Þjóðviljinn - 20.09.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Skrímslið
í Loch Ness í Skotlandi má nú
fara aö vara sig, því að í næsta-
mánuði verður gerð leit að því
með bergmálsmæli. Samkvæmt
fréttum frá Drumnadrochit í
skosku hálöndunum ætla leitar-
menn - sem reyndu þegar að
leita að skrímslinu árið 1982 - að
nota tíu báta með bergmálsmæl-
um til þess að kanna undirdjúp
hins langa og mjóa fjallavatns
Loch Ness, og fá þeir aðstoð
hundrað hermanna. Síðan 1933
hefur þrjú þúsund sinnum verið
reynt að finna skrímslið, sem
gengur undir gælunafninu
„Nessie" og er sagst líkjast ris-
astórri sjó-slöngu, en hingað til
hafa menn ekki haft erindi sem
erfiði. Leitarmenn nú hafa þegar
rannsakað vatnið með bergmáls-
mæli og telja þeir sig hafa fundið
ókennilegan hlut í djúpunum sem
líkist dýri. Ætla þeir að láta til
skarar skríða 11. og 12. október.
Leitin er fjármögnuð af leikfang-
aframleiðendum, sem framleiða
spilið „Leitina að Nessie," og
hafa þeir veitt til hennar 100000
sterlingspundum. Talsmaður
leitarmanna sagði, að ef hún
bæri árangur myndi verða reynt
að lauma neðansjávarmyndavél-
um að kynjadýrinu.
Utlimalaus
kona, sem fæddist vansköpuð
vegna þess að móðir hennar tók
róandi lyfið thalidomid á með-
göngutímanum, hefur eignast
fullkomlega eðlilega dóttur, að
sögn bresks sjónvarps í gær. Var
barnið sem vó fimmtán merkur,
tekið með keisaraskurði á fæð-
ingadeild í Manchester fyrir hálf-
um mánuði, og sýndi sjónvarpið
myndir af móður og dóttur. Kona
þessi, sem er 24 ára gömul, er
talin vera fyrsta handa- og fóta-
lausa fórnarlamb thalidomid-
lyfsins sem eignast afkvæmi.
Sagði hún fréttamönnum, að hún
og maður hennar, sem þjáist af
heila- og mænusiggi (MS) væru
mjög hamingjusöm.
Eiturlyfjaneytendur
hafa framið tvö morð í borginni
Alma Ata í Sovétríkjunum, að
sögn opinbers dagblaðs, og eiga
þeir sök á helmingi innbrota og
annars þjófnaðar í borginni.
Sagði dagblað verkalýðssamtak-
anna „Trud" að þrír eiturlyfja-
neytendur hefðu kyrkt mann til að
stela bifreið hans og selja fyrir
eiturlyf, og hefðu hjón höggvið
stúdínu til bana á götu og stolið
því sem hún hafði. Frá því hefur
verið skýrt í sovéskum blöðum að
undanförnu að eiturlyfjaneysla
sé vaxandi vandamál í landinu og
séu akrar í Mið-Asíu notaðir til að
rækta ópíum og önnur eiturlyf.
Sagði blaðið „Trud,“ að eiturlyfj-
asalar hefðu sett upp eiturlyfja-
bæli í Alma Ata, sem er höfuð-
borg sovétlýðveldisins Kazak-
hstan, og vissu menn á staðnum
um vandamálið en þyrðu ekki að
skýra yfirvöldum frá því.
Þrátefli á Austurbrú
Yfírborgarstjórínn hafnar
tilboði Kim Larsens
Frá Gesti Guðmundssyni, fréttaritara
Þjóðviljans í Kaupmannahöfn.
Staðan í átökum hústaka og
yfirvalda um Ryesgade 58 hef-
ur nú breyst í þrátefli. Þrátt
fyrir þrýsting samflokks-
manna og annarra þverskall-
ast yfirborgarstjóri Kaup-
mannahafnar Egon Weidek-
amp enn við að ganga að til-
boði Kim Larsens og fleiri um
að þeir gefi borginni húsið en
hún veiti hústökunum yfirráð-
arétt yfir því.
