Þjóðviljinn - 17.10.1986, Síða 8

Þjóðviljinn - 17.10.1986, Síða 8
þÍ9 stelpa“ Og það gerðu þær svo sann- arlega, stelpurnar, í einhverri sögulegustu ræðukeppni frá landnámi íslands. Sú var hald- in á miðvikudagskvöldið var í Kvennaskólanum fyrir fuliu húsi áhorfenda. Leiddu þar saman hesta sína heimaliðið og lið Menntaskólans við Ham- rahlíð og voru bæði einvörð- ungu skipuð stúlkum. En það var fleira sögulegt við þessa keppni, en það að þetta er í fyrsta sinn sem lið einvörðungu skipuð stúlkum leiða saman hesta sína, heldur var hún og söguleg fyrir þær sakir að Menntaskólinn við Hamrahlíð þessi þjóðfrægi róttæklingaskóli og kempa í sjálfstæðisbaráttu seinni tíma, lagði til að íslenska lýðveldið hætti að vera lýðveldi og gerðist fimmtugastaogþriðja fylki Bandaríkja N-Ameríku. Auícin- heldur verður hennar lengi minnst fyrir að á henni fengust nemendur MH til þess í fyrsta sinn lengi, að syngja skólasöng sinn „Internationalinn“ undir styrkri stjórn Brynhildar Björns- dóttur ræðuskörungs með meiru. Guðlast? Það eitt kastaði skugga á þessa annars gleðilegu athöfn, að al- þjóðasöngur verkamanna skyldi sunginn með bandarísku duluna við hún, enda slíkt nálægt guð- lasti. En til mikils var að vinna... Hið fjórða er veldur því að keppni þessi verður lengi í minnum höfð var að margra vikna togstreitu milli MH og Kvennó lauk þetta kvöld við hát- íðlega giftingarathöfn, þar sem gefin voru saman í andlegt hjóna- band formaður þeirra í Kvennó, Ágústa Skúladóttir og forseti Hamrhlíðinga, Hrannar Bjöm Arnarsson af formanni Málfund- afélags Kvennaskólans, Hrafni Jökulssyni. Hið fimmta atriði er gerir keppnina minnistæðra, er svo auðvitað hetjuleg frammistaða kvenna þetta kvöld. Þær léku öll aðalhlutverk. Fundarstjórinn, tímaverðirnir, tveir þriggja dóm- ara og keppendurnir. Einkum verður frummælendanna lengi minnst, kannski ekki fyrir það hve góðar ræður þeirra voru, þó ágætar væru þær, heldur fyrir snarræði og hetjuskap. Ekki lítið á sig lagt Frummælandi MH, Anna Karlsdóttir, hafði verið slæm í hálsinum í nokkra daga og missti röddina þegar í upphafi. En ólíkt flestum öðrum gafst hún ekki upp heldur þraukaði og hlaut að launum óskipta aðdáun viðsta- ddra. Frummælandi kvennskæl- inga átti einnig við veikindi að stríða, var með háan hita, en það er ekki lítið á sig lagt fyrir máls- taðinn. Það leiða slys varð hinsvegar meðan á ræðu hennar stóð að tímavörður ruglaðist og gaf henni merki um að hún ætti hálfa mín- útu eftir, þegar hún átti eftir eina og hálfa. Af aðdáunarverðu snarræði stytti hún þá ræðuna um tæpa mínútu og það svo snyrti- lega að ekki einu sinni þjálfari hennar tók eftir að nokkuð van- taði. Síðan fylgdu ræðurnar hver af annarri, ágætar ræður flestar, en skorti stundum nokkuð á flutn- inginn og verður það ekki skrifað á aðra en þjálfarana og reynslu- leysi keppenda, en þetta var frumraun þeirra allra. Þær kvennaskólastúlkur veg- sömuðu mjög íslenska menningu og tungu. Lögðu á það áherslu að við værum aðeins einn hlekkur í kynslóðakeðjunni og skyldum ekki verða sá er brysti. Þær bentu á ofbeldið, fátæktina og hina óverjandi utanríkisstefnu Banda- ríkjanna, vopnakapphlaupið og sitthvað fleira. Atvinnuhórur Hamrhlíðingar svöruðu fyrir sig með að benda á fátæktina hér og það að við að gerast fylki í Bandaríkjunum féllu niður tollar á fisk og allur arðurinn af fisk- sölunni sem hingað til hefur verið haldið eftir í Bandaríkjunum kæmi heim. Hvað menningu ís- lands varðaði væri hún amerísk, t.d. væri ræðukeppnin að amerí- skri fyrirmynd. Stuðningsmaður kvennskæl- inga, Elísabet Rónaldsdóttir, ætl- aði engu að síður að lesa fyrir son sinn um Gunnar á Hlíðarenda og kærði sig ekkert um að fá barnan- auðgara og annan óþjóðalýð inní landið, þó við fengjum einhverja peninga. Þær kvennaskólastúlk- ur