Þjóðviljinn - 04.10.1986, Síða 2
I— SPURNINGIN
FRÉTTIR
Hvaða gildi telur þú að
leiðtogafundurinn hafi fyrir
ísland og hvaða vonir bind-
ur þú við hann?
Þorkell Hreinsson
nemi:
Fundurinn veldur umfjöllun um
landið, sem er ágætt. En ég held að
það komi ekkert út úr þessum fundi
sem skiptir neinu máli.
Jóhannes Helgason
flugmaður:
Fundurinn auglýsir landið ágætlega
út á við. Og ég vona bara að leiðtog-
arnir takist í hendur og hætti þessu
vopnakapphlaupi sem er að gera alla
vitlausa. Eg vona að þeir hagi sér
einsog menn!
bifreiðastjóri:
Fólk úti í heimi hefur ekki vitað af
þessu landi en nú vekjum við meiri
athygli sem verður vonandi til þess
að fólk fari að ferðast meira hingað og
taka eftir okkur. Varðandi fundinn þá
er ekkert vitað ennþá um hvað
leiðtogarnir ætla að tala og þess
vegna ekkert hægt að spá um
árangur.
Halldóra Kristjánsdóttir
húsmóðir:
Þetta hlýtur að vera mikil auglýsing
um Island um allan heim. Ég vona að
leiðtogarnir geti samið um frið í
heiminum og fækkun kjarnorku-
vopna. Það væri dásamlegt ef það
tækist, mór finnst ófriðurinn í heimin-
um alveg óþolandi.
Berglind Björnsdóttir
afgreiðslustúlka:
Athyglin beinist að fslandi núna, það
gæti valdið því að hryðjuverkamenn
komi hingað frekar, óg veit það þó
ekki. Ég vona að það verði einhver
árangur af þessum fundi, og leiðtog-
arnir semji um afvopnun.
Kópavogur
Stóraukið lóðaframboð
Nýtt 140 íbúða hverfi tilkynningar. Auglýst til umsóknar ínœsta mánuði.
Einbýlishúsin með réttifyrir smáíbúð á neðri hœð
Nú er lokið deiliskipulagningu
við nýtt byggingarhverfi í
suðurhlíðum Kópavogs og munu
þar auglýstar lóðir undir 140
íbúðir strax í næsta mánuði.
Fram til mánaðamóta gefst
bæjarbúum hins vegar kostur á
að kynna sér hið nýja skipulag og
gera athugasemdir við það.
Á nýja byggingarsvæðinu í
suðurhlíðum Digranesháls, sem
verður 2. áfangi svæðisins, verða
49 einbýlishús, tvö sambyggð sér-
býlishús með 14-20 íbúðum og
loks fjögur fjölbýlishús þar sem
verða um 70 íbúðir. Gert er ráð
fyrir möguleika á allt að 5o fer-
metra séríbúð á neðri hæð einbýl-
ishúsanna.
Mikil eftirspurn hefur verið
eftir byggingarrétti á 1. áfanga í
suðurhlíðum, en þar hafa hús
verið að rísa eitt af öðru. Þegar
það hverfi verður fullbyggt verða
þar um 90 íbúðir.
Eftir áramót hefja verka-
mannabústaðir í Kópavogi bygg-
ingar á fimm fjölbýlishúsum, sem
þeir fengu úthlutað fyrir ári í
suðurhlíðum. Þá er skipulags-
nefnd bæjarins að vinna við
endurskoðun á deiliskipulagi 3.
áfanga svæðisins og verður það
hverfi tilbúið tii úthlutunar á
næsta ári. Þá verður hafist handa
við 4. og síðasta áfanga suður-
hlíða.
Næsta byggingarsvæði Kópa-
vogs er svo Fífuhvammsland, en
þar hafa í aðalskipulagi verið
áætluð íbúðar- og atvinnusvæði
sem fullnægja eftirspurn næstu
áratugina.
