Þjóðviljinn - 29.10.1986, Qupperneq 8
MENNING
Byggingarlist
Hugleiðingar út
af Hallgrímskirkju
Það er freistandi að líta á alla
sköpunarviðleitni mannsins
sem - í hinu smáa sem hinu
stóra-sem tilraun hanstil
þess að skilgreina sjálfan sig
og stöðu sína í veröldinni. Að
maðurinn leitist við að móta
umhverfi sitt í sinni eigin
mynd. Að dagblaðið sem hér
er skrifað, fötin sem við klæð-
umst, híbýli okkarog húsgögn
endurspegli með nokkrum
hætti sjálf okkur og afstöðu
okkartil umhverfisinsekki
síður en vísindin, trúarbrögðin
og listirnar.
Þegar við vöknum á morgnana
lítum við í spegil, opnum dag-
blaðið, setjumst á stólinn okkar,
klæðumst og fáum okkur kaffi-
sopa osfrv. Á meðan spegillinn
sýnir okkur rétta mynd, dagblað-
'ið neldur sína hefðbundna formi,
stóllinn fellur að líkamanum og
kaffið rýkur úr bollanum finnum
við til öryggiskenndar. En ef svo
skyldi fara að við vöknuðum dag
nokkurn og litum í spegilinn og
sæjum þar mynd af ffl, ef dag-
blaðið væri skyndilega skrifað á
óskiljanlegu rúnaletri, stólsetan
orðin að naglabretti, kaffibollinn
loðinn að innan og tómt hænsna-
garg heyrðist í morgunútvarpinu,
þá segðum við sem svo: þessi
heimur er ekki skapaður fyrir
mig. Hann tilheyrir annarri dýr-
ategund.
Spegill
umhverfisins
Þessar vangaveltur komu mér í
hug þegar ég vaknaði við það
einn daginn að nú ætti að vígja
Hallgrímskirkju. Ekki endilega
vegna þess að mér þætti hún vera
eins og loðinn kaffibolli, heldur
öllu fremur vegna þess að hún
vakti með mér þá spurningu hvað
kirkjan segði mér um sjálfan mig
og samfélagið í kringum mig. Ég
er af þeirri kynslóð sem alin er
upp með þessari kirkjubyggingu
nánast frá fæðingu, og hef búið í
næsta nágrenni hennar aila mína
tíð. Ég var tveggja ára þegar
fyrsta skóflustungan var tekin og
mínar fyrstu bemskuminningar
eru af þeim dýrlega leikvelli sem
Skólavörðuholtið gat verið með
hermannabragga sína og þennan
undarlega helgidóm, sem kjallari
kórsins var, en þar leiddi séra
Jakob mig í allan skilning um hin
kristnu fræði á fermingarárinu.
Þessi kirkja var mér frá upphafi
eins og óræður hluti af lands-
laginu, húsgagn á þessu heimili
sem borgin okkar hafði búið mér.
Það var þó ekki fyrr en ég hafði
lokið menntaskólanámi sem
turninn tók að vaxa að ráði, en
skyndilega vaknar maður upp við
það að Skólavörðuholtið, þessi
miðstöð bernskuleikja minna er
jafnframt orðinn miðpunktur og
viðmiðun allra hluta hér í borg-
inni fyrir tilverknað þessa mikla
mannvirkis. Turninn fékk okkur
til að horfa til himins. Að vísu
ekki beint, heldur var eins og sum
sjónarhorn drægju í efa stefnulín-
ur turnsins og reyndu að beina
honum í aðra átt, þannig að í raun
bar tuminn í sjálfum sér spurn-
inguna um það hvert hann
stefndi. Vængirnir undirstrikuðu
hins vegar að hér skyldi stefnt til
himins. Smám saman fékk
kirkjuskipið á sig _ hefðbund-
ið form, en þegar kúpullinn kom
ofan á kórkjallarann vöknuðu
margar spurningar. Hann líktist
meira íbjúgu konubrjósti en
hvolfþaki og er mér enn ráðgáta.
Ruglað í stíl
Ýmsir hafa orðið til þess að
benda á stílfræðilegan rugling
sem birtist í formum þessa húss.
Þarna má s'já eftirlíkingu á form-
um gotneskra kirkjubygginga í
Evrópu, án þess þó að stfllinn sé
útfærður til fulls með þeim burð-
arþolslögmálum sem hann byggir
á. Þarna má sjá þjóðlegar álfa-
borgir úr stuðlabergi sem minna
okkur á íslenska jörð. En saga
byggingarlistar í heiminum á fjöl-
mörg dæmi bygginga þar sem
stfltegundum hefur verið ruglað
saman með góðum árangri. Hér
hlýtur samsvörun í formi og inni-
haldi að skera úr um hvernig til
hefur tekist.
Hvert er þá innihald þessa
verks?
