Þjóðviljinn - 20.09.1986, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 20.09.1986, Qupperneq 16
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA Laugardagur 20. september 1986 213. tölublað 51. órgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663. Akureyri Smygl í Amarfelli Tollgæslan á Akureyri fann töluvet smygl í nótt um borð í Arnarfellinu þegar fóður var los- að úr skipinu. Alls fundust um borð 30 kassar af bjór, 170 kfló af skinku og 19 flöskur af sterku áfengi. 7 skipverjar af Arnarfellinu hafa viðurkennt að eiga smygl- varninginn. Skipið kom úr Evr- ópuferð fyrir viku og var tollaf- greitt í Reykjavík en Akureyri er fyrsta viðkomuhöfnin á ferð skipsins um landið. Stuðmenn Straxá erlendan markað „Stuðmenn munu ekki gefa út plötu á þessu ári, en hinsvegar er i bígerð að hljómsveit nátengd þeim gefi út plötu og þá mun sú plata væntanlega koma út víðar en á íslandi,“ sagði Egill Ólafs- son, Stuðmaður, við Þjóðviljann. Hljómsveit sú sem Egill á við er hljómsveitin Strax, sem lagði Kína að fótum sér í sumar sem leið. Að sögn Egils hefur ekki enn verið gengið frá samningum við neina aðila erlendis, en hins- vegar er verið að athuga ýmsa kosti. Enn er óráðið í hvaða landi eða löndum platan kemur út, en Þýskaland og Bretland koma sterklega til greina. Á ferð sinni um Kínaveldi tóku Stuðmenn upp heimildarkvik- mynd og er nú verið að klippa hana í Bretlandi undir verndar- væng BBC. Verður kvikmyndin væntanlega tilbúin seinna í haust og bjóst Egill fastlega við að ís- lenska sjónvarpið myndi kaupa sýningarrétt á henni hérlendis. Ætlunin er að dreifa kvikmynd- inni víðar en ekkert fastákveðið um það enn. Sjá nánar um hljómplötuút- gáfu á íslandi í Sunnudagsblað- inu. -Sáf 50 ár París Þjóðvilja- bridds í Gerðubergi í dag klukkan eitt hefst afmæl- ismót Þjóðviljans í bridds í Gerð- ubergi í Breiðholti. Ólafur Lárusson, hinn góð- kunni briddsfréttamaður Þjóð- viljans, stjórnar mótinu, sem haldið er í tilefni hálfrar aldar af- mælis blaðsins. Allirútreikningar fara fram í tölvu og liggja fyrir strax að spili loknu. Síðari um- ferðin hefst 19.30 og verða úrslit kunn í kvöld. Fyrstu verðlaun eru ferð til Kaupmannahafnar eða Salzburg og keppa um þann vinning yfir hundrað manns, þar á meðal margir bestu briddsmenn lands- ins. Áhorfendur eru velkomnir. Erna Hlöðversdóttir nýkominfrá París: Léttir að koma heim Aþeim fimm dögum sem við dvöldum í París urðum við vör við þrjú sprengjutilræði í kringum okkur og það var líka gerð sprengjuleit á hótelinu þar sem við bjuggum, sagði Erna Hlöðversdóttir í samtali við Þjóð- viljann, en Erna er nýkomin frá höfuðborg Frakklands þar sem hvert sprengjutilræðið hefur rek- ið annað. „Afleiðingarnar voru sannast sagna hræðilegar, fólk lá slasað og jafnvel dáið. Við bjuggum á hóteli sem er staðsett miðsvæðis í París og því í kjarna borgarinnar þar sem mest er um ferðamenn. Á sunnudeginum vorum við stödd við Sigurbogann er við fengurn fyrstu reynslu okkar af sprengjutilræðum. Skyndilega heyrðum við ofboðsleg læti, lög- reglubílar skutust á milli akreina með háværum sírenum og þar í grennd sprakk sprengja sem var í kaffiteríu Renaultsafnsins. Daginn eftir fór ég að skoða Louvre listasafnið og þá varð ég aftur vör við sprengjutilræði. Það reyndist vera lögreglustöð sem sprengd var í loft upp. Þar slasað- ist hópur fólks og svo var reyndar einnig