Þjóðviljinn - 20.09.1986, Qupperneq 3
Lengist þá ekki góðærið líka?!
Námsmenn
Aðförað
jafnrétti
Námsmannahreyflngarnar
Bandalag íslenskra sérskóla-
nema, Iðnnemasamband íslands,
Samband íslenskra námsmanna
erlendis og Stúdentaráð Háskóla
Islands hafa sent frá sér yfirlýs-
ingu þar sem lýst er fullri and-
stððu við hugmyndir fulltrúa
stjórnarflokkanna um breytingar
á lögum um Lánasjóð íslenSkra
námsmanna.
í yfirlýsingunni segir meðal
annars:
Námsmannahreyfingarnar
telja að í þeim sé í öllu vikið frá
þeim grundvallarhugsjónum sem
eiga að liggja að baki Lánasjóði
íslenskra námsmanna, þ.e. að
tryggja öllum jafnrétti til náms,
burtséð frá efnahag og búsetu.
Félagsfundur Félags Vinstri-
manna í Háskóla íslands hefur
einnig sent frá sér yfirlýsingu þar
sem meðal annars segir: „Til-
lögur um vexti og lántökugjöld
ganga þvert á hugmyndina um fé-
lagslegan framfærslusjóð og gera
það að verkum að margir náms-
menn myndu verða að bera
óbrúanlega greiðslubyrði að
loknu Iangskólanámi.“ -vd.
Loðnumiðin
Sjómaður
lést
Skipverjinn á loðnuskipinu
Þórði Jónassyni frá Akureyri sem
féll útbyrðis aðfaranótt fimmtu-
dagsins hét Sölvi Sölvason. Hann
var 29 ára gamall og lætur eftir sig
konu og þrjú börn.
Fatlaða konan sem lést á svip-
legan hátt í íbúð sinni í Hátúni um
síðustu helgi hét Kristín Halldórs-
dóttir. Hún var 31 árs gömul.
Kristín var virkur þátttakandi í
félagsmálum fatlaðra og átti
meðal annars sæti í æskulýðs-
nefnd Sjálfsbjargar í Reykjavík.
__________FRFTTIR__________________
Hafnarfjörður
Deilt um dagvist
Undirskriftasöfnun gegn byggingu dagvistarheimilis við Hamarinn.
Framkvæmdum hefur verið frestað um sinn. Utifundur ídag
Deilur hafa risið á milli bæjar-
yfirvalda í Hafnarfirði og
íbúa við Hamarinn þar í bæ vegna
fyrirhugaðrar byggingar dagvist-
arheimilis í grennd við Flensborg-
arskóla. Undirskriftasöfnun er í
gangi þar sem íbúarnir mótmæla
byggingunni og í dag verður úti-
fundur við Hamarinn og hefst
hann kl 14.00. Bæjarráð Hafn-
arfjarðar hefur hins vegar ákveð-
ið að fresta frekari framkvæmd-
um þar til áiit skipulagsnefndar
liggur fyrir.
Kristján Bersi Ólafsson skóla-
meistari í Flensborg sagði í sam-
tali við Þjóðviljann að þetta
svæði í grennd við Hamarinn væri
frátekið sem grænt svæði í aðal-
skipulagi, með þó því skilyrði að
þar mætti reisa opinberar bygg-
ingar. „í mínum huga var sá
skilningur alltaf á þessu ákvæði
að þar væri átt við Flensborgar-
skólann. Þess vegna mótmælti ég
strax þessari ákvörðun að reisa
dagvistarheimili á þessum stað og
fræðsluráð Hafnarfjarðar tók
undir það álit mitt. Ég óttast
mjög að það verði girt fyrir fram-
kvæmdamöguleika skólans og
þess vegna er ég á móti því að
reisa heimilið þarna. Auk þess
finnst mér fyrirhuguð bygging
spilla umhverfi Hamarsins sem er
friðaður sem náttúruvætti,“ sagði
Kristján Bersi.
