Þjóðviljinn - 20.09.1986, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 20.09.1986, Blaðsíða 14
Styrkir til sérfræðiþjálfunar í Bretlandi Samtök breskra iönrekenda, Confederation of British Industry, veita árlega nokkra styrki til þjálf- unar á vegum iönfyrirtækja í Bretlandi. íslending- um gefst kostur á aö sækja um slíka styrki fyrir tímabilið 1987-88, en ekki er vitað fyrirfram hvort styrkur kemur í hlut íslands aö þessu sinni. Um- sækjendur skulu hafa lokið fullnaöarprófi í verk- fræöi eöa tæknifræöi og hafa næga kunnáttu í enskri tungu. Þeir skulu að jafnaði ekki vera eldri en 35 ára. Um er aö ræða tvenns konar styrki: Annars vegar fyrir menn sem hafa starfað 1-4 ár aö loknu prófi en hafa hug á aö afla sér hagnýtrar starfsreynslu í Bretlandi. Eru þeir styrkir veittir til 1-11/2 árs og eiga að nægja fyrir eölilegum dval- arkostnaði einstaklings, auk þess sem aö öðru jöfnu er greiddur ferðakostnaður til og frá Bret- landi. Hins vegar eru styrkir ætlaðir mönnum, sem ekki hafa minna en 5 ára starfsreynslu aö loknu prófi og hafa hug á aö afla sér þjálfunar á sérgreindu tæknisviöi. Þeir styrkir eru veittir til 4-12 mánaða og er ætlað aö nægja tyrir dvalark- ostnaöi einstaklings en ferðakostnaöur er ekki greiddur. - Umsóknir á tilskildum eyðublöðum skulu hafa borist menntamálaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. nóvember n.k. Umsóknareyöublöö, ásamt nánari upplýs- ingum fást í ráðuneytinu. Menntamálaráðuneytið, 17. september 1986. Faðir okkar og tengdafaðir Jörgen Þorbergsson fyrrverandi tollvörður verður jarðsunginn frá Háteigskirkju þriðjudaginn 23. sept- ember kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Blindrafélagið. AgnarJörgensson Sigurður Jörgensson Svana Jörgensdóttir Ása Jörgensdóttir Jensey Stefánsdóttir Sigrún Gissurardóttir Gunnar Torfason Einar Þ. Guðmundsson Háskólinn Erindi um umhverfismál í verkfræðideild Háskóla ís- lands verða á næstu vikum flutt 10 erindi um umhverfismál. Þau eru fyrir nemendur í deildinni en aðgangur er öllum frjáls, nem- endum Háakólans sem öðrum. Erindin verða flutt á mánudag- inn kl. 17.15 í stofu 158 í húsi verkfræðideildar, Hjarðarhaga 6. Það fyrsta verður 22. sept. og heitir Sjórinn sem umhveríi, en síðan verða erindin vikulega fram í lok nóvember. Þau sem flutt verða eru Eyðing gróðurs og endurheimt landgæða, Auðlindir sjávar og nýting þeirra, Jarðrask við mannvirkjagerð, Ýmis undir- stöðuatriði í vistfræði, Orkumál og umhverfi, Rannsóknir á röskun lífríkis, Náttúruvernd í framkvæmd, Verkfræðilegar áætlanir og valkostir, og Matsat- riði, m.a. náttúrufegurð. Útskálaprestakall ■i ■ r a ■ ■■ ■ Tveir i kjori Prestskosningar 21. sept- ember Prestskosning fer fram í Ut- skálaprestakalli í Kjalarnes- prófastsdæmi sunnudaginn 21. september. Umsækjendur um brauðið eru þeir Hjörtur Magni Jóhannsson og séra Kristinn Ag- úst Friðfinnsson. Kosið verður samkvæmt nýj- um lögum um kosningarétt frá 1985, þannig að ailir 16 ára og eldri hafa kosningarétt. Á kjör- skrá eru 723. -gg DJOÐVILJINN 45 68 13 33 Tímiim 45 68 18 66 45 68 63 00 Blaóburður er BESTA TRIMMIÐ og borgar sig! LAUS HVERFI NÚ ÞEGAR: Melhagi Neshagi Fornhagi Kvisthagi Akurgeroi Hlíðargerði Teigagerði Melgerði sa DJOÐVILJINN . jp|Í| Styrkir til náms Ikllti. í Sambandsiýðveidinu Þýskalandi Þýska sendiráðið í Reykjavík hefur tilkynnt ís- lenskum stjórnvöldum að boðnir séu fram eftir- taldir styrkir handa ísiendingum til náms og rann- sóknastarfa í Sambandslýöveldinu Þýskalandi á námsárinu 1987-88: 1. Fjórir styrkir til háskólanáms. Umsækjendur skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskóla- námi. 2. Nokkrir styrkir til aö sækja þýskunámskeið sumarið 1987. Umsækjendurskulu hafa lokið eins árs háskólanámi og hafa góöa undir- stööukunnáttu í þýskri tungu. 3. Nokkrir styrkir til vísindamanna til námsdvalar og rannsóknastarfa um allt aö fjögurra mán- aöa skeið. Umsóknir um styrki þessa skulu sendar mennta- málaráöuneytinu, Hverfisgötu 6, 150 Reykjavík, fyrir 1. nóvember n.k. Sérstök umsóknareyöu- blöð og nánari upplýsingar fást í ráðuneytinu. Menntamálaráöuneytið 17. september 1986 ALÞJÓÐLEG UNGMENNASKIPTI Árlega taka nokkur ungmenni víösvegar um heiminn mikilvæg skref í lífi sínu. Þau ákveða aö koma til íslands í eitt ár sem skiptinemar. Þau sækjast eftir að kynnast íslenskri menningu inni á íslenskum heimilum, í íslenskum skólum, og á vinnustööum um land allt. Alþjóöleg ungmennaskipti - AUS - gefur þeim tækifæriö. Alþjóðleg ungmennaskipti gefur ykkur tækifærið til að taka skrefið til móts viö þau og taka skipti- nema inn á heimili ykkar í 3 til 6 mánuöi. Nánari upplýsingar og umsóknareyöublöö fást á skrifstofu AUS, aö Snorrabraut 60 eöa í síma 24617 á milli kl. 13.00 og 16.00. A\ Dagvistarheimili - forstöðumaður Félagsmálastofnun Kópavogs auglýsir lausa stöðu forstöðumanns viö dagvistarheimilið Kóp- asel frá 1. nóvember n.k. Fóstrumenntun áskilin. Umsóknarfrestur er til 30. sept. n.k. Umsóknum skal skila á þar til geröum eyðu- blöðum sem liggja frammi á Félagsmálastofnun Kópavogs, Digranesvegi 12. Nánari upplýsingar veitir dagvistarfulltrúi í síma 41570. Félagsmálastjóri Hf LAUSAR STÖÐUR HJÁ W REYKJAVÍKURBORG Droplaugarstaöir, heimili aldraöra, Snorrabraut 58: Hjúkrunarfræöinga vantar í fullt starf og hlutastörf á dag- og næturvaktir. Fastar vaktir koma til greina. Laus pláss á dagheimili fyrir börn 2-6 ára. Upplýsingargefurforstöðumaður, allavirkadaga á milli kl. 9 og 12. Sími 25811. Umsóknum ber aö skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæö, ásérstökum umsóknar- eyðublöðum sem þar fást.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.