í fyrri sprengingunni. I Það versta sem við sáum var á þriðjudeginum. Þá vorum við að búa okkur á tónleika í Notre Dame er við sáum í sjónvarpi að sprengja hafði sprungið í verslun á vinstri bakka Signu. Sú sprengja var mjög öflug og þar létust a.m.k. fimm manns. í versluninni voru mest konur og börn og það var óhugnanlegt að sjá þetta í sjónvarpinu, sært og dáið fólk eins og hráviði út um allt. Eftir þessa stóru sprengingu var mikill óhugur í okkur og ekki bætti það úr skák er við komum heim af tónleikunum að lögreglu- bfll kom æðandi á hótelið sem við bjuggum í og gerði leit. Maður hefur ekki stórt hjarta þegar svona stendur á, en sem betur fer reyndist ekki vera um neitt til- ræði að ræða,“ sagði Erna Hlöðv- ersdóttir að lokum. -GH Erna yfir Parísarkorti: Sprengjuleit á hótelinu og sprengingar í grennd. (Mynd: E.ÓI) Heim úr sprengjufríi Getnaðarvarnir Ný og betri pilla Prófanir á þessari nýju pillu hófust 1973 og við teljum að nú sé hún fullkomlega örugg og hefur verulega færri aukaverkan- ir, sagði Dr. Göran Gullberg dós- ent við Kvinnokliniken í Gauta- borg í samtali við blaðið í gær en hann hefur unnið við rannsóknir á nýrri gerð af getnaðarvarnap- illu í samvinnu við finnska og hol- lenska vísindamenn undanfarin ár. „Pillan var sett á markað í Þýskalandi 1983 og hefur reynst mjög vel samkvæmt rannsóknum okkar,“ sagði dr. Gullberg. „Þær rannsóknir sem hafa farið fram áður en þessi pilla var markaðs- sett eru þær langmestu í lyfjas- ögunni og kostuðu 1800 milljónir íslenskra króna. Leyndardómur- inn sem veldur því að hún er aukaverkanalaus er sá að í henni er ekki hormónið gestagen, sem veldur þyngdaraukningu, óhreinni húð, blóðtappa og hjarta- og æðasjúkdómum, held- ur ný tegund af sama hormóni sem vísindamenn hafa fundið eftir 20 ára rannsóknir og er nefnt desogestral. Nýja pillan heitir Marvelon og er framleidd af hollensku fyrir- tæki. Hún var fyrst kynnt í nokkr- um löndum Evrópu fyrir tveimur árum og varð fljótlega mest selda pillan í mörgum þeirra. Auk þess sem Marvelon er aukaverkanalítil, hefur hún einn- ig jákvæð áhrif á fitusamsetningu blóðs og dregur úr hættu á blóð- tappa og þannig á hjarta- og æð- asjúkdómum. -vd. RÚV Sjónvarpið hefst fyrr Samkeppnisviðhrögð á R ÚV. Sjónvarpsfréttir hálf átta. Rás tvö í hádeginu. Rfldsútvarpið lagar sig að sam- keppni frá nýjum stöðvum. Bráðlega hefst sjónvarpsdagskrá- in fyrr, fréttum verður flýtt, og útsendingartími rásar tvö aukinn. Breytingarnar voru samþykkt- ar á fundi útvarpsráðs í gær og kynntar á blaðamannafundi út- varpsstjóra. Sjónvarp hefst nú alla virka daga klukkan 17.55 með fréttum á táknmáli, síðan verður samfelld dagskrá út kvöldið. Fréttatími hefst hálf átta í stað átta áður. Hér er verið að mæta væntanlegri samkeppni frá nýju sjónvarpsstöðinni. Miðað er við að nýi stfllinn komist á í sjón- varpinu 1. október. Dagskráin á rás tvö verður nú samfelld, það er sent út á milli 12 og 14 í hádeginu, en rásir verða þó stilltar saman kringum hádegisfréttir og veður. Hádegishléið var að sögn helsti Akkilesarhæll rásarinnar í sam- keppni við Bylgjuna. Þessi ný- skipan á rás tvö hefst strax á mán- udag. Aðrar breytingar eru ekki fyr- irhugaðar í bili, en um ýmislegt rætt meðal útvarpsmanna, til dæmis að önnur hvor útvarpsrás- in verði í gangi allan sólarhring- inn. -m

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.