-v.
Hjálmfríður Þórftardóttir t.v. afhendir Vilfríði Þórftardóttur gjöf Dagsbrúnar.
Kvennaathvarfið
200 þúsund fra Dagsbmn
Vonandi öðrum verkalýðsfélögum hvatning tilfrekari stuðnings
við Kvennaathvarfið
Verkamannafélagið Dagsbrún
hefur afhent Kvennaathvarfinu
200 þús. krónur að gjöf. Fyrr á
þessu ári hafa tvö önnur verka-
lýðsfélög fært athvarfinu 50 þús.
króna peningagjafír; Iðja félag
verksmiðjufólks í Reykjavík og
Félag bókagerðarmanna.
Hjálmfríður Þórðardóttir
starfsmaður Dagsbrúnar afhenti
Kvennaathvarfinu gjöfina á skrif-
stofu Dagsbrúnar í vikunni og
bað athvarfið og þá einkum börn-
in þar vel að njóta. Sagði Hjálm-
fríður að stjórn Dagsbrúnar von-
aðist til að þetta framlag yrði öðr-
um verkalýðsfélögum hvatnig til
frekari stuðnings við Kvennaat-
hvarfið.
Fyrir hönd Kvennaathvarfsins
tók Vilfríður Þórðardóttir við
gjöfinni og þakkaði þann hlýhug
og skilning sem að baki býr.
-Ig
Hafnarfjörður
Dagheimilið
fluttaf
Hamrinum
Full samstaða í bœjar-
stjórn um að heimilið
verði reist í Staðar-
hvammi.
Bæjarstjórn Hafnarfjarðar
samþykkti á fundi sínum á
fímmtudag að næsta dagvistar-
heimili, sem til stóð að reisa á
Hamarssvæðinu ofan við Flens-
borgarskóla, verði flutt í Staðar-
hvamm ofan við Jófríðarstaði.
Full samstaða var um þessa til-
færslu dagheimilisins í bæjar-
stjórn, en áður hafði meirihluti
bæjarstjórnar fellt tillögu bæjar-
fulltrúa Sjálfstæðismanna um að
dagheimilið yrði flutt í Setbergs-
land.
Mikil mótmæli urðu meðal
bæjarbúa og forráðamanna
Flensborgarskóla þegar ákveðið
var að dagheimilið risi á Ham-
arssvæðinu. Var sú ákvörðun
m.a. kærð til skipulagsstjórnar
ríkisins.
Bæjarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins og formaður bæjarráðs
sagði í samtali við Þjóðviljann að
það væri yfirlýst markmið meiri-
hluta bæjarstjórnar að koma dag-
heimilisbyggingunni af stað á
þessu ári og nýta þá fjárveitingu
sem liggur fyrir. „Við vildum
ekki að þessi bygging dytti upp
fyrir í ár vegna skipulagsdeilna og
töldum því ráðlegast að flytja
hana á annan stað svo hægt væri
að hefjast strax handa um fram-
kvæmdir," sagði Magnús Jón.
-Ig-
í gær var 22. skákin í heimsmeistar-
aeinvíginu tefld í Leningrad. Kaspa-
roff hafði hvítt og tefldi drottningar-
bragð, afbrigði sem þeir hafa þvælt
3-4 sinnum áður. Kasparoff hafði
betri stöðu alla skákina í gegn og í
biðstöðinni hefur hann peði meira.
Vinningurinn er þó ekki borðleggj-
andi og menn skyldu minnast þess að
Karpoff er seigur í vörn. Biðskákin
verður tefld í dag en 23. skákin á
mánudaginn.
