Þjóðviljinn - 09.10.1986, Blaðsíða 3
TORGHE)
Fyrst landiö hernumið, þá húsin
leigunumin og þó er þjóðin upp-
numin!
FRÉniR
Húsnœðisstofnun
Nýju lögin fesl í sessi
Gengið hefur verið frá
samkomulagi um skulda-
bréfakaup lífeyrissjóðanna af
Húsnæðisstofnun ríkisins á næstu
tveim árum. Felur samkomulagið
í sér að lífeyrissjóðirnir munu á
árunum 1987 og 1988 kaupa
skuldabréf fyrir 7-8 miljarða
króna. Þá var samið um að á
næsta ári lækki vcxtir á skulda-
bréfunum úr 6,5% í 6,25% og að
1988 lækki þeir í 5,9%, þetta er
þó bundið því að engar verulegar
breytingar verði á vöxtum
innlánsstofnana eða ávöxtunar-
ákvörðunum ríkissjóðs.
f samkomulaginu er einnig fall
ist á að Húsnæðisstofnun greiði
hærri vexti af eldri lánum sem
hafa verið með vexti á bilinu 3%-
3,5%. Vextir á þessum lánum
munu hækka í 4,2%. Hér er um
að ræða lán sem nema um 5,6
miljörðum króna.
Sigurður E. Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Húsnæðis-
stofnunar, sagði við Þjóðviljann,
að þetta samkomulag festi í sessi
nýju húsnæðislögin. Sagði hann
að undanfarið hefði Húsnæðis-
stofnun unnið að tölvuforriti
vegna nýju lánsumsóknanna en
nú væri því að mestu lokið og því
vænti hann þess að forgangshóp-
arnir fengju áður en langt um líð-
ur svar frá stofnuninni um hve-
nær þeir geti átt von á láni.
„Fyrstu lánin verða hiklaust
greidd út fyrir áramót," sagði Sig-
urður.
Hann sagði að fyrst yrðu af-
greiddir þeir sem hefðu sótt um
eftir gamla kerfinu og ekki
endurnýjað umsóknir sínar. Þeir
sem hefðu endurnýjuðu umsókn-
ir sínar eru næstir röðinni en sam-
hliða þeim verður væntanlega
farið að afgreiða fyrstalánsþega.
Sigurður var inntur að því
hvort hann héldi að Húsnæðis-
stofnun gæti annað þeirri
aukningu á útlánum sem nú er
fyrirsjáanleg. Hann bjóst fastlega
við því. „Við erum með mikið
fjármagn í gangi sjálfir, auk þess
sem við erum alltaf með á fjár-
lögum og nú bætast þessi stór-
auknu kaup lífeyrissjóðanna við.
Ég vænti þess að þetta fjármagn
dugi.“ -Sáf
Lífeyrissjóðirnir
Niður úr
vaxtafárinu
Hrafn Magnússon, SAL:
Kemur í vegfyrir erlendar
lántökur. Þrepum okkur
niður úr vaytafárinu.
Hestir lífeyrissjóðanna
munukaupafyrir55% íár
„Það er einkum tvennt sem er
merkilegt við þetta samkomulag
lífeyrissjóðanna við Húsnæðis-
stofnun,“ sagði Hrafn Magnús-
son, framkvæmdastjóri Sam-
bands almennra lífeyrissjóða við
Þjóðviljann í gær.
„í fyrsta lagi er þetta líklega
stærsti lánssamningurinn sem
gerður hefur verið á innlendum
markaði og gerir hann
stjórnvöldum kleyft að fjár-
magna nýju húsnæðislögin án
þess að taka lán á erlendum
markaði. Það er vissulega gleði-
legt að lífeyrissjóðirnir komi í veg
fyrir erlendar lántökur.
f öðru lagi þá hafa samningsað-
ilar komist að samkomulagi um
að reyna að þrepa sig niður úr því
vaxtafári sem hér hefur ríkt. Við
teljum mjög æskilegt að stefna að
þessari vaxtalækkun . Það er hag-
ur lífeyrissjóðanna að stöðugleiki
skapist í efnahagslífinu og að hér
þróist raunhæf vaxtapólitík.“
Þá taldi Hrafn mjög gleðilegt
fyrir lífeyrissjóðina að þeir fengu
á flot eldri skuldabréfakaup sjóð-
anna og að vextir á þeim lánum
hækkuðu í 4,2%.
Hrafn sagði að sjóðirnir hefðu
almennt brugðist mjög vel við og
að í ágúst hefðu skuldabréfakaup
þeirra af Húsnæðisstofnun verið
orðin meiri að raungildi en allt
árið í fyrra. Sagðist hann fastlega
búast við því að flestir sjóðanna
mundu kaupa fyrir 55% af ráð-
stöfunarfé sínu í ár. -Sáf
Fréttamenn Stöðvar 2 neituðu því ekki að spenna og eftirvænting lægi f loftinu f bækistöðvum þeirra. F.v. Ólafur E. Friðriksson, Unnur Steinsdóttir, Ómar
Valdimarsson og Hildur Hilmarsdóttir skrifta. Mynd: Sig.