Alla þessa viku hefur lögreglan
hikað við að ráðast til atlögu gegn
rammlega víggirtu hverfinu um-
hverfis Ryesgade 58 en skorað á
stjórnmálamenn að finna pólit-
íska lausn á málinu. Samúð al-
mennings hefur snúist æ meira á
sveif með hústökunum, sem hafa
kynnt málstað sinn af skynsemi
og yfirvegun. Nokkrir aðilar hafa
boðist til að gefa myndarlegar
fjárupphæðir til kaupa á húsinu,
sem síðan yrði gefið hústökun-
um. Þar á meðal hafa verka-
mannasambandið, læknafélagið
og svonefndur friðarsjóður boð-
ist til að leggja stóran skerf af
mörkum. Þó ber hæst tilboð Kim
Larsens og félaga í Cirkus Him-
melblá, sem hafa boðist til að
borga allt kaupverð hússins, tíu
miljónir íslenskra króna, og gefa
það borginni með því skilyrði að
hún veiti hústökunum skilyrðis-
lausan umráðarétt yfir því. Kim
Larsen varð miljónamæringur á
plötu og kvikmynd um hústaka,
„Midt om natten.“ Hústakarnir
hafa fallist á þetta tilboð og boð-
ist til að sjá sjálfir um endurnýj-
un, og þar á meðal tryggja bruna-
varnir og uppfylla aðrar opinber-
ar kröfur. Égon Weidekamp yfir-
borgarstjóri úr flokki sósíaldem-
ókrata hefur hins vegar neitað að
taka á móti þessari gjöf. Hann
hefur samt verið beittur miklum
þrýstingi og rneðal annars
gagnrýndur opinberlega af
flokksmanni sínum, Anker Jörg-
ensen, en hefur ekki viljað
beygja sig lengra en stinga upp á
nýjum samningaviðræðum.
Hústakarnir hafa brugðist ó-
kvæða við, enda hafa yfirvöld
þreytt þá með samningaþófi í
þrjú og hálft ár.
Á meðan verður mannlífið æ
afslappaðra á bak við götuvígin.
Hústakar hafa hlotið samúð
flestra þeirra nágranna, sem lent
hafa innan götuvígjanna, og er
samstarf þeirra gott um að leysa
hversdagsleg vandamál sem upp
koma. Stöðugur straumur stuðn-
ingsmanna klifrar yfir götuvígin
til að taka þátt í vörnum hverfis-
ins eða til að færa hústökum vistir
eða bara til að votta stuðning
sinn. Lögreglan hefur handtekið
nokkra slíka gesti en að öðru leyti
haft sig lítt í frammi. Bak við
götuvígin ríkir blanda af hátíða-
stemmningu og þreytu og hústak-
arnir leggja áherslu á að vandinn
verði leystur þegar í stað.
Skæniliða leitað í Frakklandi
París - Mikil leit hófst í Frakk-
landi í gær að níu líbönskum
skæruliðum, sem lögreglan
telur að standi á bak við
sprengjutilræðin í París síð-
ustu daga. Talsmaður innan-
ríkisráðuneytisins sagði að
verið væri að senda dreifibréf
með myndum af níumenning-
unum til lögreglustöðva um
allt Frakkland. Meðal þeirra
eru fjórir bræður Georges Ibra-
him Abduilah, sem situr í fang-
elsi í Frakklandi en skæruliðar
heimta að verði látinn laus.
Þessi leit hófst aðeins fáum
klukkustundum eftir að Jacques
Chirac, forsætisráðherra Frakk-
lands, hélt sjónvarpsræðu, þar
sem hann sagði að stjórnin myndi
gera allt sem í hennar valdi stæði
til að handtaka hryðjuverka-
mennina og yrði þeim refsað
miskunnarlaust. Níumenning-
arnir- fimm karlar og fjórar kon-
ur - eru talin vera félagar í litlum
en hörðum skæruliðasamtökum
líbanskra Maróníta, „Vopnuðum
byltingarsamtökum Líbanons."
