Þjóðviljinn - 22.11.1986, Qupperneq 2

Þjóðviljinn - 22.11.1986, Qupperneq 2
SPURNINGIN' Hvað ferðu með í helgar- innkaupin? Steinunn Vilhjálmsdóttir: Ég fer meö svona 2700 krónur fyrir okkur tvö. Mér finnst þaö nú mikið miðað við launin. Hanna María Kristjónsdótt- ir: 4-5 þúsund krónur. Við erum 5 í heimili. Þetta er allt of mikið, það fer svo að segja allt kaupið í kaupmanninn. Sigurlaug K. Unnsteinsdóttir: Við erum fjögur í heimili og kaupum inn fyrir svona 1500 krónur. Það kemur nú til af því að við erum með frystikistuna fulla af kjötvörum og kaupum því mjög sjaldan kjöt. Ólafur Þ. Jónsson: Ég er að kaupa fyrir fimm manns og það kostar um 4000 krónur. Það er nú nokkuð vel sloppið, en ef þú miðar þetta við kauptaxta verkalýðsfélaganna lítur dæmið svolítið öðruvísi út. Eyrún Kristinsdóttir: Ég fer með 4-5 þúsund fyrir okkur fimm, hjónin og þrjú börn. Mér finnst þetta satt að segja mjög mikið, en ég get ekki án þess ver- ið sem er hérna í körfunni hjá mér. FRÉTTIR Tekist á við Sálumessu Mozarts. Hörður Áskelsson stjómar Modettukórnum á æfingu í Hallgrímskirkju. Ljósm. Sig. Tónlist Hallgrímskirkja er hljóðfærí Módettukórinnflytur Sálumessu Mozarts ídag. Aukatónleikar á mánudag Hallgrímskirkja er eins og stórt hijóðfæri, sem læra þarf á með reynslunni, sagði Trausti Þór Sverrisson úr Módettukór Hall- grímskirkju í samtali við Þjóð- viljann, en kórinn flytur Sálu- messu Mozartsíkirkjunni kl. 17 á sunnudaginn. Þetta eru fyrstu stóru tónleik- arnir í kirkjunni frá því að hún var vígð, og munu margir bíða spenntir eftir að heyra hvemig hún nýtist til tónlistarflutnings. Trausti sagði að hljómburður- inn í kirkjunni lofaði góðu og allt benti til þess að hann myndi henta kirkjutónlist sérstaklega vel. Trausti sagði að tónn lifði í 7 sekúndur í kirkjunni tómri, en þessi tími styttist um 3 sekúndur ef hún er fullsetin fólki. Hallgrímskirkja skapar ný við- horf til tónlistarflutnings hér á landi, sagði Trausti, þar sem ekki eru til sambærilegir salir hér á landi. Sagði hann að kirkjan myndi trúlega henta síður til flutnings hljómsveitarverka, en munurinn á Hallgrímskirkju og Langholtskirkju, þar sem einnig er góður hljómburður, væri fyrst og fremst fólginn í því að ómtím- inn í Hallgrímskirkju væri Iengri. Hins vegar er hægt að stytta óm- tímann með ýmsum ráðum, auk þess sem möguleiki væri á að flytja tónlistina úr miðri kirkj- unni eða jafnvel að skipta kórn- um á tvo staði. í þessu sem öðru þurfum við að læra af reynslunni, sagði Trausti, en hins vegar virtist hljómurinn dreifast nokkuð jafnt um alla kirkjuna þótt sungið sé úr kórnum. Sálumessa Mozarts verður nú flutt úr kórnum. Kórfélagar eru 60 en auk þess leikur 30 manna kammerhljóm- sveit. Einsöngvarar verða þau Sigríður Gröndal, Sigríður Ella Magnúsdóttir, Garðar Cortes og Kristinn Sigmundsson. Kons- ertmeistari er Szymon Kuran en Prófkjör fer fram hjá Alþýðu- flokknum í Reykjavík um næstu helgi og gefst þátttakendum kost- ur á að velja frambjóðanda í 4. sæti listans, en þrír eru um hit- una. Framboðsfrestur vegna próf- kjörsins rann út í vikunni og barst aðeins 1 framboð í hvert