Þjóðviljinn - 29.10.1986, Side 14
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ
Alþýðubandalagið Kópavogi
Kjördæmisfulltrúar
Aðal- og varafulltrúar félagsins í kjördæmisráði eru boðaðir á fund á
skrifstofu félagsins í Þinghóli á miðvikudaginn kl. 20 30
Fundarefni: Forval - ekki forval?
Aðrir félagsmenn einnig velkomnir.
Stjórnin.
Vestfirðir
Forval 2. nóvember
Fyrri umferð forvals AB á Vestfjörðum vegna alþingiskosninganna, fer fram sunnu-
daginn 2. nóvember n.k. Kosið verður hjá eftirtöldum trúnaðarmönnum:
Anna B. Valgeirsdóttlr Hjallastræti 39, Bolungarvík. Tryggvi Guðmundsson, AB-
húsinu Isafirði. Snorri Sturluson Hjallavegi 29, Suðureyri. Jón Guðjónsson Brim-
nesvegi 8, Flateyri. Davíð H. Kristjánsson, Aðalstræti 39, Þingeyri. Halldór Jóns-
son, Lönguhlíð 22, Bíldudal. Birna Benediktsdóttlr, Móatúni 3, Tálknafirði. Helgl
Haraldsson, Urðargötu 2 , Patreksfirði. Torfi Steinsson, Birkimel, Barðaströnd.
Jón Snæbjörnsson, Mýrartungu, Reykhólasveit. Heiðar Skúlason, Ljótunnarstöð-
um, Hrútafirði. Jón Ólafsson, Brunnagötu 7, Hólmavík. Jóhanna Thorarensen,
Gjögri. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla stendur frá 26. október hjá trúnaðarmönnum
og auk þess hjá flokksskrifstofu AB að Hverfisgötu 105 í Reykjavík. Þar eru trúnaðar-
menn Óttar Proppé, Margrét Tómasdóttir og Kristján Valdimarsson.
Flokksmönnum er bent á að kynna sér forvalsreglur hjá stjórn og trúnaðarmönnum á
sínu svæði, og láta það berast að nú er stuðningsmönnum AB á Vestfjörðum gefinn
kostur á þátttöku undirriti þeir stuðningsyfirlýsingu.
Fyrir hönd uppstillingarnefndar
Tryggvi Guðmundsson Isafirði sími heima 3702 og vinnusími 3940
Alþýðubandalagið í Kjósasýslu
Aðalfundur
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn 6. nóvember kl. 20 30 í
kaffisal Hlégarðs. Fundarstjóri Jón Gunnar Ottósson.
Dagskrá: 1) Venjulegaðalfundarstörf2) Kosning starfsnefndar 3) Kosning
ritnefndar Sveitunga ásamt útgáfustjórn 4) Kosning 8 fulltrúa félagsins í
kjördæmisráö 5) Ávarp Geirs Gunnarssonar alþingismanns 6) Önnur mál.
Mætum öll vel og stundvíslega, takið þátt í opinskárri umræðu um
stjórnmálin og framboðsmálin. Nýir félagar eru sérstaklega boðnir vel-
komnir.
Stjórnin
AB Borgarnesi og nærsveitum
Félagsfundur
Félagsfundur verður haldinn í Röðli n.k. fimmtudag 30. okt kl. 20.30.
Fundarefni
1) Tilnefning fulltrúa í forval vegna komandi kosninga.
2) Félagsstarf á komandi vetri.
3) Önnur mál.
Félagar eru hvattir til að mæta vel og stundvíslega.
Stjórnln
AB Reykjavík
Viðtalstími borgarfulltrúa
Sigurjón Pétursson borgarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins verður til viðtals á Hverfisgötu 105, laugar-
daginn I. nóvember frá kl. 13.00 - 14.00.
Borgarmálaráð ABR Sigurjón.
Alþýðubandalagsfélag Selfoss og nágrennis
Almennur félagsfundur
ATH:! Breyttur fundartími.
Almennur félagsfundur verður haldinn miðvikudaginn 5. nóvember kL
20 oo að Kirkjuvegi 7. Fluttar verða fréttir af aðalfundi kjordæmisráðs og
Svavar Gestsson formaður AB kemur og ræðir um helstu áherslur i kosn-
ingastarfinu framundan. .......
Nýir félgar sérstaklega boðnir velkommr. Fjolmennið.
Stjórnln.
Alþýðubandalagið Akranesi
Aðalfundur
Aðalfundinum sem var frestað þann 12. sl. verður haldinn laugardaginn 1.
nóvember n.k. í Rein kl. I4.00. „ Annnr
Dagskrá. 1) Venjuleg aðalfundarstörf. 2) Tilnefnmgar i forval. 3) Onnur
mál.
Kaffi og kökur. Félagar fjölmenmð.
SVÆÐAMEÐFERÐ
Þjáist þú af migrene, stressi eða vöðvabóigu? Þá
gæti ég ef til vill hjálpað.
Lausir tímar. Uppl. í síma 72072.
El Salvadornefndin
Margir styðja
baráttu okkar
Hólmfríður Garðarsdóttir: Samúð íslendinga með baráttu
alþýðunnar í Mið-Ameríku er þó mun minni en í
nágrannalöndunum
Fjölmennur og kröftugur fundur okkar við bandaríska sendiráðið meðan á
leiðtogafundinum stóð er mikil hvatning fyrir vetrarstarfið. Ljósm.: E.Ol.
