR
Hans Guðmundsson, fyrrum
lcikmaður með FH, er genginn til
liðs við 1. deildarlið KR og leikur
með því næsta vetur. Hans hefur
leikið með íslenska landsliðinu en
sl. vetur spilaði hann á Spáni með
2. deildarliðinu Maritim og gekk
vel. Þjálfari KR-inga er Olafur
Jónsson, fvrrum landsliðsmaður
úr Víkingi, og búast má við Vest-
urbæingunum sterkari en sl. vet-
ur þegar þeir héldu aðeins 1.
dcildarsætinu vegna þess að fjölg-
að var um tvö lið í deildinni.
Drengjalandsliðið í knatt-
spyrnu, skipað leikmönnum 16
ára og vngri, heldur á sunnudag-
inn til Danmerkur til þátttöku í
Norðurlandamótinu. Það fer
fram í Nyborg á Fjóni.
ísland mætir Svíþjóð á mánu-
daginn, Finnlandi á þriðjudag-
Knattspyrna
Stúlknamót
Knattspyrnudeild Breiðabliks og
verslunin Gull & Silfur standa að
knattspyrnumóti fyrir 3. flokk
kvenna í Kópavogi dagana 23. og 24.
ágúst. Mótið fór í fyrsta sinn fram í
fyrra og sigurvegarar varðveita far-
andbikar í eitt ár. Þátttökugjald er
2000 krónur og leikið verður sam-
kvæmt reglum KSl um mini- og
kvennaknattspy rnu. Þátttökutil-
kynningar þurfa að berast til Sveins
Skúlasonar, sími 44952, fyrir5. ágúst.
Guðjónsdóttir, úr landsliðsnefnd
kvenna, í spjalli við Þjóðviljann í
gær.
Sigurbergur Sigsteinsson
landsliðsþjálfari hefur valið 16
stúlkur fyrir leikina og eru þær
eftirtaldar, landsleikjafjöldi fylg-
ir:
Markveröir:
Erna Lúðvíksdóttir Val...................9
Vala Úlfljótsdóttir, IA..................1
Aðrir leikmenn:
ArnaSteinsen, KR.........................5
Ásta B. Gunnlaugsdóttir, Breiðabliki....11
ÁstaM. Reynisdóttir, Breiðabliki.........6
Guðrún Sæmundsdóttir, Giugliano..........2
HalldóraGylfadóttir, lA..................3
Ingibjörg Jónsdóttir, Val................0
Laufey Sigurðardóttir, Bergisgl..........8
Magnea Magnúsdóttir, Breiöabliki.........9
KaritasJonsdóttir. (A....................3
Katrín Eiríksdóttir, ÍBK.................2
Kristin Arnþórsdóttir, Val...............6
Sigurlín Jónsdóttir, |A..................0
SvavaTryggvadóttir, Breiöabliki..........4
Vanda Sigurgeirsdóttir, |A...............4
ísland hefur leikið 11 kvenna-
landsleiki og Ásta B. hefur verið
nteð í þeim öllum.
-VS
3. deild
IK efst
ÍK er enn á ný komið í efsta sæti
SV-riðils 3. deildarinnar í knatt-
spyrnu eftir 1-0 sigur á Grindvík-
ingum á Kópavogsvellinum í gær-
kvöldi. Þórhallur Gunnarsson
skoraði sigurmarkið snemma í
seinni hálfleik en sóknarmenn IK
fóru illa með mörg dauðafæri í
leiknum. ÍK hefur 18 stig, ÍR 17
og Fylkir 16 stig.
inn, Danmörku á miðvikudag-
inn, Færeyjum á föstudaginn og
Noregi á laugardaginn kemur.
Lárus Loftsson þjálfari hefur
valið 16 leikmenn til fararinnar
og eru þeir eftirtaldir:
Árni Halldórsson, lA
Árni Kvaran, Stjörnunni
Axel Vatnsdal, Þór A.
Guðbjartur Auðunsson, Fram
Gunnar Andrésson, Fram
Halldór Kristinsson, KA
Haraldur Ingólfsson, lA
Haukur Pálmason, Fram
Ingólfur Ingólfsson, Stjörnunni
Jóhannes Jónsson, Víkingi R.
Jörundur Sveinsson, Stjörnunni
Kristján Finnbogason, KR
Kristján Haraldsson, KR
Sigurður Bjarnason, Stjörnunni
Þórður Jónsson, Víkingi
Þorsteinn Þorsteinsson, Þrótti R.
Fyrirliði liðsins er Guðbjartur
Auðunsson. Aðeins tveir hafa
áður leikið með drengjalandsliði,
þeir Haraldur Ingólfsson og Sig-
urður Bjarnason. Einn íslenskur
dómari dæmir á mótinu, Gísli
Guðmundsson úr Val.
Það er ekki hægt að segja ann-
að en að Keflvíkingar nýti mörk
sín í Mjólkurbikarkeppninni til
fullnustu. Þeir eru komnir í und-
anúrslit á aðeins tvcimur mörk-
um, það seinna tryggði þeim eftir
atvikum sannagjarnan sigur á
FH-ingum, 1-0, í Kaplakrikanum
í gærkvöldi. Fyrra markið gerðu
þeir í 1-0 sigrinum á Víði í 16-liða
úrslitunum.
Leikurinn var lengst af nokkuð
líflegur og hraður, og sótt á báða
bóga. Keflvíkingar sóttu af mikl-
um krafti framanaf, Ingvar Guð-
KS og Þróttur frá Reykjavík
mætast í þýðingarmiklum fall-
baráttuleik í 2. deildinni í knatt-
spyrnu á Siglufirði á morgun,
laugardag. í lið KS vantar tvo
burðarása, sóknarmanninn öfl-
uga Hafþór Kolbeinsson og fyrir-
liðann Jakob Kárason en þeir
voru báðir reknir af lcikvelli í leik
gegn KA um síðustu helgi og eru
því í leikbanni.
Hörður Júlíusson, formaður
knattspyrnudeildar KS, gagn-
rýndi mjög brottrekstrana tvo í
samtali við Þjóðviljann. „Það er
greinilega búið að innprenta hjá
dómurum að siglfirskir knatts-
pyrnumenn séu óalandi og óferj-
mundsson fór illa með tvö góð
færi en á milli, á 14. mínútu,
skoraði ÍBK eina mark leiksins.
Guðmundur Hilmarsson FH-
ingur ætlaði að senda á Gunnar
Straumland markvörð en Óli Þór
Magnússon náði af honum bolt-
anum, renndi útá Frey Sverrisson
sem lyfti honum skemmtilega yfir
varnarmenn FH og í hornið fjær
(sjá mynd). Virkilega vel gert hjá
Frey. FH tók við sér um miðjan
hálfleikinn og pressaði talsvert,
fékk m.a. fjölda hornspyrna sem
ekkert kom útúr. Eina hættulega
færið fékk Pálmi Jónsson á 38.
skorað mark í sumar. Mörk ÍA
gerðu Karítas Jónsdóttir 3, Ásta
Benediktsdóttir 2, Sæunn Sigurð-
ardóttir og Kristín Reynisdóttir
eitt hvor.
KR vann Þór örugglega á Ak-
ureyri, 3-0, og hafði gért útum
leikinn í hálfleik. Kristrún
Heimisdóttir skoraði þá tvisvar
og Margrét Leifsdóttir einu sinni.
-MHM
andi og þá verði að beita hörku.
Við vorunt 1-0 yfir í hálfleik gegn
KA en í seinni hálfleik var greini-
legt að dómarinn hafði gert mikla
áherslubreytingu, var farinn að
dæma mikið harðar en í fyrri hálf-
leiknum og sanngjarnir Akur-
eyringar sögðu eftir leikinn að ef
hann hefði dæmt eins á allt allan
leikinn hefðu brottrekstrar verið
jafnmargir á bæði liðin,“ sagði
Hörður. Því má bæta við að
fréttamaður Þjóðviljans á
leiknum taldi að í a.m.k. öðru
tilvikinu hefði verið mjög strangt
hjá dómaranum að vísa Siglfirð-
ingnum af leikvelli.
mín. þegar hann skallaði framhjá
eftir skyndisókn.
Seinni hálfleikur var rólegur til
að byrja með en Hörður Magnús-
son kom inná sem varamaður hjá
FH og hleypti lífi í leikinn. Þrjú
ágæt færi skapaði hann fyrir sjálf-
an sig og aðra, í því síðasta dans-
aði boltinn lengi í markteig ÍBK
en inn vildi hann ekki. Síðustu 10
mínúturnar náðu Keflvíkingar
aftur undirtökunum og héldu sín-
um hlut af öryggi eftir það. Ing-
var var rétt búinn að skora á 85.
mínútu, var sloppinn einn
innfyrir vörn FH en missti bolt-
ann afturfyrir. Það kom ekki að
sök - ÍBK er ásamt Val, Fram og
fA í undanúrslitum Mjólkurbik-
arsins. -*g
MEIRA
EN
VENJULEG
MÁLNING
STEINAKRÝL
hleypir raka mjög auöveldlega i
gegnum sig, tvöfalt betur en
heföbundin plastmálning.
STEINAKRÝL er mjög veðurheldin
málning og hefur frábært alkalíþol
og viöloöun viö stein.
STEINAKRÝL stendur fyrir sínu.
ÓSA/SlA
Drengjalandsliðið
Áförumtil
Danmerkur
NM hefst á mánudaginn
-vs
Föstudagur 25. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15
Kvennaknattspyrna
Stórsigur ÍA
ÍA vann yfirburðasigur á
Haukum, 7-0, í 1. deild kvenna á
Akranesi í gærkvöldi. Heimaliðið
réði gangi leiksins og sýndi ágæt-
isspil á köflum en þegar komið
var upp að marki var mikið um
þóf, enda nánast allir inní í víta-
teig Haukanna. En mörkin hefðu
með smáheppni getað orðið fleiri.
Haukaliðið á langt í land með
að geta plokkað stig af öðrum lið-
um í deildinni og hefur enn ekki
Siglufjörður
Tveir í banni
Erum taldir óalandi og óferjandi, segir
Hörður