Þjóðviljinn - 20.09.1986, Qupperneq 9
Stjörnugjöf: ★ ★★★ frábær, ★★★ mjög góð, ★★ sæmileg, ★ uppfyllir lágmarks kröfur, 0 léleg
Löggulff í L.A.
ÞJÓVILJINN 100 ÁRA
Tímarit
Barna-
bók-
menntir
ræddar
Þriðja hefti Tímarits Máls og
menningar þessa árs er kom-
ið út og er það einkum helgað
íslenskum barnabókum. Fjöl-
margir höfundar skrifa um
enn fleiri barnabókahöfunda
og yfirlitsgrein um barnabæk-
ur áranna 1980-1985 skrifar
ritstjóri Tímaritsins og barna-
bókamenntapáfinn Silja Aðal-
steinsdóttir.
Þá má nefna viðtal við Guð-
rúnu Helgadóttur rithöfund með
meiru, og enn kennir fleiri grasa á
vel grónum síðum þessa tímarits
sem gefið hefur verið út í 47 ár.
Smásögur eru eftir Einar Má
Guðmundsson og franska rit-
höfundinn Marcel Aymé. Ljóð
birta Gyrðir Elíasson, Ólafur
Sveinsson, Gunnar Sigursteins-
son, Böðvar Bjarki og Kristján
Árnason á tvær sonnettur, önnur
fjallar um apa og menn og í henni
segir:
forfeður þjóðar sem bisar við
björg sér að snapa
og borgar af kappi vexti af
erlendum lánum.
Væri það annars úr háum söðli
að hrapa
ef héngjum við aftur og
sveifluðum okkur á tánum...
Sjón skrifar grein um texta
Einars Arnar Benediktssonar og
þá má nefna þegar fleyga ádrepu
Guðbergs Bergssonar sem heitir
„Sæta liðið sýnir stjórnmálaand-
iit sitt.“ - pv
ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 9
Afmælisnefnd Þjóðviljans
Dagskrá
úr verkum Jóhannesar úr Kötlum í umsjón Bríetar Héðinsdóttir
og Maríu Sigurðardóttur
verður haldin í
GERÐUBERGI
sunnudaginn 21. september kl. 16.00
Flytjendur:
Erlingur Gíslason Bríet Héðinsdóttir Jóhann Sigurðarson María Sigurðardóttir
Háskólakórinn flytur Sóleyjarkvæði undirstjórn Árna Harðarsonar.
Inga J. Backman syngur við undirleik Þórhildar 'Björnsdóttur.
Jóhannes
úr Kötlum
er upphafskafli myndarinnar,
sem virðist ekki í beinu samræmi
við það sem á eftir kemur, og
hreint fáránlegt upphafslag, sem
vinnur á móti öllu því sem sést á
tjaldinu. Það hvarflaði að mér að
gleymst hefði að slökkva á hús-
segulbandinu eftir að filman tók
að rúlla, slíkar voru andstæðurn-
ar. En hvað um það, Friedkin
fann sér smám saman farveg og
myndin batnaði að sama skapi
með hverri mínútu.
Styrkur „Á fullri ferð í L.A.“
felst í raunsæi sögunnar. Richard
Chance (William L. Petersen) og
Jim Hart eru einhvers konar
leyniþjónustumenn sem taka að
sér hættuleg verkefni sem krefj-
ast (fífl)dirfsku, snerpu og
vopnfimi. Á milli þeirra ríkir
virðing og vinsemd, og þeir eru
því eins konar tím (einhvers stað-
ar rakst ég á orðið teymi) innan
glæpalögreglunnar. Eftir að Hart
hefur verið aflífaður, helst til
rækilega, af slátrara peninga-
falsarans Erics Masters (William
Dafoe), einsetur Chance sér að
ná fram blóðugum hefndum. Sér
til aðstoðar fær hann John nokk-
urn Vukovits (John Pankow),
sem er frekar lítill fyrir mann að
sjá. Og nú hefst afdrifarík rimma
við frístundamálarann og kyn-
tröllið Eric Masters, og inní hana
dragast aðilar sem hafast ólíkt að,
og hafa náð mishátt í metorða-
stiganum, hvorumegin laga sem
er.
Frásögnin er taktföst og spenn-
andi og að sjálfsögðu er boðið
uppá bílahasar við erfiðar að-
stæður. Þar er Friedkin reyndar í
talsvert vondum málum, því
hann stendur frammi fyrir því að
þurfa að fara framúr sjálfum sér,
hvað áhrifamátt rallísins varðar.
Spyrnan fer fram á hafnarsvæði
og hraðbrautum L.A. og að
þessu sinni á engin kona með
bamavagn leið yfir götuna. Segja
má að Friedkin sleppi fyrir horn,
hann kann þetta alla vega betur
en flestir aðrir.
Það vakir ekki fyrir Friedkin
að upphefja lögregluna við
skyldustörf (sem Chance lítur
greinilega á sem teygjanlegt hug-
tak). Það er í raun ekki mikill
munur á löggum og bófum. Með-
ulin sem þeir nota em svipuð.
