Þjóðviljinn - 22.11.1986, Qupperneq 6
IÞROTTIR
Evrópukeppni bikarhafa
Þrjú mörk þó ekki nóg með
Júgóslövunum
Gylfi Birgisson fékk oft óblíðar móttökur hjá sterkri vörn Júgóslavanna og hér er honum kyrfilega haldið af tveimur þeirra.
Gylfa tókst þó að skora með nokkrum glæsilegum langskotum í leiknum. Mynd: E.ÓI.
Stjarnan getur borið höfuðið
hátt eftir 20-17 sigur á Dinos Slo-
van frá Júgóslavíu i Laugardals-
höllinni f gærkvöldi þrátt fyrir að
hann dygði þeim ekki til að kom-
ast í 8-liða úrslit Evrópukepp-
ninnar. Garðbæingar áttu aldrei
virkilegan möguleika á að vinna
upp sjö marka forskot Júgósla-
vanna úr fyrri ieiknum - hefðu
þeir þó nýtt hraðaupphlaup á 10.
mín. seinni hálfleiks og komist
þar í 14-10 er ekki að vita hvað
hefði gerst.
„Við sýndum í þessum leik að
við erum með gott lið á á réttri
leið og það skipti sköpum að Páll
Björgvinsson lék loksins með frá
byrjun. Það var gífurleg barátta
hjá okkur og þetta er
skemmtilegasti leikurinn á mín-
um ferli þó maður sé ekki ánægð-
Hafnarfjörður -
Garðabær
Okkur vantar umboðsmann í Hafnarfirði oa
Garðabæ, frá og með næstu mánaðamótum. I
starfinu felst að ráða blaðbera fyrir svæðið, koma
blöðunum til blaðbera og á útsölustaði á hverjum
morgni nema sunnudaga og mánudaga og uppg-
jör við blaðbera. Einnig þarf viðkomandi að sinna
kvörtunum fyrir svæðið.
Upplýsingar veitir Hörður í símum 681663 og
681333 og Kristín í síma 686300 alla virka daga
milli 9.00 og 16.00.
Þjóðviljinn - Tíminn - Alþýðublaðið
Úrvalsdeildin
UMFNeitt
á toppnum
Stórsigur á Valsmönnum í gœrkvöldi
ur með að hafa fallið úr keppn-
inni, sagði Hannes Leifsson fyrir-
liði Stjörnunnar eftir leikinn.
Páll Björgvinsson var svo sann-
arlega betri en enginn hjá Stjöm-
unni. Hann batt liðið saman í
sókn og vörn og reynsla hans í
svona stórleikjum var Garðbæ-
ingunum ómetanleg í þeirra
fyrsta heimaleik í Evrópukeppni.
Stjaman virtist í byrjun ekki lík-
leg til stórræðanna en liðið óx
eftir því sem leið á leikinn og lét
aldrei forystuna af hendi eftir að
hafa náð henni rétt fyrir hlé.
Dinos Slovan er miðlungslið í
Júgóslavíu, sem þýðir að það er
vel frambærilegt á alþjóðlegum
mælikvarða og stendur t.d. hinu
sterka Metaloplastica langt að
baki. Stjömumenn bám of mikla
virðingu fyrir því í fyrri leiknum
og átta marka forskotið sem Din-
os náði þá fyrir hlé réði úrslitum
þegar upp var staðið.
Stemmningin hjá þúsund áhor-
fendum var góð í Höllinni í gær-
kvöldi en þessir þúsund sem sátu
heima hefðu getað brotið þá júg-
óslavnesku á bak aftur.
-VS
Dagheimilið
Völvuborg
Fóstra eða starfsmaður með hliðstæða menntun
óskast í stuðningsstöðu.
Einnig vantar okkur starfsmann í Vz stöðu eftir
hádegi.
Völvuborg er lítið, þriggja deilda dagheimili, vel
mannað af fóstrum og góðu starfsfólki.
Upplýsingar gefa forstöðumenn í síma 73040.
Bændur
Framleiðnisjóður landbúnaðarins greiðir verð-
laun fyrir slátrun ungkálfa með minni fallþunga en
30 kg. kr. 3.000.- fyrir hvern kálf.
Þetta gildir frá 1. nóvember s.l.
Framleiðsluráð landbúnaðarins
VEISLUR - SAMKVÆMI
Skútan h/f hefurnú opnað glæsilegan sal, kjörinn
fyrir árshátíðar, veislur, fundi félagasamtaka og alls
kyns samkvæmi. Leggjum áherslu á góðan mat og
þjónustu.