voru líka hræddar um a stó- riðja myndi tröllríða hér öllu og Kanarnir færu að seilast í fiski- miðin okkar. MH-ingar afturámóti töldu að þegar við þyrftum ekki lengur að greiða toll yrði allur fiskur auðvitað fullunninn hér og því myndi ekki gæta atvinnuleysis hér í kjölfar örtölvubyltingarinn- ar. Og Halldóra Jónsdóttir meðmælandi þeirra, hélt því líka fram að þegar þingmenn íslands kæmu á Bandaríkjaþing yrð af- vopnunarsinnar víst þar í meiri- hluta!? Ef það væri hórdómur að bjarga mannkyni frá allsherjart- ortímingu „þá kysi ég ekkert fremur en vera atvinnuhóra!" sagði Halldóra. Margt fleira var tínt til, t.d. hvar bandarískir karlmenn kærðu að pissa og við hvaða tæki- færi væri ætlast til þess að þeir pissuðu og margar skemmtilegar orðasennur spunnust vegna þess og ýmissra fleiri atriða. Semsé: gaman í Kvennó. ísland úr ánauð - lýðveldið burt Á ekkjunum sátu æstir stuðn- ingsmenn og æpru: ísland úr án- auð - lýðveldið burt, hlutabréfin heim og aldrei að víkja því þær vilja svíkja, og höfðu allir hina mestu skemmtun af. En í samfélagi okkar gengur svoleiðis auðvitað ekki. Ein- hverjir þurfa að vera ofaná, ein- hverjir undir. Einhverjir betri en þeir sem eru verri og við erum ekki fjarri því að það hefði mátt heyra saumnál detta þegar Hulda oddadómari gekk í salinn. Þrjár stúlkur komu sterklega til greina sem ræðumenn kvöldsins. Þær Brynhildur Björnsdóttir, stuðn- ingsmaður MH, Elísabet Rón- aldsdóttir, stuðningsmaður Kvennaskólans og Halldóra Jónsdóttir, meðmælandi MH. Og það var (löng þögn) Brynhildur Björnsdóttir! MH-ingar þutu uppúr sætum sínum, einn hopp- aði um allt á öðrum fæti með bandaríska fánann á stöng, „Brynhildur er bomba“ kvað við aftur og aftur. Ekki urðu fagnað- arlætin minni þegar tilkynnt var að MH hefði unnið, enda vel af sér vikið. Þrír af fjórum í liðinu nýnemar og keppnin frumraun þeirra allra. Lið Kvennaskólans má líka vel við una og nemendur hans vera stoltir af því. í fyrsta lagi fyrir þá sök að kunna að taka ósigri og þá ekki síður fyrir það að málfund- afélag Kvennaskólans er aðeins fjögurra vikna gamalt, átti afmæli á keppnisdaginn og að tapa ekki nema með sjötíuogsex stiga mun fyrir liði MH, liði sem þekkt er að því að vera eitt hið sterkasta í landinu, er afrek. Og ekki síðra afrek þegar til þess er tekið að þetta var einnig frumraun allra liðsmanna Kvennaskólans. Það verður gaman að sjá hvernig þær spjara sig gegn MR á fimmtudaginn, en gegn b-liði MR hyggjast þær senda b-lið sitt. í MR-liðinu verða þeir Hörður Þórhallsson, Auðunn Atlason og Jón Gunnar Jónsson en hvernig lið Kvennó verður er enn ekki ákveðið. Vinsældalistar Þjóðviljans Bylgjan Grammid Rás 2 1. ( 4) Rain or shine Five Star 1. Elvls Costello Blood and 2. ( 1) La isla bonita Madonna 2. Rem Lives reach pagaeant 3. (-) Moscow, Moscow Strax 3. Smlthereens Especially for you 4. ( 5) True blue Madonna 4. David Sylvian Gone to earth 5. ( 2) So macho Sinitta 5. PaulSlmon Graceland 6. (10) (1 just) died In your arms Cuttinq Crew 6. TheSmlths The Queen is dead 7. ( 3) Holiday rap MC Miker G&Deejay Swen 7. Bubbi Blús fyrir Rikka 8. ( 9) Easylady Spaqna 8. RobertFripp Live 9. ( 7) Stuck with you Huey Lewis and the News 9. Billy Bragg Talking with the tax-man about poetry 10. (26) Truecolors Cindy Lauper 10. Zodlac Mlnd warp High preast in love 1. (17) Moscow, Moscow Strax 2. ( 1) 1 just died in your arms Cutting Crew 3. ( 2) You can call me Al Paul Simon 4. ( 9) Trueblue Madonna 5. (10) Truecolors Cindy Lauper 6. ( 3) Ralnorshlne Five star 7. ( 4) Wild, wildlive Talking heads 8. (23) Im the army now Status Quo 9. (26) Tve been loosing you Atta 10. ( 6) So macho Sinitta 8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 17. október 1986

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.