Þjóðviljinn - 02.08.1986, Page 2
Tilboð
Síðastliðinn mánudag og
þriðjudag voru haldnir samn-
ingafundir með tulltrúum Rio-
Tinto-Zink vegna fyrirhugaðrar
kísilmálmverksmiðju á Reyðar-
firði. Að sögn Birgis ísleifs Gunn-
arssonar, formanns íslensku
samninganefndarinnar, var eng-
in afgerandi ákvörðun tekin á
þessum fundum.
FRETTIR
Kísilmálmverksiðja
opnuð í lok
Birgir ísleifur: Engin ástœða til svartsým
Birgir ísleifur kvaðst ekki eiga
von á því að nein afgerandi
ákvörðun yrði tekin fyrr en i>
fyrsta lagi í lok september. Lík-
legt þótti honum að það yrði ekki
fyrr en í lok október sem niður-
staða lægi fyrir.
Aðspurður hvort það væri ein-
hver afmarkaður þáttur sem
samningafundirnir nú snerust um
sagði Birgir að svo væri ekki.
Málið væri mjög margþætt og
segja mætti að allt sviðið væri
meira og minna til umræðu.
Tilboðum í byggingu kísil-
málmverksmiðjunnar á að skila í
lok ágúst. Tvær samsteypur fyrir-
tækja hafa boðið í verkið. Annars
vegar ístak sem býður í samvinnu
við breskt fyrirtæki og hins vegar
Gunnar og Björn meðlimir í Lögmönnum. Þeir spila í Galtalaek um Verslunarmannahelgina. Ljósm. E.ÓI.
Hógværir og alvömgefnir
Lögmenn spila í Galtalœk um helgina
Við erum hógværir og alvöru-
gefnir og höfum komist langt
á því. Við vöndum okkur mikið,
erum snyrtilega klæddir, með
agaða sviðsframkomu og drekk-
um ekki vín á meðan við spilum,
sögðu þeir Björn Þórisson og
Gunnar Jónsson meðlimir í
hljómsveitinni Lögmenn (hét
áður Rocket) úr Vík í Mýrdal.
„Við spilum hágæða dans-
músík. Við spilum fyrst og fremst
á sveitaböllum. Sannkölluð
þorrablótahljómsveit. En við
höfum líka áhuga á að komast
suður til að spila.“
Aðspurðir sögðu þeir að Lög-
menn hefðu nóg að gera. Síðan í
mars hafa þeir aðeins átt frí þrisv-
ar sinnum um helgar. Lögmenn
sögðust ekki vera með mikið af
frumsömdu efni. „Við spilum t.d.
valsa, topp 10 og bara hreinlega
allt.“
Það liggur við að hægt sé að
kalla Gunnar skallapoppara því
hann hefur spilað í hljómsveit frá
því hann var 12 ára. Aðspurður
sagðist Gunnar hafa lært söng í
söngskólanum fyrir sunnan í einn
vetur. Einnig var hann íTónskóla
Sigursveins í 2 vetur að læra á
píanó og söng. Björn lærði einn
vetur á píanó í tónlistarskólanum
í Vík. Þeir spila báðir á hljóm-
borð og syngja í Lögmönnum."
En hvað um áhugamál fyrir
utan tónlistina?
„Við erum laxveiðimenn. Það
eru tvær góðar ár rétt hjá okkur.
Svo tökum við líka stöngina
stundum með á böll og veiðum
píur úr salnum. Við notum rækj-
usamlokur á þær. Nú svo erum
við stundum í fótbolta. Við vilj-
um að vísu ekki segja frá nafninu
á félaginu sem við spilum með,
því það er svo lélegt."
Langar ykkur ekkert til að búa
fyrir sunnan?
„Nei, Vík er besti staðurinn.“
Lögmenn munu spila á bind-
indismótinu í Galtalæk um Versl-
unarmannahelgina. SA.
ágúst
Hagvirki í samvinnu við þýskt
fyrirtæki.
Samninganefndirnar munu
hittast næst þegar tilboðin verða
opnuð í ágúst. Að sögn Birgis ís-
leifs hefur ekkert komið upp á
fundum nefndanna sem gefur á-
stæðu til svartsýni um framhald-
ið.
-G.Sv.
Þar slógu Ólsarar Davíð við!