þriggja efstu sætanna, Jón Sigurðsson, stjórnandi er Hörður Áskelsson. Sálumessa verður flutt aftur á mánudag kl. 20.30. ólg Jóhanna Sigurðardóttir og Jón Baldvin Hannibalsson sem öll eru sjálfkjörin. Um fjórða sætið slást þau Björgvin Guðmundsson, Jón Bragi Bjamason og Lára V. Júlí- usdóttir. Frambjóðendurnir halda sameiginlegan kynningarf- und í Broadway á sunnudag kl. 14.00. Athugasemd A Iþýðuflokkurinn Prófkjör um 4. sæti Ráðstefna Laun í f iski í dag gengst Fiskiðn fyrir ráð- stefnu um launakjör f fískiðnaði á Hótel Hofi við Rauðarárstíg í Reykjavík. Þar tala Ágúst Elíasson frá VSÍ, Hrafnkell A. Jónsson Eski- firði, Björn Grétar Sveinsson Hornafirði, Gísli Erlendsson frá Rekstrartækni, Marteinn Frið- riksson Sauðárkróki, Einar Víg- lundsson Þórshöfn, Andrés Þórðarson Verkfræðistofunni Vistu og Snorri Styrkársson frá Fiskiðn, fagfélagi fiskiðnaðarins. Á eftir verða umræður. Ráðstefnan verður sett kl. 10 og stendur til 16.30. Gunnar Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Starfsmannafélags ríkisstofnana, stéttarfélags míns og þar sem ég er stjórnarmaður, gerir hér í blaðinu í dag að um- talsefni frétt í Stöð 2 fyrir röskum tveim vikum. í þeirri frétt var sagt frá því að framboði mínu í forvali Alþýðubandalagsins væri sérstaklega beint gegn Þresti Ól- afssyni, framkvæmdastjóra Dagsbrúnar. Gunnar kvartar yfir því að engin athugasemd hefði komið frá mér vegna þessarar fréttar (sem hann tímasetur rang- lega). Fyrrgreind frétt var að sjálf- sögðu að öllu leyti á ábyrgð Stöðvar 2, þar staðfesti ég að vísu hluta þessarar fréttar, en aðeins hluta. Það er alltaf spuming hve langt á að ganga í að leiðrétta á opinberum vettvangi stílfæringar og dramatík fjölmiðla, sem standa í harðri samkeppni. Þess má þó geta að sjónvarpsstöðin sleppti mikilvægum skýringum og fyrirvörum í fyrrgreindri „staðfestingu“ minni. En það er rétt að ein af mörg- um ástæðum þess að ég gaf kost á mér í forvali Alþýðubandalagsins var sú að ég taldi óheppilegt ef enginn félagsmaður BSRB væri ofarlega á lista Alþýðubanda- lagsins ef þar væru saman ofar- lega forseti ASÍ og framkvæmda- stjóri Dagsbrúnar. Þetta ber að skoða í ljósi þess að ég styð fors- eta ASÍ, Ásmund Stefánsson, í forvalinu. Opinberir starfsmenn eru þriðjungur allra launþega á höfuðborgarsvæðinu og skv. skoðanakönnunum er fylgi Al- þýðubandalagsins mest meðal þeirra af öllum atvinnuhópum. Gunnar Gunnarsson ber bæði lof og löst á Þröst sem samnings- aðila atvinnurekendamegin við samningsborðið árin 1980-1983. Auðvitað er enginn algóður eða alvondur eb misjafnt metum við mennina og ég hygg að ekki séu allir sammála öllu lofinu (eða lastinu) hjá Gunnari. En einnig eru margir BSRB félagar ósáttir við framkomu Þrastar sem fram- kvæmdastjóra Dagsbrúnar í verkfalli BSRB haustið 1984. 21. nov. 1986 Jóhannes Gunnarsson S Fjórði hamborgarinn! WÁ Hvernig var með Tf'l | megrunarkúrinn?? Hvað með yfirlýsingarnar um viljastyrk og einbeitingu? Át þær líka ofaní mig MM.V9 t 2 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. nóvember 1986

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.