Þjóðviljinn - 29.10.1986, Qupperneq 3
FRETTIR
Laugaskóli
Veríð að drepa skólann
Steinþór Þráinsson skólastjóri: Ekkert rekstarfé til. Hefsagt upp störfum
ímótmœlaskyni. Það á að drepa skólann eins og aðra héraðsskóla. Ósáttur við
menntamálaráðuneyti. Fjölmennurfundurfyrirhugaður vegna málsins
Ifyrsta lagi er ég að mótmæla því
að þessir háu herrar í Reykja-
vík ætlast til þess að ég reki þessa
stofnun án þess að hafa rekstrarfé
þetta árið, sagði Steinþór Þráins-
son skólastjóri Laugaskóla í sam-
tali við blaðið, þegar hann var
spurður að ástæðum fyrir upp-
sögn hans sem skólastjóri skólans
frá l.febrúar.
„Þegar ég tók við skólanum
1985 var hér feikileg skuld vegna
þess að forveri minn hafði farið
fulldjarflega í nauðsynlegar
framkvæmdir, sem engir pening-
ar voru til fyrir,“ sagði Steinþór.
„Menntamálaráðuneytið lofaði
að greiða skuldirnar með fé úr
Ármann Snævarr, Einar Laxness og Gunnar Sveinsson með nýjustu útgáfur í réttar- og alþingissögu islendinga. Mynd
Sögufélagið
Merkileg iimsýn
í landshagi
Sögufélagið hefurgefið útsíðasta bindi af hœstaréttardómum og nœstsíðasta bindi
Alþingisbóka. Ármann Snœvarr: Stór dagur íréttarsögu íslands
Þetta er stór dagur í réttarsögu
Islands, nú þegar svo til allir
æðri dómar á íslenskum dóms-
stigum hafa verið gefnir út, sagði
Ármann Snævarr, fyrrum forseti
Hæstaréttar þegar hann kynnti
útgáfu 11. og síðasta bindis
Landsyfirréttardóma árin 1802
til 1873 á vegum Sögufélagsins.
Sögufélagið hefur einnig gefið út
16. og næst síðasta bindi af AI-
þingisbókum íslands sem tekur
yfir tímabilið 1781 til 1790.
Gunnar Sveinsson hefur séð um
þá útgáfu.
í 11. bindi eru dómar Landsyf-
irréttar (sem var arftaki Alþingis
hins forna) fram til þess tíma að
farið var að gefa þá út árlega árið
1874.
Einar Laxness, formaður
Sögufélagsins, sagði við kynn-
ingu bókanna í gær að þessar
bækur væru mjög aðgengilegar
fyrir leikmenn, í þeim væri t.d.
mjög rækilegt efnisyfirlit. Ár-
mann Snævarr bætti því við að
þessar bækur, Alþingisbækur og
Landsyfirréttardómar, væru í
raun merkilegar heimildir um
sögu þjóðarinnar. „Þær gefa
skýra og forvitnilega innsýn í
landshagi og viðhorf á þessum
tímum“, sagði Ármann.
16. bindi Alþingisbóka ís-
lands, sem nær yfir tímabilið 1781
til 1790, er t.d. stórmerk frum-
heimild um sögu íslands.
Alþingisbækurnar eru gerðar-
bækur hins forna Alþingis frá því
á síðari hluta 16. aldar og þar til
það var lagt niður árið 1800.
Alþingisbækurnar segja sögu ís-
lands á niðurlægingartímabili
þjóðarinnar, tímabili Stóradóms,
einokunarverslunar og galdraofs-
ókna svo dæmi séu nefnd.
t Landsyfirréttardómum má
finna dóma í málum Nathans
Ketilssonar, um Sjöundármálin
og Kambsránið, svo dæmi séu
nefnd.
-IH
Húsnæðislögin
Byrjendur bíða lengur
Afgreiðsla nýrra lánsumsókna samkvœmtnýju lögunum dregst
jafnvel til áramóta. Þeirsem byggja ífyrsta sinn bíða
Peir sem sóttu um lán í fyrsta
sinn samkvæmt nýju húsnæð-
islögunum í byrjun september
mega eiga von á því að þurfa að
bíða eftir lánsloforði fram til ára-
móta og jafnvcl lengur. Sam-
kvæmt lögunum skal veita láns-
loforð innan 8 vikna frá því sótt er
um, en sökum þess að tölvuforrit
hafa ekki verið tilbúin fyrr en nú
nýlega, frestast afgreiðslan að
þessu sinni.
Sigurður E. Guðmundsson
framkvæmdastjóri Húsnæðis-
stofnunar sagði í samtali við
Þjóðviljann, að þetta ætti aðeins
við þá sem sóttu um í fyrsta sinn.