Ólafsvík
300 ára afmæli
á næsta ári
Undirbúningur er hafinn. Stórt listaverk af-
hjúpað í nœsta mánuði. Byrjað að rita sögu
staðarins
Olafsvík heldur upp á 300 ára
afmæii verslunarréttinda á
næsta ári og formaður afmælis-
nefndar, og jafnframt verðandi
bæjarstjóri Ólafsvíkur er Kristján
Pálsson. Hann sagði afmælis-
dagskrána ekki fullmótaða enn en
ýmislegt er þó ákveðið. Þar má
meðal annars nefna að sagn-
fræðingurinn Gísli Ágúst Gunn-
laugsson er að rita sögu Ólafsvík-
ur og mun fyrra bindi hennar
koma út á næsta ári. Opinberlega
verður haldið upp á afmælið um
miðjan ágúst á næsta ári en eigin-
lega afmælið er i mars.
„Við viljum hafa sumarið fyrir
okkur til þess að vera búin að
gera allt fínt hér og svo skiptir
veðrið líka máli, en ýmsar uppá-
komur verða töluverðan hluta
ársins,“ sagði Kristján. „Við
stefnum að því að nýtt félags-
heimili sem nú er í byggingu verði
tilbúið á næsta ári og auk þess
ætlum við að endurreisa gamalt
pakkhús hér á staðnum sem var
byggt árið 1844.
I tengslum við afmælið mun
Lions-klúbburinn gefa bænum
listaverk eftir þau Sigrúnu Guð-
jónsdóttur og Gest Þorgrímsson
sem verður afhjúpað um miðjan
næsta mánuð. Þetta eru fimm fíg-
úrur, 2 metra háar sem verða
festar á vegg íþróttahússins og
eiga að tákna það líf og fjör sem
einkennir íþróttastarf staðarins".
- Og hvernig leggst nýja starfið
í þig?
„Eg tek við bæjarstjórastöð-
unni í dag, föstudag og það leggst
bara vel í mig. Þetta er uppgangs-
staður og hér eru miklir mögu-
leikar og duglegt fólk,“ sagði
Kristján Pálsson tilvonandi bæj-
arstjóri í Ólafsvík að síðustu.
Sauðárkrókur
Ferðaþjónusta
í ólestri
IngiJónasson hjá Upplýsingamiðstöðinni:
Petta er tilrauna- og hugsjónastarfhjá okkur
þetta fyrsta sumar.Höfum ekkifengið neitt
fjármagn ístarfsemina. Þarf að skipuleggja
ferðaþjónustufyrir næsta sumar með
hagsmunaaðilum
etta er hugsjóna- og tilraun-
astarf hjá okkur í sumar,
sagði Ingi Jónasson blaðamaður
um upplýsingamiðstöð sem hann
byrjaði að reka í júní með Jóni
Gauta Jónssyni ritstjóra. En þeir
reka upplýsingamiðstöðina á
Sauðárkróki jafnhliða því sem
þeir gefa út Feyki, sem er óháð
fréttablað fyrir N-vestra.
„Ferðaskrifstofur fyrir sunnan
beina erlendum ferðamönnum
hingað í síauknum mæli. Og á
hverjum degi koma nokkrir
ferðamenn til okkar og biðja
okkur um aðstoð við að skipu-
leggja nokkurra daga dvöl hér á
þessum slóðum.“
• Aðspurður um hvernig þeir
fjármögnuðu rekstur upplýsing-
amiðstöðvarinnar sagði Ingi að
þeir rækju þetta í tengslum við
blaðið en þeir hefðu farið fram á
35 þúsund kr. styrk frá sýslu-
nefnd og bæjarstjórn en það hef-
ur ekki verið afgreitt ennþá.“
„Ferðamenn kvarta mikið yfir
því að fá litlar upplýsingar. Veg-
akerfið er slæmt og útlendingar
komast oft ekki þangað sem þá
langar, bara vegna þess að þeir
vita ekki hvernig á að komast
þangað. Þess vegna er upplýsing-
amiðstöð nauðsynleg,“ sagði Ingi
Jónasson að lokum. -SA.
UMFERÐARMENNING _
STEFNULJÓS skal jafna gefa
í tæka tíð.
2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 2. ágúst 1986
j