Báðir hóparnir múta, ræna og
ruppla, báðir drepa ef nauðsyn
krefur ; ergo: báðir brjóta það
sem við köllum lög.
Það var ágætlega til fundið hjá
Friedkin að fá tökumanninn
Robby Muller til liðs við sig.
Robby er Þjóðverji og hefur unn-
ið með mörgum af bestu leik-
stjórum Þýskalands, en þekktast-
ur er hann fyrir samstarf sitt við
Wim Wenders, t.d. í París, Tex-
as. Myndrammar hans eru að
vanda eyðilegar og hafa vissa
„road“ áferð sem hentar Friedkin
vel og eiga stóran þátt í að skapa
trúverðugt andrúmsloft myndar-
innar.
Ekki er ég vel að mér um aldur
og fyrri störf aðalleikara þessarar
ágætu myndar, en allir eru þeir
hlutverkum sínum vaxnir. Wil-
liam L. Petersen og John Pankov
eru prýðispar og Willem Dafoe er
kúl gæi, eins og þeir gerast sval-
astir.
Það er kannski ljótt að bera „Á
fullri ferð í L.A.“ saman við
meistaraverk Friedkins „Franska
sambandið“, enda líður nýja
myndin fyrir þann samanburð.
Hana má þó hiklaust telja til betri
verka skapara síns, því honum
hafa verið nokkuð mislagðar
hendur. Mér geðjaðist t.d. lítt að
„Særingarmanninum" (The Ex-
orcist) enda fékkst Friedkin ekki
til að endurtaka það ævintýri
fremur en „Franska sambandið",
og lét það öðrum eftir. -H.O.
undirheimanna, spilling innan
lögreglunnar og mannlegir brest-
ir ýmissa hörkutóla, sem sumir
hverjir hafa lögin bak við sig.
Vígvöllurinn hefur færst frá New
York til Los Angeles og einnig
þar er barist uppá líf og dauða.
Það hefur verið heldur hljótt
um Friedkin undanfarin ár, og
því var ekki laust við að nýja
sköpunarverkið vekti vissa eftir-
væntingu. í fljótu bragði má segja
að meginmunur átakanna í L.Á.
nú og þeirra í Brooklyn um árið
felist í þeirri þróun sem orðið hef-
ur í gerð spennumynda á undan-
förnum árum. Hér er klippt
hraðar og meira lagt uppúr hljóð-
effektum og dynjandi rokktón-
list. (Einnig hér er verið að hugsa
um tónlistarmyndböndin).
Eitthvað virtist mér Friedkin
ráðvilltur til að byrja með, eins
og hann hefði ekki lagt niður fyrir
sig stíl myndarinnar og væri að
þreifa sig áfram. Dæmi um þetta
Löggulíf í L.A.
★★★
Á fullri ferð í L.A. (hallærisleg þýð-
Ing) (To Live and Die in L.A.).
Bíóhúsið.
Bandarísk 1985.
Leikstjórl :Vf\\\iam Friedkin.
Handrlt: William Friedkin og
Gerald Petiavich. Framleiðandi:
Irving H. Levin. Kvikmyndataka:
Robby Muller. Tónlist:Wang
Chung.
Helstu leikarar. VIMam L. Peter-
sen, Willem Dafoe, John Pankow
og Dean Stockwell.
Hver man ekki eftir „Franska
sambandinu" (French Connecti-
on I), löggumyndinni mögnuðu
sem dró upp raunsæja og kald-
ranalega mynd af högum New
York lögreglunnar og baráttu
hennar við franskættaða
eiturlyfjasmyglara í Brooklyn?
Hver man ekki eftir bflaeltinga-
leiknum æsilega sem gekk svo
aftur í ótal spennumyndum, mis-
vel framreiddur, og hver man
ekki eftir óborganlegum leik
þeirra Genes Hackman og Roys
Scheider? Nú, maðurinn sem átti
heiðurinn að öllu þessu heitir
William Friedkin og hann er nú
mættur til leiks á ný, eldhress og
sprækur. Enn á n,y er við-
fangsefnið fremur vonlaus bar-
átta lögregiunnar við drottna
HILMAR
ODDSSON
Tónleikar
Sinfónía
æskunnar
Ungt og efnilegt tónlistarfólk mun
halda mikinn konsert í sal
Menntaskólans við Hamrahlíð á
sunnudaginn klukkan sautján.
Einleikari á fiðlu verður Gerð-
ur Gunnarsdóttir, en hún tók þátt
í mörgum Zukofsky náms-
keiðum, fyrirrennara SÆ, og er
hún núna við framhaldsnám í
Bandaríkjunum en hefur verið
leiðbeinandi strengja á þessu
námskeiði. Stjórnandi er Mark
Reedman, og er þetta í annað
sinn sem hann stjórnar SÆ.
Tónleikarnir eru afrakstur
námskeiða sem 85 ungmenni víða
af landinu hafa sótt og spilað
undanfarna tíu daga. Kjörið tæk-
ifæri til að ná forskoti og hlýða á
Sinfóníuhljómsveit framtíðarinn-
ar. - Pv