Þjóðviljinn - 22.11.1986, Qupperneq 4
___________LEIÐARI ______
Ihaldið og Albert
Framboösraunir Sjálfstæöisflokksins í
Reykjavík sýnast þyngri en tárum taki. Og fátt
bendirtil aö þeim muni Ijúkaá næstunni. Þannig
eru forystugreinar Morgunblaðsins fullar með
skuggalegum spádómum sem ekki er hægt aö
túlka öðruvísi en sem fyrirboða sögulegra átaka
áöur en framboðslistinn í Reykjavík verður full-
hamraður.
Enn stendur mönnum í fersku minni ágrein-
ingurinn sem varð kringum prófkjörið í Reykja-
vík. Gráar fyrir járnum stóðu þá fylkingar and-
spænis hvorannarri,- þeir sem studdu Albert og
þeir sem voru á móti Albert.
Innan fjandafylkingar Alberts sáði að vísu
flokksforystan fræjum sundrungarinnar, sem
með dyggri aðstoð Morgunblaðsins leiddi til
þess að andstæðingar Alberts komu sér ekki
saman um kandídat í efsta sætið gegn Hafskip
hf. Og „það sem helst hann varast vann, varð
þó að koma yfir hann“, - eftir að Birgir ísleifur,
Friðrik Sophusson og Eykon höfðu slegist inn-
byrðis sigldi Albert framúr og kom fyrstur til
hafnar.Meðlangt innanvið40prósent atkvæða
í fyrsta sætíð og ótrúlega litlausan lista á bak við
augum kjósenda þýddi þetta að sjálfsögðu
ekkert annað en fyrirgefningu syndanna til
handa Hafskip hf. Sjálfstæðisflokkurinn gekk
með þessu fram fyrir skjöldu og endurreisti þá
sem í augum alþjóðar voru siðferðilega ábyrgir.
Með úrslitunum í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins var fáni Hafskips dreginn að húni, - flokkur-
inn kaus sér að heyja kosningabaráttuna með
hann að oddveifu.
Skoðun þjóðarinnar á tengslum Alberts Guð-
mundssonar við Hafskip hf. var einkar skýr.
Hann er talinn siðferðilega ábyrgur. Það kom
gjörla fram í skoðanakönnun HP, þar sem yfir
70 prósent aðspurðra töldu að ráðherrann ætti
að segja af sér.
Kjör Alberts í efsta sætið á framboðslistanum
gat því aldrei orðið annað en ávísun á fylgistap.
Fjölmargir af heiðarlegum stuðningsmönnum
Sjálfstæðisflokksins litu á tengsl hans við Haf-
skip sem hneyksli sem flokkurinn yrði á ein-
hvern hátt að þvo af sér. Niðurstaða prófkjörs-
ins hlaut að verða reiðarslag fyrir þetta fólk, og
rökrétt að það liti í f ramhaldinu til annarra flokka.
Þetta hefur nú verið staðfest af skoðana-
könnun Félagsvísindastofnunar, sem birtist
fyrir nokkru.
Þar kom í Ijós, að meðan Sjálfstæðisflokkur-
inn tapaði um tveimur prósentum í kjördæmum
utan suðvesturhornsins, þá missti hann meira
en þrefalt meir eða 7,2 prósent, af fylgi sínu í
Reykjavík.
Þetta stafar auðvitað að verulegu leyti af kjöri
Alberts Guðmundssonar í efsta sæti fram-
boðslistans. Tapið á landsbyggðinni kann einn-
ig að eiga nokkrar rætur til þeirrar niðurstöðu, -
því sömuleiðis þar hlýtur áréttun á tengslum
flokksins við Hafskip að rýra fylgi flokksins.
Forysta flokksins gerir sér grein fyrir þessum
mikla veikleika. Þess vegna eru nú uppi sterkar
raddir um að breyta niðurstöðum prófkjörsins í
Reykjavík. Færa Albert niður og setja nýjan
mann í efsta sætið, - eða hreinlega varpa Albert
á dyr, allt eftir því hvernig þróunin verður á
næstu mánuðum. Morgunblaðið leggur sér-
staka áherslu á þennan möguleika í forystu-
grein sinni síðastliðinn sunnudag: „Sé það mat
manna að ánægja með röðun á framboðslista
vegi þungt í svörum kjósenda í könnun Félags-
vísindastofnunar, er enn tækifæri til breytinga."
Nú hafa gerst atburðir, sem enn frekar auka
líkur á því að staða Alberts á framboðslista
flokksins í Reykjavík dragi úr fylgi hans. í HP í
vikunni er staðhæft, að mjög víðtæk rannsókn
fari nú fram hjá embætti ríkisskattstjóra og
skattrannsóknastjóra á „skattalegri hlið Haf-
skipsmálsins". í framhaldi af því kveður blaðið
að búast megi við málaferlum á hendur Albert
Guðmundssyni.
Þetta hlýtur að veikja enn tiltrú manna á lista
Sjálfstæðisflokksins. Fyrir bragðið hlýtur sá
möguleiki sem Morgunblaðið reifar í fyrrnefndri
forystugrein að verða enn nærtækari en ella.
-ÖS
UIIIUIAUUIÍUUIUIUIUIUIUUIUIIUIIUIIIII
þJÓÐVILIINN
Málgagn sósíalisma, þjóðfrelsis
og verkalýðshreyfingar
Útgefarvdi: Útgáfufólag Þjóðviljans.
Rltstjórar: Árni Bergmann, Þráinn Bertelsson, össur
Skarphóðinsson.
Fróttastjórl: Lúðvík Geirsson.
Blaðamenn: GarðarGuðjónsson, Ingólfur Hjörleifsson, Kristín
Ólafsdóttir, Magnús H. Gíslason, MörðurÁmason, ÓlafurGíslason,
Sigurður Á. Friðþjófsson, Valþór Hlöðversson, Vilborg Davíðsdóttir,
Víðir Sigurðsson (íþróttir), Yngvi Kjartansson (Akureyri).
Handrlta- og prófarkalesarar: Andrea Jónsdóttir, Elías Mar.
Ljósmyndarar: Einar Ólason, Sigurður Mar Halldórsson.
Útlltsteiknarar: Sævar Guðbjörnsson, GarðarSigvaldason.
Framkvæmdastjóri: Guðrún Guðmundsdóttir.
Skrifstofustjóri: Jóhannes Harðarson.
Skrifstofa: Guðrún Guðvarðardóttir, Magnús Loftsson.
Auglýsingastjóri: Sigriður Hanna Sigurbjörnsdóttir.
Auglýslngar: Ásdís Kristinsdóttir, Guðbergur Þorvaldsson, Olga
Clausen, Guðmunda Kristinsdóttir.
Símvarsla: Katrín Anna Lund, Sigríður Kristjánsdóttir.
Húsmóðir: Ólöf Húnfjörð.
Bílstjóri: Jóna Sigurdórsdóttir.
Afgreiðslustjóri: HörðurOddfríðarson.
Afgreiðsla: Ðára Sigurðardóttir, Krístín Pétursdóttir.
Innhelmtumenn: Brynjólfur Vilhjálmsson, ólafurBjörnsson.
Útkeyrsla, afgreiðsla, ritstjórn:
Síðumúla 6, Reykjavík, síml 681333.
Auglýsingar: Síðumúla 6, sfmar 681331 og 681310.
Umbrotog setning: Prentsmiðja Þjóðviljanshf.
Prentun: Blaðaprent hf.
Verð í lausasölu: 50 kr.
Helgarblöð: 55 kr.
Áskriftarverð á mánuði: 500 kr.
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. nóvember 1986