Þjóðviljinn - 20.09.1986, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 20.09.1986, Blaðsíða 15
MINNING Steindór Ámason skipstjóri Þegar ég heyrði lát vinar míns og samstarfsmanns um margra ára skeið, Steindórs Árnasonar skipstjóra, fann ég strax að mér bar skylda til að skrifa um hann nokkur minningarorð. En svo tókst það þannig til, að ég var staddur utan bæjar þegar jarðar- för hans fór fram og af þeim ástæðum verða þessi minningar- orð frá mér nokkuð á eftir réttum tíma. Við Norðfirðingar áttum Steindóri Árnasyni mikið að þakka. Hann kom til okkar sem framkvæmdastjóri og algjör lær- ifaðir þegar við vorum, rétt eftir stríðið, að hefja okkar byrjunar- rekstur með tvo togara. Það var vissulega í mikið ráðist árið 1947 að hefja rekstur tveggja stórra nýsköpunartogara austur á Nes- kaupstað. Þar austur frá voru að vísu til margir góðir sjómenn og duglegir útgerðarmenn. En þar voru engir sem kunnu neitt telj- andi til togarareksturs. Við sem þá barum helst ábyrgð á rekstri bæjarfélagsins og ýmissa atvinnu- fyrirtækja í Neskaupstað, gerð- um okkur nokkra grein fyrir þess- um vanbúnaði okkar. Við vissum að til reksturs togara þurfti allt annað og miklu meira en til að reka bátana okkar. Við vorum því sannarlega heppnir að fá til hjálpar traustan og þaulreyndan togarajaxl, eins og samstarfs- menn Steindórs hér syðra komust að orði. Steindór hafði unnið öll hugs- anleg störf á togurum. Hann hafði verið skipstjóri og stýri- maður og sérstakur trúnaðar- maður og ráðgjafi togaraútgerð- armanna. Steindór fékk það verkefni, þegar hann kom til okk- ar, að taka við tveim togurum, Agli rauða og Goðanesi. Steindór sá um útbúnað skipanna strax frá móttöku, hann réð skip- stjóra og aðra yfirmenn, sem síð- an völdu sér skipshafnir. Steindór kom einnig á fót þjón- ustustofnunum í landi, sem nauðsynlegar voru togaraútgerð fjarri aðal togaraútgerðarbæjum landsins. Ég fann strax, að Steindór var afburðamaður, þaulkunnugur öllu og auk þess einstaklega traust persóna og ábyggilegur maður. Hann vann sér líka fljót- lega traust og virðingu allra. Steindór virtist þekkja alla starf- andi togaraskipstjóra og flesta eldri togaramenn hvar sem var á landinu og allir virtust þekkja Steindór. Það var sannarlega munur að hafa slíkan mann á meðan verið var að vinna nýju útgerðarformi og nýjum stórrekstri aðstöðu langt í burtu frá hinum hefð- bundnu togaraútgerðarstöðum. Steindór Árnason átti mestan þátt í því, að vel tókst með að ala upp góða togarasjómannastétt á Norðfirði og aðra starfsmenn sem útgerðinni voru nauðsyn- legir þar austur á landi. Steindór átti auðvelt með að leita hjálpar eða biðja um greiða frá öðrum togarafélögum. Allir þekktu hann og það var eins og hann ætti inni hjá þeim öllum. Já, það væri vissulega ástæða fyrir mig og aðra Norðfirðinga að skrifa langt mál um dýrmæta hjálp Steindórs Árnasonar við okkur á okkar fyrstu togaraút- gerðarárum. En það verður að bíða. Þegar Steindór vinur minn er nú allur verður mér hugsað til margs annars sem snerti sam- skipti okkar. Steindór var eftirminnileg per- sóna. Hann gat verið dálítið hrjúfur við fyrstu kynni og talaði alltaf hispurslaust. Hann var hreinn og beinn og hinn traustasti og besti vinur þeirra sem hann kynntist. Steindór hafði góða yfirsýn yfir íslensk sjávaraútvegsmál, af hon- um lærði ég mikið og til hans leitaði ég líka sem sjávarútvegs- ráðherra. Steindór var áhugamaður um málefni sjómanna og um hag og velgengni sjávarútvegsins í öllum greinum. Hann var róttækur að lífs- skoðun og um leið traustari en flestir aðrir jafnt í fjármálum sem persónulegum viðskiptum. Ég mun ávallt minnast Steindórs sem mikils fyrir- myndarmanns og við af eldri kyn- slóðinni í Neskaupstað þekkjum, hvers virði hann var okkur á vandasömu skeiði í okkar at- vinnumálabaráttu. Ég votta öllum aðstandendum Steindórs samúð um leið og ég þakka honum gamla og góða vin- áttu. Lúðvik Jósepsson Námskeið í keramik er að hefjast að Hulduhólum Mosfellssveit. Uppl. í síma 666194. Steinunn Marteinsdóttir St. Jósefsspítali Landakoti Ræstingar Starfsfólk óskast til ræstinga, 100% vinna. Vinnutími frá kl. 7.30-15.30 (hlaupandi frídagar). Einnig óskast starfsfólk til ræstinga á skurðstofu. Vinnutími frá 9.00-17.00 og 10.00-18.00. Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma 19600- 259 milli kl. 10 og 14 daglega. Reykjavík 19. sept. 1986. Styrkir til náms í Svíþjóð Sænsk yflrvöld bjóða fram nokkra styrki handa erlendum náms- mönnum til að stunda nám í Svíþjóð námsárið 1987-88. Styrkir þessir eru boðnir fram í mörgum löndum og eru öðru fremur ætlaðir til náms sem eingöngu er unnt að leggja stund á í Svíþjóð. Styrkfjár- hæðin er 3.755 sænskar krónur á mánuði námsárið, þ.e. 9 mánuði. Til greina kemur að styrkur verði veittur í allt að þrjú ár. Nánari upplýsingar um styrki þessa fást í menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,150 Reykjavík, en umsóknir skulu sendar til Svenska Institutet, bos 7434, S-103 91 Stockholm, og lætur sú stofnun í té tilskilin umsóknareyðublöð fram til 1. desember n.k., en frestur til að skila umsóknum er til 15. janúar 1987. Menntamálaróðuneytlð, 17. september 1986 Skólastjóri Skólastjórastaða við Grunnskóla Fáskrúðsfjarð- ar er laus til umsóknar nú þegar. Upplýsingar gefur formaður skólanefndar í símum 97-5101 og 97-5110. z — ? SSE* Bílaleiga Óskum eftir tilboðum í leigu á bílaleigubílum fyrir ríkisstofnanir í næstu 12 mánuði. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri og verða tilboð sem berast opnuð kl. 11.00 f.h. 8. október 1986. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS Borgartuni 7, sími 26844 Heilbrigðisfulltrúar Stöður tveggja heilbrigðisfulltrúa við Heilbrigðis- eftirjit Reykjavíkursvæðis eru lausar til umsókn- ar. Önnur staðan er hálft starf en hin fullt. Stöð- urnar veitast frá 1. nóv. nk. Laun samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Reykjavíkur- borgar. Um menntun, réttindi og skyldurfersam- kvæmt reglugerð nr. 150/1983 ásamt síðari breytingum. Umsækjendur skulu hafa lokið háskólaprófi í heilbrigðiseftirliti eða skyldum greinum svo sem líffræði, matvælafræði, dýralækningum, hjúkrun- arfræði eða hafa sambærilega menntun. Umsókn ásamt gögnum um menntun og fyrri störf skulu hafa borist formanni svæðisnefndar Reykjavíkursvæðis (borgarlækninum í Reykja- vík) fyrir 10. október nk. en hann ásamt fram- kvæmdastjóra heilbrigðiseftirlits veitir nánari upplýsingar. Borgarlæknirinn í Reykjavík Hundahreinsun í Reykjavík Samkvæmt 5. gr. reglugerðar nr. 201/1957 um varnir gegn sullaveiki skulu allir hundar eldri en 6 mánaða hreinsaðir af bandormum í október- eða nóvembermánuði ár hvert. Eigendum hundanna er bent á að snúa sér til starfandi dýralækna í Reykjavík með hreinsun. Við greiðslu árlegra leyfisgjalda (næsti gjalddagi 1. mars 1987) þarf að framvísa gildu hunda- hreinsunarvottorði. Eldri vottorð en frá 1. september sl. verða ekki tekin gild. Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis Tilkynning til atvinnurekenda og launþega á félagssvæði Dagsbrúnar Á síðasta aðalfundi félagsins var samþykkt að hækka félagsgjaldið úr 0,9% í 1% sama kaupstofni og greitt er af til sjúkra- og orlofssjóðs, þ.e. af öllum greiddum launum. Frá og með 1. október n.k. breytist því félags- gjaldainnheimtan þannig að draga skal 1 % frá öllum launum verkamanna sem vinna hjá við- komandi atvinnurekanda. Skil til félagsins skulu eiga sér stað mánaðar- lega. Verkamannafélagið Dagsbrún. ðcco SJÓEFNAVINNSLAN HF Aðalfundur Sjóefnavinnslunnar h.f. verður haldinn laugardaginn 4. okt. n.k. í golfskóla Golfklúbbs Suðurnesja og hefst kl. 16.00. ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 15

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.