Þjóðviljinn - 29.10.1986, Blaðsíða 16
1936-1986 ÞJÓÐVILJINN 50 ÁRA
Mlðvikudagur 29. október 1986 246. tölublað 51. órgangur Aðalsími: 681333. Kvöldsími: 681348. Helgarsími: 681663.
Vari
Vesturland
Jón vill ekki rannsókn
Jóhann
hættir
Öryggisþjónustan Varifœrenn viðurkenningu stjórnvalda. Kristján
Gunnarsson: Höfum sannanir
Jón Helgason dómsmálaráð-
herra hefur komist að þeirri
niðurstöðu að ekki sé ástæða til
þess að fram fari opinber rann-
sókn á starfsemi öryggisþjónust-
unnar Vara. Nokkrir starfsmenn
Securitas fóru fram á slíka rann-
sókn fyrir nokkru.
Kristján Gunnarsson var einn
af þeim sem fóru fram á að starf-
semi Vara yrði rannsökuð. Krist-
ján sagði í samtali við Þjóðviljann
í gær að hann væri mjög óánægð-
ur með þessa niðurstöðu
dómsmálaráðuneytisins. „Þetta
er einhver sú klaufalegasta af-
greiðsla á máli sem ég hef orðið
vitni að. Þetta er greinilega mál
sem Jón Helgason treystir sér
ekki til að afgreiða, þannig að
það er einfaldlega þaggað niður í
okkur. Við höfum hins vegar
sannanir fyrir ýmsu því sem við
bentum ráðherranum á í bréfi
okkar,“ sagði Kristján í gær.
Hjalti Zóphaníasson hjá
dómsmálaráðuneytinu sagði í
gær að farið hefði verið ofan í
einstök atriði er varða starfsemi
fyrirtækisins. Þar kom m.a. fram
að brotist var inn í stjórnstöð
Vara á sínum tíma, en Hjalti
sagði að búið væri að tryggja að
slíkt kæmi ekki fyrir aftur. Enn-
fremur kom í ljós að tengsl Vara
við lögregluna væri nokkuð náin.
M.a. hefði Grétar Norðfjörð lög-
reglumaður komið fram í auglýs-
ingu frá fyrirtækinu. Hjalti sagði
þetta atriði vissulega aðfinnslu-
vert, en ekki ástæðu til að rann-
saka það nánar.
Að þessari niðurstöðu fenginni
hefur Vari enn fengið viðurkenn-
ingu stjórnvalda, en starfsmenn
Securitas eru á annarri skoðun en
stjórnvöld og telja Vara a.lls ekki
veita boðlega þjónustu á þessu
sviði.
-gg
Akranes
30 miljóna
halii
Endurskoðuð fjárhagsáœtlun
fyrrverandi meirihluta: Tekjur
ofáætlaðar. Rekstrargjöld vanáætluð.
Niðurskurður ogfrekari skuldasöfnun
fyrirsjáanleg
Bæjarstjórn Akraness hefur
staðið frammi fyrir tæplega
30 mifjón króna halla á fjárhagsá-
ætlun fyrrverandi meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks. Brugðist verður við þeim
vanda með niðurskurði þar sem
það er mögulegt, fjármagnsöflun
með skuldabréfaútboði og lán-
tökum.
Guðbjartur Hannesson bæjar-
fulltrúi Abl. sagði í samtali við
Þjóðviljann í gær að í fjárhagsá-
Þjóðviljinn
Afmæliskaffi
á föstudaginn
Opið hús á Þjóðviljanum
frákl. 14-18
í tilefni af 50 ára afmæli Þjóð-
viljans 31. október býður Þjóð-
viljinn velunnurum sínum og
stuðningsmönnum í heimsókn og
afmæliskaffl.
Opið hús verður hjá Þjóðvilj-
anum að Síðumúla 6 frá kl. 14.00
- 18.00 á föstudag þar sem fólki
gefst kostur á að kynnast starf-
seminni og fagna þessum tíma-
mótum í sögu blaðsins.