SKÚTAN HF.
Dalshrauni 15, Hafnarf irði, sími 51810 og 651810.
Njarðvíkingar eru einir á toppi
úrvalsdeildarinnar í körfuknatt-
leik, a.m.k. framá sunnudag,
eftir stórsigur í toppleiknum gegn
Valsmönnum i gærkvöldi, 88-66.
Njarðvíkingar voru með yfir-
höndina nær allan leikinn en
Valsmenn minnkuðu muninn í
sex stig þegar átta mínútur voru
eftir. Því svöruðu heimamenn
með 15 stigum gegn einu á næstu
mínútum og þar með voru úrslitin
endanlega ráðin.
Leikurinn var harður og ein-
kenndist af mikilli baráttu, enda
lentu margir í villuvandræðum.
Undir lokin voru tveir lykilmenn
beggja, Valur og ísak hjá UMFN
og Sturla og Tómas hjá Val,
komnir útaf með 5 villur og marg-
ir aðrir voru með fjórar.
Heimamenn léku lengst af vel
með Val Ingimundarson og
Hreiðar Hreiðarsson sem bestu
menn ásamt Helga Rafnssyni.
Hreiðar lék stærra hlutverk en
oftast til þessa í vetur. Teitur ör-
lygsson átti góðar syrpur en lítið
bar á öðrum.
Valsmenn léku mjög köflótt.
Þeir keyrðu upp hraðann í byrjun
en duttu síðan niður - aftur í
seinni hálfleik, en síðan fór á
sömu leið. Þeir voru ekki
sannfærandi í heildina og hafa oft
leikið betur í Njarðvík. Einar Ól-
afsson og Sturla Örlygsson léku
mjög vel en aðrir voru mistækir.
-SÓM/Suðurnesjum
Laugardalshöll 21. nóvember
Stjarnan-Dinos 20-17 (10-
0-1, 1-2, 3-2, 4-3, 5-4, 5-7, 8-7, 10-
8, 10-9- 11-9, 13-10, 14-11, 15-12,
16-13, 16-15, 18-16, 18-17, 20-17.
Mörk Stjörnunnar: Páll Björgvins-
son 7, Gylfi Birgisson 4, Hannes Leifs-
son 4(2v), Skúli Gunnsteinsson 2, Sig-
urjón Guðmundsson 2, Hafsteinn
Bragason 1.
Mörk Dinos: Vuga 6, Mahne 4, Pet-
ernalj 2, Anderluh 2(2v), Tusek 1,
Praznik 1, Vulteta 1.
Dómarar: Anderson og Hellström
(Danmörku) - góðir.
Maður lelkslns: Páll Björgvinsson,
Stjörnunni.
Knattspyrna
Guðmundur til Beveren
Guðmundur Torfason, marka-
kóngur úr Fram, hefur gert
lánssamning við belgíska 1. deildarl-
iðið Beveren og gildir hann til 1. júnf
1987. Guðmundur fer utan á mánu-
daginn og þar með er Ijóst að hann
leikur ekki með Frömurum næsta
sumar, a.m.k. ekki fyrr en eftir 1.
júlf.
-VS
Njarðvík 21. nóvember
UMFN-Valur 88-66 (51-37)
4-6, 6-12, 14-14, 24-17, 26-22, 41-
33, 51-37 - 59-44, 67-49, 67-61,76-
61,82-62, 88-66.
Stlg UMFN: Valur Ingimundarson
21, Hreiðar Hreiðarsson 20, Teitur ör-
lygsson 15, Helgi Rafnsson 11, Krist-
inn Einarsson 8, Jóhannes Kristb-
jörnsson 7, (sak Tómasson 6.
Stig Vals: EinarÓlafsson 20, Sturla
Örlygsson 12, Tómas Holton 11,
Leifur Gústafsson 10, Torfi Magnús-
son 8, Björn Zoega 5.
Dómarar: Ómar Scheving og J6n
Otti Ólafsson - góðir.
Maður leiksins: Hreiðar Hreiðars-
son, UMFN.
6 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN
Verkfræðingur
Laust er starf forstöðumanns hönnunardeildar
við embætti bæjarverkfræðings í Hafnarfirði.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf skulu
berast bæjarskrifstofunni í Hafnarfirði eigi síðar
en 4. desember n.k.
Bæjarstjórinn í Hafnarfirði
Stjaman stóð
sig með sóma