Hvítt: Kasparoff Svart: KarpofT
1. d4-Rf6
2. c4-e6
3. Rf3-d5
4. Rc3-Be7
5. Bg5-h6
6. Bxf6-Bxf6
7. e3-0-0
8. Hcl-c6
9. Bd3-Rd7
10. 0-0-dxc4
11. Bxc4-e5
12. h3-exd4
13. exd4-Rb6
14. Bb3-Bf5
í 10. og 12. skákinni varð þessi
sama byrjun uppi á teningnum en hér
kemur Karpoff fram með nýjan leik,
leikur drottningarbiskupnum út en
sinnir ekki um að sækja að stakpeði
hvíts á d4.
15. Hel-a5
Hér kemur til álita að leika Hc8-c7-
d7/eða e7 því í skákinni kemst hrók-
urinn ekki að fyrr en undir lokin.
16. a3-He8
17. Hxe8+-Dxe8
18. Dd2-Rd7
Skákin
Flókin biðskák
Kasparoffstendur betur í biðstöðunni.
Nú er 19. d5 svarað með Rc5 20.
Ba2 Hd8 21. d6 Bxc3 22. bxc3 Re4 og
d-peðið fellur. Þessi möguleiki er til
staðar í næstu leikjum. Hvítur reynir
því ekkert að losa sig við staka peðið
og þarf þess raunar ekki heldur.
Hann lætur nú ófriðlega fyrir framan
kóngsstöðu svarts.
19. Df4-Bg6 20. h4-Dd8
Svartur gælir við aðgerðir á drottn-
ingarvæng með Db6. Hvítur hindrar
þann leik.
21. Ra4-h5 23■ Rc3-Db8
22. Hel-b5 24- De3-...
Drottningarkaup mundu létta á
stöðu svarts. Hann stæði betur að vígi
í endatafli með öfluga biskupa.
24. ...-b4
25. Re4-bxa3
Hér kom alls ekki til greina að láta
hvítreita biskupinn með 25. ... Bxe4
því þá yrði f7-reiturinn dauðasjúkur.
26. Rxf6+-Rxf6
27. bxa3-Rd5
28. Bxd5-cxd5
Það var nauðsynlegt að drepa
þennan riddara enda er það í sam-
ræmi við þá reglu að fella þá menn
andstæðingsins sem best standa. f
næstu leikjum reynist riddari hvíts
snöggtum öflugri en biskup svarts.
Hvítur ógnar svarta kónginum og
leggur undir sig línur og reiti. Svartur
er líka bundinn við að valda veik peð
um allt borðið.
29. Re5-Dd8 32. Dh3-Hb6
30. Df3-Ha6 33. Hc8-Dd6
31. Hcl-Kh7 34. Dg3-a4
Hvítur saumar listilega að svarti.
Nú má hrókurinn ekki sleppa valdi af
drottningunni vegna Hh8+(Kxh8)
Rxf7+ og Dxd6. Biskupinn verður að
valda f7-peðið og ef drottningin víkur
frá d7 kemur Rd7-f8+ með skelfi-
legum afleiðingum. Hvítur vinnur nú
peð en losar um leið heljartakið á
stöðu svarts.
35. Ha8-De6 36. Hxa4-Df5
Drottningarleikir svarts eru góðir
því frá f5 tekur hún reiti af hvítu
drottningunni og gæti hugsanlega
ógnað hvíta kónginum.
37. Ha7-Hbl+
38. Kh2-Hcl
Hótar Dbl og Hhl mát.
39. Hb7-Hc2
40. f3-Hd2
Hér lék hvítur biðleik. Hann gæti
skipt upp á g6 (41. Rxg6 Dxg6 42.
Dxg6+Kxg6) en svartur á að halda
því endatafli því hrókurinn hans
stendur svo vel. Annar kostur fyrir
hvít er 41. Rc6 með framrás a-peðsins
í huga. Hann hefur þá líka þrýsting á
kóngsstöðu svarts. Svartur á ekki
hægt um vik í þeirri stöðu en virk
staða hróksins býður upp á mótfæri.
Hvítur stendur samt örugglega betur í
biðstöðunni. •> J.T.
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. október 1986