Þjóðviljinn - 02.08.1986, Side 1
mr
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Unglingarnir
til Eyja
ogáGaukinn
„Við ætlum sko upp í Þjórsár-
dal. Þar eru bestu hljómsveitirn-
ar,“ sögðu þessi kátu ungmenni
sem Þjóðviljinn rakst a niðri á
Umferðarmiðstöð, síðdegis í gær.
Aðspurðir um það hvort flestir
færu ekki til Eyja, sögðu krakk-
arnir að það væri rétt. „Það fara
svo margir til Vestmannaeyja að
eyjan bara sekkur. í Eyjum spila
Stuðmenn og þeir trekkja svo
sannarlega að, en í Þjórsárdal eru
3 góðar hljómsveitir. Við fáum 4
tónleika og 3 böll fyrir 2000 kr.
þar,“ sögðu þau. í miðasölunni
fengum við þær upplýsingar að
mesta aðsóknin er til
Vestmannaeyja. Farnar eru
aukaferðir með Smyrli á nótt-
unni. Næst mesta aðsóknin er í
Þjórsárdalinn og númer þrjú er
Þórsmörkin. í gær fóru um 500
manns með rútum upp í Þórs-
mörk. Góða helgi. Ljósm.: Ari.
- SA.
ágúst
1986
laugar-
dagur
172. tðlublað 51. árgangur
Ónýtt fóður
Stórtjón í refarækt
Skemmtfóðurfrá Fóðurstöð Suðurlands talin orsök yrðlinga- og lœðudauða.
Þorsteinn Þorleifsson á Þjótanda: Skiptiyfir í erlentfóður ogþá hœtti
yrðlingadauðinn. Erlenda fóðrið jafnvel ódýrara en það innlenda
Bændur með refabú hafa orðið
fyrir miklu tjóni, vegna þess
að refafóður frá Fóðurstöð Suð-
urlands á Selfossi var skemmt og
olli yrðlinga- og læðudauða. Ekki
er vitað enn hve mikið tjónið er,
en Ijóst er þó að það nemur milj-
ónum króna.
„Ég missti 200 yrðlinga og 4
læður vegna þessa. Það byrjaði
að örla á þessari skemmd í fóðr-
inu í byrjun júní. Strax á öðrum
degi eftir að maður fékk fóðrið
bólgnaði það út og lagði af því
ýldulykt. Ég hafði samband við
þá hjá Fóðurstöðinni og þeir
töldu ekkert að þessu. Svo þegar
læðurnar hættu að mjólka og
drápu yrðlingana undan sér þá sá
maður að eitthvað var að. Ég
skipti þá yfir í erlent þurrfóður
sem leyst er upp í vatni. Það hefur
reynst mjög vel og yrðlinga- og
læðudauðinn hætti. Og það sem
mér þykir nú merkilegast er að
þetta ameríska fóður er jafnvel
ódýrara en það innlenda. Á sín-
um tíma var það talin ein helsta
forsendan fyrir arðbærri refarækt
hér á landi hvað fóðrið yrði
ódýrt, sagði Þorsteinn E. Þor-
leifsson refabóndi á Þjótanda í
Árnessýslu.
Vitað er að margir bændur
urðu að kalla á dýralækni til að
sprauta læður rétt eftir got. Slíkt
er ekki gert nema í algerri neyð,
þar sem slík truflun í refahúsum á
gottímanum getur verið mjög
hættuleg.
Við rannsókn á Keldum
reyndist fóðrið vera skemmt og
sagði Þorsteinn að menn undir-
byggju nú skaðabótamál. Þó
sagðist hann ekki vita hve margir
refabændur færu í mál, þess má
geta að flestir refabændurnir sem
í hlut eiga eru hluthafar í Fóður-
stöðinni.
Guðjón Sigurðsson nýráðinn
forstjóri Fóðurstöðvarinnar
sagði að því miður væri þetta rétt.
En þetta er fyrsti starfsdagurinn
minn sem framkvæmdastjóri,
þannig að ég veit of lítið um þetta
mál, sagði Guðjón. - S.dór.
MENNING
SUNNUDAGS-
BLAÐ
Verslunarmannahelgin
Besta veðrið á
s-vesturlandi
Veðrið um Verslunarmanna-
helgina verður ekki ósvipað því
sem það hefur verið allra síðustu
daga.