Fjórir bræður Georges Ibrahim
Abdullah, sem eru meðal þeirra,
hafa hitt fréttamenn að máli í
heimaþorpi sínu í Norðaustur-
Líbanon og neituðu allir hlut-
deild í hryðjuverkunum, en þótt
þeir séu nú staddir í Líbanon tel-
ur franska lögreglan að þeir beri
ábyrgð á a.m.k. tveimur spreng-
jutilræðum í París. Sögðu
heimildarmenn innan lögregl-
unnar, að vitni hefðu borið
kennsl á Emil Ibrahim Abdullah
og annan úr hópi níumenning-
anna, þegar þeir köstuðu
sprengju á Tati-fataverslunina,
þar sem fimm menn létu lífið, og
einnig hefði Robert Ibrahim
Abdullah þekkst þegar hann
framdi sprengjutilræði í veitinga-
húsi.
Francois Mitterrand forseti
Frakklands kom í gær heim úr
opinberri heimsókn til Indónesíu
og hélt þegar til fundar með Jacq-
ues Chirac forsætisráðherra um
sprengj utilræðin.
Eyðni í Evrópu
Tvöfaldast á átta mánuðum
Kaupmannahöfn - Tala
eyðnisjúklinga í Evrópu tvö-
faldast á hverjum átta mánuð-
um, og hafa nú allt að tvö
hundruð þúsund manns tekið
veiruna í álfunni.
Þetta kom fram á blaðamanna-
fundi, sem Jo Asvall svæðisstjóri
Alþjóða heilbrigðismálastofnun-
arinnar í Evrópu hélt í gær að
loknu svæðisþingi stofnunarinnar
IKaupmannahöfn. Sagði hann að
eyðni væri nú farsótt sem
breiddist ört út, en litlar líkur
væru til þess að menn fyndu bólu-
efni eða lækningaaðferð við sjúk-
dómnum í náinni framtíð. Starfs-
menn stofnunarinnar sögðu að
27000 manns væru með sjúkdóm-
inn í Evrópu, en allt að 200000
manns hefðu telið veiruna, og
tvöfaldaðist tala sjúklinganna á
hverjum átta mánuðum. Vísinda-
menn vita ekki hve margir af
þeim sem fá veiruna í sig sýkjast
síðan af sjúkdomnum, þar sem
veiran fannst ekki fyrr en 1979.
Samkvæmt þeim tölum, sem
starfsmenn Alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar hafa í hönd-
um, eru 67% sjúklinganna í Evr-
ópu samkynhneigðir menn, 10%
eiturlyfjaneytendur, sem sprauta
sig, og 4% menn með dreyrasýki,
sem fengið hafa sjúkdóminn við
blóðgjöf. Hlutfallstala eyðni-
sjúkdóma er hæst í Sviss, 15,4 af
miljón íbúa, og síðan koma Belg-
ía (14), Danmörk (13,3), Frakk-
land (10,4), Lúxembúrg (7,5),
Holland (6,8) og Vestur-
Þýskaland (6,2).
Upplýsinga-
miðstöð
um kjam-
oikuslys
Kaupmannahöfn - Alþjóða heil-
brigðismálastofnunin WHO
hefur nú fallist á að setja upp
evrópska upplýsingamiðstöð
um kjarnorkuslys, að sögn
starfsmanna stofnunarinnar í
Kaupmannahöfn. Kemur þessi
ákvörðun i kjölfar slyssins í
Tsérnóbíl í apríl í vor. Einnig
var skýrt frá því að stofnunin
myndi leita að leiðum til að
bæta alþjóðasamvinnu tii að
takmarka afleiðingar af geisla-
virknimengun.
t gær lauk í Kaupmannahöfn
svæðisþingi alþjóða heilbrigðis-
málastofnunarinnar, þar sem
fulltrúar 32 landa ræddu um áhrif
Tsérnóbíl-slyssins á heilbrigðis-
mál. Sagði Jo Asvall, svæðisstjóri
WHO í Evrópu, að Evrópumenn
hefðu verið alveg óviðbúnir
þessu slysi, jafnvel mælingakerfi
hefðu ekki verið til staðar og mik-
ill ruglingur hefði verið á öllum
viðbrögðum. Þingfulltrúar sam-
þykktu að efna til ráðstefnu sér-
fræðinga í ársbyrjun 1987 til að
ræða um bætta samvinnu Evr-
opuríkjanna til að draga úr
geislavirknimengun eftir kjarn-
orkuslys. Stofnunin mun einnig
gangast fyrir rannsóknum á áhrif-
um geislavirkni á heilsufar
manna til langframa.
Laugardagur 20. september 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13