Þjóðviljinn - 29.10.1986, Blaðsíða 13
HEIMURINN
Júgóslavi
nokkur, Iskender Ahmet, var á
mánudaginn dæmdur í sjö ára
fangelsi á Ítalíu fyrir barnaþrælk-
un. Hann er einn 80 manna sem
rændu tatarabörnum og þjálfuðu
þau til vasaþjófnaða og innbrota.
Hópurinn var með bækistöðvar
rétt utan við Mílano. Hinir 79
mennirnir, karlar og konur, mest
Júgóslavar, verða dæmdir á
næstu mánuðum fyrir meinta
þátttöku í barnaþrælkuninni.
Rannsóknarmenn í þessu máli
segja að hópurinn hafi haft á sín-
um snærum mörg hundruð börn
og staðið í þessari starfsemi í ein
15 ár. Málið hefur vakið geysi-
lega athygli á Ítalíu og á megin-
landi Evrópu. Eitt vitnanna í
þessu máli, tólf ára gamall júg-
óslavneskur drengur sem lenti í
klóm hópsins, Osman Solimano-
vic, bar vitni í síðustu viku varð-
andi barnaþrælkunina. Hann
sagði að sér hefði verið rænt úr
heimabæ sínum í Júgóslavíu.
Hann sagði frá því að sér hefði
verið hótað barsmíðum ef hann
kæmi tómhentur úr ránsferðum
sínum. Einnig sagði hann að Ah-
met hefði hvað eftir annað barið
sig með hnefum og barefli.
Hauskúpa
sem fannst í rústum borgarinnar
Esen í írak, sýnir að 2000 árum
fyrir Krists burð framkvæmdu
Mesópótamíumenn heila-
skurðaðgerðir á sjúklingum. Svo
segir að minnsta kosti v-þýski
vísindamaðurinn Bertel Roda en
hann fer fyrir leiðangri fornleifa-
fræðinga og annarra vísinda-
manna sem verið hafa við upp-
gröft og rannsóknir í Esen. Rústir
Esen borgar eru 160 km. suður af
Bagdað, höfuðborg írak. Fyrir
tæpum 4000 árum var þetta höf-
uðborg mikils veldis sem ríkti í
Mesópótamíu, mörgum öldum
áður en Babýlon varð til sem
„stórborg", segir Roda.
Fahd
konungur yfir Saudi Arabíu hefur
breytt opinberum konungstitli
sínum. Nú kallast hann ekki
„Hans hátign", heldur „Þjónn
hinna tveggja helgistaða". Helgu
staðirnir tveir eru Mekka og Me-
dína, helgustu staðirnir í ísl-
amskri trú. Uppruni Múhameðs-
trúar er rakinn til Medínu, fyrir 14
öldum og Múslimar líta á Fahd
konung, nú þjón hinna tveggja
helgistaða, sem verndara þess-
ara heilögu borga.
Stóra
sprengjan svonefnda á verðbréf-
amarkaði Lundúnaborgar hefur
sprungið með all einkennilegum
hætti nú í byrjun vikunnar. Mark-
aðurinn hefurveriðtæknivæddur
með miklum látum, tölvur og nýj-
asta nýtt, til að verða ekki á eftir
öðrum stærstu verðbréfamörk-
uðum heims, í New York og
Tokyo. Tölvurnar hafa hins vegar
klikkað. Nú síðast í gær hvarf allt
af tölvuskermum, ástæðan mun
hafa verið sú að tölvan annaði
ekki fyrirspurnum um verð
hlutabréfa. Sölumenn eiga að
setja allar upplýsingar um verð-
bréf inn á tölvukerfið þannig að
allir geti fylgst með. Sú saga
gengur nú hins vegar að sumir
sölumenn séu að nota gömlu að-
ferðina, í gegnum síma, til að ná
hagstæðari sölu. Tölvan sér hins
vegar ekki við mannlegu eðli.
Nýjustu
fréttir af valdatafli Enriles varn-
amálaráðherra Filippseyja og
Aquino forseta, eru á þá leið að
Enrile segist í gagnrýni sinni á
Aquino tala fyrir hönd nokkurra
herforingja í Filippseyjaher sem
ekki vilji tala opinberlega en séu
hins vegar óánægðir með ríkis-
stjórnina. Aquino hefur hins veg-
ar lýst því yfir að hún hafi stuðn-
ing Bandaríkjastjórnar og þar
með stuðning Filippseyjahers.
