Þjóðviljinn - 04.10.1986, Blaðsíða 4
LEIÐARI
Að taka á móti gestum
Nú þegar er hafinn mikill gestagangur á
landinu vegna fyrirhugaðs fundar þeirra Gor-
batsjovs og Reagans. Þar eru á ferðinni erlendir
fréttamenn, enda þykir þessi fundur stórvið-
burður á alþjóðavettvangi.
Erfitt er að giska á hversu margir gestirnir
verða, en sennilega er ekki út í bláinn að áætla
að erlendir fréttamenn verði um 2000 talsins.
Sem dæmi um fjölda fréttamanna má nefna, að
frá sjónvarpsstöðvum í Vestur-Þýskalandi
koma um 50 manns - og eru þá ótaldir frétta-
menn frá öðrum fjölmiðlum þar í landi. CBS
heitir sjónvarpsstöð eða fyrirtæki í Bandaríkjun-
um og frá því fyrirtæki einu koma um 30 manns.
Það er Ijóst að hingað koma gestir frá öllum
heimshornum.
Þetta kann einhverjum að þykja mikið tilstand
í kringum tveggja manna tal, en þá er hins að
gæta, að miklar.vonir eru bundnar við að við-
ræður þeirra Gorbatsjovs og Regans verði
árangursríkar í þágu friðar.
Þessi gestagangur leiðir til þess að athygli
heimsins beinist að íslandi í sívaxandi mæli á
næstu dögum. Þeir herskarar fréttamanna sem
hingað koma munu keppast við að senda héð-
an fréttir af því sem þeir telja frásagnarvert.
Fréttir af sjálfum leiðtogafundinum verða tak-
markaðar. Bæði er það að viðræðurnar fara
fram, sumpart undir fjögur augu, sumpart í
þröngum hópi nánustu ráðgjafa og fréttir af við-
ræðunum verða vandlega metnar og sparaðar
við fréttamenn til að forðast að vekja of mikla
bjartsýni eða svartsýni eða til að forðast rang-
túlkun. Og það er meira en líklegt að árangurinn
af þessum fundi komi ekki í Ijós fyrr en nokkru
eftir að honum lýkur og allir verða löngu komnir
heim til sín.
En um eitthvað verða fréttamennirnir að
skrifa. Fjölmiðlarnir sem þeir starfa hjá heimta
fréttir, hvort sem eitthvað gerist eða ekki. Það
verður vandlega spáð í svipbrigði leiðtoganna
og aðstoðarmanna þeirra, að ekki sé talað um
það sem menn telja sig hlera hjá einhverjum
sem fundunum tengjast, ellegar einhverjum
sem hafa hitt leiðtogana eða háttsetta menn að
máli.
En töluvert munu fréttamennirnir skrifa um
umgerð fundarins og stemmninguna kringum
fundinn. ísland er nýstárlegt fyrir þá sem hingað
koma í fyrsta skiptið og eru vanir stórborgum og
fjölmennum þjóðfélögum. Saga lands og þjóðar
verður rifjuð upp í grófum dráttum í flestum fjöl-
miðlum heims og stiklað á stóru um nútíma-
þjóðfélag á íslandi. Veðrið á íslandi verður frétt-
aefni og hreina loftið og heita vatnið.
En loks munu fréttamennirnir fjalla um per-
sónulega reynslu sína af landi og þjóð. Sjálfsagt
mun eitthvað fréttnæmt að þeirra mati koma
upp þegar þúsundir gesta frá öllum heimshorn-
um koma saman fyrirvaralítið í smáborg á hjara
veraldar. Og það er á okkar valdi, að þau atvik
verði að mestu leyti jákvæð og skemmtileg.
Allflestir munu sýna góðan skilning á því, að hér
hefur fyrirvarinn verið stuttur og aðstaðan er
takmörkuð.
öll óþægindi munu gleymast og hverfa eins
og döggfyrirsólu.ef hinirerlendugestir-og hér
er átt við alla gestina - verða þess áskynja að
.þeir eru velkomnir. Ef íslensk gestrisni fær að
njóta sín munu gestirnir eiga hér ánægjulega
viðdvöl og skýra lesendum sínum, hlustendum
og áhorfendum frá því að til íslands sé gott að
koma.
Það sem helst gæti spillt fyrir því að land og
þjóð fái jákvæða umfjöllun í fjölmiðlum heimsins
væri ef gróðafíknin næði tökum á okkur. Nú
þegar hafa heyrst dæmi þess að íbúðir hafi
verið leigðar út á geypiverði af því að eftirspurn-
in er mikil. Vonandi gerist slíkt einvörðungu í
undantekningartilvikum, því að það væri mikil
hneisa fyrir þjóðina, ef hún fengiþann stimpil á
sig í fjölmiðlum heimsins, að Islendingar séu
fégírug þjóð. Sjálfsagt er að selja alla þjónustu á
fullu verði, en okur og svartamarkaðsbrask
skulum við vera samtaka um að koma í veg fyrir.
Nú reynir á hvort við kunnum að taka á móti
gestum. - Þrálnn
I ■ I lLL Lv i a i a ■ óso p 1 1 ■ MYND. K.G.A. ....... yf
DJ0ÐVIUINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Utgefandi: Utgáfufólag Þjóöviljans.
Ritstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur Skarphéðins-
son.
Fróttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: Garðar Guöjonsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín Olafs-
dóttir, Magnús H. Gíslason, Mörður Ámason, Sigurdór Sigurdórsson,
Sigurður A. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíðsdóttir,
Víðir Sigurðsson (íþróttir), Ingvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elias Mar.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlit8teiknarar: Sævar Guöbjörnsson, Garðar Sigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Auglysingastjóri: Sigríður Hanna Sigurbiörnsdóttir.
Auglýaingar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Símvarsla: Katrin Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: ólöf Húnflörð.
Bflstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: Hörður Oddfríðarson.
Afgreiðsla: Bára Sigurðardóttir, Kristín Pótursdóttir.
Innheimtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, Ólafur Björnsson.
Utkoyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, sfmi 681333.
Auglý8Íngar: Sfðumúla 6, afmar 681331 og 681310.
Umbrot og setning: Prentamlðja Þjóðvlljans hf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð: 55 kr.
Áskriftarverð ó mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 4. október 1986