Þjóðviljinn - 04.10.1986, Side 7
Laugardagur 4. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SIÐA 7
DJÚÐVIUINN
Umsjón:
Ólafur
Gíslason
Áfangar í
Einn af strákunum í MX-21, Ásbjörn Kristinsson. Myndin er tekin fyrir sirka
nokkrum árum.
TvennirtónleikaríAusturbæjar-
bíóiídag:MX-21 heldurfyrstu
sjálfstæðu tónleika sína, sem
bera sama nafn og hin nýja
hljómplatafrumkvöðulsins:
Frelsitilsölu.
Hvorutveggju tónleikarnir
hefjast með því að Bubbi Morth-
ens kemur einn á sviðið í um það
bil hálftíma. Síðan tekur við í
fyrra skiptið hljómsveitin Ný
augu, er þar er Bjarni Tryggva-
son í broddi fylkingar, - á síðari
tónleikunum verður í þeirra stað
tríóið Langi Seli og skuggarnir
sem að sögn kennir sig við
„dreptannbillí". Eftir hlé í bæði
sinnin ræður MX-21 ríkjum, og
þeir Bubbi Morthens, Lárus
Grímsson, Þorsteinn Magnús-
son, Jakob Magnússon og Hall-
dór Lárusson leika listir sínar í
fyrsta sinn að undantekinni
glæstri framgöngu á afmælisrokk-
hátíðinni á Arnarhóli.
Meginuppistaðan í dagskrá
MX-21 eru lög af nýrri stúdíó-
plötu Bubba, Frelsi til sölu, sem
hann hefur verið að dunda við
ásamt sænsku sveitinni Imperiet
undanfarið ár, - og væntanlega
verður líka slegið á eldri strengi.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
klukkan sjö og tíu. -m
Ingunn Eydal og Ingiberg Magnússon við uppsetningu grafíksýningarinnar á Kjarvalsstöðum í gær.
íslensk grafík
að Kjarvalsstöðum
Félagið Íslenskgrafíkopnar
7. félagssýnu sína að Kjar-
valsstöðum í dag kl. 15.
A sýningunni eru 160 verk eftir
32 af 41 félagsmanna. Að sögn
Ingunnar Eydal formanns félags-
ins er þetta stærsta og jafnframt
fjölbreyttasta sýning sem félagið
hefur gengist fyrir, en þrjú ár eru
oú liðin frá síðustu félagsýningu.
Sýningin er afar fjölbreytileg
hvað varðar tækni og uppsetn-
ingu og nálgast sumar myndirnar
svið skúlptúrsins. Vegleg lit-
prentuð sýningarskrá verður gef-
in út í tilefni sýningarinnar, en
hún mun standa fram til 19. októ-
ber.
Eddukveðskap
Sum Eddukvæðin voru skrifuð um leið og þau voru ort, segir
Jónas Kristjánsson, sem heldur erindi um Eddukveðskap á
sunnudag
Jónas Kristjánsson forstöðu-
maðurStofnunarÁrna Magnús-
sonar flytur erindi sem hann
nefnir „Áfangar í Eddukveðskap"
í Háskólanum á sunnudag. Er-
indið erflutt í tilefni 75 ára afmæl-
is Háskólans og í tilefni nýrrar
Ijósprentaðrar útgáfu Konungs-
bókar Eddukvæða, sem Stofnun
Árna Magnússonar og bókaút-
gáfan Lögberg standa að í sam-
einingu. Jónas hafði eftirfarandi
að segja um efnisatriði fyrirlest-
ursins í stuttu samtali við Þjóðvilj-
ann.
Efni fyrirlestursins verður í
meginatriðum þrískipt. í fyrsta
lagi mun ég fjalla um þær hug-
myndir sem fram hafa komið um
að Eddukvæðin hafi verið flutt
munnlega í lausu formi áður en
þau voru skráð. Þar er átt við að
menn hafi flutt meginefni kvæð-
anna munnlega með breytilegu
formi áður en þau voru skráð.
Þessar hugmyndir hafa komið
fram í kjölfar rannsókna tveggja
bandarískra fræðimanna á forn-
um serbókróatískum hetju-
kvæðum. Þar er fyrst og fremst
átt við bandaríska fræðimanninn
Albert Lord og bók hans „The
Singer of Tales“, þar sem hann
kemst að þessari niðurstöðu um
hina serbókróatísku kvæðahefð.
Jónas Kristjánsson.
Þar notuðust menn við vissar
formúlur þegar tilteknum at-
burðum var lýst, til dæmis orrust-
um, en að öðru leyti breyttist
flutningur þessara kvæða í með-
ferð kvæðamannanna. Ýmsir
fræðimenn hafa nú í kjölfar þess-
ara rannsókna getið sér þess til að
sama ætti við um Eddukvæðin -
að þau hafi ekki verið flutt í
óbreyttu formi.
Ég geng hins vegar gegn þess-
ari kenningu varðandi Eddu-
kvæðin, meðal annars vegna þess
að ég tel að ekki sé hægt að breyta
vísum á borð við þessa, sem er úr
Völuspá, í hvert sinn sem kvæðið
er flutt:
Sér hún upp koma
öðru sinni
jörð úr Ægi
iðjagræna.
Falla fossar
flýgur örn yfir
sá er á fjalli
fiska veiðir.
í öðru lagi mun ég í erindi mínu
fjalla um aldur Eddukvæða.
Sumir fræðimenn hafa á seinni
árum haldið því fram að ýmis
goðakvæði í Eddu væru yngri en
áður var talið og jafnvel ort
kristnum sið. Ég mun hins vegar
rökstyðja það að öll þessi kvæði
séu gömul og ort í heiðnum sið.
í þriðja lagi mun ég setja fram
nýjar hugmyndir um það hvenær
sum Eddukvæðin hafi verið skrif-
uð upp. En í stuttu máli þá held
ég að sum Eddukvæðin sem talið
er að hafi varðveist í
munnmælum hafi ef til vill verið
sett á blað um leið og þau voru
ort.
Fyrirlestur Jónasar Kristjáns-
sonar verður haldinn í stofu 101 í
Odda og hefst kl. 17.00.
ólg.
Síða úr handriti Konungsbókar Eddukvæða, sem Stofnun Árna Magnússonar
mun gefa út Ijósritaða á næstunni í samvinnu við bókaútgáfuna Lögberg.
Austurbæjarbíó
Frelsi til sölu
Bubbi og félagar í MX-21 rokka tvöfalt