Evrópubandalagið/Sýrland
Mikil ólga í Bretlandi
Afstaða Evrópubandalagsins til óska Breta um
sameinaðar refsiaðgerðir hefur valdið mikilli reiði í
Bretlandi, hjáfjölmiðlum jafnt sem stjórnvöldum
Lundúnum - Yfirvöld í Bret-
landi eru nú reið yfir framvindu
mála hjá Evrópubandalaginu
þar sem aðildarþjóðir neituðu
að grípa til harðra aðgerða
gegn Sýrlandi. Sýrlensk
stjórnvöld lýstu því yfir í gær
að úrslit mála á þingi Evrópu-
V-Berlín - Háttsettur opinber
starfsmaður sem hefur um-
sjón með innflytjendamálum í
V-Berlín, var skotinn í báða
fætur í gær, fulltrúi iögregl-
unnar sagði í gær að hann teldi
þetta vera „pólitíska árás“.
Árásin varð aðeins nokkrum
bandalagsins væri mikill
ósigur fyrir Bretland.
Bretar hvöttu í fyrradag mjög
til refsiaðgerða gegn Sýrlandi þar
sem þarlend yfirvöld hefðu gerst
meðsek í tilraun til að sprengja
farþegaflugvél í loft upp með 375
farþega á leið frá Lundúnum til
klukkustundum eftir að sprengja
sprakk í höfuðstöðvum v-þýska
flugfélagsins Lufthansa, „Bylt-
ingarhópurinn“ svonefndi lýsti
sig ábyrgan á þeirri aðgerð. Full-
trúi lögreglunnar taldi ekki ólík-
legt að þessi tvö hryðjuverk væru
tengd. Hinn háttsettur embættis-
Tel Aviv. Frakkar og ítalir for-
dæmdu hryðjuverk en tilkynntu
að málið gegn Sýrlandi yrði að
athuga nánar á öðrum utanríkis-
ráðherrafundi Evrópubandalags-
ins þann 10. nóvember
næstkomandi. Grikkland vildi
ekki taka undir yfirlýsingu
maður sem varð fyrir skotárás-
inni í gær vinnur á deild sem hefur
verið gagnrýnd nokkuð að und-
anförnu fyrir harðlínustefnu
gagnvart innflytjendum sem
koma til V-Berlínar frá Mið-
Austurlöndum.
bandalagsins sem fordæmdi þát-
töku ónefndrar ríkisstofnunar í
sprengjutilræðinu en nefndi ekki
Sýrland í yfirlýsingu sinni.
Bresk dagblöð voru einróma í
gagnrýni sinni á afgreiðslu
bandalagsins á Sýrlandsmálinu
og breskar öryggissveitir fram-
kvæmdu í gær æfingu á Heat-
hrowflugvelli gegn hryðjuverk-
um. Þar hefur öryggi nú mjög
verið hert eftir dóminn gegn Jór-
danímanninum Hindawi sem
viðurkenndi tilraun til spreng-
ingar E1 A1 vélarinnar í aprfl.
„Evrópubandalagið snýr sér
undan hryðjuverkum Sýrlend-
inga,“ sagði í einu bresku dag-
blaðanna í gær.
Bandarísk og ísraelsk
stjórnvöld voru þeir einu sem
lýstu yfir beinum stuðningi við
Breta í þessu máli.
V-Berlín
Skotið á háttsettan embættismann
Mozambique
Machel borinn til grafar
Samora Machel, forseti Mozambique sem lést íflugslysifyrir 10 dögum síðan, var jarðsettur í
gœr. Winnie Mandelafékk ekki leyfi s-afrískra yfirvalda til að vera viðstödd jarðarförina
Maputo - Fyrsti forseti Moz-
ambique Samora Machel var
borinn til grafar í gær. Hann
hafði þá legið á viðhafnar-
börum i ráðhúsi Maputo frá því
á föstudaginn. Þúsundir
manna voru á þeim götum
borgarinnar þar sem Machel
var borinn til grafar.
Eftir athöfn í ráðhúsinu sem
var laus við trúarlega siði, voru
sírenur um allt landið settar í
gang í eina mínútu, til heiðurs
forsetanum sem lést í flugslysi
fyrir tíu dögum á landamærum S-
Áfríku og Mozambique. 15 þjóð-
arleiðtogar og fulltrúar 80 þjóða
voru viðstaddir athöfnina í ráð-
húsinu.