ætlun fyrrverandi meirihluta
Sjálfstæðisflokks og Alþýðu-
flokks hefðu tekjur bæjarins á ár-
inu verið ofáætlaðar um 5.5 milj-
ónir króna, rekstur hefur farið 19
miljónir fram út áætlun og auk
þess hafa framkvæmdir kostað
meira en til var ætlast.
Guðbjartur sagði að þar sem
svo langt væri liðið á árið væri
sama og ekkert hægt að skera
niður í framkvæmdum, en þó
væri óhjákvæmilegt að skera nið-
ur um 4.3 miljónir þar. Það hefur
þó ekki áhrif á framkvæmda-
hraða við byggingu sundlaugar
og dvalarheimilis. Þá hefur verið
ákveðið að efna til skuldabréf-
aútboðs til þess að fjármagna
framkvæmdir við skólabygg-
ingar. Þá er áætlað að eftir standi
tæplega 20 miljónir króna, en bæ-
jarstjóra verður falið að leysa
þann vanda. Það þýðir í raun að
reynt verður að fá lán til þess að
velta þeim peningum fram á
næsta ár.
Hluti skýringarinnar á rekstr-
arhalla bæjarins er að í vor var
gerður samningur við bæjar-
starfsmenn sem tryggir þeim í
raun 30 þúsund króna lágmarks-
laun. Verulegar hækkanir náðust
fram í þeim samningum með
launaflokkahækkunum, þannig
að lægstu laun eru miðuð við 60.
flokk, 5. þrep í launatöflu BSRB.
-gg
ASTElGNASAtA
u UUFAR 4ÁCOÖSI
mmm mmm u
K ^ICELAND SAFAI
Ekki allir veðurfúiir í Reykjavík
(Mynd: E.Ól.)
Skúli stefnir í 1. sœti.
Annað sœti óljóst
Jóhann Ársælsson varaþing-
maður Alþýðubandalagsins í
Vesturlandskjördæmi er ákveð-
inn í að gefa ekki kost á sér í forval
flokksins fyrír næstu kosningar.
„Það er langt síðan ég ákvað að
fara ekki fram og ég á ekki von að
það breytist," sagði Jóhann þegar
hann var spurður um þetta í gær.
Jóhann var í öðru sæti á lista Al-
þýðubandalagsins fyrir síðustu
kosningar.
Skúli Alexandersson þingmað-
ur er hins vegar staðráðinn í að
halda því sæti sínu. Að öðru leyti
eru framboðsmál Abl. á Vestur-
landi mjög óljós. Ákveðið hefur
verið að fram fari forval í einni
umferð, en enn liggur ekki Ijóst
fyrir hvenær til þess verður efnt.
-gg
Samband sveitarfélaga
Skerðingu
mótmælt
Stjórn Sambands íslenskra
sveitarfélaga hefur mótmælt
harðlega þeirri skerðingu á lög-
bundnum framlögum ríkisins til
sveitarfélaga sem gerð er tillaga
um í fjárlagafrumvarpi ríkis-
stjórnarinnar.
í frumvarpinu eru lögbundin
framlög í Jöfnunarsjóð sveitarfé-
laga skorin niður um nær 400
miljónir og þar á meðal er gert
ráð fyrir því að 130 miljón kr.
hlutur ríkisins í skólaakstri
greiðist með samsvarandi frá-
drætti frá tekjum Jöfnunarsjóðs.
Stjórnin minnir á það, að
stefna fjárlagafrumvarpsins
gengur þvert á yfirlýsta stefnu
ríkisstjórnar um afstöðu ríkis til
sveitarfélaga, segir í samþykkt-
inni.
-lg
Sjúkraliðar
Hætta í mars
Borgarráð ákvað í gær að fram-
lengja uppsagnarfrest sjúkraliða
sem sagt hafa upp störfum sínum
hjá borginni. Uppsagnir sjúkra-
liða koma því ekki til fram-
kvæmda fyrr en í mars á næsta
ári, en upphaflega áætlunin var
sú að uppsagnir tækju gildi um
áramótin. Enginn ágreiningur
var um þessa ákvörðun í borgar-
ráði.
-gg
AFMÆLIS-
HAPPDRÆTTI
ÞJÓÐVILJANS
Dregið 31. október
Munið gíróseðlana
Gerum lokaátakið glæsilegt