Þjóðviljinn - 20.09.1986, Qupperneq 4
LEIÐARI
Kratablíða
í meira en fjóra áratugi hefur vera erlends her
liðs á íslandi verið sem fleinn í holdi íslenskrar
þjóðar, sem meira að segja hefur kveinkað sér
við að ræða þetta vandamál á opinskáan hátt.
Og sú umræða sem hefur átt sér stað hefur
einkennst af sterkum tilfinningum og miklum
sárindum.
Umfram allt skulum við ekki gleyma því að
þessum her var á sínum tíma þröngvað upp á
þjóðina. Jafnvel þegar heimurinn lá í sárum eftir
blóðuga styrjöld í sögu alls mannkyns ríkti engin
þjóðarsamstaða um nauðsyn þess að ísland
tæki þátt í hernaðarbrölti, jafnvel ekki með þeim
þjóðum sem forðuðu heimsbyggðinni frá því að
lenda undir hæl nasismans.
Þessi herseta hefur sundrað þjóðinni.
íslenskir andófsmenn hafa unnið ómetanlegt
starf með því að láta okkur ekki gleyma því eitt
andartak að vera erlends herliðs á íslandi er
ekki sjálfsagður hlutur.
Þegar gengið var frá herstöðvasamningnum
á sínum tíma má ætla að það hafi sumpart verið
gert til að tryggja framtíðaröryggi ófæddra kyn-
slóða. Margir telja nú með fullum rétti að það
öryggi sé heldur ótryggt, þrátt fyrir hersetuna -
og hefði verið betur tryggt án hennar. En hvað
sem því líður eru nú komnar nýjar kynslóðir sem
verða sjálfar að taka sér ákvörðunarrétt í sínum
öryggismálum og arfa sinna.
Sú ábyrgð hvílir nú á herðum íslendinga að
skoöa stöðuna af alvöru og raunsæi. Sem
stendur erum við í varnarsamstarfi við Banda-
ríkjamenn. Það samstarf þurfum við að hafa í
stöðugri endurskoðun:
Hvers konar samstarf skapar íslendingum
mest öryggi?
Hvernig getum við starfað náið með þúsund
sinnum stærri þjóð án þess að stefna íslensku
þjóðerni í hættu?
Hvernig förum við að því að verja íslenskt
efnahagslíf gegn erlendri ásælni?
Við þurfum að rannsaka ofan í kjölinn hverjir
það eru sem hafa frá fyrstu tíð gert sér varnir og
öryggi landsins að féþúfu. Og við þurfum að
koma í veg fyrir að gróðahyggjan fái nokkurn
tímann að hafa áhrif á það hvernig við höldum
utan um öryggishagsmuni okkar.
Framsóknarflokkur og Kvennaframboð virð-
ast hafa skynjað alvöru þessa máls, eða alténd
kröfu almennings um að eitthvað verði aðhafst.
Alþýðuflokkurinn er hins vegar gæfulítill að
vanda. Þar kemst engin skynsamleg hugsun
að. Óbreytt ástand, segir Alþýðuflokkurinn,
nema hvað athuga þarf hvort ekki sé hægt að
græða meira á hernum! Eða eins og varafor-
maður Alþýðuflokksins sagði í viðtali við Þjóð-
viljann fyrir fáeinum dögum:
„Mín skoðun er sú að við eigum að endur-
skoða fyrirkomulag flutninga frá og til hernum,
framkvæmd verktakastarfsemi í tengslum við
hann og þá á ég við að afnema eigi einokun
íslenskra aðalverktaka á því sviði og loks þarf
að endurskoða tollfrjáls aðföng til hersins".
Eftir meira en fjögurra áratuga hersetu, eftir
móðganir og ósvífin afskipti Bandaríkjanna af
íslenskum innanríkismálum, eftir að þjóðin hef-
ur verið sundruð í hermálinu í nær hálfa öld, sér
Alþýðuflokkurinn ekki annað athugavert heldur
en hvernig hugsanlegt sé að græða pínulítið
meira á hernum!
Þetta er dapurleg afstaða. En þó skiptir það
ekki meginmáli þótt Alþýðuflokkinn dagi uppi.
Það sem skiptir máli er að tillögur Alþýðubanda-
lagsins eiga sér sterkan hljómgrunn meðal
þjóðarinnar:
Endurskoðum varnarsamninginn. Tryggjum
öryggi þjóðarinnar. Tryggjum sjálfstæði ís-
lensks efnahagslífs fyrir erlendum áhrifum.
Sameinum þjóðina um þá hagsmuni sem öllum
íslendingum eru sameiginlegir. Og lítum fram til
þess dags, þegar íslensk þjóð getur búið ein og
óháð í landi sínu.
Þetta eru þau hagsmunamál sem íslenskir
vinstri menn munu vinna að, meðan Alþýðu-
flokkurinn reikar um og býður hernum blíðu sína
í von um fáeina silfurdali.
-Þráinn
LJÖSOPIÐ
Mynd: Einar Ól.
DJOÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefandi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðins-
son.
Fróttaatjóri: Lúðvík Geirsson.
Bla&amenn: Garðar Guðjonsson, Inaólfur Hjörleifsson, Kristín Ólafs-
dóttir, Magnús H. Gíslason, Mörður Árnason, Sigurdór Sigurdórsson,
Sigurður Á. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíðsdóttir,
Víðir Sigurðsson (íþróttir), Ingvi Kjartansson (Akureyri).
Handrita- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlitsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Auglýsingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýsingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen.
Simvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pétursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Utkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sími 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, símar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentsmiðja Þjóðviljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð: 55 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 20. september 1986