I
Stöð 2
Vel í stakk búnir
Stöð 2 hefur útsendingar íkvöld. Forsvarsmenn íslensku sjónvarpsstöðvarinnarsegjast vel
undir útsendingar búnirþráttfyrir stuttanfyrirvara
Ikvöld klukkan 19.20 hefur nýja
sjónvarpsstöðin, Stöð 2, út-
scndingar sínar, en ákveðið var
að flýta fyrirhuguðum fyrsta degi
útsendingar vegna leiðtogafund-
arins.
„Merkilegt nokk, þá erum við
ótrúlega vel í stakk búnir til þess
að hefja útsendingar þrátt fyrir
stuttan undirbúningstíma“ sagði
Hans Kristján Árnason fjármála-
stjóri hjá íslenska sjónvarpsfé-
laginu um tæknilega aðstöðu
sjónvarpsstöðvarinnar til þess að
hefja útsendingar frá leiðtoga-
fundinum.
Hans Kristján sagði að útsend-
ingarnar um helgina myndu fyrst
og fremst hvfla á herðum Páls
Magnússonar fréttastjóra, en
fyrirhugað væri að byggja mikið
til á beinum útsendingum frá
bæði Keflavík og Reykjavík og
auk þess yrðu umræðuþættir í
sjónvarpssal.
Nú þegar hafa um 4 þúsund að-
ilar sótt um áskrift að sjónvarps-
stöðinni og pantanir á þeim tækj-
um sem gera fólki kleyft að fylgj-
ast með útsendingum stöðvarinn-
ar, svokölluðum afruglurum, eru
svipaðar að tölu. 1500 þeirra
verða tengdir um helgina.
Meðal efnis fyrsta útsendingar-
kvölds Stöðvar 2 er umræðuþátt-
ur undir stjórn Magnúsar
Magnússonar starfsmanns
bresku sjónvarpsstöðvarinnar
BBC, en þátttakendur í umræðu-
þættinum verða Ólafur Ragnar
Grímsson, Steingrímur Her-
mannsson og fréttamenn frá er-
lendum fjölmiðlum.
-K.ÓI.
Friðarbaráttan
Friðartónleikar í óperunni
JoanBaez, Bubbi, Megas og margirfleiriáfriðartónleikumá
laugardaginn. Baez verðurmeð tónleika á laugardagskvöldið. Kemur
til landsins snemma áföstudaginn
Vegagerð
Reykjanes-
braut lokið
„Framkvæmdunum var flýtt
um viku vegna leiðtogafundar-
ins“, sagði Jón Rögnvaldsson
yfirverkfræðingur hjá Vegagerð
ríkisins í samtali við blaðið í gær,
en þá var Reykj anesbraut frá Víf-
ilsstöðum að Mjódd í Breiðholti
formlega opnuð af samgöngu-
málaráðherra.
Að sögn Jóns er áætlað að
Reykjanesbraut taki við um 'A
hluta af umferðarþunganum á
milli Hafnarfjarðar og Reykja-
víkur en á milli þeirra fara nú um
25.000 bflar daglega. Það þýðir
að gert er ráð fyrir því að um
8.000 bflar fari þar um.
Bandaríska þjóðlagasöngkon-
an Joan Baez kemur til lands-
ins snemma á föstudagsmorgun-
inn og á laugardagskvöldið held-
ur hún tónlcika í íslensku óper-
unni. Á laugardaginn kl. 14 kem-
ur Baez líka fram á friðartónleik-
um ásamt Megasi, Bubba, Björk
og Sigtryggi Kuklurum, Berg-
þóru Arnadóttur og fleiri íslensk-
um listamönnum.
Upphaflega stóð til að Baez
kæmi fram á athöfn friðarhreyf-
inganna á Lækjartorgi annað
kvöld.en afþvíverður ekki. Hún
stendur stutt við hér á landi og er
áætlað að hún fari síðdegis á
sunnudaginn, um svipað leyti og
forsetinn og aðalritarinn.
Baez er þekkt víða um heim
fyrir baráttu sína fyrir friði í
heiminum og hefur hún starfað
með ýmsum friðarhreyfingum í
Bandaríkjunum. Tónleikarnir í
óperunni á laugardaginn verða
tileinkaðir baráttunni fyrir af-
vopnun og friði. Að þeim standa
ýmis samtök, þar á meðal
Samtök herstöðvaandstæðinga.
Eins og fyrr segir hefjast tónleik-
arnir á laugardaginn kl. 14 og
kostar aðgöngumiðinn 750 krón-
ur, en það skýrist nánar í dag
hverjir koma þar fram auk þeirra
sem hér hafa verið nefndir.
Sovétdagar
Áhrifin frá
Úzbekistan
í tengslum við Sovéska daga á
íslandi, sem félagið MÍR, Menn-
ingartengsl íslands og Ráðstjóm-
arríkjanna, stendur nú fyrir í ell-
efta sinn, flytur dr. rer. hort. Eln-
ar I. Siggeirsson fyrirlestur í húsi
félagsins að Vatnsstíg 10
fimmtudagskvöldið 9. okt. kl.
20.30. Nefnir hann erindið: „Vís-
indaleg og atvinnuleg áhrif, ætt-
uð frá Úzbekistan, á íslenskar
framfarir".
Aðgangur er ókeypis og öllum
heimill meðan húsrúm leyfir.
-gg
Flmmtudagur 9. október 1986 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 3