Þjóðviljinn - 09.08.1986, Page 9

Þjóðviljinn - 09.08.1986, Page 9
MENNING Ljóðlist Dagbók Lasarusar Ný ljóðabók eftir Kjartan Árnason Kjartan Árnason, 27 ára háskólanemi, Ijóðari og forleggjari. Nýlega kom út Ijóðabók eftir Kjartan Árnason og ber heitið Dagbók Lasarusar. Hún er gefín út af nýju forlagi - Örlaginu - sem ætlar sér auk útgáfu að sinna þýð- ingum, textagerð og hvers kyns fjölmiðlavinnslu. Nafn bókarinnar ætti ekki að koma biblíufróðum í opna skjöldu. Öll ljóð bókarinnar eru lögð í munn þeim Lasarusi sem Kristur reisti forðum frá dauðum. Bókin skiptist í ellefu kafla og er tæpar hundrað síður að lengd. Kjartan Árnason hefur áður birt ijóð í tímaritum en „Dagbók Lasarusar“ er hans fyrsta bók. Við birtum hér sem sýnishorn fyrsta ljóð bókarinnar, úr kaflan- um „Lasarus við sjálfan sig“: Vinur, Það má vera að þú hafir þegar verið sveipaður hvítu línu og liggir bara. En þegar hinn krossfesti kemur til þín og segir: Tak sæng þína og gakk þá gerir þú það. Og ekkert múður með það neitt. Vittu að gröf þín er opin í báða enda. Dagbók Lasarusar fæst hjá höfundi og Bókabúðum Máls og menningar, Eymundssyni og í Laxdalshúsi á Ákureyri. Heimsókn Suhotra Svami Indverskur jógi fer með vísdómsorð Indverski jóginn Suhotra Svami er kominn til landsins í þcim tilgangi að ljúka upp fyrir Islendingum hinni fornu visku indversku VEDA-ritanna. Þetta mun hann gera að Tryggvagötu 18 á laugardaginn klukkan sjö og sunnudag klukk- an fjögur. Þar verður ennfremur kynnt hugleiðslutónlist með Gauranga Bhajam og sýnd kvik- mynd hvers titill er töfraorðið frá 68 - Hare Krishna, og mun hún fjalla um það síkvika fyrirbæri. í LANDSBANKANUM FÆRÐU DOLLARA, PUND, MÖRK, FRANKA, PESETA, FLÓRÍNUR, ESCUDOS OG LÍRUR HVORT SEM ÞÚ VILT í SEÐLUM EÐA FERÐATEKKUM mmmmm g þá er ekki allt upp talið. í öllum afgreiðslum Landsbankans geta ferðalangar nánast fyrirvaralaust gengið að gjaldmiðlum allra helstu viðskiptalanda okkar vísum. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna Ferðatékkar, bankaávísanir og seðlar eru ávallt fyrirliggjandi, í öllum helstu gjaldmiðlum. Við minnum líka á Visakortið, - athugaðu gildistímann áður en þú leggur af stað. Góða ferð.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.