Marcelino Santos, félagi í
stjórnmálaráðinu, æðstu valda-
Samora Machel. Fékk útför þjóðar-
hetju í gær.
stofnun landsins og einn þeirra
sem einna líklegastur þykir sem
næsti forseti landsins, hélt ræð-
una í ráðhúsinu og gekk við hlið
kistunnar þegar henni var ekið á
herbfl til gafhýsis.
Winnie Mandela hafði ætlað
sér að vera viðstödd jarðarför
Machels, henni var hins vegar
neitað um vegabréfsáritun til
Mozambique. Mandela hefur
undanfarin 24 ár verið í ferða-
banni innanlands sem utan en
fyrir stuttu var öllum slíkum
hömlum aflétt gagnvart henni.
Innanríkisráðherra S-Afríku
sagði hins vegar í gær að það væri
„ekki í þágu hagsmuna S-Afríku“
að hleypa Mandela úr landi nú.
Einn þeirra sem komst af úr
flugslysinu fyrir 10 dögum síðan
sagði í fyrrakvöld að lögreglu-
menn frá S-Afríku sem komu
fyrstir á slysstað, hefðu látið hina
eftirlifandi eiga sig í fyrstu en ein-
beitt sér að því að finna skjöl og
pappíra í flugvélarflakinu. Það
var síðan ekki fyrr en níu klukk-
ustundum eftir slysið að björgun-
arþyrla kom á slysstaðinn og hinir
særðu fengu aðhlynningu.
ERLENDAR
FRÉTTIR
hjörleifsson/R ELIIER
Bandaríkin
Átak gegn
komfjalli
Washington - Bandarísk
stjórnvöld hvetja nú banda-
ríska bændur til að minnka á
næsta ári það land sem þeir
hafa lagt undir kornrækt svo
takast megi að draga úr of-
framleiðslu korns.
Áætlun Bandaríkjastjórnar
sem tilkynnt var í síðustu viku,
felur í sér að kornræktarland í
Bandaríkjunum minnkar um
tæpar 9 milljónir hektara og rúm-
ar þrjár milljónir hektara hvað
varðar hafra, bygg og dúrru.
Ef ekkert verður að gert verða
óseldar kornbirgðir { Bandaríkj-
unum orðnar rúmlega fimm
milljónir skeppur (1 skeppa 35,24
lítrar) eftir eitt ár. Það er meira
en helmingur allrar kornfram-
leiðslu þessa árs.
Mitterrand - Kohl
Vilja styrkja tungumálin
Francois Mitterrand, Frakklandsforseti og Helmut Kohl,
kanslari V-Pýskalands, hafa orðið sammála um að auka beri
veg og virðingufrönsku ogþýsku í löndunum til mótvægis við
síaukin enskuáhrif
Frankfurt - Eitt atriðið í því
samkomulagi sem leiðtogar
Frakklands og V-Þýskalands
hafa samþykkt er áætlun um
að auka áhuga almennings á
tungumálum þjóðanna í Ijósi
síaukinna áhrifa enskrar
tungu.
Þessi „tungumálaáætlun" er
hluti af auknum tengslum þjóð-
anna á sviði menningar- og
menntamála. Francois Mitter-
rand og Helmut Kohl hafa setið á
leiðtogafundi undanfarna tvo
daga í Frankfurt í V-Þýskalandi.
Talsmaður v-þýsku ríkisstjórnar-
innar sagði í gær að báðir leiðtog-
arnir hefðu heitið að tryggja það
að kennsla í þýsku og frönsku
verði aukin á öllum stigum
menntakerfis landanna.
V-Þýskaland og Frakkland
hafa með sér einna sterkust
tengsl af þjóðum V-Evrópu og
tungumálið og menning verða að
breiðast um allt þjóðfélagið ef
þessi tengsl eiga að endast segir í
tilkynningu leiðtoganna.
Opinberar tölur gefa hins veg-
ar til kynna að skólanemendur
kjósi nú helst ensku sem erlent
tungumál.
Kohl og Mitterrand ræddu
einnig leiðtogafund Reagans og
Gorbatsjofs í Reykjavík og kom-
ust að þeirri sameiginlegu niður-
stöðu að dyrnar væru enn opnar
til frekari viðræðna um afvopn-
unarmál. Þeir samþykktu einnig
að samhæfa afstöðu sfna til af-
vopnunarmála og að mikilli
fækkun í kjarnorkuvopnabúrum
Evrópu megi ekki haga þannig að
Sovétríkin nái yfirburðastöðu
hvað varðar hefðbundin vopn.
Miðvikudagur 29. október 1986 ÞJÓÐVILJINN - SÍÐA 13