Ekki náðist í Guðmund Arna
Stefánsson bæjarstjóra í gær en
Gunnar Rafn Sigurbjörnsson
bæjarritari sagði að á fundi
bæjarráðs 15. september sl hefði
málinu verið vísað til skipulags-
nefndar. „Þar með opnást mögu-
leikar fyrir alla aðila að koma at-
hugasemdum á framfæri því deili-
skipulag að svæðinu verður þá
auglýst. Þangað til verður ekki
hafist handa við bygginguna og
tíminn verður síðan að leiða í ljós
hver framvindan verður,“ sagði
Gunnar Rafn að síðustu.
Fundurinn við Hamarinn hefst
kl 14.00 í dag eins og áður sagði
og mun Kristján Bersi flytja þar
ræðu. _v.
Aase Bömler Olsen, Hjördis Hanusen, Johan Petersen og Rita Didriksen voru í bás færeysku ferðaskrifstofunnar Tora
Tourist. Að sögn eigandans Samal Blahamar starfar hún mest yfir sumartímann og er eina ferðaskrifstofan í Færeyjum
sem er með skipulagðar hópferðir. Ljósm. Sig.
Laugardalshöll
Ferðakaupstefna norðursins
Um 200félög ogfyrirtæki á kaupstefnu Grænlendinga,
Fœreyinga og íslendinga
Pað var sannarlega kliður nor-
rænna tungumála er Þjóð-
viljamcnn lögðu leið sína niður í
Höll í gær. Við hittum fyrir Jónas
Hallgrímsson, formann ferða-
málanefndar Vest-Norden, en
hún starfar til að efla samstarf
Færeyinga, Grænlendinga og ís-
lendinga í ferðamálum.
Þessi lönd sem liggja í norð-
vestri eru n.k. útstaðir ef svo má
segja og tilgangur með
kaupstefnunni er að leiða saman
aðila sem eiga þess ekki kost að
hittast nema með ærnum til-
kostnaði, fjarlægðanna vegna.
Til sannindamerkis um áhuga á
kaupstefnunni má nefna að við
bjuggumst við að 60 - 70 aðilar
tækju þátt í henni en þeir urðu
tæplega 200 þegar allt kom til
alls.
Þetta er ekki einungis samstarf
Færeyinga, Grænlendinga og ís-
lendinga því hér eru einnig 12
söluaðilar frá Evrópu- og Amer-
íkulöndum. Þetta Vest-Norden
samstarf hófst 1980 og 1985 feng-
um við fyrir tilstilli Norðurland-
aráðs fastan starfsmann. Afrakst-
ur starfs hans og nefndarinnar
sést hér í Höllinni," sagði Jónas
Hallgrímsson að lokum. Þess má
geta að lokum að ferðakaup-
stefnan verður opin um helgina.
-GH
Kjararannsóknarnefnd
Vinnutíminn lengist
Vinnutíminn áfyrsta ársfjórðungi 1986 mun lengri en á sama ársfjórð-
ungil985. Mestlenginghjá verkamönnum, verkakonum ogkörlum
við afgreiðslustörf. Helgi Tómasson: Varasamt að draga ályktanir af
þessum tölum
Vinnuálag virðist hafa aukist á
fyrsta ársfjórðungi ársins
miðað við sama ársfjórðung
1985. Þetta kemur fram í nýút-
komnu Fréttabréfi Kjararann-
sóknarnefndar.
Mest er aukningin hjá verka-
mönnum, verkakonum og
körlum í afgreiðslustörfum, eða
um0,8%. Verkamaðurvinnur nú
að meðaltali 51,8 tíma á viku,
verkakona 44,8 tíma og karlar í
afgreiðslustörfum 47,9 tíma.
Vinnutíminn er styttri hjá ein-
um hópnum, en það er hjá kon-
um við afgreiðslustörf, hafði
hann styst um 0,2% og er nú 46,5
klst.
