Þjóðviljinn - 29.10.1986, Qupperneq 2
“SPURNINGIN™
Telur þú aö konur séu
samviskusamari en karl-
ar í umferðinni?
Hjördís Benjamínsdóttir, af-
greiðslustúlka:
Alveg hiklaust, og ég er ekki frá
því að þær séu samviskusamari
með alla hluti.
Inga Sigmundsdóttir, hús-
móðir:
Ég held það nú. Ég keyri að vísu
ekki sjálf, en ég held að konur
vandi sig meira við aksturinn.
Þórhildur Þorsteinsdóttir,
afgreiðslustúlka:
Já, þær eru varkárari í akstrinum
en karlarnir. Það er að vísu mis-
jafnt hvort ég treysti konum betur
undir stýri, en þær vanda sig að
minnsta kosti betur.
Gunnar Ingibergsson, garð-
yrkjumaður:
Ég er alveg harður á því. Konan
mín er alla vega mun samvisku-
samari en ég undir stýri.
Ingimundur Erlendsson,
tollvörður:
Nei, mín reynsla segir mér nú
annað. Það er mjög einstaklings-
bundið hvernig fólk hagar sér í
umferðinni og ég held það sé al-
veg af og frá að það fari eftir kynj-
um.
FRÉTHR
Fiskmarkaður
Gaflarar á fullri ferð
Stefnt áfiskmarkað við upphaf nœstuvertíðar. Mikill áhugi
á Faxaflóasvœðinu. Undirbúningsfundur í Hafnarfirði um nœstu helgi
Telja má fullvíst að fiskmark-
aður hefji starfsemi á Faxafló-
asvæðinu snemma á næsta ári og
líklega þegar við upphaf vertíðar.
Áhugi er hjá hafnaryfirvöldum í
Hafnarfirði, Miðneshreppi og
Reykjavík að koma upp fisk-
markaði og hjá Dalvíkingum
fyrir Eyjafjarðarsvæðið.
í gær voru opnuð tilboð í bygg-
íngu sérstaks húss undir tisk-
markað sem hafnarnefnd og
bæjaryfirvöld í Hafnarfirði
hyggjast reisa á næstu mánuðum.
Þá hefur Útvegsmannafélag
Hafnarfjarðar boðað til fundar á
laugardag með hagsmunaaðilum
sjávarútvegs í Hafnarfirði og
næsta nágrenni um rekstur fisk-
markaðar í bænum.
Hafnarstjórn Reykjavíkur hef-
ur boðið Bakkaskemmuna undir
fiskmarkað og verið er að vinna
að endurbótum á skemmunni.
Stjórnskipuð nefnd sem nýlega
skilaði áliti þar sem mælt var með
stofnun tilraunafiskmarkaðar á
Faxaflóasvæðinu hefur lýst vilja
sínum að standa fyrir stofnfundi
félags um slíkan markað hefur
enn ekki boðað til neins fundar
og því ljóst að Hafnfirðingar hafa
ákveðið að taka forystuna í þess-
um efnum.
Fiskmarkaðsmálin komu til
umræðu á Sjómannasambands-
þinginu um sl. helgi og var stjórn
sambandsins falið að fylgjast með
stofnun slíks markaðar og gæta
hagsmuna sjómanna við þróun
hans.
-Jg-
Nýja MjólkurstöAin við Bitruháls var formlega vígð um sl. helgi. Fyrsta starfsemin var flutt í húsið í byrjun ársins en
mjólkurvinnslan var komin þar í fullan gang um miðjan maí. Fyrsta skóflustungan að nýbyggingunni var tekin í mars 1982
og er heildarkostnaður við byggingu kominn upp í um 850 miljónir króna.
Ljósmyndari Þjóðviljans leit við í mjólkurstöðinni í gær og rakst þar m.a. á þessa hressu starfsmenn sem greinilega eru
ánægðir í nýja húsinu. Frá v. Dan Weiss, Gunnar Hilmarsson og Eðvald H. Árnason. Mynd Sig.
Verðhœkkanir
Klippingar
hækka
um 72%
Rakarastofur á höfuðborgar-
svæðinu hafa hækkað verð á
klippingu fyrir karlmenn að með-
altali um 72% síðan í janúar á
síðasta ári. Þetta kom fram í nýrri
verðkönnun Verðlagsstofnunar.