„Við ákváðum að láta þá ganga
varasjóði ráðuneytisins en það
var ekki staðið við það og í stað-
inn tóku þeir rekstrarfjárveitingu
þessa árs upp í hana.
í öðru lagi þá er ég orðinn mjög
þreyttur á að horfa upp á það að
þeir ætla sér að drepa niður þenn-
an skóla einsog aðra héraðsskóla,
og virðast halda að við séum að
kenna hér á einhverju skólastigi
sem sé ekki til. Það sem er enn
alvarlegra er að ég hef margsinnis
farið fram á að nefnd verði sett á
laggirnar til þess að ræða fram-
haldsskólamálin í sýslunni, en
aldrei fengið nein viðbrögð fyrr
en ég fékk staðfestan grun þess
efnis að verið sé að ræða fjöl-
brautaskóla við Húsvíkinga. Sé
Laugaskóli ekki inni í því dæmi er
hann dauður.
í þriðja lagi er ég að mótmæla
ýmsum ófagmannlegum og
óhreinum vinnubrögðum ráðu-
neytisins sem ég get ekki sætt mig
við og get nefnt mörg dæmi um,“
sagði Steinþór Þráinsson að síð-
ustu.
Skólanefnd Laugaskóla hefur
boðað fund vegna þessa máls
eftir viku og á hann eru boðaðir
meðal annarra þingmenn kjör-
dæmisins, sveitar- og bæjar-
stjórnarmenn og skólastjórar á
svæðinu.
íbúar í sýslunni, nemendur og
kennarar skólans hafa skorað á
Steinþór að draga uppsögnina til
baka og segjast nemendur ganga
út ef hann neyðist til að hætta.
-vd.
ABIReykjanesi
Beðið eftir
kjörnefnd
Á aðalfundi kjördæmisráðs Al-
þýðubandalagsins í Reykjaneskjör-
dæmi um sl. helgi var ekki tekin
endanleg afstaða til þess hvort for-
val verður viðhaft við uppröðun á
lista fyrir komandi þingkosningar.
Tillögum um forval og uppstill-
ingarnefnd sem lagðar voru fram á
fundinum var vísað til kjörnefndar.
Á hún að skila sínum tillögum
innan hálfs mánaðar en þá verður
kallaður saman nýr fundur. - Ig.
ABR/Forval
Askorendur
Ásmundar
Tilkynningu Ásmundar Stef-
ánssonar til kjörnefndar ABR um
þátttöku í forvali fylgdu undir-
skriftir 31 manns-
Undir rituðu: Magnús Stephensen,
Guðmundur Magnússon, Þorbjörn
Guðmundsson, Halldór Jónasson,
Arnór Pétursson, Guðmundur Þ.
Jónsson, Einar Gunnarsson, Jóhann-
es Gunnarsson, Sjöfn Ingólfsdóttir,
Pálmar Halldórsson, Böðvar Péturs-
son, Guðni Jónsson, Hallgrímur G.
Arngrímsson, Ásmundur Hilmars-
son, Grétar Þorsteinsson, Monika
Karlsdóttir, Haraldur Steinþórsson,
Ragna Ólafsdóttir, Hulda S. Ólafs-
dóttir, Esther Jónsdóttir, Gunnar
Gunnarsson, Bjarney Guðmunds-
dóttir, Tryggvi Emilsson, Snorri
Jónsson, Guðjón Jónsson, Helgi
Arnlaugsson, Svava Jakobsdóttir,
Ólöf Ríkarðsdóttir, Stella Stefáns-
dóttir, Sigurrós M. Sigurjónsdóttir og
Kristinn H. Einarsson. - m
Virðið tilmælin
Stjórn Alþýðubandalagsins í
Reykjavík samþykkti í gær ályktun
þar sem minnt er á nýgerða sam-
þykkt félagsfundar um að þátttak-
endur i forvali félagsins lýsi því ekki
yfir að þeir stefni að tilteknu sæti á
lista.
fyrir núna sem eru í miðjum klíð-
um,“ sagði Sigurður. Unnið var
að gerð tölvuforrits fyrir nýju
húsnæðislögin í allt sumar en það
var ekki tilbúið fyrr en fyrir 2-3
dögum, og því seinkar afgreiðslu
umsókna þeirra sem ekki hafa
sótt um lán áður.
-gg
í Tjamargötu 10 eni
27208 27291 24530
17117 1
UAPDHiDinTR
flAi ■ UlfnL111
DVAIARHEIMILIS ALDRAÐRA
SJÓMANNA
Geymið auglýsinguna.
Miðvikudagur 29. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 3