Hjá öðrum hópum hafði vinn-
utíminn lengst örlítið, um 0,5%
hjá körlum við skrifstofustörf en
bara um 0,1% hjá konum við
sömu störf. Hjá iðnaðarmönnum
hafði vinnutíminn lengst um
0,4%.
Helgi Tómasson, starfsmaður
Kjararannsóknarnefndar, sagði
að hér væri um að ræða úrtak af
um fjórðungi allra félaga í ASÍ.
Hann taldi þó varasamt að draga
ákveðna ályktun af þessum tölum
þar sem vinnutíminn væri mjög
miklum sveiflum háður, t.d. væri
vinnutíminn á fyrsta ársfjórðungi
1986 styttri en á síðasta fjórðungi
ársins 1985. Þannig hefði vinnu-
vika verkamanns á höfuðborgar-
svæðinu styst úr 51,2 stundum í
51,0 stund á milli síðasta ársfjórð-
ungs 1985 og fyrsta ársfjórðungs
1986. Og verkamanns utan höf-
uðborgarsvæðisins úr 53,9 í 52,4
klst.
-Sáf
ÖRFRÉTTIR
Lánskjaravísitalan
sem gildir fyrir október er 1.55%
hærri en sú vísitala er gildir í
þessum mánuöi. Hækkun láns-
kjaravísitölunnar miöaö við heilt
ár 20.2% en síðustu þrjá mánuði
hefur vísitalan hækkað um
13.2%.
Óli Jakobsen
formaður Fiskimannafélags
Færeyja hefur tekið við sem for-
maður Verkalýðshreyfingarinnar
í N-Atlantshafi sem er samstarfs-
vettvangur verkalýðshreyfingar-
innar í Færeyjum, á Grænlandi
og íslandi. Fráfarandi formaður
var Ásmundur Stefánsson forseti
ASÍ.
Flúormengun
frá álverinu í Straumsvík mældist
minni á sl. ári en áður samkvæmt
mælingum Flúornefndar. Sýndu
mælingar að dreifing flúors í um-
hverfi álversins sé í jafnara og
minna mæli en áður.
Samvinnuskólinn
viö Bifröst hefur breytt náms-
skipulagi sínu þannig að skólinn
starfar nú eingöngu á 3ja og 4. ári
framhaldsskólastigsins og sam-
vinnuskólapróf jafngildir nú stúd-
entsprófi.
Sólbað
er nú í boði fyrir konur sem sækja
Sundhöll Reykjavíkur en opnuð
hefur verið sólbaðsstofa í Sund-
höllinni. Hver tími kostar I40 kr.
og 10 tímar II00 kr.
Grænu línuna
kallar Blómaklúburinn símatíma
þar sem Hafsteinn Hafliðason
garðyrkjufræðingur mun svara
fyrirspumum áhugafólks um
blómarækt. Hafsteinn verður við
símann á þriðjudögum frá kl. 18 -
20 og síminn er 688300.
Færeyingar
eru byrjaðir að kaupa steyptar
byggingaeiningar frá Bygginga-
iðjunni í Reykjavík. Búið að er
flytja úr 2I8 tonn af steypueining-
um og næsta pöntun er uppá 524
tonn. Útflutningsverðmæti er um
4 miljónir kr.
Jarðvarmaveitur
ríkisins eru nú komnar í eigu
Landsvirkjunar sem greiddi
veiturnar og jarðhitaréttinn í
Bjarnarflagi I20 miljónir með I5
ára verðtryggðu skuldabréfi sem
ber 3% vexti.
Árekstur
varð á hádegi í gær á horni
Gullteigs og Laugateigs í Reykja-
vík milli tveggja bfla. Farþegi úr
öðrum bflnum var fluttur á slysa-
deild.
Laugardagur 20. september 1986 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 3