I dag og á sunnudag verða
skúrir á suður- og suðaustur-
landi, frá Hellisheiði og austur í
öræfi. Bjartviðri verður á vestur-
landi og inn til lands n-
austanlands.
Á mánudag er hætta á að regn
nálgist austurland og er líklegt að
þar verði væta.
Besta veðrið verður í Reykja-
vík og fram á vestfirði. Einnig
verður gott veður í innsveitum n-
austanlands. Og á austanverðu
norður- og austurlandi.
- SA.
Verðhœkkanir
Verðlag þýtur upp
Mjög miklar verðhœkkanir hafa áttsérstað á matvörum og öðrum
nauðsynjavörum á síðustu vikum. Bílar hœkka umfram
gjaldeyrisbreytingu. Hvergi hefur orðið lœkkun á þjónustu vegna
verðlækkunar á bensíni og olíu
Eldvarnir
Viðvömnaikerfi
sjálfsögð
Þór þjóðminjavörður: sjálfsagt að setja upp
eldvarnarkerfi í öllfriðuð hús
Ljóst er að sú kyrrstaða verð-
lags, sem ríkti fyrst eftir kjara-
Skák
Jafntefli
Þriðju skákinni í heimsmeist-
araeinvíginu lauk með jafntefli í
35. leik eftir tilþrifalitla skák.
Næsta skák verður tefld á
mánudaginn og hefur Kasparoff
þá hvítt.
Sjá nánar um skákina á bls. 6.
-jt-
samningana á útmánuðum er
rofin. Verðlag þýtur nú upp og
hefur verðlag þotið upp á nær
öllum vörum síðustu vikur. Mat-
vara hefur stórhækkað, íslenskt
sælgæti hefur nýverið hækkað á
bilinu 5-8%, matur á veitingahús-
um hefur hækkað um 8-10% og
svona mætti iengi telja.
Þá vekur það líka athygli að
þótt bensín hafi verið lækkað úr
34 kr. líterinn niður í 26 kr. og
olía hafi einnig stórlækkað, hefur
verð á þjónustu, svo sem leigubíl-
ar, sendibílar, heimsendingar-
þjónusta o.fl. ekki lækkað.
Bifreiðar sem lækkuðu svo
mjög við kjarasamningana hafa
verið að smá hækka að undan-
förnu langt umfram þær gjald-
eyrisbreytingar sem átt hafa sér
stað. Sem dæmi má nefna að
spönsku Seat Ibiza bflarnir sem
Töggur hf. flutti inn kostuðu 285
þúsund kr. dýrasta gerðin. Hekla
hf. tók umboðið yfir einhverra
hluta vegna og kostar nú dýrasta
gerðin af Seat 320 þúsund kr.
Spánski pesetinn hefur lítið
breyst síðustu mánuðina.
Helgi Vilhjálmsson hjá Verð-
lagsstofnun sagði að varðandi
þær hækkanir sem bent var á, að
næstum allt verðlag væri orðið
frjálst og því gæti Verðlagsstofn-
un ekkert gert nema um einhver
hrikaleg stökk væri að ræða. Þá
yrði málið skoðað.
- S.dór.
að er Ijóst að viðvörunarkerfi
eru ekki nógu víða, sagði Þór
Magnússon þjóðminjavörður í
tilefni úttektar slökkviliðsmanna
um eldvarnir í friðuðum húsum í
Reykjavík.
Það er sjálfsagt að setja upp
einhverskonar viðvörunarkerfi í
öll þessi hús, sagði Þór, en í út-
tektinni um friðuð ríkishús í
Reykjavík kemur fram að ekkert
eldviðvörunarkerfi er í Dóm-
kirkjunni og alþingishúsinu, og
engar áætlanir til um slökkvi- og
björgunarstörf í neinu þeirra
húsa sem skýrslan tekur til.
Húsfriðunarnefnd lítur til með
friðuðum húsum, og formaður
hennar segir að „auðvitað ættum
við að ýta betur á eftir því að
þetta verði gert“, en framkvæmd-
ir eru í verkahring notenda hús-
anna og umsjónarmanna.
Þór sagði að nú væri verið að
setja upp í Þjóðminjasafninu
kerfi sem varar bæði við eldi og
þjófum, „og hefði átt að vera
búið miklu fyrr“. Kostnaður við
þetta kerfi í safninu verður senni-
lega um 600 þúsund kr. Að auki
stendur til að koma upp í safninu
vatnsviðvörunarkerfi og kostar
það annað eins.