Til samanburðar má geta þess
að vísitölur kauptaxta og fram-
færslu hafa á sama tímabili hækk-
að um 43% og byggingarvísitala
um 49%. Það er því augljóst að
verðhækkanir á klippingu hafa
verið töluvert meiri en verðlags-
þróun í landinu gefur tilefni til.
Verðlagsstofnun kannaði verð
á 42 rakara- og hársnyrtistofum
og var minnst hækkun í prósent-
um 56% en mest 93%. í Ijós kom
að mikil verðdreifing er á
karlmannaklippingu. Hún kostar
á bilinu 400-600 krónur og er
munurinn því 50%.
-vd.
Langlínan
Beðið eftir nýju stöðvunum
Hœtt að kaupa efni ígömlu stöðvarnarþegar uppbygging stafrænu stöðvanna hófst.
Hjörleifur Guttormsson: „Vartforsvaranlegt“
Álagstruflanir á langlínusam-
bandinu - þegar menn þurfa að
reyna tímunum saman að ná
beinu sambandi gegnum sjálf-
virka kerfið - stafa ekki aðeins af
línuskorti, heldur einnig skorti á
tækjabúnaði. Þegar uppsetning
stafrænu stöðvanna hófst, var
nefnilega hætt að kaupa efni til
aukningar á gamla kerfinu!
Þessi mál komu til umræðu í
fyrirspurnartíma á alþingi í vik-
unni, þegar Hjörleifur Guttorms-
son spurði samgönguráðherra
hverjar helstu ástæður þessara
truflana væru. Matthías Bjarna-
son sagði helstu skýringuna vera
línuskort, en álagstoppar, t.d. á
kvöldin þegar í gildi er hálft gjald
og álag vegna sjónvarps og á-
kveðinna hljóðvarpsþátta hefðu
einnig mjög truflandi áhrif á
gamla símkerfið. Þá tæki oft
langan tíma að uppgötva og gera
við bilanir m.a. vegna skorts á
viðgerðarmönnum. Loks sagði
ráðherrann að þegar farið var að
kaupa stafrænar stöðvar sem eiga
að taka við, hefði verið hætt að
kaupa efni til aukningar á eldri
kerfum. Stafrænu stöðvarnar,
sem þola mun meira álag en
gamla kerfið og þurfa mun ódýr-
ari línubúnað, eru nú víða að taka
við. Þannig er stafrænt kerfi kom-
ið í Reykjavík og á Sauðárkróki,
verið er að setja upp stafræna
stöð á Húsavík og næstu verkefni
verða uppsetningar stafrænna
stöðva á Egilsstöðum og í Borg-
arnesi.
Hjörleifur Guttormsson taldi
vart forsvaranlegt að bíða eftir
stafrænu stöðvunum alls staðar til
þess að bæta úr ágöllum kerfisins
og spurði hvort ekki væri mögu-
legt að leysa þessi vandræði áður,
með því að lagfæra gamla kerfið
hjá þeim sem lengst eiga í land
með að fá úrlausn með nýrri
tækni. Hann sagði þessar truflan-
ir vegna álags bitna sérstaklega á
Framsóknarmennirnir á Vest-
urlandi eru hættir við prófkjörið
sem halda átti í lok nóvember.
Þegar framboðsfrestur rann út á
föstudagskvöld þá höfðu aðeins
tveir gefið kost á sér, Alexander
Stefánsson og Davíð Aðalsteins-
viðskiptavinum símans á lands-
byggðinni, sem þurfa meira á
langlínu að halda en fólk á
Rey kj avíkursvæðinu. Auðvitað
gilti það sama um Reykvíkinga
sem þyrftu að ná út á land, en það
væri ekki eins tilfinnanleet
vandamál. _ÁI
son sem nú sitja á þingi fyrir
Framsókn í kjördæminu.
Kjördæmisráðsfundur verður
haldinn á næstunni og á að á-
kveða þar hvernig valið verður á
Framsóknarlistann.
Vesturland
Ekkert prófkjör
>2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Mlðvikudagur 29. október 1986