Annars staðar hér í blaðinu
bendir Geirharður Þorsteinsson
arkitekt á að í turninum, sem er
meginhluti kirkjunnar, megi sjá
merki þeirrar þjóðernisstefnu
sem einkenndi íslensku aldamót-
akynslóðina og heimtaði íslend-
ingum sjálfsforræði. Turnin sem
tákn valds og myndugleika. En
hann bætir því við að þýðing
hússins eigi ekki síður eftir að
ráðast af þeirri starfsemi sem þar
eigi eftir að fara fram.
Trúarlegt tákn
Aðrir kynnu að sjá í formi
hennar trúarlega merkingu eins
og bent er á annars staðar hér á
síðunni. Gömul hefð er fyrir því
að turn hafi táknræna merkingu
sem einskonar brúarsmíð á milli
himins og jarðar. í honum felist
sú viðleitni mannsins og trúarinn-
ar að binda þau bönd á milli him-
ins og jarðar sem rofin voru með
erfðasyndinni. Þessi trúarlega
táknfræði um lóðrétta brúarsmíð
varð til löngu fyrir byltingu þeirra
Kóperníkusar og Galilei. Við
getum hins vegar átt erfitt með að
hugsa okkur heiminn í lóðréttu
formi á meðan gervihnettir
sveima um himinhvolfið um-
hverfis jörðina og eldflaugarnar
og geimskipin stefna út í ómæl-
isvíddir geimsins og birtaokkur
myndir reikistjarnanna á sjón-
varpsskerminum. Sú trúaríega
táknfræði miðaldanna sem birtist
í turnforminu er líklega tíma-
skekkja í dag.
Þjóðernis-
rómantík
Það má einnig segja um þá
þjóðernisrómantík sem blómstr-
aði í ungmennfélögum alda-
mótakynslóðarinnar. Hún hefur
ekki lengur hljómgrunn nema
meðal fárra íslendinga. Ekki
frekar en sú rómantík sem sjá
mátti í tumbyggingum Stalíns í
Moskvu eftirstríðsáranna og í
mónúmentalbyggingum þeim
sem Mussolíní lét reisa á Ítalíu á
millistríðsárunum. En á sama
hátt og turnbyggingar Stalíns og
mónúmentalbyggingar Mussolíní
em merk heimild um ráðvillta
þjóð á umbrotatímum, þá getum
við sagt slíkt hið sama um Hall-
grímskirkju. Hún er ekki bara
minnisvarði um sálmaskáldið
Hallgrím. Hún er líka minnis-
varði heillar kynslóðar um sjálfa
sig. Hún segir okkur sögu ráð-
villtrar þjóðar á tímum stríðs-i
gróða og þjóðernishyggju, þjóðar
sem ekki hefur enn fundið sjálfa
sig og sögu sína. Hallgrímskirkja
er framandlegt húsgagn á borgar-
heimilinu, en það er undir heimil-
isfólkinu komið, hvort takast
megi að gæða það lífi og gera það
allra eign.
ólg.
Spurt um Hallgrímskirkju
í tilefni þess að Hallgrímskirkja var vígð um síðustu helgi
leituðum við til nokkurra valinkunnra manna og spurðum
þá álits á menningarsögulegu gildi þessa atburðar. Jafn-
framt spurðum við hvort menn hefðu séð einhverja
táknræna merkingu í formum hennar. Svo virðist sem
Einar Þorsteinn,
hönnuður:
mörgum Sé það feimnismál að segja álit sitt á þessu
mannvirki, sem engu að síður setur svo mikinn svip á
borgina. Ýmsir báru við önnum, aðrir heyktust á svarinu,
en engu að síður fengum við þessi ágætu svör:
Hingað til lands kom víðsýnn er-
lendur arkitekt fyrir nokkrum
árum. Hann lét í Ijós þá skoðun
sína við undirritaðan, að stór-
kostlega hefði tekist til með form-
ið á Hallgrímskirkjuturni, eða öllu
heldurtoppnumáhonum. Hér
væri greinilega á ferðinni sá sæ-
farahjálmur, sem ertil í menningu
allrasiglingaþjóðajarðarinnar.
Er undirritaður efaðist um þetta,
var hann snarlega dreginn inn (
bókaverslun og honum fengin
þar í hendur bók um norræna vík-
inga á enskri tungu. Og sjá, á
forsíðunni var nákvæmlega
sama formið á höfði sæfarenda,
fornminjum frá umræddum tíma.
Enginn vafi er á að hér eru bein
tengsl á milli, ef ekki meðvitað þá
úrundirmeðvitund Guðjóns,
húsameistara, sem afkomanda
siglingaþjóðar að fornu og nýju.
Óneitanlega lítur undirritaður
bygginguna öðrum augum frá því
erþetta barvið.
Nokkuð ber á því að umræðu-
arfur módernistanna tengist enn
byggingunni. Gagnrýni þeirra á
henni átti áreiðanlega rétt á sér á
þeim tíma, en nú eru viðhorfin
önnur: Miðað við isma kemur
Guðjón húsameistari í dag út sem
framúrstefnumaður og „post mo-
dernisti“. Gott hjá honum. -
Vonandi blanda menn formum
enn um hríð sem mest saman og
leyfi sér þannig frelsi andans.
