Þjóðviljinn - 27.07.1986, Blaðsíða 5
',,De kommer med en kista og henter meg." Sýning Stúdentaleikhússins á verki Magnúsar Pálssonar. Mynd Sig.
N’ART ’86
. , :■
Frá forfeðraákalli í Hljómskálagarði. Mynd Sig,
Ungir sem aldnir fórna poppkorni og öðru góðgæti við athöfn Yggdrasil. Mynd Sig.
Áhorfendur skemmtu sér hið besta á tónleikum Aston Reymers rivaler. Mynd Ari.
Friðarsamtök
Gefur lífi mínu mikið gildi
Kumiko Moriya meðlimur í iapönsku friðarsamtökunum „Samtök um bæn fyrir
friði á jörð,“ í heimsókn á Islandi fyrir skömmu. Ljósm. Ari.
Kumiko Moriya meðlimur í trúarlegum friðarsamtökum í Japan
ferðast um heiminn og gefur friðarsúlur. Kostar öll ferðalögin sjálf
„Markmið okkar er að breiða
þessa bæn út um allan heim.
Fá fólk í öllum löndum og
öllum friðarhreyfingum til að
biðja þessa bæn með okkur.
Þ.e. við segjum: Megi friður
ríkjaájörð!"
Þessi orð mælti Kumiko mori-
ya en hún er fulltrúi japönsku
friðarsamtakanna „The Society of
Prayer for World Peace“ lauslega
þýtt Samtök um bæn fyrir friðí.
En eins og Þjóðviljinn greindi frá
fyrir skömmu afhenti Kumiko ís-
lendingum friðarsúlu með áletr-
un á íslensku, ensku og j apönsku.
Áletrunin á íslensku er: Megi
friður ríkja á jörð! Súlan er
mannhæðarhá og stendur fyrir
framan Hallveigarstaði í Reykja-
vík. Blaðamanni Þjóðviljans lék
forvitni la að vita eitthvað meira
um þessi japönsku friðarsamtök.
Kumiko sagði að meðlimir
samtakanna ferðuðust um heim-
inn og gæfu svona súlur. Mark-
miðið er að afhenda friðarsúlur í
öllum þjóðríkjum heims.
Aðspurð sagði Kumiko að
samtökin byggðust á trúarlegum
grunni, en væru ekki einskorðuð
við ákveðna trúarhreyfingu. „Ég
t.d. trúi á Guð, trúi því að hann sé
æðri máttur. En sumir aðrir í
hreyfingunni trúa á Jesú. Og svo
eru fleiri trúarhugmyndir í gangi í
samtökunum. í friðarsamtökun-
um eru um 200 þúsund Japanir.
Samtökin eiga enga sjóði svo
hver meðlimur fjármagnar starf-
semina og ferðirnar sjálfur. Þetta
framtak Kumiko er algjört einka-
framtak og sagðist hún hafa haft
mikla þörf fyrir að breiða út
friðarboðskap sem hún teiur gefa
lífinu mikið gildi. Hún hefur farið
til Bandaríkjanna, írlands og
Costa Rica. Næst ætlar hún til
Tansaníu íþessum tilgangi. Kum-
iko sagði að þessar ferðir væru
mjög dýrar og sagðist hún vinna
mikla yfirvinnu til að fjármagna
ferðirnar. Hún vinnur við að
þýða tölvuleiðbeiningar á ensku.
Kumiko flytur okkur íslend-
ingum einnig handskrifaðar
kveðjur 2.800 Japana, sem allar
segja það sama og áletrunin á
friðarsúlunni.
Aðspurð sagði Kumiko að hún
hefði valið ísland vegna þess að
hún á 2 íslenskar vinkonur í Jap-
an sem hafa sagt henni margt um
ísland.
Blaðamaður spurði Kumiko
hvort hún teldi að Japanir væru
yfirleitt mjög miklir friðarsinnar
vegna kjarnorkusprengjunnar
sem Bandaríkjamenn vörpuðu á
Hirósíma og Nagasakí. „Já, Jap-
anir eru miklir friðarsinnar en við
látum ekki rnikið á því bera. Við
berum þetta innra með okkur.
Og 6. og 9. ágúst þegar margar
þjóðir tileinka daginn minning-
unni um þessa kjarnorkuskelf-
ingu, þá gerum við Japanir lítið
úr þessu opinberlega. En við
hugsum mikið um þetta, og
minnumst þessa skelfilega at-
burðar í hjarta okkar.“
Samtökin skiptast niður í
hverfissamtök og hittast meðlim-
irnir í hverri viku. Einu sinni á ári
hittast nær allir meðlimirnir á
hæsta fjalli í Japan og biðja sam-
an.
Kumiko sagði að samtökin
væru á engan hátt pólitísk og þau
vildu að allar friðarhreyfingar í
heiminum sameinuðust í kröf-
unni um frið í stað þess að skipt-
ast niður í marga pólitíska hópa.
Það eru konur úr Friðarhreyf-
ingu íslenskra kvenna, Kvenfél-
agssambandi íslands og kirkjunni
sem tóku á móti Kumiko Moriya.
SA
Sunnudagur 27. júlí 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 5