Á meðan á leiðtogafundi stór-
veldanna stóð gekkst E1 Salvador
nefndin á íslandi fyrir fundi við
víggirðingu lögreglumanna við
bandaríska sendiráðið þar sem
íhlutun Bandaríkjanna í Nicar-
agua var harðlega mótmælt.
Fundurinn, sem haldinn var í
framhaldi af friðarfundinum á
Lækjartorgi, var mjög vel sóttur
og stemmningin var svo rífandi
kröftug að mörgum kom á óvart.
Fundurinn virðist hafa vakið
meiri athygli erlendis en hér á
landi, því margar erlendar sjón-
varpsstöðvar gerðu honum skil i
fréttatímum sínum sem og dag-
blöð á síðum sínum á meðan ís-
lenskir fjölmiðlar hafa verið
fremur afskiptir gagnvart þessum
mótmælum. Þjóðviljinn hafði í
framhaldi af þessum fundi sam-
band við formann El Salvador
nefndarinnar, Hólmfríði Garð-
arsdóttur, og spurðist fyrir um
starf nefndarinnar. Hvort t.d.
samtökin væru búin að ræða
hvernig hægt væri að fylgja þeirri
stemmningu eftir sem var á fund-
inum.
“Við erum nú að byrja að ræða
aðgerðir vetrarins og það verður
að segjast að þessi fundur virkar
mjög hvetjandi fyrir starfið.
Maður fann t.d. á þessum fundi
hversu margir það eru sem styðja
baráttu okkar þótt fólk sé ekki
virkt.
Venjulegt vetrarstarf hjá okk-
ur hefur verið m.a. jólasöfnun,
en þá er safnað í eitthvert ákveð-
ið verkefni hverju sinni. Við
eigum eftir að ræða endanlega
hvert jólasöfnunin í ár rennur, en
það er líklegt að það verði til
frelsuðu svæðanna í E1 Salvador
vegna jarðskjálftanna sem hafa
verið þar í landi. Samkvæmt ör-
uggum heimildum þá hafa um 20
þúsund heimilislauss fólks leitað
inná þessi svæði í von um hjálp.
Við vitum að fólki hefur verið
mismunað í björgunarstarfinu í
E1 Salvador þannig að íbúar fá-
tækrahverfanna hafa verð látnir
mæta afgangi. Það er aðallega
þetta fólk sem hefur leitað inná
frelsuðu svæðin. E.t.v. er það
sama að gerast í E1 Salvador og í
jarðskjálftunum í Nicaragua á
tímum Somosastjórnarinnar þeg-
ar björgunargögnin sem þangað
voru send voru seld þeim sem
gátu borgað."
Hvernig hefur jólasöfnunin hjá
ykkur gengið undanfarin ár?
Yfirleitt mjög vel. Við höfum
bæði safnað á götum úti og leitað
til verkalýðs- og félagasamtaka
og oftast fengið einhverja styrki
þaðan. í fyrra fengum við sér-
staka viðurkenningu frá miðstöð
samstöðuhreyfinga E1 Salvador í
Stokkhólmi vegna öflugs söfnun-
arstarfs.
Hafið þið mikið samstarf við
sambærilegar hreyfingar í ná-
grannalöndunum?
Já mjög mikið. Mest er það þó í
tengslum við upplýsingasöfnun.
Það er athyglisvert að sambæri-
legar hreyfingar í nágrannalönd-
unum hafa miklu meiri og
breiðari stuðning en við hér.
Hreyfingin í Noregi starfar t.d. í
nánum tengslum við kirkju-
deildir þar. Á fslandi virðist bara
vera svo lítil samúð með baráttu
alþýðunnar í Mið-Ameríku.
Þið gefið út blað?
Já, það er eitt af okkar föstu
verkefnum. Blaðið heitir Mið-
Ameríka og í því eru mest greinar
um landssvæði Mið-Ameríku en
líka um önnur lönd latnesku Am-
eríku.
Hvert getur fólk snúið sér ef
það hefur áhuga á starfi El Salva-
dor nefndarinnar?
Við erum með skrifstofu að
Mjölnisholti 14 sem er opin á
þriðjudögum og fimmtudögum á
milli klukkan 5 og 7. Þar höldum
við líka okkar reglulegu fundi
sem eru u.þ.b. einu sinni í mán-
uði. Nú, ef einhver hefði áhuga á
því að styðja okkur fjárhagslega,
eða byrja að leggja í jólasöfnun-
ina, þá er gírónúmer okkar 59957
í Búnaðarbankanum við Hlemm.
-K.Ól.
Utför
Þorbjargar Sigurðardóttur
frá Borgarfirði eystri
verður gerð frá Fossvogskirkju fimmtudaginn
30. október kl. 15.
Fyrir hönd aðstandenda hinnar látnu
Sigurður Bragi Stefánsson
LJÓSASKOÐUN
SKAMMDEGIÐ
FER í HÖND.
Viö aukum öryggi i umferóinni með
því aö nota ökuljósin allan
sólarhringinn. rétt stillt og í góöu lagi.
Ljósaperur geta aflagast á skömmum tíma.
og Ijósaperur dofna smám saman við notkun
Þannig getur Ijósmagn þeirra rýrnað um
allt að því helming.
31. OKTÓBER á Ijósaskoöun aö vera
lokið um allt land.
|JUMFERÐAR
14 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 29. október 1986