En aðalatriðið í sambandi við
bygginguna eru áreiðanlega ekki
hin ytri form hennar eingöngu
heldur huglæg áhrif hennar, þeg-
ar maður gengur inní hana
fullgerða. Hér skarar Hallgríms-
kirkja svo sannarlega fram úr
öllum öðrum íslenskum kirkju-
byggingum. Meistarar gotneska
tímabilsins vissu hvað þeir sungu:
Og því skyldum við ekki Iíka fá að
njóta þeirra, þótt seint sé, rétt
eins og við fáum að njóta tónlist-
ar Bach, Mozart og þeirra eldri
tónlistarsnillinga?
Geirharður
Þorsteinsson
arkitekt:
Bygging Hallgrímskirkju kann að
hafa trúarsögulega þýðingu, sem
ég hef ekki aðstöðu til að meta.
Byggingarsögulega, hygg ég að
sé þegar búið að skilgreina henn-
ar sess. Nú þegar menn fagna
unnu afreki sé óg ekki ástæðu til
aðtíundaþað nánar.
Þann tíma, sem Hallgríms-
kirkja hefur verið í byggingu,
hefur umræðan nærri eingöngu
snúist um stærð hennar og útlit.
Nú þegar þetta hús hefur verið
vígt og afhent til afnota og um-
önnunar presta og safnaðar, opn-
ast mönnum ný hlið þess, innri
gerðin þ.e. það rými sem mótað
hefur verið með byggingunni.
Þýðing þessa húss, mun vænt-
anlega tengjast þeirri starfsemi
sem þróast í því. Verður Hall-
grímskirkja í framtíðinni heilagt
hús, minnisvarði, með takmark-
aðri skírskotun til daglegs lífs í
sókninni eða verður hún opið hús
fyrir nýbreytni í messugjörð og
framsækið trúarlíf?
Ég hygg að þýðing Hallgríms-
kirkju geti orðið umtalsverð fyrir
tónlistarmenningu í þessu landi,
ef stjórnendur bera gæfu til að
laða til sín vaxtabroddinn á þeim
sviðum, sem njóta sín í kirkjunni.
Form Hallgrímskirkju er að
sjálfsögðu táknrænt, kirkjan er
skilgetið afkvæmi síns tíma á ís-
landi. Hún er hönnuð undir
stjörnu þjóðernisvakningar í
byrjun aldarinnar. Uppistaða
formsins er turninn, skipið og
vængirnir eru til stuðnings. Turn
er tákn veldis, þess að mega sín
einhvers.
Því hallast ég að því að sterkur
en e.t.v. dulinn hvati að baki
smíði Hallgrímskirkju hafi verið
undirstrikun þess að hluti af for-
ræði þjóðarinnar hafði verið
tekið í eigin hendur.
Guðrún
Helgadóttir
alþingismaður:
Hvaða afstöðu sem menn kunna
að hafa til kristinnar trúar, verður
því ekki mótmælt að kristin
menning hefur haft mikilsverð
áhrif á íslenska menningu og list-
sköpun. Miðaldabókmenntir ís-
lendinga munu lenguren nokkuð
annað halda nafni þjóðar okkar á
lofti.og þærurðu tilfyrir
sköpunarmátt sem leystist úr
læðingi þegar heiðin norræn
menning og kristin Evrópumenn-
ing mættust hér á hjara veraldar.
Erlendir menn reistu glæsileg
hús guði sínum til dýrðar og fræg-
ustu snillingar voru fengnir til að
gera þau að listaverkum sem veitt
hafa gleði og fegurð um aldir. fs-
lendingar áttu ekki fé til slíks, en
þeir áttu það efni, sem ekkert fær
grandað, hugsun og orð, og úr því
unnu þeir list sem varðveitt verð-
ur meðan einhver kann íslensku.
Einn þeirra var Hallgrímur Pét-
ursson og er erfitt að hugsa sér
íslenskan veruleika án verka
hans, sem nú hafa varpað birtu í
hugi manna í þrjár aldir í gleði og
sorg.
Kirkja séra Hallgríms er nú ris-
in fyrir þrotlausa elju safnaðar-
ins, verðugur minnisvarði hins
mikla skálds. Hún er líka minnis-
merki hins mikla húsameistara,
Guðjóns Samúelssonar, vitni um
djarfa hugsun og mikið verksvit.
Eftir er aðeins að prýða hana
verkum íslenskra listamanna sem
er mikið verk og vandasamt, en
heillandi verkefni fyrir listamenn
hinna ýmsu listgreina. Þar verða
allir að taka höndum saman, ai-
menningur og ríkisvald, og koma
söfnuðinum til aðstoðar við það
átak.
Alþingi hefur samþykkt að
veita því verki fulltingi og er það
vel. Kirkjumálaráðherra mun
innan tíðar skipa nefnd til að
leggja grunn að því. Lánist það
vel mun Hallgrímskirkja verða
musteri listar og fegurðar í hjarta
höfuðborgarinnar, þar sem menn
mega um aldir eiga griðastað til
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN